Marion Kraushaar skrifaði:
So eine schöne Jacke, die verschiedene Muster einfach toll, freue mich sie zu stricken und zu tragen :)
23.02.2015 - 15:46
Rosa Requena skrifaði:
Me encanta, es la típica chaqueta práctica, rápida de hacer.
05.02.2015 - 02:15
Lissi skrifaði:
Nydelig ! Hvilket garn er denne strikket i?
31.01.2015 - 09:54
Sanne Elise skrifaði:
SMUK _ hvornår mon opskriften kommer?
29.01.2015 - 15:13
Sissel skrifaði:
Denne står på ønskelisten!
29.01.2015 - 14:43
Christa skrifaði:
Mooie vest. Wacht met spanning op patroon.
27.01.2015 - 21:45
Wanda skrifaði:
Precies wat ik wil gaan maken!
25.01.2015 - 19:09
Brotteaux skrifaði:
Modele simple et facile a tricoter, tout ce que j'aime.
13.01.2015 - 04:56
Els skrifaði:
Leuk vest, ziet er goed uit
09.01.2015 - 13:49
Britt Gotlin Blom skrifaði:
Fin modell som jag hoppas kommer med bland mönstren!
02.01.2015 - 18:26
After Eight#aftereightcardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri, perluprjóni og sjalkraga úr 1 þræði DROPS Cloud eða 2 þráðum DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 159-21 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Passið uppá að í mynstri A.1 eru ekki prjónaðir fleiri uppslættir en l sem prjónaðar eru saman, annars passar lykkjufjöldinn ekki. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan: 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l slétt saman og sláið uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum í öllum stærðum þegar stykkið mælist: ca 26, 32 og 38 cm. ÚTAUKNING (á við um kraga): Aukið út innan við 1 kantlykkju að framan þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (l er prjónuð snúin með því að hekla aftan í lykkjubogann í stað framan). Allar útauknar l eru prjónaðar í garðaprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 109-119-129-139-149-169 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Prjónið mynstur A.1 með 5 kantlykkjum í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið, prjónið mynstur 1 sinni á hæðina. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú sléttprjón, en síðustu 5 l í hvorri hlið (= kantur að framan) eru prjónaðar í garðaprjón til loka. JAFNFRAMT eru sett 2 prjónamerki í stykkið þannig: 1 prjónamerki eftir 25-27-30-32-35-40 l og 1 eftir 79-87-94-102-109-124 l (bakstykki = 49-55-59-65-69-79 l). Þegar stykkið mælist 15 cm er felld af 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki, endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 22 cm = 101-111-121-131-141-161 l. Þegar stykkið mælist ca 26 cm er prjónað eftir mynstri A.2 með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður, JAFNFRAMT er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Eftir mynstur A.2 er prjónað mynstur A.1. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – kantur að framan er áfram prjónaður í GARÐAPRJÓN – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í fyrstu umf frá réttu 3-5-7-5-3-5 l jafnt yfir = 98-106-114-126-138-156 l. Færið prjónamerki út í hlið þannig að það verða 29-31-33-36-39-43 l á hvoru framstykki og 44-48-52-58-64-74 l á bakstykki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ÚTAUKNING FYRIR KRAGA: Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm er aukið út fyrir kraga – lesið ÚTAUKNING – í hvorri hlið, aukið út um 1 l með 7-10-10-18-18-18 cm millibili alls 4-3-3-2-2-2 sinnum. Jafnframt þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm prjónið 1 l garðaprjón inn í kant að framan (þ.e.a.s. lykkjufjöldinn er sá sami, nema fjöldi l með garðaprjón í kanti að framan verða fleiri á meðan fjöldi l í perluprjóni fækkar) með 7-6-6-5-5-5 cm millibili alls 5-6-6-7-7-7 sinnum. ÚTAUKNING Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 37 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með 5-3-3-3-3-3 cm millibili alls 2-3-3-3-3-3 sinnum. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm fellið af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki og hvort stykki er nú prjónað fyrir sig. BAKSTYKKI: = 42-48-52-58-64-74 l. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 2 l 0-1-1-2-3-5 sinnum og 1 l 1-1-3-3-4-4 sinnum = 40-42-42-44-44-46 l. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm fellið af miðju 8-10-10-12-12-14 l fyrir hálsmál. Fellið af 1 l í næstu umf við hálsmál = 15 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 67-69-71-73-75-77 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Haldið áfram með útaukningu fyrir kraga. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 29 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 67-69-71-73-75-77 cm fellið af síðustu 15 l fyrir öxl = 14 l fyrir kraga. Setjið 1 prjónamerki. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir kraga þannig: * 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón yfir síðustu 7 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 4½-5½-5½-6½-6½-7½ cm frá prjónamerki í styttri hliðinni. Fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykkki, nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30-30-32-32-34-34 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 8 með 1 þræði Cloud eða 2 þráðum Air. Prjónið mynstur A.1 1 sinni á hæðina. Prjónið nú perluprjón. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 8-5½-4½-3½-3-2½ cm millibili alls 4-5-6-7-8-9 sinnum = 38-40-44-46-50-52 l. Þegar stykkið mælist 34-33-33-32-31-30 cm fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni, 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 40-40-41-41-42-42 cm, fellið síðan af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 41-41-42-42-43-43 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermasauma og saumið ermar í. Saumið saman kraga við miðju að aftan. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #aftereightcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.