Anna skrifaði:
Non si riescono a stampare le istruzioni! Forse c'è qualcosa che non va, infatti si stampa solo l'immagine....
20.06.2013 - 10:44DROPS Design svaraði:
Ma è sicura di cliccare su: Stampare modello? Qui funziona
21.06.2013 - 14:36Monika skrifaði:
Freude! Endlich ein Modell, dass auch für meine Figur passend wird. Eindeutig zuwenig Modelle für X-Figur Typen in dieser Winterkollektion. Aber die Ärmel würd ich auch hier ändern, wie übrigens bei all euren Modellen. Meist "schoppen" die beim Tragen, das ist unangenehm.
19.06.2013 - 09:48
Olga skrifaði:
Ausgefallene Idee! Leider sind solche Ärmeln sehr unbequem, wie so oft bei euren Anleitungen.
16.06.2013 - 18:58
Sissel skrifaði:
Lun og varm kofte,men den er også slankende,med at det strikkes en opphevet "linje" i hofte regionen.. Dette er et eksemplar på at selvgjort er velgjort, Nydelig til Ola bukse,ingen tvil. Den må jeg bare lage....
16.06.2013 - 13:17
Ingrid skrifaði:
Skön kofta enkel och lagom med detaljer.
14.06.2013 - 20:48
Bree Marie France skrifaði:
Un beau compromis entre classique et originalité
13.06.2013 - 23:05
Claire skrifaði:
Modéle féminin et raffiné
12.06.2013 - 20:52
Madeleine skrifaði:
Fin!
10.06.2013 - 21:33
Gabriele skrifaði:
Sehr dezentes Muster- sehr schön und feminin.
07.06.2013 - 22:49
Rita skrifaði:
Mooi,prachtige belijning
06.06.2013 - 18:59
La Belle#labellecardigan |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með mynsturáferð að framan. Stærð S - XXXL.
DROPS 149-28 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l saman slétt, (prjónamerki), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 8, 16, 24, 31, 38 og 45 cm. STÆRÐ M: 8, 16, 24, 32, 40 og 47 cm. STÆRÐ L: 8, 16, 24, 32, 40 og 49 cm. STÆRÐ XL: 8, 17, 25, 34, 42 og 51 cm. STÆRÐ XXL: 8, 17, 26, 35, 44 og 53 cm. STÆRÐ XXXL: 8, 17, 27, 36, 46 og 55 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. LESIÐ ALLAN KAFLANN UM FRAM- OG BAKSTYKKI ÁÐUR EN BYRJAÐ ER AÐ PRJÓNA! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 186-202-222-246-266-290 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón með 5 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ÚRTAKA Í HLIÐUM: Þegar stykkið mælist 7 cm er sett 1 prjónamerki 49-53-58-64-69-75 l inn frá hvorri hlið (= 88-96-106-118-128-140 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3. cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= allt 4 úrtökur) = 170-186-206-230-250-274 l. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. MYNSTUR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm er prjónað mynstur þannig (1. umf = rétta): Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón, prjónið garðaprjón (sl frá réttu, sl frá röngu) þar til eftir eru 9-9-10-10-11-11 l og endið á 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umf í garðaprjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón, mynstur A.1 (= 8 l), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 17-17-18-18-19-19 l á prjóni, prjónið A.1 (= 8 l), 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið alls 4 umf í sléttprjóni á eftir garðaprjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón, A.1 (= 8 l), 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón, prjónið garðaprjón þar til eftir eru 21-21-23-23-25-25 l á prjóni, 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón, A.1 (= 8 l), 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið alls 8 umf í garðaprjóni. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón, A.1, 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón, A.1, prjónið sléttprjón þar til eftir eru 29-29-31-31-33-33 l á prjóni, prjónið A.1, 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón, A.1, 4-4-5-5-6-6 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur til loka, þ.e.a.s. prjónið sléttprjón á fram- og bakstykki JAFNFRAMT er haldið áfram með bæði mynsturstykkin á framstykkjum til loka. ÚTAUKNING Á HLIÐUM: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4½-5-5-5½ cm millibili, 3 sinnum til viðbótar (= alls 4 útaukningar) = 186-202-222-246-266-290 l. HANDVEGUR: Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, fellið af 2-2-2-4-6-8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 1-1-1-2-3-4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 86-94-104-114-122-132 l á bakstykki og 48-52-57-62-66-71 l á hvoru framstykki. Prjónið hvort stykkið til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 86-94-104-114-122-132 l. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm fellið af miðju 28-28-32-32-36-36 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 28-32-35-40-42-47 l eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið af. Endurtakið á sama hátt í hinni hliðinni. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 48-52-57-62-66-71 l. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður og 5 kantlykkjur að við miðju að framan mí garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm – passið uppá að prjónaðar séu 1-2 umf á eftir síðasta hnappagati í kanti að framan, setjið síðustu 10-10-12-12-14-14 l frá miðju að framan á þráð fyrir hálsmál (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráð til þess þurfa ekki að klippa frá). Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá miðju að framan þannig: Fækkið um 2 l 4 sinnum og 1 l 2 sinnum = 28-32-35-40-42-47 l eftir á öxl. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm og fellið laust af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – ATH: Fellið ekki af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 46-48-50-52-54-56 l á sokkaprjóna nr 3 með Karisma. Prjóni 10 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10-7-10-8-13-12 cm er aukið út um 2 l fyrir miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili, 16-17-18-19-20-21 sinnum til viðbótar (= alls 17-18-19-20-21-22 útaukningar) = 80-84-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 53-52-50-49-47-46 cm setjið 1 prjónamerki fyrir miðju undir ermi. Prjónið nú áfram þar til stykkið mælist 54-53-51-50-49-48 cm og fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í – prjónamerki fyrir miðju undir ermi á að passa við prjónamerki í hlið á fram- og bakstykki. Saumið tölur í. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu, ca 96 til 116 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 3 með Karisma. Prjónið 6 umf slétt og fellið af með sl frá röngu. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #labellecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.