DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Paris yarn
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
Velja stærð:
DROPS 159-16

#sweetpeachsweater

DROPS Design: Mynstur nr w-547
Garnflokkur C eða A+ A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
500-550-600-650-750-800 gr litur nr 01, apríkósa

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 og 40 cm) NR 4 – fyrir garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.2 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 146-162-178-194-218-234 l á hringprjóna nr 4 með Paris. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið síðan mynstur þannig: * A.3 A (= 2 l ), A.3 B yfir næstu 14-18-22-26-32-36 l, A.3 C (= 2 l), A.4 (= 37 l), A.2 A (= 2 l), A.2 B yfir næstu 14-18-22-26-32-36 l, A.2 C (= 2 l) *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 73.-81.-89.-97.-109.-117. l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm. Fellið nú af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 6 l í hvorri hlið) og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 67-75-83-91-103-111 l. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun á hverri hlið þannig: 2 l 1-2-3-4-6-7 sinnum og 1 l 0-1-2-3-5-6 sinnum = 63-65-67-69-69-71 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 25-27-29-31-31-33 l fyrir hálsmáli og hvort stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. Í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 18-18-18-18-18-18 l. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt.

FRAMSTYKKI:
= 67-75-83-91-103-111 l. Fellt er af fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki = 63-65-67-69-69-71 l. Þegar stykkið mælist 48-50-52-54-54-56 cm setjið fyrstu 19-21-23-25-25-27 l á þráð fyrir hálsmáli og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. Fellið nú af fyrir hálsmáli í annarri hverri umf þannig: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinum = 18-18-18-18-18-18 l. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 37-39-41-43-44-46 l á sokkaprjóna nr 4. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út með 4-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 10-11-12-14-16-17 sinnum = 57-61-65-71-76-80 l. Þegar stykkið mælist 48-47-47-46-45-43 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 l mitt undir ermi (fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú ermi fram og til baka og fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3 sinnum, 1 l 1-2-3-4-6-9 sinnum, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-55-56-56-57-57 cm. Felli af 3 l 1 sinni í hvorri hlið áður en hinar l eru felldar af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 84-95 l (meðtaldar l af þræði) í kringum hálsmál á stutta hringprjóna nr 4. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.

Mynstur

sl frá réttu, br frá röngu = sl frá réttu, br frá röngu
br frá réttu, sl frá röngu = br frá réttu, sl frá röngu
2 l slétt saman = 2 l slétt saman
takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
sláið uppá prjóninn á milli 2 l = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
Diagram for DROPS 159-16
Diagram for DROPS 159-16

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetpeachsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Sarah skrifaði:

Hallo liebes Drops-Hilfs-Team :) Ich bräuchte bitte Ihre Hilfe zum Weiterstricken....ich befinde mich an der Stelle, wo ich beidseitig des Markierers je 3M für die Armausschnitte abketten soll... Nun meine Probleme: 1.) soll ich die ersten 3 Maschen besser gleich am ENDE der Runde abnehmen? sonst "schlepp" ich ja nachher die letzte abgekette Masche noch im abgeketteten Armausschnitt hinterher??? und 2.) kette ich in der Muster-Runde oder in der Umschlag-Abstrick-Runde ab? und

22.03.2015 - 22:01

DROPS Design svaraði:

Ja, Sie können die ersten 3 M am Ende der letzten Rd abketten, wenn Sie den Faden nicht abschneiden und neu ansetzen wollen. Oder Sie ketten die ersten 3 M der Rd nicht am Anfang, sondern ganz zuletzt ab, das ist dann letztendlich das gleiche Ergebnis. Ich würde die M in einer Zwischenrunde abketten, dann kommen Sie mit dem Muster nicht durcheinander. Ansonsten sollten Sie die M, die Sie abketten, glatt re stricken.

23.03.2015 - 10:43

country flag Sarah skrifaði:

3.) wie soll das funktionieren, dass nach dem Abketten neben dem A.4-Muster (37 Maschen) links und rechts noch jeweils 23 Maschen (=insgesamt 83 Maschen Rückenteil) sein sollen, wenn A.2 und A.3 doch über eine gerade Anzahl von Maschen gestrickt werden sollen???? Ich hoffe, dass Sie mir weiterhelfen und freue mich schon auf Ihre Antwort... Vielen Dank im Voraus :) Sarah Z.

22.03.2015 - 22:01

DROPS Design svaraði:

Ich sehe Ihr Problem, das geht tatsächlich nicht auf. Ich würde einfach die "ungerade" M, die nicht aufgeht, am Rand außen glatt re stricken, praktischerweise haben Sie dann auch noch eine M, an der Sie die Ärmel einnähen können. :-)

23.03.2015 - 10:51

country flag Noor skrifaði:

Wanneer ik A2 brei, komt het er niet zo uit te zien als A3 in spiegelbeeld. Ik heb er nu voor gekozen om, waar A.2 gebreid moet worden, A.3 te breien. Alleen meerder ik nu voordat ik minder. Jammer dat het niet helemaal klopt. Deze open gewerkte structuur vind ik juist zo mooi!

12.03.2015 - 21:22

DROPS Design svaraði:

Hoi Noor. Er is geen fout in het patroon. De teltekening A.2 is een exact spiegelbeeld van A.3 en je herhaalt over hetzelfde aantal st aan beide kanten.

13.03.2015 - 15:43

country flag Birgit Velten skrifaði:

Wo werden denn die Diagramme A1 und A5 eingesetzt? Danke im Voraus für die Antwort.

08.03.2015 - 11:39

DROPS Design svaraði:

Liebe Birgit, A.1 und A.5 benötigen Sie bei diesem Pulli nicht - die Muster sind von der Jacke 159-15 "rübergerutscht", dort ist es jeweils das Muster am Rand der Vorderteile. Ich werde darum bitten, dass die Diagramme für den Pulli gelöscht werden. Viel Spaß beim Stricken und gutes Gelingen!

08.03.2015 - 14:25

country flag Mona Rasmussen skrifaði:

Opskrift 159-16, hvor i opskriften skal man bruge mønster:A.1& A.5? Har læst opskriften igennem flere gange og syntes ikke det fremgår nogen steder. MVH Mona Rasmussen Lundsvænget 11 5270 Odense N 26564322

25.02.2015 - 10:23

DROPS Design svaraði:

Hej Mona, det bruger du ikke i 159-16 men i systeropskriften 159-15. God fornøjelse!

26.05.2015 - 10:44

country flag Deborah Taylor skrifaði:

Oh the contrast of texture, beauty is in the details! Wonderful!

11.01.2015 - 19:30

country flag Györgyi Boda Kissné skrifaði:

I like it!

07.01.2015 - 07:01

country flag CALLAUDAUX Annie skrifaði:

J'aime bien ce modèle, le mariage de torsades et points ajourés donne un cachet pour profiter pleinement le temps frais du printemps ou les soirées d'été simplement avec un sous vêtement approprié.

06.01.2015 - 10:25

Maria Rosales skrifaði:

Super!

04.01.2015 - 21:01

country flag Marialli skrifaði:

Ik zou bij dit patroon ook de mouwen in een open patroon maken

18.12.2014 - 02:24