Birgit Wefers skrifaði:
Wunderschöne tragbare Jacke wirkt durch ihre Schlichtheit, bin gespannt auf die Anleitung, macht weiter so, danke für eure tollen Ideen*****
12.06.2015 - 18:47
Angela skrifaði:
Super schöne Jacke. Als Trachtenjacke und evtl. zweifarbig kann ich sie mir gut vorstellen. Freu mich schon auf die Anleitung!
11.06.2015 - 08:16
Ellis skrifaði:
A nice simple pattern to practice the use of different stitches or cables or colourwork. Nice.
08.06.2015 - 22:02
Nadine S skrifaði:
C'est beau la simplicité !
03.06.2015 - 08:59
Helli skrifaði:
Juuri sellainen klassinen ohje mitä kaipasin!
31.05.2015 - 15:23
Tove Jensen skrifaði:
Nydelig jakke med fine detaljer. Enkelt fint snitt.
30.05.2015 - 18:43
Eleonora skrifaði:
Mooi !!!
30.05.2015 - 17:06
Carmen Vallée skrifaði:
La couleur est irrésistible
30.05.2015 - 16:28
Truss De Vries skrifaði:
Enkel kofta med rolig detalj på armen som gör att det ser ut som två lager.
29.05.2015 - 14:17
Isabel skrifaði:
Schlicht und grün, wie's mir gefällt.
29.05.2015 - 10:34
Sweet Olivia Cardigan#sweetoliviacardigan |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca með laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-42 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni (séð frá réttu), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l brugðið saman og endið á 1 lykkju brugðið. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 9, 16, 24, 32, 40 og 48 cm STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm LASKALÍNA: Aukið út um 1 l hvoru megin við 11 laskalykkjur. Aukið út með því að prjóna 2 l sl í l bæði á undan og á eftir 11 laskalykkjum (= 2 l fleiri við hvert A.1). Öll útaukning er gerð frá réttu. MÆLING: Vegna garðaprjóns kemur flíkin til með að teygjast þegar hún er notuð. Þess vegna er öll lengd mæld þegar flíkin hangir uppi. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, prjónað er ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 106-106-106-114-114-114 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf slétt frá réttu þar sem aukið er út um 24 l jafnt yfir – ATH: Þær 5 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar brugðið og ekki er aukið út yfir þær (= kantlykkjur að framan )= 130-130-130-138-138-138 í umf. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (frá röngu): Prjónið 5 l br (= kantlykkjur að framan), 19-19-19-21-21-21 l sl (= hægra framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 20 l sl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 38-38-38-42-42-42 l sl (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 20 l sl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu l, prjónið 19-19-19-21-21-21 l sl (= vinstra framstykki) og endið á 5 l br (= kantlykkjur að framan). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR ER PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið síðan garðaprjón (1. umf = rétta), en í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma er prjónað A.1 (= 11 l – ATH: lykkjur með prjónamerki í eiga að passa við lykkjur með ör í mynstri), þær 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar brugðið í hverri umf til loka! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. ATH: Aukið er eins út á fram- og bakstykki og ermum þannig: FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) alls 13-21-26-34-42-53 sinnum og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 14-11-10-7-4-0 sinnum. ERMI: Aukið út í annarri hverri umf alls 17-19-18-20-18-21 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 12-12-14-14-16-16 sinnum. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið eru 354-382-402-438-458-498 l í umf og stykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl. Næsta umf er prjónuð frá röngu héðan: Prjónið 52-57-61-68-73-80 l (= hægra framstykki), setjið næstu 78-82-84-88-88-94 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóninn (= undir ermi), prjónið 94-104-112-126-136-150 l (= bakstykki), setjið næstu 78-82-84-88-88-94 l á þráð (= ermi), fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l á prjóni (= undir ermi) og prjónið næstu 52-57-61-68-73-80 l (= vinstra framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 210-230-250-278-302-330 l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka og kant að framan með brugðnum lykkjum – munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan. Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm, mælt frá skiptingu undir ermi (eða að óskaðri lengd) – LESIÐ MÆLING, Prjónið 1 umf br frá röngu þar sem aukið er út um 2 l jafnt yfir = 212-232-252-280-304-332 l í umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 3 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjur að framan brugðið og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Allt vestið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Setjið 78-82-84-88-88-94 l af þræði frá annarri hlið á stykki á sokkaprjóna nr 3 og fitjið að auki upp 6-6-8-8-10-10 nýjar l mitt undir ermi = 84-88-92-96-98-104 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT eftir 3 umf er fækkað um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 4-4-4-5-5-5 sinnum og síðan með 4½-3½-3-3-3-2 cm millibili alls 9-11-12-13-13-16 sinnum = 58-58-60-60-62-62 l. Þegar ermin mælist 48-48-48-47-47-47 cm (eða að óskaðri lengd), prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 2-2-4-0-2-2 l jafnt yfir = 56-56-56-60-60-60 l á prjóni. Prjónið 3 umf stroff (= 2 l sl, 2 l br). Fellið síðan LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetoliviacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-42
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.