Haingo RAZAFINDRAMAMBA skrifaði:
Tres jolie haut , j'aime bien
14.12.2014 - 10:31
Viviane skrifaði:
Magnifique
13.12.2014 - 16:29
Vigdis Schmeding skrifaði:
Sehr sommerliche Jacke
12.12.2014 - 19:59
Jonna Petersen skrifaði:
En skøn model, som jeg bare MÅ afprøve. Glæder mig til opskriften kommer. Overvejer at strikke den i CottonMerino i stedet, da jeg normalt er til uld i stedet for bommuld.
12.12.2014 - 01:38
Greta Nollet skrifaði:
Deze vind ik heel mooi.
11.12.2014 - 13:42
Peach Macaroon#peachmacaroonsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með gatamynstri og laksalínu. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.
DROPS 160-23 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN: Kantur að framan (= 6 l) eru prjónaðar þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 6 l sl. UMFERÐ 2: 6 l sl. Endurtakið umf 1-2 alls 5 sinnum (= 10 umf garðaprjón). UMFERÐ 11 (= rétta): * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, hin hliðin á stykkinu er prjónuð sem spegilmynd, þ.e.a.s. sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l snúnar slétt saman (= gataumferð). UMFERÐ 12: 1 l sl, uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt. LASKALÍNA: Aukið er út mismunandi fyrir laskalínu eftir stærðum: STÆRÐ S-M: Aukið er út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig: Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt, endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 17-19 sinnum til viðbótar. STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL: Aukið út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig: Aukið út um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= alls 16 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (fyrsti og síðasti uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt, en í 2. miðju uppsláttunum eiga að myndast göt). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 1-1-1-3 sinnum til viðbótar. Aukið síðan út í hverri umf frá réttu (= önnur hver umf) þannig: Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= alls 8 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með prjónamerki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn br í næstu umf, það eiga að myndast göt, endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 19-20-22-21 sinnum. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), svo að ekki myndist göt. LEIÐBEININGAR: Myndin er öðruvísi en útskýring, það er engin saumur á ermi í útskýringu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 147-147-153-157-157-161 l (meðtaldar 6 kantlykkjur í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan, A.1 (= 2 l) þar til 7 l eru eftir, 1 l sl, endið á 6 kantlykkjum að framan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Þær 6 kantlykkjurnar að framan eru prjónaðar svona til loka. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: 6 kantlykkjur að framan, A.2 (= 7 l), prjónið sl þar til 13 l eru eftir JAFNFRAMT er aukið út um 14-18-12-20-40-44 l jafnt yfir, A.3 (= 7 l), endið á 6 kantlykkjum að framan = 161-165-165-177-197-205 l. Í næstu umf (= frá röngu) setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 6 kantlykkjur að framan, A.3, 15-16-17-20-25-28 l br (= framstykki), 1 l br og setjið 1. prjónamerkið í þessa l, prjónið 28-28-26-26-24 l br (= ermi), 1 l br og setjið 2. prjónamerkið í þessa l, prjónið 45-47-49-55-65-71 l br (= bakstykki), prjónið 1 l br og setjið 3. prjónamerkið í þessa l, prjónið 28-28-26-26-26-24 l br (= ermi), 1 l br og setjið 4. prjónamerkið í þessa l, 15-16-17-20-25-28 l br (= framstykki), A.2, endið á 6 kantlykkjum að framan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! A.2 - A.3 er endurtekið til loka. Prjónið nú (frá réttu) – JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, A.2, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 1. prjónamerki, prjónið LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 2. prjónamerki, prjónið laskalína, 0-1-1-4-9-12 l sl, A.4 (= 43 l), prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 3. prjónamerki, prjónið laskalína, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l fyrir 4. prjónamerki, prjónið laskalína, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 13 l, A.3 (= 7 l), endið á 6 kantlykkjum að framan. Útauknar l eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær eru prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er í A.4 Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.5 prjónað (= 57 l) yfir A.4. Eftir alla útaukningu eru 305-325-349-369-405-437 l á prjóni. Stykkið mælist ca 14-15-16-17-18-19 cm. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan, A.2 eins og áður, 33-36-40-44-51-57 l sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-76-80-84 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja), prjónið næstu 81-87-95-103-117-129 l (= bakstykki) eins og áður, setjið næstu 66-70-74-76-80-84 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja), 33-36-40-44-51-57 l sléttprjón (= framstykki), A.3 eins og áður, endið á 6 kantlykkjum að framan = 185-197-213-233-261-285 l eftir á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram að prjóna mynstur og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hlið (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-4-4-4-4-4 cm millibili 5-3-3-3-3-3 sinnum til viðbótar = 161-181-197-217-245-269 l. Haldið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar l. Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm 8-7-7-7-7-7 sinnum til viðbótar = 197-213-229-249-277-301 l. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, stillið af að næsta umf er frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið síðan þannig: 6 kantlykkjur að framan, prjónið A.6 (= 2 l) þar til 7 l eru eftir, 1 l sléttprjón, 6 kantlykkjur að framan. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýju l) = 72-76-80-84-88-92 l – sjá LEIÐBEININGAR. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki mitt undir ermi (= 2 l færri), endurtakið úrtöku með 2-1½-1½-1½-1-1 cm millibili 12-13-14-15-17-18 sinnum til viðbótar = 46-48-50-52-52-54 l. Þegar stykkið mælist 32-32-32-31-31-31 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið A.6. Fellið af þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í, tölum er hneppt í gataumferðina í kant að framan. Efsta tala í hálsmáli er fest í vinstri kant að framan í fyrstu gataumferð, hoppið yfir 2 gataumferðir, festið næstu tölu, síðan eru þær festar í aðra hverja gataumferð. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peachmacaroonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.