DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Lady Feather Jacket

Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og berustykki. Stærð S-XXXL.

DROPS 149-30
DROPS Design: Mynstur nr bs-049
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 6347, bláfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
+ einn auka hringprjónn (80 cm) með sama grófleika – til þess að fitja upp.
DROPS PERLUTALA NR 521: 9-9-9-9-10-10 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum i hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti saman slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 56 og 61 cm.
STÆRÐ M: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 57 og 63 cm.
STÆRÐ L: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 58 og 65 cm.
STÆRÐ XL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59 og 67 cm.
STÆRÐ XXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59, 64 og 69 cm.
STÆRÐ XXXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43, 51, 59, 65 og 71 cm.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermum. Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og fækkið lykkjum þannig. Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 235-255-285-319-349-389 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) yfir 2 stk hringprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Dragið frá annan hringprjóninn og prjónið síðan 4 umf GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan (þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að kanturinn dragi sig saman þegar mynstrið er prjónað). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 (= 12-12-12-14-14-14 l), 1 l sléttprjón, prjónið A.2 þar til 17-17-17-19-19-19 l eru eftir á prjón, endið á A.1 (= 12-12-12-14-14-14 l) og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 195-211-235-263-287-319 l eftir á prjóni. Prjónið nú sléttprjón en þær 17-17-17-19-19-19 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður (þ.e.a.s. 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni + A.1). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki 51-55-61-68-74-83 l inn frá hvorri hlið = 93-101-113-127-139-153 l á milli prjónamerkja á bakstykki. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6-6-6-6-7-7 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar (= alls 5 útaukningar í hvorri hlið) = 215-231-255-283-307-339 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm er næsta umf prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, A.1 eins og áður, 33-37-43-47-53-62 l br (= vinstra framstykki), fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir handveg (þ.e.a.s. 6-6-6-7-7-7 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið 91-99-111-123-135-146 l br (= bakstykki), fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir handveg, prjónið 33-37-43-47-53-62 l br, A.1 eins og áður og 5 kantlykkjur að framan (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörf.
Fitjið upp 70-70-70-80-80-80 l yfir 2 st hringprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Dragið út annan hringprjóninn, skiptið l á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 56-56-56-64-64-64 l eftir á prjóni. Prjónið nú sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 10-10-8-8-10-8 cm setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Aukið nú út um 2 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu í 6.- 5.- 5.- 5.- 4.- 4. hverri umf 17-19-21-20-22-25 sinnum til viðbótar (= alls 18-20-22-21-23-26 útaukningar) = 92-96-100-106-110-116 l. Þegar stykkið mælist 44-44-43-43-42-42 cm fellið af 12-12-12-14-14-14 l fyrir miðju undir ermi (þ.e.a.s. 6-6-6-7-7-7 l hvoru megin við prjónamerki = 80-84-88-92-96-102 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna inn l) = 351-375-407-439-471-515 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki).
Prjónið sléttprjón, en 17-17-17-19-19-19 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður JAFNFRAMT í fyrstu umf (= rétta) er lykkjum fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 2-2-3-3-3-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-4-4-4-4 úrtökur = 327-351-375-407-439-483 l
Í næstu umf er fækkað um 18-10-2-30-30-10 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir síðustu 17-17-17-19-19-19 l í hvorri hlið) = 309-341-373-377-409-473 l eftir á prjóni.
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 eins og áður (= 12-12-12-14-14-14 l), * prjónið A.3 (= 19 l), 13 l sléttprjón *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, prjónið A.3 (= 19 l), A.1 (= 12-12-12-14-14-14 l) og endið á 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur.
Nú hefur verið prjónað ca 1 cm með mynstur – stillið af að næsta umf er umf slétt frá réttu í A.1, fækkið um 1 l í A.1 þannig að A.1 verði minna. Fækkið um 1 l í A.1 með því að prjóna 2 síðustu l í A.1 á hægra framstykki (séð frá réttu), slétt saman, þær 2 fyrstu l í A.1 á vinstra framstykki (séð frá réttu) eru prjónaðar þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku í 8. hverri umf, 6-6-6-5-5-5 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf alls 3-3-3-6-6-6 sinnum (= alls 10-10-10-12-12-12 úrtökur í hvorri hlið við miðju að framan).
JAFNFRAMT þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1 (með úrtöku) eins og áður, * prjónið A.5 (= 19 l), A.4 (= 13 l) *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, prjónið A.5 (= 19 l), A.1 (með úrtöku) eins og áður og endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni eins og áður.
Þegar A.5/A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er næsta umf prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, A.1, * A.5 (= 19 l), A.6 (= 12 l) *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, A.5, A.1 og 5 kantlykkjur að framan.
Þegar A.5 hefur verið prjónað alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á hæðina (2-2-2-2-3-3 öll mynstureiningin af A.6 + 4-4-4-4-6-6 umf til viðbótar af A.6 á hæðina), prjónið A.7 í stað fyrir A.5 og A.8 í stað A.6 (byrjið A.8 við ör neðst niðri í mynstri fyrir rétta stærð – ATH: Aðrar l eru prjónaðar eins og áður).
Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.7/A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (endið eftir umf með ör efst uppi í mynstri fyrir rétta stærð) og úrtöku í A.1 er lokið þá eru 145-160-175-175-190-220 l eftir á prjóni.
Setjið 1 prjónamerki í umf – héðan er nú mælt (berustykkið mælist nú ca 22-23-24-25-26-27 cm frá handveg, öll peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm neðan frá og upp og þá eru eftir 2 hnappagöt í hægri kanti).
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1 (= 2 l), * 1 l sl, 2 l br saman, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l br saman, 1 l sl, A.10 (= 4 l – byrjið við ör í mynstri fyrir rétta stærð= *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, 1 l sl, 2 l br saman, 1 l sl, takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, 1 l sl, 2 l br saman, 1 l sl, A.1 (= 2 l) og 5 kantlykkjur að framan eins og áður = 109-120-131-131-142-164 l. Prjónið til baka frá röngu með sl yfir sl og br yfir br.
Prjónið nú háan kraga þannig (1. umf = rétta – munið eftir 2 síðustu hnappagötunum í kanti að framan): Prjónið 5 kantlykkjur að framan, A.1 (= 2 l), * A.9 (= 7 l), A.10 (= 4 l) *, endurtakið frá *-* alls 8-9-10-10-11-13 sinnum, prjónið A.9 (= 7 l), A.1 (= 2 l) og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist ca 6 cm frá prjónamerki (nú á að vera búið að prjóna ca 1 cm eftir síðasta hnappagat). Fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.11.2016
BERUSTYKKI:..Þegar A.5 hefur verið prjónað alls 2-2-2-2-3-3 sinnum á hæðina (2-2-2-2-3-3 öll mynstureiningin af A.6 + 4-4-4-4-6-6 umf til viðbótar af A.6 á hæðina), prjónið A.7 í stað fyrir A.5 og A.8 í stað A.6 (byrjið A.8 við ör neðst niðri í mynstri fyrir rétta stærð – ATH: Aðrar l eru prjónaðar eins og áður).

