DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lakeside

Hekluð peysa úr DROPS Air með stuðlum, gatamynstri og hringlaga berustykki, hekluð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 164-31
DROPS Design: Mynstur nr ai-010
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
300-350-400-450-450-500 gr litur nr 11, páfuglablár

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 12 st og 7 umf verði 10 x 10 cm, eða 1 mynstureining A.2 verði 8 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8184.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll í byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

HEKLIÐ 2 ST SAMAN (í st):
Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í sama st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er heklað í gegnum alla uppslættina á heklunálinni.

HEKLIÐ 2 ST SAMAN (um ll):
Heklið 1 st um miðju ll í st-hópnum, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er heklað í gegnum alla uppslættina á heklunálinni.

ST-HÓPUR:
Heklið einn st-hóp um ll-boga þannig: Heklið * 1 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar um sama ll-boga, 1 st um sama ll-boga.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í 1 fl/st.

ÚRTAKA:
Fellið af 1 st í byrjun og lok umf þannig: Heklið 1 st (= 3 ll), * heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næsta st, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni *, endurtakið frá *-* þegar 3 st eru eftir í umf = 1 l færri hvoru megin við prjónamerki.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er í hring með byrjun umf fyrir miðju að aftan.

BERUSTYKKI:
Heklið 66-69-75-82-84-90 lausar ll með heklunál nr 6 með Air og tengið saman í hring með 1 kl. Heklið fyrstu umf þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 ll – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 1 fl í hverja af fyrstu 1-4-2-1-3-1 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 7 ll *, endurtakið frá *-* 7-7-8-9-9-10 sinnum til viðbótar = 58-61-66-72-74-79 fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hverja fl, JAFNFRAMT er aukið út um 6-8-8-9-12-23 st jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 64-69-74-81-86-102 st.
Setjið nú 8 prjónamerki í stykkið fyrir útaukningu fyrir laskalínu án þess að hekla l. Setjið 4 prjónamerki í hvora hlið frá byrjun umf þannig að það speglist frá miðju að aftan: Setjið eitt prjónamerki eftir 10-10-10-11-12-15 st, setjið næsta prjónamerki eftir 2 st, setjið síðan næsta prjónamerki eftir 8-10-12-14-14-17 st og að lokum er síðasta prjónamerkið sett eftir 2 st. Nú eru 20-21-22-23-26-30 st á milli 2 miðju prjónamerkja við miðju framan á peysu. Haldið nú áfram með 1 st í hvern st, JAFNFRAMT er aukið út um 1 st hægra megin við hvert af 8 prjónamerkjum. Aukið síðan út til skiptis hægra og vinstra megin við hvert prjónamerki. Endurtakið útaukningu í hverri umf 9-9-11-12-13-16 sinnum til viðbótar og í annarri hverri umf 2-3-2-2-2-0 sinnum = 160-173-186-201-214-238 st í umf. Stykkið mælist ca 20-23-23-24-26-27 cm.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Í næstu umf er heklað þannig: Heklið 21-23-25-28-30-34 st (= hálft bakstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 38-40-42-45-47-50 st frá fyrri umf (= ermi), 42-47-52-55-60-70 st (= framstykki), 8 ll (undir ermi), hoppið yfir 38-40-42-45-47-50 st frá fyrri umf (= ermi), 21-23-25-27-30-34 st (= hálft bakstykki). Setjið eitt prjónamerki, héðan er nú mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 100-109-118-127-136-154 st á fram- og bakstykki. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Heklið 1 umf með st í hvern st/ll. Heklið síðan MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, þannig: ATH: Heklið frá 1. umf í A.1-A.2.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= A.1) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið síðan A.2 þannig: * Heklið 2 ST SAMAN (í st) – sjá útskýringu að ofan, 5 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 5 ll, hoppið yfir 2 st *, endurtakið *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í 3. ll í umf (= A.1).
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, * heklið 1 fl í 2 st sem var heklaður saman, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, heklið 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan, um næsta ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í 1. ll í umf.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, * 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll, heklið 2 ST SAMAN (um ll) – sjá útskýringu að ofan, 5 ll, 1 fl um næstu ll á eftir st-hóp, 1 ll *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 til viðbótar. Endið á 1 kl í 1. ll í umf.
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, heklið (1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st) um fyrsta ll-bogann, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í 2 st sem heklaðir voru saman, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, * (1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st, 1 ll, 1 st) um næsta ll-boga, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga, 1 fl í 2 st sem heklaðir voru saman, 3 ll, hoppið yfir 1 ll-boga *, endurtakið frá *-* 9-10-11-12-13-15 sinnum til viðbótar, (1 st, 1 ll, 1 st) um síðasta ll-bogann. Endið á 1 kl í 3. ll í umf.
UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, * heklið 2 ST SAMAN (um ll), 5 ll, heklið 1 fl um ll-bogann á eftir st-hóp, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 5 ll *, endurtakið frá *-* 10-11-12-13-14-16 sinnum til viðbótar. Endið á 1 kl í 3. ll í umf.
Haldið svona áfram og endurtakið A.X (= 2.-5. umf) þar til stykkið mælist ca 32 cm í allar stærðir – stillið af að endað er á eftir UMFERÐ 2 eða 4 í A.1-A.2. Stykkið mælist alls 56-60-60-62-64-66 cm.

