Teresa Young skrifaði:
THANK YOU SO VERY MUCH LOVE THE STYLE AND KNITTING PATTERN JUST LOVE IT.
07.03.2018 - 11:12Wendy skrifaði:
Thank you for offering 156-4 for free. I'd love to knit this, but can't figure out how to start. Do I start with A.1/A.2 by casting on 12 sts, add a marker, then another 12 sts? Is my 1st row: Inc. 1, P1, K4, P1, inc 2, P1, K4, P1, inc 2, etc? Should I use circular needles? Does A.1/A.2 turn into one of the other A's? or are all the A's separate pieces? I'm REALLY lost with the way the pattern is presented. Thank you!
13.01.2018 - 16:38DROPS Design svaraði:
Dear Wendy, the jacket is started by casting on 108-108-113-113-117 stitches, and knitting 3 ridges (= 6 rows) with garter stitch, then increading stitches in the next row. Then you knit a row where you set up the pattern alternating pattern A.1 and A.2 and purl stitches acording to the pattern and placing markers to help you with the raglan increases. Don't forget, you can always ask for help in person, in the store you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!
13.01.2018 - 21:42
Christina skrifaði:
Detta mönster är det mest opedagogiska och virriga mönster jag nånsin träffat på! Jag har stickat mycket i mitt liv, men aldrig någonsin varit med om liknande. Jag har också lämnat över min stickning till en kvinna som stickat ännu mer och efter riktigt komplicerade mönstebeskrivningar, men även hon går bet på detta virrvarr som inte stämmer. Detta betyder att jag fått överge sitt stickarbete och har kastat bort pengar på garn helt i onödan! Fy vad dåligt!
05.10.2017 - 15:51
Haley skrifaði:
Hi, yes in that area you have A.2 (6st), 11st, and then A.2 (6 st), but A.4 is 8st wide, so there's only 10st between the last stitch of A.4 and the first st of A.2, so when we work A.4 over where A.2 previously was, we have one less stitch to work with, we don't still have 11.
20.09.2017 - 19:46
Haley skrifaði:
Hi, again. I'm having a similar problem as before. I'm about to start working a.4 and a.5, but it says to P11 before doing a.2 at the sides, but if you P11 right after a.4 there, the 11th P puts you at the second stitch of A.2 Not the first. And I re-checked to make sure I increased enough.
20.09.2017 - 02:22DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Haley, there were P6 on each side of A.2 there and you increased a total of 5 times (ie inc 1st time when piece measures 3 cm then repeat inc 4 more times) = P6 + 5 inc = P11. Happy knitting!
20.09.2017 - 09:16
Haley skrifaði:
I slipped the sleeves onto the markers and to continue the pattern it says to P14 before A.2. [SIZE XL]. But if you P14, it would throw the whole pattern off since you P13 before A.2 historically. Is this a pattern issue? I read the pattern in French to see if it was different, but it's not.
13.09.2017 - 03:52DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Haley, it looks like you are right, P 13 sts as before, there will be a correction asap. Thank you. Happy knitting!
13.09.2017 - 09:01Patricia skrifaði:
La figura A.5 tiene algunos errores en su diagrama, pues aparecen algunos aumentos y cruces para formar torsadas en las filas pares, esto es, por el revés. No es pòsible hacer una torsada por el revés y siempre los aumentos van por el derecho. Los errores están desde la fila 39 hacia arriba. Yo corregí cambiando el número de las filas
18.08.2017 - 17:41
I Lindblom skrifaði:
Hej igen! Tack för att ni försökt hjälpa mig med problemet jag kört fast på och som jag tror faktiskt är ett fel i beskrivningen. Jag har provat att sticka med flätorna över varandra, men nu kommer det ju de nya maskorna under ärmarna, där jag inte vet hur det hela är tänkt. Så jag får nog dessvärre lägga ner arbetet tills ert designteam kommer tillbaka!