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l br saman
symbols = 2 l snúnar brugðnar saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Lene Steenberg Nielsen wrote:

Jeg strikker str. L, og der er da slet ingen logik i mønster A2, og den måde det jf beskrivelsen strikkes... Nu sidder jeg her og kan enten fortsætte med et mønster der ikke er ens på de to forstykker - uacceptabelt! - eller trævle hele molevitten op, og selv regne på tingene, for at få det til at passe. Heller ikke acceptabelt!

23.04.2021 - 20:59

DROPS Design answered:

Hej Lene, jo A.2 stemmer hele vejen rundt, på første pind i A.2 tager du ind fra 10 til 8 masker for hver gang du strikker diagrammet. Husk den første retmaske inden du strikker diagrammet, så bliver selve hulmønsteret ens i begge sider mod midt foran. God fornøjelse!

28.04.2021 - 16:03

country flag Inger Boel Johansen wrote:

Tusen takk for mønster på den flott jakken. Akkurat ferdig med en versjon i marineblå. Veldig fornøyd med både garn og mønster. Hilsen Inger

09.08.2020 - 21:29

country flag Eva wrote:

Tror det er feil i mønsteret. Jeg strikker str XL og når jeg skal begynne på mønster A8 får jeg det ikke til å stemme at jeg skal begynne der det er markert. Det stemmer hvis jeg begynner ved merket for de to større størrelsene. Det står at nest siste knapphull skal strikkes når arb måler 59 cm, samtidig står det at når A7/A8 er ferdig måler arb 62 cm og det mangler 2 knapphull, men det skal bare være ett når arb måler 67 cm. Hva er riktig?

02.11.2018 - 13:43

country flag Francine wrote:

I am try to make sense of the yoke. I did a grid to follow the row (a3,5,7,9 with a4,6,8,10), as I did with all pattern, and it do not work. Worse with the correction nothing fit. I am knitting size M. May be the correction are for an other size. Help!

22.04.2017 - 23:33

DROPS Design answered:

Dear Francine, you first work A.3(= 19 sts), 13 sts in st st (=10 rows), then A.5 (= 19 sts), A.4 (= 13 sts) (= 10 rows), then work A.5 (= 19 sts), A.6 (= 12 sts) as follows: Work A.5 a total of 2 times in height = 20 rows while A.6 is 8 rows only, ie when A.6 has been worked 1 time in height, repeat from 1st row, and when A.6 has been worked 2 times in height, work the first 4 rows = 20 rows in A.6. Happy knitting!

24.04.2017 - 09:46

country flag Rosa wrote:

Den ser dejlig ud, jeg har købt garn og skal snart i gang med at strikke den.

25.04.2014 - 16:14

country flag Lucy Lupusella wrote:

I want to use straight needles for this pattern NOT circular.Can you please adj pattern for straight needles.thankyou

04.04.2014 - 19:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lupusella, body is worked back and forth on circular needle to get enough room for all sts - so that you can work on straight needle - your sts may be tighter, take care to keep tension. For sleeves, cast on 2 sts more for seam and work back and forth as stated (inc each side instead of marker). Happy knitting!

05.04.2014 - 09:39

country flag Diana wrote:

Meget elegant

23.06.2013 - 12:49

country flag Anita wrote:

Mooi model maar ik zou de hals iets lager/wijder maken

20.06.2013 - 09:05

country flag Alvhild wrote:

Kjempefin jakke. Denne har jeg lyst til å strikke

18.06.2013 - 22:15

country flag Atty Van Nifterik wrote:

Mooi model wil ik voor de winter wel maken

18.06.2013 - 14:53