ERMI:
Ermin er hekluð í hring, ofan frá og niður. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Setjið eitt prjónamerki á milli 8 ll sem hekluð var undir ermi. Prjónamerki fylgir með í stykkinu til loka. Festið þráðinn með 1 kl í 5. ll af þeim 8 ll sem heklaðar voru í handveg á fram- og bakstykki. Heklið 3 ll (= 1 st). Haldið áfram með 1 st í hverja af 3 næstu ll, 1 st í hvern af st fyrir ermi og síðan 1 st í þær 4 ll sem eftir eru undir ermi = 46-48-50-53-55-58 st – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR! Haldið síðan áfram með 1 st í hvern st, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 3.-2.-2.-2.-2.-1. hverri umf 8-9-10-10-11-12 sinnum til viðbótar = 28-28-28-31-31-32 st eftir. Þegar stykkið mælist 46-44-44-43-42-40 cm er ermin tilbúin. Heklið hina ermina á sama hátt.

---------------------------------------------------------
Húfa og kragi:
Sjá DROPS 164-32.
----------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = 1 st
symbols = 1 ll
symbols = 1 fl í l
symbols = Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í næsta st, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st í sama st, þegar draga á bandið í gegn í lokin er heklað í gegnum alla uppslættina á heklunálinni.
symbols = Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st um miðju ll í st-hópnum, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 st til viðbótar um sömu ll, þegar draga á bandið í gegn í lokin er heklað í gegnum alla uppslættina á heklunálinni.
symbols = Heklið einn st-hóp um ll-boga þannig: Heklið * 1 st, 1 ll *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar um sama ll-boga, 1 st um sama ll-boga
symbols = 1 fl um ll-boga
symbols = 1 st um ll-boga
symbols = 1 kl
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Pia Svane Christensen wrote:

Hej Jeg forstår ikke hvad det er jeg skal gøre i bærestykket, skal jeg tage dobbelt ud i hveranden omgang. ? Med venlig hilsen Pia Nu tages der ud på skiftevis højre og venstre side af hver mærke. Gentag udtagningen på hver omg 9-9-11-12-13-16 gange til, og på hver 2.omg 2-3-2-2-2-0 gange = 160-173-186-201-214-238 st på omg.

29.08.2022 - 21:07

DROPS Design answered:

Hej Pia, først tager du ud på hver omgang 9 gange og efter det tager du ud på hver 2.omgang 2 gange (i den mindste størrelse) :)

31.08.2022 - 13:45

country flag Melanie wrote:

Hallo, Größe XXXL, 16 mal in Jeder Runde 8 Zun. erste Runde rechts, nächste Runde links, verstanden. Hier habe ich dann nach 16 Runden 230 Maschen. "dann in jeder 2. Rd 0 x arb = 238" Aber 0 Zunamen heißt ich habe nur 230 Maschen oder Runde 17. 8Znm und danach ohne Zunahmen weiter? Und nein mir helfen weder alle anderen Kommentare noch ein Video.

13.05.2022 - 09:06

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, die Zunahmen wiederholen Sie noch weitere 16 x, dh insgesamt 17 Mal (die 1. Zunahmen + noch 16 Mal), so haben Sie die 238 Maschen. Viel Spaß beim häkeln!

13.05.2022 - 09:14

country flag Marianne wrote:

Klopt het dat er na het plaatsen van de 8 markeerders bij maat xl,tussen de middelste twee markeerders 23 st zijn aan de voorkant en tussen de middelste twee markeerders aan de achterkant 20 st zijn

11.01.2022 - 15:34

DROPS Design answered:

Dag Marianne,

Op het achterpand zijn er 22 steken en op het voorpand zijn er 23 steken.

12.01.2022 - 09:42

country flag Marianne wrote:

Klopt het dat er na het plaatsen van de 8 markeerders bij maat xl,tussen de middelste twee markeerders 23 st zijn aan de voorkant en tussen de middelste twee markeerders aan de achterkant 20 st zijn

11.01.2022 - 15:32

country flag Flamarion wrote:

Antwort ist falsch, Video passt nicht z. Anleitung. Auf dem Foto ist zu erkennen, daß i. d. Mitte des Pullis KEINE Maschen zugenommen sind, darum heißt es lt. Anleitung RAGLAN.Markierer habe ich lt. Anleitung korrekt gesetzt, 4 x 2 (mit je 2 Stäb. Abstand). Nächste Reihe = 4 x 2 Stäb. rechts der Marker zunehmen, in der nächsten Reihe links davon.Vergrößert sich d. Abstand innerhalb der Zunahmen oder bleiben immer die 2 Stäbchen Abstand (Raglanlinie)?Bitte Häkelschrift anfertigen.