07.07.2017 - 20:33
I Lindblom skrifaði:
Hej igen! Känner mig lite ledsen nu då det är en vecka sedan jag fastnade. Ni svarade att ni inte visste var jag var i mönstret. Det finns endast ETT ställe för storl XL där antalet 14 am står skrivet. Det är på förklaringen till hur mönstret ska stickas på fram-och bakstycket efter delningen till armarna. Summeras maskorna enl beskrivningen blir det 300 maskor - vilket jag har! Men om jag stickar 14 am innan första flätan blir det ju en förskjutning på 1m.
07.07.2017 - 13:24DROPS Design svaraði:
Hej igen, om du har 300 m på stickan, stickar framkant som tidigare, de 13 am som tidigare och sedan stickar alla A1 och A2 som tidigare, samt alla am som tidigare, då tror jag att du ser direkt när det saknas 1 am för att mönstret skall kunna fortsätta enligt beskrivningen. Hoppas du förstår vad jag menar så du kan testa 1 varv och återkomma, så skall vi titta på det när design kommer tillbaka från semestern. Tack!
07.07.2017 - 13:55
I Lindblom skrifaði:
Ytterligare förtydligande av min tidigare fråga: när jag lagt upp 12 m under varje ärm står det för strl XL att det ska vara 300 m. Det stämmer! Sedan kommer alltså den texten under fram- och bakstycke där jag inte får det att stämma, eftersom det står 14 am i stället för 13 som tidigare. Summerar man maskorna enligt beskrivningen med 14 m blir det 300m!!! Men jag kan ju inte ha 14 am! Och då kommer det inte att stämma med antalet 300m!
05.07.2017 - 10:28
Alana Cardigan#alanacardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með köðlum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXL.
DROPS 156-4 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið er út í hvoru megin við laskalínu (A.1/A.2, prjónamerki, A.2/A.1) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = 8 útaukningar í umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar l snúnar brugðið (séð frá réttu) og á fram- og bakstykki eru prjónaðar nýjar l inn í mynstur eins og útskýrt er frá að neðan. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l br saman, 2 l br, 2 lykkjkur brugðið saman = 2 l færri. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat. Nýju l eru prjónaðar br (séð frá réttu). LEIÐBEININGAR: Í 10. hverri umf eru prjónaðar stuttar umferðir yfir 5 l garðaprjón í kanti að framan (byrjið frá réttu): Prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt, snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka, snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l, snúið við, prjónið 5 kantlykkjur að framan slétt, herðið á þræði og prjónið sl til baka. Með þessu þá koma kantlykkjur að framan að draga síður stykkið saman að framan. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 12, 22, 32, 42 og 52 cm STÆRÐ M: 2, 12, 22, 32, 42 og 52 cm STÆRÐ L: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 56 og 65 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar l. BERUSTYKKI: Fitjið upp 108-108-113-113-117 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað slétt, JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-23-23-27 l jafnt yfir = 132-132-136-136-144 l. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu þannig: 5 l garðaprjón, 1 l br, 2 l sl (= kantur að framan), 12-12-13-13-15 l br, A.1, setjið 1. Prjónamerki, A.2, 2 l br, A.2, 2 l br, A.1, setjið 2. prjónamerki, A.2, 0-0-1-1-3 l br, A.3, 0-0-1-1-3 l br, A.1, setjið 3. prjónamerki, A.2, 2 l br, A.2, 2 l br, A.1, setjið 4. prjónamerki, A.2, 12-12-13-13-15 l br, 2 l sl, 1 l br, 5 l garðaprjón (= kantur að framan) – LESIÐ LEIÐBEININGAR! LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er prjónað mynstur jafnóðum þannig: LASKALÍNA: Endurtakið útaukningu í hverri umf alls 0-2-10-20-20 