DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Air yarn
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Lakeside Cardigan

Hekluð peysa úr DROPS Air með stuðlum, gatamynstri, hekluð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

Velja stærð:
DROPS 164-33

#lakesidecardigan

DROPS Design: Mynstur nr ai-012
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
300-350-400-450-450-500 gr litur nr 11, páfuglablár

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 st og 7 umf verði 10 x 10 cm, eða 1 mynstureining A.2 verði 8 cm á breiddina.
DROPS PERLUTALA Bogalaga (hvít), NR 522: 7 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8844.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl, heklið 1 ll til að snúa við með. Ll kemur ekki í stað fyrstu fl.
Í byrjun á hverri umf með st, skiptið út fyrsta st með 3 ll.
Ermi: Þegar heklað er í hring endar hver umf með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.3.

HEKLIÐ 2 ST SAMAN (í st):
Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í sama st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er heklað í gegnum alla uppslættina á heklunálinni.

HEKLIÐ 2 ST SAMAN (um ll):
Heklið 1 st um miðju ll í st-hópnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er heklað í gegnum alla uppslættina á heklunálinni.

ST-HÓPUR:
Heklið einn st-hóp um ll-boga þannig: Heklið * 1 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar um sama ll-boga, 1 st um sama ll-boga.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 fl/st.

ÚRTAKA:
Fellið af 1 st í byrjun og lok umf þannig: Heklið 1 st (= 3 ll í byrjun umf), * heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* þegar 3 st eru eftir í umf = 1 l færri hvoru megin við prjónamerki.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan.

BERUSTYKKI:
Heklið 75-78-84-89-93-98 ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) á heklunál nr 6 með Air. Heklið næstu umf þannig – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR:
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll heklið 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja af næstu 1-4-2-7-3-8 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 7 ll *, endurtakið frá *-* 8-8-9-9-10-10 sinnum til viðbótar = 65-68-73-78-81-86 fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 4 fl (= kantur að framan), haldið áfram með 1 st í hverja fl þar til 4 fl eru eftir í umf, JAFNFRAMT er aukið út um 6-8-8-10-12-23 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING, 1 st í hverja af 4 fl sem eftir eru = 71-76-81-88-93-109 st.
Setjið 8 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu án þess að hekla l. Setjið 4 prjónamerki frá hvorri hlið á stykki þannig: Setjið eitt prjónamerki eftir 13-13-14-14-16-19 st, setjið næsta prjónamerki eftir 2 st, síðan er næsta prjónamerki sett eftir 9-11-12-14-14-17 st og að lokum er síðasta prjónamerkið sett eftir 2 st. Nú eru 19-20-21-24-25-29 st á milli 2 miðju prjónamerkjum við miðju að aftan á peysu. Nú er haldið áfram með 1 st í hvern st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st hægra megin við hvert af 8 prjónamerkjunum. Aukið síðan út til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki (séð frá réttu). Endurtakið útaukningu í hverri umf 9-9-11-12-13-16 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umf 2-3-2-2-2-0 sinnum = 167-180-193-208-221-245 st í umf. Stykkið mælist ca 20-23-23-24-26-27 cm. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 25-27-29-31-34-38 st (= framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 38-40-42-45-47-50 st frá fyrri umf (= ermi), 41-46-51-56-59-69 st (= bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 38-40-42-45-47-50 st frá fyrri umf (= ermi), 25-27-29-31-34-38 st (= framstykki). Setjið eitt prjónamerki, héðan er nú mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 107-116-125-134-143-161 st fyrir fram- og bakstykki. Stykkið er nú mælt héðan! Haldið nú áfram með 1 st í hvern st/ll í umf, snúið við og heklið næstu umf í MYNSTUR – sjá skýringu að ofan þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern af 4 fyrstu st (= A.1), heklið síðan A.2 þannig: * Heklið 2 ST SAMAN (í st) – sjá útskýringu að ofan, 5 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 5 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar, heklið 1 st í hvern af næstu st (= A.3).
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern af 4 fyrstu st, * heklið 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, heklið 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan, um næsta ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í 2 st sem heklaðir voru saman *, endurtakið frá 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar, heklið 1 fl í hvern og einn af síðustu 4 st.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvern af fyrstu 4 fl, * 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, heklið 2 ST SAMAN (um ll) – sjá útskýringu að ofan, 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga á eftir st-hóp, 1 ll *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar, 1 fl í hverja af síðustu 4 fl.
UMFERÐ 4: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 4 fl, (1 st, 1 ll, 1 st) um fyrsta ll-bogann, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í 2 st sem heklaðir voru saman, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, * (1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st) um næsta ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í 2 st sem heklaðir voru saman, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* 9-10-11-12-13-15 sinnum til viðbótar, (1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll) um síðasta ll-bogann, 1 st í hverja af síðustu 4 fl.
UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 4 st, * heklið 2 ST SAMAN (um ll), 5 ll, heklið 1 fl um ll-bogann á eftir st-hópnum, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar, 1 st í hvern af 4 síðustu st.
Haldið áfram og endurtakið A.X (= umf 2-5) fram og til baka þar til stykkið mælist ca 32 cm í öllum stærðum – stillið af að endað er á eftir umf 2 eða 4 í A.1-A.3. Stykkið mælist alls 56-60-60-62-64-66 cm.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. Setjið eitt prjónamerki á milli 8 ll sem hekluð var undir ermi. Stykkið er nú mælt héðan! Prjónamerki fylgir með í stykkinu til loka. Festið þráðinn með 1 kl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Haldið áfram með 1 st í hverja af 3 næstu ll, 1 st í hvern af st fyrir ermi og síðan 1 st í þær 4 ll sem eftir eru undir ermi = 46-48-50-53-55-58 st – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið síðan áfram með 1 st í hvern st, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 3.-2.-2.-2.-2.-1. hverri umf 8-9-10-10-11-12 sinnum til viðbótar = 28-28-28-31-31-32 st eftir. Þegar stykkið mælist 46-44-44-43-42-40 cm er ermin tilbúin. Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki – efsta talan 1 cm frá kanti í hálsmáli, saumið hinar tölurnar með ca 8-8-9-9-9-10 cm millibili.
Tölum er hneppt á milli 2 st í hægra framstykki.