08.02.2021 - 18:03

DROPS Design answered:

Es werden nicht 2 Stb pro Markierer zugenommen, sondern stets nur 1 Stb. Die Anleitung wurde inzwischen umformuliert, da sie an dieser Stelle doppeldeutig war - das Video passt zur Anleitung, da hier auch nur jeweils 1 Stb zugenommen wird. Sie häkeln die Zunahmen jedes Mal in das Stb neben dem Markierer. Eine Raglanlinie gibt es streng genommen nicht, da die Maschenzahl nicht bei 2 Stb bleibt - die Passe wird dadurch nach und nach zur Rundpasse. Zur Kontrolle Ihrer Markierer: Sie müssten anfangs je 20-21-22-23-26-30 Stb für das Vorderteil und das Rückenteil haben und je 8-10-12-14-14-17 Stb für die Ärmel, dazwischen je 2 Stb. Gutes Gelingen!

09.02.2021 - 10:47

country flag Flamarion wrote:

Keine Anfängerin, komme ebenfalls mit den Zunahmen nicht klar, Antworten und Video hilft nicht weiter. Im Video wird nur jeweils 1 Zunahme links od. rechts erklärt, wie aber mit 2 Zunahmen? Wieviel einzelne Stäbchen müssen zwischen den beiden Zunahmen pro Zunahmestelle generell sein? ?? Hinweis -> Ein Häkeldiagramm wäre wesentlich hilfreicher, in dem mehrere Reihen Zunahmen dargestellt sind, statt mit Worten oder nicht wirklich passendem Video zu erklären.

08.02.2021 - 14:21

DROPS Design answered:

Liebe Frau Flamarion, es wird bei der Passe nur 1 Masche bei jeder Markierung zugenommen, beim 1. Mal nehmen Sie an der rechten Seite jeder Markierer (= 8 Zunahmen), das nächste Mal, an der linken Seite jeder Markierer (=8 Zunahmen) - Deutsche Anleitung muss hier korrigiert werden, danke für den Hinweis, dh es wird genau wie im Video zugenommen. Viel Spaß beim häkeln!

08.02.2021 - 15:30

country flag Helena wrote:

Hej, jag har hittat ett garn som är 100g och 200 m med virknål 5. Kan jag använda det? Måste jag göra en större storlek eller ska jag räkna om på annat sätt?

10.03.2020 - 14:12

DROPS Design answered:

Hej Helena, din tröja vill bli tyngre. Viktigt att du håller virkfastheten som står i mönstret för att få rätt mått. Gör gärne ett litet prov så du ser hur det ser ut med 12 st x 7 varv på 10x10 cm. Lycka till

10.03.2020 - 14:56

country flag Peggie wrote:

Ik snap de eerste 8 markers niet zo, want als ik van het begin de een kantop 10 en na 2 en na 10 en na 2 doe en ik doe dat ook de andere kant op. Heb je aan de achterkant je21 steken ( want het begin van je toer was de achterkant) en dus niet aan de voorkant. Wat snap ik hier niet? Dank je wel voor antwoord

09.04.2019 - 17:07

DROPS Design answered:

Dag Peggie,

Als je vanaf het begin van de toer naar beide kanten toe markeerders plaatst dan heb je zowel aan de voor- als achterkant 20 steken tussen de markeerders. Het voor in achterpand is het zelfde wat dat betreft.

Na het plaatsten van de markeerdraden meerder je steken, waardoor je op het voor en achterpand aan beide kanten 21 steken hebt vanaf het midden voor/achter.

09.04.2019 - 20:48

country flag Savanna wrote:

Hello, I am confused on this part: "Then inc alternately on right and left side of every marker." So does that mean on Row 1 of inc, I increase on the Right side of the markers, then Row 2 of inc, I increase on the left side of markers and alternate like this. Or do I alternate each marker: Marker 1: Right side, Marker 2: Left side... continue with this pattern. Thank you.

14.01.2019 - 05:25

DROPS Design answered:

Dear Savanna, this video is showing how to incrase alternately on right and left side of markers. Happy crocheting!

14.01.2019 - 12:52

country flag Dorota wrote:

Witam. Zrobiłam 10 pierwszych okrążeń i teraz jak rozumiem mam wykonać 6 dodatkowych okrążeń a w tym w trzech mam dodać po 8 słupów. Ale to w sumie daje o 8 słupków za malo. Jak to zrobić żeby otrzymać 173 słupki a nie 165?

12.01.2019 - 11:29

DROPS Design answered:

Witaj Doroto! W rozmiarze M w 1-szym okr. masz 61 oś. W 2-gim okr. dodajesz 8 sł = 69 sł, w 3-cim dodajesz 8 sł = 77 sł. A następnie będziesz dodawać jeszcze 9 razy po 8 o. (72 o.) w każdym okrążeniu i 3 razy po 8 o. co 2 okrążenia (24 o.). 77+72+24= 173. Powodzenia!

14.02.2019 - 08:10