Tina St skrifaði:
Das Muster A.3 geht durchgehend über 12 Maschen. Wenn man 2 mal abnehmen soll, wei muss man dann das Muster anpassen? Wie soll ich da genau vorgehen?
07.08.2024 - 06:43DROPS Design svaraði:
Liebe Tina, das Muster wird dann (zwischen 1. und 2. Pfeil) über 4 Maschen wiederholt werden so passt es wieder mit 44 bzw 40 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
07.08.2024 - 08:12
Louise Smith skrifaði:
Why is there no PDF Link. I don't want to waste ink but could download the pattern and use it from my computer.
31.08.2021 - 00:23DROPS Design svaraði:
Dear Louise, if you click on the "print" ikon, then "continue to pattern" you can "save as PDF". Happy Stitching!
31.08.2021 - 00:29
Eve skrifaði:
Il y a un problème dans le nom du coloris 71 de la laine Karisma : ce n'est pas rose argenté mais beige clair. Ce serait utile de corriger cette petite erreur ;)
22.04.2016 - 16:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Eve, le coloris 71 en Karisma est bien "Rose argenté" conformément au nuancier. Bon tricot!
22.04.2016 - 17:53
YSEULT CARDE skrifaði:
Pour le béret n° 165-5 je ne trouve pas les explications des augmentations vous dites augmenter comme indiqué dans le schéma 156-168; Pouvez vous m'aider par avance je vous en remercie
26.03.2016 - 19:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Carde, les 2 premiers rangs de A.1 se font sur 8 m, puis on augmente 2 m au 3ème et au 5ème tour de A.1 en faisant 1 jeté après la 1ère m du motif et 1 jeté avant la dernière m du motif à répéter - tricotez ces jetés torse à l'end au tour suivant pour éviter un trou. Bon tricot!
29.03.2016 - 09:27
Patricia skrifaði:
Bonjour, Béret taille S/M. Je ne comprends pas la "NOTE". Comment tricoter les 2 tours suivants de diminutions après le premier où j'ai réparti 16 dim en tricotant ens toutes les 3ème et 4ème mailles. Qu'entendez vous par tricoter 1m en moins entre 2 tricotées ens à l'endroit. Je suis bloquée. Merci de votre aide.
14.10.2015 - 08:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Patricia, pour répartir 16 dim, vous avez tricoté *2 m end, 2 m ens à l'end*, au rang de diminution suivant, tricotez *1 m end, 2 m ens à l'end*, puis au suivant, tricotez toutes les m ens à l'end. Bon tricot!
14.10.2015 - 08:59
J.Parhan skrifaði:
Leuke set in mooie kleuren!
14.06.2015 - 22:08Anne How skrifaði:
Elegant and simple Fair Isle design. Great in natural colours of handspun wool.
10.06.2015 - 06:54
Gabriele skrifaði:
Ein sehr schönes Set und ein Hingucker...
02.06.2015 - 22:34
Dea skrifaði:
Bello!
29.05.2015 - 22:06
Sweet As Candy Set#sweetascandyset |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri basker / alpahúfu, hálsskjóli og handstúkum með marglitum mynsturbekk úr DROPS Karisma
DROPS 165-5 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynstur A.1 til A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- ALPAHÚFA / BASKER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. ALPAHÚFA / BASKER: Fitjið upp 104-112 l á hringprjón nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 3-4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt með litnum silfur bleikur. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 (= 13-14 mynstureiningar í umf) aukið út eins og útskýrt er í mynstri = 156-168 l á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf merktri með ör A í mynstri er fækkað um 22-24 l jafnt yfir (prjónið 6. og 7. hverja l slétt saman) = 134-144 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör B í mynstri er fækkað um 22-24 l jafnt yfir (prjónið 5. og 6. hverja l slétt saman) = 112-120 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör C í mynstri er fækkað um 24-26 l jafnt yfir (prjónið til skiptis 3. og 4. hverja l og 4. og 5. hverja l slétt saman) = 88-94 l. Haldið áfram með mynstur. Í umf merktri með ör D í mynstri er fækkað um 24-26 l jafnt yfir (prjónið til skiptis aðra og 3. hverja l og í 3. og 4. hverja l slétt saman) = 64-68 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með litnum silfur bleikur þannig: Prjónið * 1 umf slétt, síðan er prjónuð 1 umf þar sem fækkað er um 16-17 l jafnt yfir (prjónið 3. og 4. hverja l slétt saman) *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum (ATH: Í hverri umf sem lykkjum er fækkað er prjónuð 1 l færri áður en 2 l eru prjónaðar slétt saman) = 16-17 l. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan þær l sem eftir eru 2 og 2 slétt saman = 8-9 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 21-22 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón neðan frá og upp. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 290 l á hringprjón nr 3 með litnum silfur bleikur. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 3 l br). Þegar stroffið mælist 3 cm er lykkjum fækkað í annarri hverri mynstureiningu 3 l br til 2 l br (prjónið 2 fyrstu l br saman) = 261 l. Þegar stykkið mælist 4 cm eru 3 l br sem eftir eru fækkað í 2 l br = 232 l. Haldið áfram með stroff með 2 l sl, 2 l br þar til stykkið mælist 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 36 l jafnt yfir (prjónið til skiptis 5. og 6. hverja l og 6. og 7. hverja l slétt saman) = 196 l. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir A.2 (= 14 mynstureiningar í umf) og lykkjum er fækkað eins og útskýrt er í mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 112 l í umf. Prjónið 1 umf slétt með litnum silfur bleikur þar sem auknar eru út 16 l jafnt yfir (aukið út eftir 7. hverja l) = 128 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Hálsskjólið mælist ca 30 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- HANDSTÚKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. HANDSTÚKA: Fitjið upp 52 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum silfur bleikur (passið uppá að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur). Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 2,5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 4 l jafnt yfir (prjónið 12. og 13. hverja l slétt saman) = 48 l. Prjónið mynstur hringinn eftir mynstri A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umf merktri með ör 1 í mynstri er fækkað um 4 l jafnt yfir (prjónið 11. og 12. hverja l slétt saman) = 44 l. Endurtakið úrtöku í umf merktri með ör 2 í mynstri (þ.e.a.s. prjónið 10. og 11. hverja l slétt saman) = 40 l. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð 1 umf slétt með litnum silfur bleikur og aukið er út um 4 l jafnt yfir (aukið út um 1 l eftir 10. hverja l) = 44 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 2,5 cm. Fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið aðra handstúku á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetascandyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.