Mynstur

1 st = 1 st
1 ll = 1 ll
1 fl í l = 1 fl í l
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næsta st en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st í sama st, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni. = Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næsta st en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st í sama st, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í miðju ll í st-hóp en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st í sömu ll, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni. = Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í miðju ll í st-hóp en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st í sömu ll, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar l á heklunálinni.
Heklið einn st-hóp í ll-boga þannig: Heklið * 1 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar í sama ll-boga, 1 st um sama ll-boga. = Heklið einn st-hóp í ll-boga þannig: Heklið * 1 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar í sama ll-boga, 1 st um sama ll-boga.
1 fl um ll-boga = 1 fl um ll-boga
1 st um ll-boga = 1 st um ll-boga
Diagram for DROPS 164-33
Diagram for DROPS 164-33
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lakesidecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Stacey skrifaði:

Sorry me again I’m still confused When it says alternate increase right and left side of the markers dose that mean ? Increase on the right side of each 8 markers each row and then on the left side on the next row and then back to right side again next row ? Because if you increase both right and left side of the 8 markers that’s 16 stitch’s increase each row not 8 and that’s where I’m getting confused because I don’t understand the wording ?

12.09.2019 - 09:17

DROPS Design svaraði:

Dear Stacey, as shown in the video linked below, when you have to increase alternately on the right side and left side of each marker, work fist increase row increasing on the right side of each marker, then work the next increase row increasing on the left side of each marker and continue like this = you increase 8 stitches on each increase row. Happy crocheting!

12.09.2019 - 09:24

country flag Stacey skrifaði:

Im confused by the pattern Where is says increase left and right of the markers seen on RS side Dose this mean only increase either side of the 8 marks every other row ? So one row increase and then the other just crochet into each stitch and the first row where it says just on the right does it mean increase only on the right on the first row and then just crochet the next row and then increase both sides on the next and then crochet every stitch no increase?

11.09.2019 - 22:00

DROPS Design svaraði:

Dear Stacey, this video shows how to increase alternately on the right and left side of markers ; there are 8 markers and you increase 8 stitches per increase row. Happy crocheting!

12.09.2019 - 08:52

country flag Heather skrifaði:

I've done a test piece for increasing right and left of the markers. However one side the dcs increase and the other side stays at 4dc before the first 2dc increase. Ive followed the video, surely the number of dcs should increase on both sides/ends? Evenly When working the pattern are you doing 2 rows of right side marker increase before alternating right/left?

14.03.2019 - 20:34

DROPS Design svaraði:

Dear Heather, you should increase alternately on right and left side of the markers - seen from RS, ie seen from RS the increase will be worked atlernately before and after the markers so that the number of sts increases on each side of markers. Happy crocheting!

