DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Alana

Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með köðlum og laskalínu, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXL.

DROPS 156-19
DROPS Design: Mynstur nr u-734
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
650-750-800-850-1050 gr litur nr 55, ljós brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40, 60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 - A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Aukið er út hvoru megin við laska-l (A.1/A.2, prjónamerki, A.2/A.1) með því að slá 1 sinni uppá prjóninn = 8 útaukningar í umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið nú nýjar lykkjur brugðið á ermum og á fram- og bakstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í mynstur eins og útskýrt er frá að neðan.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l br saman, 2 l br, 2 l br saman = 2 l færri.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar brugðið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð ofan frá og niður, í hring á hringprjóna. Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna/sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 92-92-97-97-101 l á hringprjóna nr 4 með Karisma. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan upphækkun í GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, frá miðju að aftan þannig (1. umf = rétta): prjónið nú 5-5-7-7-9 l, snúið við, prjónið 10-10-14-14-18 l, snúið við, prjónið 15-15-19-19-23 l, snúið við, prjónið 20-20-24-24-28 l, snúið við, prjónið 25-25-29-29-33 l, snúið við, prjónið 30-30-34-34-38 l, snúið við, prjónið 35-35-39-39-43 l, snúið við, prjónið 40-40-43-43-48 l, snúið við, prjónið til baka að byrjun umf. Prjónið nú 1 umf slétt, JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-23-23-27 l jafnt yfir = 116-116-120-120-128 l. Prjónið 18-18-19-19-21 l br, setjið 1. prjónamerki hér (= þetta er nú byrjun á umf), A.2, 2 l br, A.2, 2 l br, A.1, setjið 2. prjónamerki hér, A.2, 0-0-1-1-3 l br, A.3, 0-0-1-1-3 l br, A.1, setjið 3. prjónamerki hér, A.2, 2 l br, A.2, 2 l br, A.1, setjið 4. prjónamerki hér, A.2, 0-0-1-1-3 l br, A.3, 0-0-1-1-3 l br, A.1.

LESIÐ NÆSTU 2 KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er mynstur prjónað jafnóðum þannig:
LASKALÍNA:
Endurtakið útaukningu í hverri umf alls 0-2-10-20-20 sinnum. Aukið síðan út í annarri hverri umf 23-32-30-26-27 sinnum og í 3. hverri umf 6-0-0-0-0 sinnum = 348-388-440-488-504 l.
MYNSTUR:
Prjónað er mynstur á fram- og bakstykki þannig (útauknar lykkjur á ermum eru prjónaðar br): Fyrstu 6 l sem auknar eru út eru prjónaðar í A.2, þær næstu 8-9-7-8-8 útauknar lykkjur eru prjónaðar br, næstu 6 útauknar lykkjur eru prjónaðar í A.2, næstu 8-9-7-8-8 útauknar lykkjur eru prjónaðar br. ATH (Stærð M-L-XL-XXL): Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni til loka á hæðna, er haldið áfram með A.2 yfir kaðal og br yfir þær l sem eftir eru frá A.3 þar til byrjað er á fram- og bakstykki.

S/M: Aukið síðan út eins og áður á ermi og aukið út innan við A.1/A.2 (þ.e.a.s. á milli A.1 og A.2, að prjónamerki til laskalínu) á fram- og bakstykki 1-4 sinnum til viðbótar. Nýju l eru prjónaðar br.

L/XL/XXL: Haldið nú áfram með A.2 yfir næstu 6 útauknar lykkjur, prjónið br yfir næstu 7-8-8 útauknar lykkjur, aukið síðan út eins og áður á ermi og aukið út innan við A.1/A.2 (þ.e.a.s. á milli A.1 og A.2, að prjónamerki til laskalínu) á fram- og bakstykki 1-4-5 sinnum til viðbótar. Síðustu 1-4-5 útauknu l eru prjónaðar br.

