Gergana skrifaði:
Hi. I love this sweater, the pattern is so feminine and elegant. I have tried to knit it but I have problems with reading the pattern. Could you please be so kind to explain what is happening on the 3, 6, etc row? I cannot figure out how to knit A1.A and the transition to A1.B and A1.C. I am an experienced knitter and I simple adore your patterns for their precision and accuracy but this one is very hard to follow. Thank you!
26.04.2015 - 20:07DROPS Design svaraði:
Dear Gergana, on row 3 in A.1, you will knit the 1st st in A.1A tog with the 1st st in A.1B and make a YO (= 1st new st in A.1B), at the end of A.1B, work the same: work the last st in A.1B tog with first st on next repeat A.1B / first st in A.1C). Happy knitting!
27.04.2015 - 11:33
Elsabeth Thomsen skrifaði:
Er lige blevet færdig med denne flotte bluse og glædede mig til at få den med på ferie- men suk, efter at have haft den på en halv time "dryppede" den 10 cm i begge sider i forhold til midt for og bag, ærmerne er pænt lige. Er der fejl i opskriften? Er ked af den slet ikke kan bruges. Mvh. Elsabeth
01.04.2015 - 12:04DROPS Design svaraði:
Hei Elsabeth. Det er synd. Det er lidt svaert for os at vurdere paa afstand hvad der kan vaere gaaet galt. Det skulle ikke vaere nogen fejl i mönstret. Maaske kan du tage den med til din forretning, saa de kan se paa arbejdet og hvad der kan vaere problemet.
29.04.2015 - 15:00
Brandy skrifaði:
Excellent
08.02.2015 - 13:50
Annie skrifaði:
J'aime déjà beaucoup la couleur, le boutonnage dans le dos est très féminin
13.01.2015 - 18:17
Susana skrifaði:
Precioso!! Será el primero que me haga si sale publicado.
08.01.2015 - 09:44
Elsabeth Thomsen skrifaði:
Den må jeg bare eje!!
07.01.2015 - 01:18
Tiny Van Den Tweel skrifaði:
Alweer zo'n verrassend model!
04.01.2015 - 21:45
MOLINA skrifaði:
Très féminin, j'aime beaucoup
04.01.2015 - 20:11
Lone Jelle skrifaði:
Elsker at lave det mønster og med knapper i ryggen, det har jeg ikke prøvet før.
31.12.2014 - 09:04
Åse skrifaði:
Fantastiskt vacker!
31.12.2014 - 08:49
Blue Spring#bluespringsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri, laskalínu og tölum að aftan. Hægt að snúa peysunni við og hneppa að framan. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-27 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l br saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í fyrri kanti frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að aftan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 10, 17, 24, 31, 38 og 46 cm. STÆRÐ M: 10, 17, 24, 32, 40 og 48 cm. STÆRÐ L: 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm. STÆRÐ XL: 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm. STÆRÐ XXL: 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm. STÆRÐ XXXL: 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 213-229-245-269-293-317 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að aftan) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið nú frá réttu – þannig: 5 l garðaprjón (= kantur), A.1 A (= 2 l), A.1 C (= 15 l), sléttprjón yfir næstu 52-52-52-64-68-72 l , A.1 A ( = 2 l), A.1 B yfir næstu 48-64-80-80-96-112 l, A.1 C (= 15 l), sléttprjón yfir næstu 52-52-52-64-68-72 l, endið á A.1 A (= 2 l), A.1 C ( = 15 l) og 5 l garðaprjón (= kantur). Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm eru sett 2 prjónamerki í stykkið, 56-60-64-70-76-82 l inn frá hvorri hlið (= 101-109-117-129-141-153 l á milli prjónamerkja á framstykki). Fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 9-9-9-10-10-10 cm millibili alls 4 sinnum = 197-213-229-253-277-301 l. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í fyrri kanti – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 8 l og prjónið út umf. Nú eru 85-93-101-113-125-137 l á framstykki og 48-52-56-62-68-74 l á hvoru bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-8-8 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Aukið út með 3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 13-14-15-16-17-18 sinnum = 74-78-82-86-90-94 l. Þegar stykkið mælist 49-49-49-49-48-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af miðju 8 l undir ermi = 66-70-74-78-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 313-337-361-393-425-457 l. Setjið 1 prjónamerki í skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir laskalínu sjá LASKALÍNA að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 20-21-22-22-23-24 sinnum og síðan í hverri umf 3-4-5-7-8-9 sinnum. Eftir úrtöku fyrir laskalínu eru 129-137-145-161-177-193 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT eins og í fyrstu umf er fækkað um 20-26-32-45-50-58 l jafnt yfir = 109-111-113-116-127-135 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í kant. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluespringsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.