Hanne Gunnertoft Pedersen skrifaði:
Når der laves mønster, hvor en masket tages løst af, en maske strikkes ret, den løse maske trækkes over: tages den løse maske af pinden, som om den skulle strikkes ret? Eller bare tages over, hvor pinden stikkes ind fra højre? Jeg gør det første, men synes hullerne derved bliver større end der hvor to masker strikkes sammen....
10.04.2016 - 14:36DROPS Design svaraði:
Hej Hanne, det kan man gøre som man synes er pænest (tror de fleste løfter m af som om den skulle strikkes vrang) God fornøjelse!
11.04.2016 - 14:32
Hanne Gunnertoft Pedersen skrifaði:
Undskyld, var for hurtig, mangler udtag X 4 = 32 masker + 326 = 358 masker 😊
24.03.2016 - 13:07DROPS Design svaraði:
Hej Hanne. Du starter med 166 m og tager först 2 m ud paa hver side af hvert maerke (dvs 16 masker per gang). Dette gentager du to gange = 32 m. Herefter tager du 1 m ud paa hver side af hver maske (dvs, 8 m per gang), dette gentager du i alt 20x = 160 m = 358 masker
24.03.2016 - 15:09
Hanne Gunnertoft Pedersen skrifaði:
326 masker efter raglanudtag i størrelse xl, der skulle være 358, synes jeg har fulgt opskriften fuldstændigt?
24.03.2016 - 13:01DROPS Design svaraði:
Se mit svar herover :-)
24.03.2016 - 15:09
Steffi H. skrifaði:
Hallo! Ich stricke das Kleid mit Belle und habe das Muster A2 und Raglanaufnahmen fertig, allerdings erst 2/3 vom Muster A.3. Wann soll ich die Ärmel abnehmen? Mein Strickstück ist bei Gr. S schon 18,5 cm lang....!? Wenn ich jetzt noch weiter stricke, also bis zum Übergang von A.3 zu A.4 bin ich bei über 20 cm bevor ich die Ärmel abnehme....?!
16.03.2016 - 21:03DROPS Design svaraði:
Liebe Steffi, haben Sie ab der im Schnitt gekennzeichneten Stelle gemessen? Wenn Sie die richtige Maschenprobe (21 M x 28 R = 10 x 10 cm) haben, ergeben sich die Masse wie im Schnitt eingezeichnet. Prüfen Sie bitte diese beiden Punkte nochmals.
17.03.2016 - 07:23
Linda Læret skrifaði:
Hei.Hvor mange garnnøster trenger jeg for å strikke denne kjolen.Størrelse xxl og xxxl. 😉
03.03.2016 - 12:58Avni Rai Moktan skrifaði:
Please help me!!! Hi im avni i love to work 160-1 bt i dnt understand after Working A.1 (= 2 sts) over all sts.On next round how to K all sts and inc 16-20-14-22-42-46 sts. i just need to know how n where should i inc thm? please help me im in the middle of my project now.. reply me please..
29.02.2016 - 16:43DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Rai Moktan, please read here how to increase evenly. Happy knitting!
29.02.2016 - 17:41
Gunn Torill Ims skrifaði:
Har jo ikke noe med strikkefasthet en å gjøre, det er jo mønster A3 som ikke er ferdig når de 22 gangene det skal økes er ferdig. Det må Være feil en eller annen plass.
25.02.2016 - 18:10
Gunn Torill Ims skrifaði:
Hei For ikke maskeantallet til å stemme i raglan, hadde 12 omganger i igjen av mønster A3 da jeg hadde 338 masker på pinnen ( str L), hva gjør jeg galt, for raglan må jo strikkes ned til der armene tas sammen. Har fulgt punkt for punkt i oppskriften. Har økt hver omg jeg strikker mønster slik at jeg strikker rett over neste gang. Takk for hjelp
24.02.2016 - 22:14DROPS Design svaraði:
Hej, Når man strikker raglan er det meget vigtigt at strikkefastheden stemmer i højden. Har du flere pinde på 10 cm vil du være færdig med økningen inden man har det rigtige antal cm. Man kan evt strikke en ekstra pinde med jævne mellemrum imellem raglanøkningerne. God fornøjelse!
25.02.2016 - 15:51
Gunn Torill Ims skrifaði:
Hei strikker denne kjolen Muskat men forstår ikke økningen til raglan, måtte rekke opp da jeg var kommet til 22 økninger til Raglan for da hadde jeg fortsatt igjen 12 omganger av mønster A.3 og da er det noe som er galt, jeg skal øke hver 2 omg står det, jeg valgte å gjøre det hver omgang jeg strikker mønster og ikke den omgangen som er rettstrikk er dette riktig? Strikker stl L, raglan starter jo helt oppved halsen. Håper på snarlig svar Mvh Gunn Torill Ims
24.02.2016 - 22:02
Manu skrifaði:
Das Kleid ist wunderschön, allerdings habe ich eine Frage zu den Raglanzunahmen. Ich stricke Größe S und habe jetzt das Muster A2 fertig. Habe ich das richtig verstanden, dass ich nach A2 keine Raglanzunahme mehr mache? Lieben Dank. Manu
24.02.2016 - 18:22DROPS Design svaraði:
Sie stricken die Raglanzunahmen insgesamt 18 x, d.h. sie enden, kurz bevor A.2 beendet ist. Sie finden die Information über der eigentlichen Anleitung unter RAGLANZUNAHME.