Stykkið mælist nú 27-28-29-30-31 cm frá öxl. Prjónið nú þannig: Setjið fyrstu 80-90-102-114-116 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, setjið eitt blátt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l, prjónið næstu 94-104-118-130-136 l (= framstykki), setjið næstu 80-90-102-114-116 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12 nýjar l undir ermi, setjið eitt blátt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l, prjónið þær 94-104-118-130-136 l sem eftir eru í umf (= bakstykki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 212-232-260-284-296 l að fram- og bakstykki. Haldið nú áfram með mynstur þannig:

S/M: 6-3 l br, * A.2 0-1 sinni á breiddina, 7-7 l br, A.2, 8-9 l br, setjið eitt prjónamerki, A.2, 8-9 l br, setjið eitt prjónamerki, A.2, 9-9 l br, A.2, 9-9 l br, A.2, setjið eitt prjónamerki, 8-9 l br, A.2, setjið eitt prjónamerki, 8-9 l br, A.1*, 7-7 l br, endurtakið *-* 1 sinni til viðbótar, 1-4 l br.

L/XL/XXL: 3-3-0 l br, * A.2 1-1-2 sinnum á breiddina, 4-6-5 l br, A.2, 7-8-8 l br, setjið eitt prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið eitt prjónamerki, A.2, 7-8-8 l br, setjið eitt prjónamerki, A.2, 10-11-12 l br, A.2, 10-11-12 l br, A.2, setjið eitt prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið eitt prjónamerki, 7-8-8 l br, A.2, setjið eitt prjónamerki, 7-8-8 l br, A.1 *, 4-6-5 l br, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 1-3-5 l br.

LESIÐ 2 NÆSTU KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Fækkið nú lykkjum og aukið út samtímis þannig:

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum mismunandi þannig – LESIÐ ÚRTAKA!
Fækkið um 1 l hvoru megin við miðju kaðal á fram- og bakstykki. Endurtakið úrtöku með 2-2-1½-1½-1½ cm millibili 3-3-4-4-6 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l við kaðal í hverri mynstureiningu með br með prjónamerki (= 8-8-12-12-12 prjónamerki). Endurtakið úrtöku með 3-2½-5-4-4 cm millibili 2-3-1-2-2 sinnum til viðbótar.

ÚTAUKNING (í hliðum):
Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út meðfram kaðli við ermi (þ.e.a.s. kaðli frá laskalínu) í mynstureiningu með br við hliðar – LESIÐ ÚTAUKNING! Aukið út um 4 l í umf. Endurtakið útaukningu með 1½-1½-2½-1½-1 cm millibili 3-4-2-4-1 sinnum til viðbótar.

Þegar útaukningu og úrtöku er lokið eru 188-204-228-248-276 l eftir. Þegar stykkið mælist 11-12-12-13-14 cm prjónið mynstur þannig:
6-3-6-6-0 l br, A.2 0-1-1-1-2 sinnum á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.4 0-0-1-1-1 sinni á breiddina, * A.5, A.4 *, endurtakið frá *-* 2-2-3-3-3 sinnum til viðbótar á breiddina, A.5 1-1-0-0-0 sinnum á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.2 0-1-1-1-2 sinnum á breiddina, 7-8-6-11-15 l br, A.4 0-0-1-1-1 sinnum á breiddina, * A.5, A.4 *, endurtakið frá *-* 2-2-3-3-3 sinnum á breiddina, A.5 1-1-0-0-0 sinnum á breiddina, 1-5-0-5-15 l br. ATH: Stillið af eftir fyrsta kaðal í A.4 og A.5 þannig að það verði fín skipting á milli mynstureininga! Haldið síðan áfram með mynstur og útaukningu eftir mynsturteikningu.
Þegar A.4 og A.5 hafa verið prjónaðar á hæðina og stykkið mælist ca 33-34-34-35-35 cm, eru 308-324-364-384-412 í umf. Setjið prjónamerki hér! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN!

