Sissi skrifaði:
Hallo erst mal es ist eine tolle Anleitung. Nun zu meiner Frage , wird der krause Rand an den Taschen eingeschlagen oder dient er als Zierrand und ist sichtbar? Im vorraus vielen dank.
31.10.2017 - 12:15DROPS Design svaraði:
Liebe Sissi, diese Krausmaschen dienen als Zierrand und sind sichtbar. Viel Spaß beim stricken!
31.10.2017 - 15:36
Maddy skrifaði:
How should I figure out what size to use?
08.11.2016 - 23:57DROPS Design svaraði:
Dear Maddy, you will find at the bottom of the pattern a measurement chart with all measurements for each size, in cm, taken flat from side to side. Compare these to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more here. Happy knitting!
09.11.2016 - 10:05
Annie Vivi Nielsen skrifaði:
Jeg har strikket denne model i XXXL og har ikke brugt 600 g men kun 400 g,Det syntes jeg er meget dårlig vejledning.
08.07.2016 - 09:40Conny skrifaði:
Hallo, Hebben jullie ook patronen voor een (winter)vest die NIET met een rondbreinaald gebreid moet worden? Met "gewone" breinaalden breien vind ik veel prettiger en het gaat een stuk sneller...
07.07.2016 - 18:14DROPS Design svaraði:
Hoi Conny. Ja, er zijn veel patronen in de database - ook voor heen en weer breien. Maak gebruik van de zoekmachine om jouw patroon te vinden.
08.07.2016 - 13:36
Martine RONOT skrifaði:
J'ai rallongé le corps et les manches & j'ai pris deux pelotes de moins en taille XXXL, Bizarre
21.01.2016 - 18:34
Brau skrifaði:
Bonjour, je vois sur le schéma qu'il y a une différence de hauteur entre le dos et le devant ( encolure plus basse devant de 4 cm)alors qu'on ne travaille pas en rangs raccourcis après les cotes de l'encolure. merci de me dire comment l'encolure devant est plus basse. Cordialement Florence
12.10.2015 - 14:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Brau, les schémas sont standards, il n'y a effectivement pas de rangs raccourcis pour ré-hausser l'encolure dos pour ce modèle. Bon tricot!
12.10.2015 - 15:28
Cynthia skrifaði:
Thank YOU!!! reworked, and pattern is flowing perfectly!!! Cheers!!!
18.08.2015 - 10:58
Cynthia skrifaði:
Hi Wonderful Drops, Question: When I knit rib measures 4 cm / 1½'', and then K 1 row from RS while inc 10 sts evenly = 106 sts. Now I've switched to US 8, and begin dividing the front 17, sleeve 14, back 34, sleeve, 14, and front 17 = 96 sts, I have 10 extra sts. I must be wrong. Please help. I love this sweater, and can't wait to wear in the fall days. Thanks for all your help. Have a great day!!! :)
15.08.2015 - 23:54DROPS Design svaraði:
Dear Cynthia, when switching to US8, work: 5 st in garter st, P 17 (front piece), marker, P14 (sleeve), marker, ¨P34 (back piece), marker, P14 (sleeve), marker and P 17 (front piece) and finish with 5 sts in garter st. Remember the 5 sts each side in garter st (front band sts). Happy knitting!
17.08.2015 - 09:36Hortensia skrifaði:
Muy cómodo y abrigador. Me gustaría hacerlo en Alpaca
19.06.2015 - 23:07
José skrifaði:
Wat een prachtige kleur! mooi patroon. Ze zakken zou ik weglaten.