24.02.2016 - 18:47
Summer Feeling#summerfeelingdress |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat eða DROPS Belle með gatamynstri. Prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL
DROPS 160-1 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.6. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan merki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. Fækkið um 1 l á eftir merki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út mismunandi fyrir laskalínu eftir stærðum: STÆRÐ S-M: Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert merki (= alls 8 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með merki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 17-19 sinnum til viðbótar. ATH: Útaukning við 1. merki er gerð þannig: Í byrjun á umferð: 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í lok umferðar: Sláið 1 sinni uppá prjoninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með merki). STÆRÐ L-XL-XXL-XXXL: Aukið út í annarri hverri umf þannig: Aukið út um 2 l hvoru megin við hvert merki (= alls 16 l fleiri) þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með merki), 1 l snúin sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (fyrsti og síðast uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt, en í 2 miðju uppsláttunum eiga að myndast göt. ATH: Útaukning við 1. merki er gerð þannig: Í byrjun á umferð: 1 lykkja snúin slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í lok umferðar: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja slétt (= lykkja með merki). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umferð 1-1-1-3 sinnum til viðbótar. Aukið síðan út þannig: Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert merki (= alls 8 l fleiri) þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l snúin sl, 1 l sl (= l með merki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er ekki prjónaður snúinn í næstu umf, það eiga að myndast göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 19-20-22-21 sinnum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndast göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 134-134-140-144-144-148 l á hringprjóna nr 3,5 með DROPS Muskat eða DROPS Belle. Prjónið A.1 (= 2 l) yfir allar l. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt og aukið út um 16-20-14-22-42-46 l jafnt yfir = 150-154-154-166-186-194 l. Í næstu umf eru sett 4 merki í stykkið, 1 prjónamerki í miðju l í laskalínu þannig: Setjið 1. merki í síðustu l frá fyrri umf, prjónið 45-47-49-55-65-71 l sl (= framstykki), prjónið 1 l og setjið 2. merki í þessa l, prjónið 28-28-26-26-26-254 l sl (= ermi), prjónið 1 l sl og setjið 3. merki í þessa l, prjónið 45-47-49-55-65-71 l sl (= bakstykki), prjónið 1 l og setjið 4. merki í þessa l, prjónið 28-28-26-26-26-24 l sl (= ermi). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú þannig – JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan: Prjónið hálfa útaukningu fyrir laskalínu að 1. merki (sjá útskýringu að ofan), prjónið 13-14-14-17-22-25 lykkjur slétt, A.2 (= 17 l), prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 2. merki, prjónið LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 3. merki, prjónið laskalínu, 0-1-1-4-9-12 lykkjur slétt, A.3 (= 43 l), prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 4. merki, prjónið laskalínu, prjónið sl þar til eftir eru 1-1-2-2-2-2 l á undan 1. merki, prjónið laskalínu. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar þær prjónast inn í mynstur eins og útskýrt er í A.3. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón yfir þessar l. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað A.4 (= 57 l) yfir A.3. Eftir alla útaukningu eru 294-314-338-358-394-426 l á prjóni. Stykkið mælist ca 14-15-16-17-18-19 cm. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður JAFNFRAMT er prjónað þannig: Prjónið fyrstu 81-87-95-103-117-129 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 66-70-74-76-80-84 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið merki mitt á milli nýrra lykkja), prjónið næstu 81-87-95-103-117-129 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 66-70-74-76-80-84 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi (setjið merki mitt á milli nýrra lykkja) = 174-186-202-222-250-274 l eftir á prjóni. Setjið 1 merki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram að prjóna A.4 og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Þegar stykkið mælist 3 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við merki í hliðum (= 4 l færri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 2½-4-4-4-4-4 cm millibili 5-3-3-3-3-3 sinnum til viðbótar = 150-170-186-206-234-258 l. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar l. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm setjið 4 ný merki þannig: Prjónið 15-17-19-21-25-27 l, setjið 1. merki, prjónið 45-51-55-61-67-75 l, setjið 2. merki, prjónið 30-34-38-42-50-54 l, setjið 3. merki, prjónið 45-51-55-61-67-75 l, setjið 4. merki, prjónið þær l sem eftir eru 15-17-19-21-25-27 l. Merki 1. og 2. eru á framstykki og merki 3. og 4. eru á bakstykki. Látið merki fylgja áfram með í stykkinu. Í næstu umf er aukið út um 1 l á undan 1. og 3. merki og 1. l á eftir 2. og 4. merki (= 4 l fleiri) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. ATH: Lykkjufjöldi við miðju að framan og við miðju að aftan verður sá sami, aukið út í hliðar-l. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 1 sinni til viðbótar, síðan í 4. hverri umf alls 6-5-6-5-6-10 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 22-18-22-18-18-8 sinnum = 270-270-306-306-338-338 l. Í næstu umf er aukið út um 2-2-0-0-2-2 l jafnt yfir = 272-272-306-306-340-340 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 25 cm). Prjónið nú A.6 (= 34 l) alls 8-8-9-9-10-10 sinnum á breiddina. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið A.5 yfir allar l. Fellið af. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 l undir ermi = 72-76-80-84-88-92 l. Prjónið sléttprjón í 2 cm, í næstu umf er fækkað um 8 l jafnt yfir = 64-68-72-76-80-84 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið A.5 yfir allar l. Fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermi. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerfeelingdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.