Prjónið nú stroff þannig:
S/M: * Prjónið sl yfir sl og br yfir br þar til 7-11 l eru eftir á undan bláa prjónamerkinu í hlið, 2 l br, 2 l sl, 3-4 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br út umf.

L/XL/XXL: * Prjónið sl yfir sl og br yfir br þar til 8-14-21 l eru eftir á undan bláa prjónamerkinu í hlið, 2-2-2 l sl, 3-4-3 l br, 0-2-2 l sl, 0-3-3 l br, 0-0-2 l sl, 0-0-3 l br *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar og haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br út umf.

Þegar prjónað hefur verið 2 cm stroff frá prjónamerki er aukið út með því að slá uppá prjóninn á undan fyrstu l br í hverri br mynstureiningu – Munið eftir ÚTAUKNING! Þegar prjónað hefur verið 5-5-6-6-6 cm stroff er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Setjið tilbaka 80-90-102-114-116 l af þræði á hringprjóna. Prjónið 1 umf yfir allar l og fitjið upp 12 l í lok umf = 92-102-114-126-128 l. Setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja (þ.e.a.s. 6 l hvoru megin við prjónamerkin). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú ermi í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Miðju kaðall á ermi heldur áfram eins og áður en prjónað er br yfir kaðla í laskalínu. Í 2. umf byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 6 sinnum til viðbótar = 78-88-100-112-114 l. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerkin með 2-1½-1-1-1 cm millibili 13-17-22-27-27 sinnum til viðbótar = 52-54-56-58-60 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er prjónað A.5 yfir kaðal mitt á ermi – stillið af við fyrsta kaðal í A.5 svo að skiptingin verði falleg á milli mynstureininga! ATH! Ekki auka út í A.5 á ermi, prjónið þess vegna ekki uppsláttinn í mynstri! Þegar A.5 hefur verið prjónað og ermin mælist 37 cm er prjónað stroff frá prjónamerki í byrjun umf þannig: 0-0-1-2-3 l br, 1-2-2-2-2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 2 l br, haldið áfram með stroff eins og í síðustu umf í A.5 (= 26 l), 2 l br, 2 l sl, 3 l br, 2 l sl, 3 l br, 1-2-2-2-2 l sl, 0-0-1-2-3 l br. Haldið svona áfram í 3 cm og fellið af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l br af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l br af hjálparprjón
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (218)

country flag Celeste Allain wrote:

I'm sorry. I know this question has been asked before but I just don't understand. When the directions say to work rib as follows: for size M, work until 11 sts. remain before side marker, P2, K2, P4 is only 8 sts. How do I possibly make this work? Thank you.

17.03.2024 - 16:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Allain, after you have worked these 8 sts just repeat from *to* as before, that's okay that there are not 11 sts as the "missing" 3 sts are the first 3 sts from the repeat from *to*. Happy knitting!

18.03.2024 - 09:25

country flag Diane Rawlings wrote:

As Linda below, I am struggling with following the pattern increase instructions. All great up to this point. Thank you. Diane

03.03.2024 - 14:59

DROPS Design answered:

Dear Diane, which increases are you referring to? There are many different increases: raglan increases, increases towards the sides, rib increases, sleeve increases. Could you please indicate the specific section you are struggling with? Happy knitting!

03.03.2024 - 23:37

country flag Marie wrote:

Bonjour merci de vos modeles super beau mais j 'ai un petit probleme je n aimes pas du tout tricoter de bas en haut et le modele 156-19 nr peut il se tricoter de bas en haut merci de ce que vous ppurrez me dire pour realiser ce modele

17.02.2024 - 19:29

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, vous pouvez probablement adapter les explications pour le tricoter de bas en haut, mais il paraît plus simple de tricoter comme indiqué; retrouvez sinon tous nos pulls tricotés de bas en haut avec torsades ici, n'hésitez pas à ajouter des filtres si besoin. Bon tricot!