15.03.2019 - 08:34

country flag Mirte skrifaði:

Hallo, bedankt voor het antwoord op mijn vorige vraag! Ik vind nog iets niet duidelijk. In de tekst over de pas staat : “Meerder hierna afwisselend links en rechts van elke markeerder (gezien aan de goede kant). “. Klopt het dat de vermeerderingen vanuit de buitenkant van het vest telkens aan de zelfde kant van de markeerder komen omdat het werk elke toer gedraaid wordt? Zo ziet het eruit in de video, maar de toevoeging in de tekst tussen () schept verwarring. Mvg

25.11.2018 - 13:17

DROPS Design svaraði:

Dag Mirte

Je meerdert de ene keer aan de linker kant en de andere keer aan de rechter kant van de markeerders, gezien vanaf de goede kant. Dus als het werk klaar is, zie je op de goede kant dat er de ene toer aan de ene kant en de andere toer aan de andere kant gemeerderd is. Als je op de verkeerde kant aan het haken bent moet je hier dus rekening mee houden (want rechts op de goede kant is op de verkeerde kant links en vice verca). Hoop dat het zo duidelijk is :)

28.11.2018 - 12:54

country flag Mirte skrifaði:

Zijn de rijen stokjes identiek of er in de rondte wordt gehaakt (mouwen) of heen en weer (pas). Op de mouwen heb je dan alleen de “voorkant”, terwijl je op de pas voor- en achterkant afwisselt. Hoe kun je ervoor zorgen dat er geen verschil is? Groeten, Mirte

20.11.2018 - 15:58

DROPS Design svaraði:

Dag Mirte

Om de mouwen en de panden er gelijk uit te laten zien, kan je de mouwen ook heen en weer haken vanaf de scheiding door steeds het werk te keren nadat je een halve vaste in de derde losse het begin van de toer hebt gehaakt.

21.11.2018 - 10:46

country flag Charley skrifaði:

Hi, I am working the body and can\'t seem to make it add up. In row 1 of the body I start with 116 stitches for the medium but I\'m not left with 4 stitches at the end to make it even. I see on the diagram it shows the pattern uses 9 stitches but 2tog+sk2+sc+sk2+sc+sk2 is 10 stitches. I can\'t work out where I\'m going wrong, if anyone can offer any insight that would be great! Thank you

13.06.2018 - 22:28

Charley svaraði:

After posting my question I have now seen my error. I was crocheting 2dc tog from previous row but have read properly now and it's 2dc tog in the same stitch. Thank you for the pattern x

13.06.2018 - 22:35

country flag Nancy Janssens skrifaði:

Ik haak maat XXL. Een vraagje bij de pas: Ik vermeerder afwisselend links en rechts van de markeerders en om de toer 2 keer. Doe ik deze 2 keer ook thv de markeerders en zoja de welke en in welke toer? Vb toer 2 en 4? Of meer verspreid in de pas?

10.10.2017 - 19:55

DROPS Design svaraði:

Hallo Nancy, Het is de bedoeling dat je het meerderen steeds afwisselend rechts en links van de markeerders doet. Als je om de twee naalden meerdert, meerder je de ene keer bijvoorbeeld links van de markeerders en 2 naalden later rechts van de markeerders. Je wisselt dus steeds af: als je de vorige keer links van de markeerders hebt gemeerderd, doe je het de volgende keer rechts van de markeerders en zo ga je steeds heen en weer.

04.11.2017 - 14:26

Rebekka skrifaði:

Is row 4 also increasing on the right side of the marker or is this the left? The video for me is not clear enough on how to increase on the left and right of the markers. Is there a graph/diagram of how to achieve this? Does the marker move down the work in the middle of the increase? OR to each side of the increased stitch as you move down the work?

12.06.2017 - 14:53

DROPS Design svaraði:

Dear Rebekka, the video below show how to increase alternately on the left and on the right of markers for a rounded yoke as in this pattern. Happy crocheting!

12.06.2017 - 15:42

country flag Petra Vincken skrifaði:

Hoi, ik moet nu de eerste regel van het lijf haken , mijn vraag is nu,,er staat , ga nu verder met 1 stk in elke stk/L op de toer , wil dat zeggen dat iK op die2 maal 8L die ik heb moeten haken in de vorige toer ook stokjes op moet haken? alvast bedankt ,Petra

26.05.2017 - 10:18

DROPS Design svaraði:

Hallo Petra, Ja, dat klopt helemaal. Op iedere losse haak je een stokje en op ieder stokje haak je een stokje.

26.05.2017 - 16:13

country flag Stanneke skrifaði:

Hallo, ik begrijp bij de mouw niet zo goed wat wordt bedoeld met: naai de opening onder de mouw dicht (bij de afwerking) Moet je deze steken niet meenemen met het in het rond haken van de mouw? Dank alvast!

21.01.2017 - 15:43

DROPS Design svaraði:

Hoi Stanneke. Je hebt gelijk. Je hoeft geen naad te sluiten. Wij zullen het weghalen.

26.01.2017 - 12:00