13.06.2015 - 16:36
Winter Wine Cardigan#winterwinecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air með laskalínu og vösum. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-21 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Fellið af fyrir hnappagötum í lok umf frá réttu þannig: 1 hnappagat = prjónið þar til 5 l eru eftir í umf (= kantur að framan), prjónið 1 l sl, prjónið 2 næstu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 síðustu l slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 35, 43 og 52 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm. STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29, 39, 47 og 56 cm. STÆRÐ XXL: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 10, 18, 26, 35, 43, 51 og 60 cm. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 2 l hvoru megin við hverja laskalínu þannig (= 16 l fleiri): Aukið út á undan 4 l sléttprjón og prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl í 2 næstu l (þ.e.a.s. prjónið aftan í og framan í lykkjubogann), 2 l sléttprjón = 2 l fleiri. Aukið út á eftir prjónamerki þannig og 2 l sléttprjón: Prjónið 2 l sl í 2 næstu l (þ.e.a.s. prjónið aftan í og framan í lykkjubogann) = 2 l fleiri. Aukið út um 1 l hvoru megin við hverja laskalínu þannig (= 8 l fleiri): Aukið út á undan 2 l sléttprjón og prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf svo ekki myndist gat! ÚTAUKNING: Aukið út á undan 2 l sléttprjón og prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 76-84-88-96-100-104 l á hringprjóna nr 4,5 með Air. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), stroff (2 l sl, 2 l br) þar til 7 l eru eftir, prjónið 2 l sl og 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið stroff í 4 fm, prjónið síðan 1 umf sl frá réttu þar sem aukið er út um 6-6-6-10-22-30 l jafnt yfir = 82-90-94-106-122-134 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið nú þannig (frá röngu): 5 l garðaprjón, 11-13-14-17-21-24 l br (= hægra framstykki), setjið eitt prjónamerki, 14 l br (= ermi), setjið eitt prjónamerki, 22-26-28-34-42-48 l br (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki, 14 l br (= ermi), setjið eitt prjónamerki, 11-13-14-17-21-24 l br (= vinstra framstykki), 5 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Aukið út um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki í hverri umf frá réttu alls 2-3-4-4-5-6 sinnum. Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki í hverri umf frá réttu alls 18-18-18-19-19-19 sinnum = 258-282-302-322-354-382 l. Stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm frá öxl. Prjónið nú þannig (= frá röngu): Prjónið nú fyrstu 38-42-45-49-55-60 l (= framstykki), setjið næstu 58-62-66-68-72-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 66-74-80-88-100-110 l (= bakstykki), setjið næstu 58-62-66-68-72-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 38-42-45-49-55-60 l á prjóni (= framstykki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 74-82-88-96-108-118 l fyrir bakstykki og 42-46-49-53-59-64 l fyrir hvort framstykki (= 158-174-186-202-226-246 l alls). Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni í kanti að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 4-4½-5-5½-6-6½ cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 146-162-174-190-214-234 l. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 8 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 158-174-186-202-226-246 l. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm fækkið um 2-2-2-2-2-2 l jafnt yfir í einni umf frá röngu, í næstu umf frá réttu er prjónað þannig (skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5): 5 l garðaprjón, stroff (2 l sl, 2 l br) þar til 7 l eru eftir, prjónið 2 l sl og 5 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm fellið laust af þannig: Fellið af 5 kantlykkjur að framan * Fellið af 4 l (2 l sl + 2 l br), sláið uppá prjóninn, fellið af uppsláttinn *, endurtakið frá *-* þar til 7 l eru eftir, fellið þessar l af. ERMI: Ermin er prjónuð með sléttprjón, hringinn á sokkaprjóna. Það eru 58-62-66-68-72-76 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5 og fitjið upp 8 l undir ermi = 66-70-74-76-80-84 l. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT er sett prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi (þ.e.a.s 4 l hvoru megin við prjónamerki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 3-2½-2½-2½-2-2 cm millibili 12-14-14-15-15-17 sinnum til viðbótar = 40-40-44-44-48-48 l. Þegar ermin mælist 44-43-43-42-42-41 cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið stroff (2 l sl, 2 l br) yfir allar l. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar ermin mælist 48-47-47-46-46-45 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. VASI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-28-28-32-32-32 l á hringprjóna nr 5 með Air og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar vasinn mælist 13-13-13-15-15-15 cm – stillið af að næsta umf sé prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið nú þannig: 3 l garðaprjón, (2 l sl, 2 l br) þar til 5 l eru eftir, 2 l sl, 3 l garðaprjón. Prjónið stroff í 4 cm, fellið af. Prjónið annan vasa til viðbótar, Saumið vasana á peysuna ca 7 cm frá neðri kanti og ca fyrir miðju á framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterwinecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.