19.02.2024 - 09:12

country flag Celeste Allain wrote:

This is by far the most confusing pattern I have ever seen. I have another question, please. When I'm decreasing and increasing at the same time after putting sleeves stitches on holders, I'm confused. I've figured out where to decrease, both decreases. I don't know where to increase. At the last cable near the sleeves on front and back, do I increase on the side front and back or under the armhole where I originally added the 12 stitches? Thank you.

05.02.2024 - 04:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Allain, you will increase the number of stitches in the Purl sections after the cable on previous raglan at the end of left front piece, before the cable on previous raglan at the beg of back piece, after the cable on previous raglan at the end of back piece and before the cable on previous raglan at the beg of right front piece = 2 sts are increased on each side, 4 sts in total. Happy knitting!

05.02.2024 - 15:43

country flag Celeste Allain wrote:

Please ignore my last question. I found a few lines of the directions that didn't print out for some reason. Thanks!

02.02.2024 - 01:13

country flag Celeste Allain wrote:

Near the end of the body, when I have 324 sts. for size M , the directions say to put a marker and to measure the piece from there. But then there is only one more row of ribbing in the directions. Do I do more than one row and when do I bind off??? Thank you.

02.02.2024 - 00:43

DROPS Design answered:

Hi Celeste, You measure the ribbing from this last marker - first 2 cm of rib, then increase 1 stitch before each purled section, then work until the ribbing measures a total of 5 cm in size M before binding off. Happy knitting!

02.02.2024 - 08:01

country flag Celeste Allain wrote:

I\'m making size M. Once I have 388 sts. the directions say to increase 4 more times on sleeve and inside A.1 and A.2. That would be 8 sts. every row. Two questions: will this be done every row or every other row as before? Then I have too many stitches to have the rest of the directions be accurate for the M size. Should I only do this 3 times instead of 4? Thank you.

24.01.2024 - 17:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Allain, these sections explain how to work the new stitches increased for raglan, this means when all increases are done, you have 388 sts on needle and piece measures 28 cm from shoulder down, now divide piece as explained just afterwards. Happy knitting!

25.01.2024 - 08:34

country flag Celeste Allain wrote:

I'm currently increasing for raglan. until I have 388 sts. But where it says PATTERN: P the inc sts. on sleeves. Then it says work the first 6 sts. inc in A.2, P 9 sts, next 6 inc. sts. in A.2, P 9 sts. Where are those sts if I'm supposed to be purling the inc. sts?

06.01.2024 - 16:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Allain, the new stitches increased on sleeves are always purled, but the new stitches for raglan on front and back piece will be worked in pattern: first work the first 6 increases as shown in A.2, then purl the next 8 increaes, then work the next 6 increases as in A.2, and purl the next 9 increases. Happy knitting!

08.01.2024 - 10:18

country flag Celeste Allain wrote:

For DECREASE TIP (sleeves) it says work until 3 stitches remain before marker, P 2 tog, P2, P 2 tog. That requires 6 stitches. I'm confused yet again by your instructions. Please advise? Thank you.

03.01.2024 - 20:04

DROPS Design answered:

Hi Celeste, The marker sits in the middle of the 2 purled stitches and you purl 2 together on each side of these 2 purled stitches and marker (which covers 6 stitches). Happy knitting!

04.01.2024 - 07:46

country flag Celeste Allain wrote:

When reading instructions for increasing for raglan, it says to K the YOs twisted. Then to P the new stitches on sleeves. But when reading instructions where it says INCREASE TIP, it says to P YOs twisted then to P the new stitches. I'm confused as to whether to K or P?

03.01.2024 - 19:23

DROPS Design answered:

Dar Mrs Allain, the yarn overs will be knitted twisted on next round then work either purl or knit depending on the pattern, but you can choose to work them purl twisted from the beg if you like to. Happy knitting!

04.01.2024 - 08:12