sinnum. Aukið síðan út í annarri hverri umf (þ.e.a.s í hverri umf frá réttu) 23-32-30-26-27 sinnum og í 3. hverri umf 6-0-0-0-0 sinnum = 364-404-456-504-520 l. MYNSTUR: Prjónið nú mynstur á fram- og bakstykki þannig (útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar brugðið): Fyrstu 6 l sem auknar eru út eru prjónaðar í A.2, næstu 8-9-7-8-8 útauknar lykkjur eru prjónaðar br, næstu 6 útauknar lykkjur eru prjónaðar í A.2, næstu 8-9-7-8-8 útauknar lykkjur eru prjónaðar br. ATH! (Stærð M-L-XL-XXL): Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, haldið þá áfram með A.2 yfir kaðal og br (séð frá réttu) yfir næstu l frá A.3 þar til byrjað er á fram- og bakstykki. S/M: Aukið síðan út eins og áður á ermi og aukið út innan við A.1/A.2 (þ.e.a.s. á milli A.1 og A.2, við prjónamerki í laskalínu) á fram- og bakstykki 1-4 sinnum til viðbótar. Nýjar l eru prjónaðar br. L/XL/XXL: Haldið áfram með A.2 yfir næstu 6 útauknar lykkjur, prjónið br yfir næstu 7-8-8 útauknar lykkjur, aukið síðan út eins og áður á ermi og aukið innan við A.1/A.2 (þ.e.a.s. á milli A.1 og A.2, við prjónamerki fyrir laskalínu) á fram- og bakstykki 1-4-5 sinnum til viðbótar. Síðustu 1-4-5 útauknar lykkjur eru prjónaðar br. Stykkið mælist nú 27-28-29-30-31 cm frá öxl. Prjónið nú frá röngu þannig: Prjónið 55-60-67-73-76 l (= hægra framstykki), setjið næstu 80-90-102-114-116 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12 l undir ermi, setjið blátt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= hlið), prjónið næstu 94-104-118-130-136 l (= bakstykki), setjið næstu 80-90-102-114-116 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, setjið blátt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= hliða), prjónið næstu 55-60-67-73-76 l (= vinstra framstykki). Nú eru 228-248-276-300-312 l á prjóni. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉRÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 106-116-130-142-148 l fyrir bakstykki og 61-66-73-79-82 l fyrir hvort framstykki. Haldið nú áfram með mynstur frá réttu þannig: S/M: 5 l garðaprjón, 1 l br, 2 l sl (= kantur að framan), 12-12 l br, A.2, setjið prjónamerki, 8-9 l br, A.2, setjið prjónamerki, 8-9 l br, A.1, 7-7 l br, A.2 0-1 sinni á breiddina, 7-7 l br, A.2, 8-9 l br, setjið prjónamerki, A.2, 8-9 l br, setjið prjónamerki, A.2, 9-9 l br, A.2, 9-9 l br, A.2, setji prjónamerki, 8-9 l br, A.2, setjið prjónamerki, 8-9 l br, A.1, 7-7 l br, A.2 0-1 sinni á breiddina, 7-7 l br, A.2, 8-9 l br, setjið prjónamerki, A.2, 8-9 l br, setjið prjónamerki, A.2, 12-12 l br, 2 l sl, 1 l br, 5 l garðaprjón. L/XL/XXL: 5 l garðaprjón, 1 l br, l sl (= kantur að framan), 13-14-15 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.1, 4-6-5 l br, A.2 1-1-2 sinnum á breiddina, 4-6-5 l br, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 10-11-12 l br, A.2, 10-11-12 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið prjónamerki, 7-8-8 l br, A.1, 4-6-5 l br, A.2 1-1-2 sinnum á breiddina, 4-6-5 l br, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið prjónamerki, A.2, 13-14-15 l br, 2 l sl, 1 l br, 5 l garðaprjón. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fækkið nú lykkjum og aukið út samtímis þannig: ÚRTAKA: Fækkið lykkjum mismunandi þannig: Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l br saman við kant við miðju að framan, endurtakið úrtöku með 1½-1½1½-2-2 cm millibili 5-5-4-4-5 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við miðju kaðal á bakstykki. Endurtakið úrtöku með 2-2-1½-1½-1½ cm millibili 3-3-4-4-6 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l við kaðal í hverri mynstureiningu með br með prjónamerki í (= 8-8-12-12-12 prjónamerki). Endurtakið úrtöku með 3-2½-5-4-4 cm