NICOLE skrifaði:
Bonjour je voulais savoir si le dos des manche était au point mousse (jersey envers ) étant donnée que les 6 maille de chaque coté le la manche était en maille envers ainsi que toutes les augmentations je vous remercie de votre explications
04.10.2016 - 22:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, on tricote bien en jersey envers (pas au point mousse) de chaque côté de A.1, soit à l'envers tous les tours - les augmentations au milieu sous la manche se font aussi en jersey envers (pas au point mousse). Bon tricot!
05.10.2016 - 08:44
Rous skrifaði:
Bonjour (n°r-670) À 6 cm de hauteur totale, diminuer 1 m de chaque côté des marqueurs, répéter ces diminutions 3 fois au total tous les -7-cm = -194- m. ok pour ça, mais coté marqueurs dos sur les 100 mailles ou sur les 50 maille du devant Mercie pour votre aide je commence jute a tricoter avec DROP
25.09.2016 - 15:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Rous, les marqueurs repèrent les côtés, vous allez diminuer 2 m à chaque marqueur (= 1 m avant le marqueur + 1 m après le marqueur), soit 4 dimminutions (1 pour chaque devant et 2 pour le dos) à chaque rang de diminutions. Ainsi, vous aviez 210 m (taille M), vous diminuez 4 x (au total, correction faite) 4 m = 16 dim, il reste 198 m. Bon tricot!
26.09.2016 - 10:42
Nicole skrifaði:
Bonjour je commence le: Modèle n° r-670 comment je tricote en rond mon point mousse mon tricot est en aller retour(quand je visionne votre gilet il me semble qu'il est en jersey est ce que le point mousse est juste les bordures) pouvez vous m'expliquerje ne comprend pas je vous remercie davance
25.09.2016 - 08:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, quand vous tricotez au point mousse sur aiguille circulaire, en allers et retours (début du gilet), tricotez comme sur aig. droites, c'est-à-dire 1 côte mousse = 2 rangs end. Pour le bas des manches (point mousse en rond, voir réponse précédente). Bon tricot!
26.09.2016 - 10:31
Nicole skrifaði:
Bonjour je commence le: Modèle n° r-670 comment je tricote en rond mon point mousse pouvez vous m'expliquer je vous remercie davance
24.09.2016 - 19:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, pour tricoter le point mousse du bas des manches, en rond sur les aiguilles doubles pointes, tricotez alternativement (1 tour end, 1 tour env) 2 fois au total = 2 côtes mousse. Cf vidéo ci-dessous. Bon tricot!
26.09.2016 - 10:18
Susanne skrifaði:
Hallo, Kann es sein, dass die strickVorschrift und das Muster für dielteler Ärmel fehlerhaft ist ? Wenn man auf einem Nadelspiel strickt, gibt es keine Rückreise. Die aber istrotzdem im Muster A1 beschrieben (in den Erläuterungentsprechenden zu den Maschen). Wie ist es Richtig?
13.06.2016 - 17:58DROPS Design svaraði:
Liebe Susanne, ab der Passe muss in Hin- und Rück-R gestrickt werden, daher ist das Muster von Anfang an so beschrieben. In den Runden stricken alle Maschen so, wie sie in der Hin-R, also Vorderseite gestrickt werden.
14.06.2016 - 21:23
Isabelle skrifaði:
Je dois utiliser les aiguilles 3.5 pour un échantillon de la bonne taille, à ce moment là est-ce que je dois prendre des aiguilles no. 3 pour le point mousse ?
13.07.2015 - 00:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Isabelle, si vous avez besoin d'aiguilles 3.5 pour le jersey et le point fantaisie, il est probable que des aiguilles 3 suffiront pour le point mousse. Bon tricot!
27.07.2015 - 10:33
Brandy skrifaði:
Joli
08.02.2015 - 13:57
Menez skrifaði:
Trės romantique et frais
08.01.2015 - 12:25
MOLINA skrifaði:
On a envie de se mettre tout de suite au travail, très beau
04.01.2015 - 20:09
José Serné skrifaði:
Heerlijk 's zomers en heel vrouwelijk. Die moet zeker online!
14.12.2014 - 21:22
Angela Cardigan#angelacardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 159-28 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Fækkað er um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 8, 15, 22, 29, 36 og 44 cm. STÆRÐ M: 8, 15, 22, 30, 38 og 46 cm. STÆRÐ L: 8, 16, 24, 32, 40 og 48 cm. STÆRÐ XL: 8, 16, 24, 32, 41 og 50 cm. STÆRÐ XXL: 8, 16, 25, 34, 43 og 52 cm. STÆRÐ XXXL: 9,18, 27, 36, 45 og 54 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. PEYSA: Fitjið upp 194-210-226-250-274-298 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 51-55-59-65-71-77 l inn frá hvorri hlið (bakstykki = 92-100-108-120-132-144 l). Haldið áfram í sléttprjóni og 5 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan). Þegar stykkið mælist 6 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin, endurtakið úrtöku með 7-7-8-8-9-9 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 178-194-210-234-258-282 l. Þegar stykkið mælist 8 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 31-32-33-34-35-36 cm er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 8 l og prjónið út umf. Nú eru 76-84-92-104-116-128 l á bakstykki og 43-47-51-57-63-69 l á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-58-60-62-64-66 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú þannig: 5-6-7-8-9-10 l br, A.1 (=21 l) 2 sinnum, prjónið 4 fyrstu l í A.1, 5-6-7-8-9-10 l br. Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Aukið út um 3-2½-2½-2-2-2 cm millibili alls 15-16-17-18-19-20 sinnum = 86-90-94-98-102-106 l. Útauknu l eru prjónaðar brugðið. Þegar stykkið mælist 52-52-51-51-50-50 cm (ATH! Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerkin = 78-82-86-90-94-98 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 318-342-366-398-430-462 l. Setjið inn 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni yfir l á fram- og bakstykki og mynsturs og br eins og áður á ermum, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 20-21-22-22-23-24 sinnum til viðbótar og síðan í hverri umf 3-4-5-7-8-9 sinnum, síðasta skiptið sem lykkjum er fækkað fyrir laskalínu er fækkað um 8 l jafnt yfir í A.1 á hvorri ermi. Eftir úrtöku fyrir laskalínu eru 118-126-134-150-166-182 l eftir á prjóni. Skiptið yfir á stuttan hringprjón nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 8-14-18-28-40-52 l jafnt yfir = 100-112-116-122-126-130 l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #angelacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.