Adela skrifaði:
Por favor,te pido disculpas,Anulo la anterior,ya que hubo una confusión de mi parte.Un gran abrazo
01.07.2015 - 18:04Adela skrifaði:
--Cuerpo: en dism,(Tip para las disminuciones) a cada lado de losMP...los 2 pts en jersey(que interrumpen el patrón de pt arroz), se tejen hasta terminar el cuerpo, o de lo contrario solamente en la fila en que se dism de cada lado de los MP?
01.07.2015 - 16:17
José skrifaði:
Mooi als basispatroon net als de trui. De halslijn vind ik niet mooi. Vooral bij de trui lijkt me die niet fijn dragen. Het vest lijkt ook praktischer.
13.06.2015 - 16:25
Paola Tarantino skrifaði:
Che bella idea le treccie e i gettati.
06.06.2015 - 19:52
Kody Doisy skrifaði:
Bonjour j'adore ce modele et BEAUCOUP d'autres mais je n'ose pas trop me lancer car j'ai beaucoup de mal a comprendre vos explications . Desolee je sais tricoter mais beaucoup de mal
03.06.2015 - 18:46
Marise skrifaði:
Très jolie veste! Et belle couleur!
02.06.2015 - 23:37
Kikka skrifaði:
Kaunis malli ja väri
01.06.2015 - 07:16
Kirsti Airisto-hälvä skrifaði:
Kaunis malli ja väri
01.06.2015 - 07:09
Anna skrifaði:
Love the colour and the lacy design on the yoke.
31.05.2015 - 12:55
Barry Reuneker skrifaði:
Supergaaf met die trui er bij...
31.05.2015 - 09:47
Early Autumn Cardigan#earlyautumncardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með A-formi, hringlaga berustykki, köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 166-8 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 4 l á undan prjónamerki: 2 l sl saman, 2 l sl. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 2 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.2 – sjá útskýringu fyrir þína stærð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 11, 17, 23, 30, 37, 44 og 51 cm. STÆRÐ M: 11, 18, 25, 32, 39, 46 og 53 cm. STÆRÐ L: 11, 18, 25, 32, 39, 47 og 55 cm. STÆRÐ XL: 11, 18, 26, 34, 42, 50 og 57 cm. STÆRÐ XXL: 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 59 cm. STÆRÐ XXXL: 11, 20, 29, 37, 45, 53 og 61 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 159-174-193-208-223-242 l á hringprjóna nr 4 með Nepal. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 42-46-51-55-58-63 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 75-82-91-98-107-116 l). Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni með 5 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 8-9-10-9-10-10 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 sinnum) = 143-158-177-192-207-226 l. Þegar stykkið mælist 36-38-40-38-40-42 cm fellið af 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við hvort prjónamerki) = 59-66-75-82-91-100 l eftir á bakstykki og 34-38-43-47-50-55 l eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40-42-44-46 l á sokkaprjóna nr 4 með Nepal. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í l á undan og á eftir prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 3½-3-3-2½-2½-2½ cm millibili 9-10-10-11-12-12 sinnum til viðbótar (= alls 10-11-11-12-13-13 sinnum) = 56-60-62-66-70-72 l. Þegar stykkið mælist 44-45-45-42-42-43 cm fellið af 8 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 48-52-54-58-62-64 l eftir á prjóni. Geymið stykkið, prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar inn á sama hringprjón nr 5 og fram- og bakstykki = 223-246-269-292-315-338 l. Prjónið síðan þannig – frá réttu: 5 l garðaprjón, * A.1, A.2 *, endurtakið frá *-* 9-10-11-12-13-14 sinnum, endið á A.1 og 5 l garðaprjón. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð! Eftir fyrsta kaðal í A.1 eru 243-268-293-318-343-368 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur og úrtöku í A.2, þegar A.1/A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 133-146-159-172-185-198 l á prjóni. Prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 33-40-47-54-61-68 l jafnt yfir = 100-106-112-118-124-130 l. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka í sléttprjóni þannig: Setjið 1 prjónamerki við miðju að aftan. Prjónið 7 l sl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, haldið áfram að prjóna yfir 7 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 56-56-56-70-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf fram að miðju að framan. Prjónið 1 umf br frá röngu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af með sl frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #earlyautumncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.