millibili 2-3-1-2-2 sinnum til viðbótar. ÚTAUKNING (í hliðum): Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út meðfram kaðli við ermi (þ.e.a.s. kaðall frá laskalínu) í mynstureiningu með br í hliðum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Aukið út um 4 l á prjóni. Endurtakið útaukningu með 1½-1½-2½-1½-1 cm millibili 3-4-2-4-10 sinnum til viðbótar. Þegar útaukning og úrtaka hefur verið gerð til loka eru 200-216-244-264-294 l eftir. Þegar stykkið mælist 11-12-12-13-14 cm prjónið nú mynstur þannig: 5 l garðaprjón, 1 l br, 2 l sl (= kantur að framan), 2-2-4-4-5 l br A.5, A.4, A.5, A.4 0-0-1-1-1 sinni, 7-8-6-11-15 l br, A.2 0-1-1-1-2 sinni á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.4 0-0-1-1-1 sinni á breiddina, * A.5, A.4 *, endurtakið frá *-* 2-2-3-3-3 sinnum á breiddina, A.5 1-1-0-0-0 sinnum á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.2 0-1-1-1-2 sinnum á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.4 0-0-1-1-1 sinni á breiddina, A.5, A.4, A.5, 2-2-4-4-5 l br, 2 l sl, 1 l br, 5 l garðaprjón (= kantur að framan). ATH: Stillið af að fyrsta kaðalinn í A.4 og A.5 þannig að það verði falleg skipting á milli mynstra! Haldið áfram með mynstur og útaukningu eftir mynsturteikningu. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina og stykkið mælist ca 33-34-34-35-35 cm, eru 316-332-376-396-426 l á prjóni. Setjið prjónamerki hér! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú stroff innan við 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki þannig: S/M: * Prjónið sl yfir sl og br yfir br þar til 7-11 l eru eftir á undan bláa prjónamerkinu í hlið, 2 l br, 2 l sl, 3-4 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br fram að kantlykkjum að framan. L/XL/XXL: * Prjónið sl yfir sl og br yfir br þar til 8-14-21 l eru eftir á undan bláa prjónamerkinu í hlið, 2-2-2 l sl, 3-4-3 l br, 0-2-2 l sl, 0-3-3 l br, 0-0-2 l sl, 0-0-3 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br fram að kantlykkjum að framan. Þegar prjónaðar hafa verið 2 cm fyrir stroff frá prjónamerki er aukið út með því að slá uppá prjóninn á undan fyrstu br l í hverri br mynstureiningu – MUNIÐ EFTIR ÚTAUKNING! Þegar prjónað hefur verið 5-5-6-6-6 cm stroff er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Setjið til baka þær 80-90-102-114-116 l af þræði á hringprjóna. Prjónið 1 umf yfir allar l og fitjið upp 12 l í lok umf = 92-102-114-126-128 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýju l (þ.e.a.s. 6 l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið síðan ermina í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Miðju kaðall á ermi heldur áfram eins og áður en prjónið br yfir kaðal í laskalínu. Í umf 2 byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 6 sinnum til viðbótar = 78-88-100-112-114 l. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki með 2-1½ -1-1-1 cm millibili 13-17-22-27-27 sinnum = 52-54-56-58-60 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er prjónað A.5 yfir kaðal fyrir miðju á ermi – stillið af eftir fyrsta kaðli í A.5 svo að það verði falleg skipting á milli í mynstri! ATH: Aukið ekki út í A.5 á ermi, prjónið þess vegna ekki uppsláttinn í mynstri! Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka og ermin mælist 37 cm er prjónað stroff frá prjónamerki í byrjun umf þannig: 0-0-1-2-3 l br, 1-2-2-2-2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 2 l br haldið áfram með stroff eins og í síðustu umf í A.5 (= 26 l), 2 l br, 2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 3 l br, 1-2-2-2-2 l sl, 0-0-1-2-3 l br. Haldið svona áfram í 3 cm og fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #alanacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.