Kati skrifaði:
Tere! Tegin selle kampsiku juhendi järgi valmis. Õpetuse alguses ajas mind segadusse see, et 3,5 varrastega tehakse ripskude (sinna võiks lisada, et äärise ripskude nt). Kaelaäärise ma heegeldasin hoopis ja diagonaalne õlg ei tulnud väga hästi välja. Aga muidu kaunis ja lihtne muster :) Muide XXXL-le läheb lõnga 850g, nööpe panin mina rohkem ja ringvardad kõige mugavamad olid 1 m (allosa ringsel kudumisel).
27.05.2013 - 14:29
Angel Light |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð ermalaus peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-917 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti brugðið saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 3, 10, 17, 23, 29, 35 og 41 cm STÆRÐ M: 3, 10, 17, 24, 31, 37 og 43 cm STÆRÐ L: 3, 10, 17, 24, 31, 38 og 45 cm STÆRÐ XL: 3, 11, 19, 26, 33, 40 og 47 cm STÆRÐ XXL: 3, 11, 19, 27, 35, 42 og 49 cm STÆRÐ XXXL: 3, 11, 19, 27, 35, 43 og 51 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 216-237-258-286-314-342 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan brugðið í hverri umf til loka, * 3 l sl, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir og endið á 3 l sl og 5 kantlykkjum að framan sem prjónaðar eru brugðið í hverri umf til loka. Haldið svona áfram með stroff. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er lykkjum fækkað í næstu umf frá röngu: Fækkið öllum 4 l sl til 3 l sl með því að prjóna 2 l slétt saman í hverri mynstureiningu = 187-205-223-247-271-295 l. Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur eins og áður, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1a þar til 8 l eru eftir, prjónið A.1b (= 3 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm – stillið af eftir 1 umf með gatamynstri, prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 17-15-15-19-21-15 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan og kantur að framan er prjónaður brugðið eins og áður) = 170-190-208-228-250-280 l. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu (kantur að framan er prjónaður brugðið). Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 31-35-37-41-47-53 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 139-155-171-187-203-227 l. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, prjónið A.2a (= 4 l), prjónið A.2b þar til 10 l eru eftir, prjónið A.2c (= 5 l) og endið á 5 kantlykkjum að framan. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónuð 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 47-47-47-55-63-63 l jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kant að framan) = 186-202-218-242-266-290 l. Setjið 1 prjónamerki 49-53-57-63-69-75 l inn frá hvorri hlið (= 88-96-104-116-128-140 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið nú garðaprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm er stykkinu skipt við prjónamerki og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 88-96-104-116-128-140 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka JAFNFRAMT er nú aukið út um 1 l í fyrstu og síðustu l í umf með því að prjóna 2 l í sömu l. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu, 4-4-4-3-3-3 sinnum til viðbótar, síðan eru fitjaðar upp 31-29-27-24-20-16 nýjar l fyrir ermar í lokin á 2 næstu umf = 160-164-168-172-176-180 l á prjóni. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka, en 5 síðustu l í hvorri hlið eru nú prjónaðar brugðið bæði frá réttu og frá röngu (= kantur á ermi), aðrar l eru prjónaðar slétt frá réttu og slétt frá röngu. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm, setjið l í byrjun hverrar umf í hvorri hlið á þráð fyrir aflíðandi axlarstykki (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn svo að það ekki þurfi að klippa frá) þannig: Setjið 8 l á þráð all 5 sinnum í hvorri hlið og síðan 25-26-27-28-29-30 l 1 sinni - ATH: 1. l á vinstra prjóni sem verður eftir að l eru settar á þráð er tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið áfram. Þetta er gert til þess að koma í veg fyrir að það myndist stór göt í skiptingunum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 26-28-30-32-34-36 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsmáli. Þegar allar l hafa verið settar á þráð og úrtöku fyrir hálsmáli er lokið mælist stykkið ca 54-56-58-60-62-64 cm frá neðri kanti og upp að öxl þar sem það er lengst. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 49-53-57-63-69-75 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í lok umf í hliðum fyrir ermar eins og á bakstykki = 85-87-89-91-93-95 l. Haldið áfram í garðaprjón fram og til baka, en 5 síðustu l á hlið við ermi + 5 kantlykkjur að framan eru prjónaðar brugðið í hverri umf. Þegar stykkið mælist 42-44-46-48-50-52 cm eru síðustu 7-8-9-10-11-12 l settar á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráð). Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 4 sinnum og 1 l 5 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm eru l í byrjun hverrar umf frá hlið settar á þráð fyrir aflíðandi axlarstykki eins og á bakstykki. Þegar allar l hafa verið settar á þráð og úrtöku fyrir hálsmáli er lokið mælist stykkið ca 54-56-58-60-62-64 cm frá neðri kanti og upp að öxl þar sem það er lengst. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Setjið til baka 65-66-67-68-69-70 l af þræði frá annarri öxlinni á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt – ATH: Til þess að koma í veg fyrir göt í skiptingunum þar sem l voru settar á þráð er þráðurinn sóttur á milli 2 l í skiptingunum og prjónað slétt saman með 1. l á vinstri prjóni. Í næstu umf er fellt laust af með sl. Endurtakið á sama hátt meðfram hinum 3 axlarstykkjunum. Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn – passið að saumurinn verði ekki of stífur. Saumið sauma undir ermi innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. HÁLSMÁL: Prjónið upp frá réttu ca 98 til 120 l í kringum hálsmálið (meðtaldar 1 af þræði að framan) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Fellið nú laust af með sl frá réttu. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-917
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.