DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Aleya

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL.

DROPS 146-17
DROPS Design: Mynstur nr z-634
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-250-300-300-350-350 gr litur nr 7120, ljós grágrænn
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-125-125-150-150-175 gr litur nr 06, ljós grágrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10670.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
Frá réttu:
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum þegar 3 l eru eftir á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman og prjónið 1 l sl.

LEIÐBEININGAR:
Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast verður laskalínan allt of stutt og handvegurinn of lítill. Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli í úrtöku. Ef prjónað er of laust verður að fækka lykkjum oftar en tekið er fram í uppskrift.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 142-154-170-182-202-222 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 6 umf garðaprjón – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 71-77-85-91-101-111 l á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). Setjið 1 prjónamerki í miðju l á bakstykki. Prjónið nú stuttar umferðir í sléttprjóni þannig að bakstykkið verði lengra en framstykkið. Prjónið 25-29-34-38-42-48 l framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði, prjónið 50-58-68-76-84-96 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði, prjónið 52-60-70-78-86-98 l. Snúið við, herðið á þræði, prjónið 54-62-72-80-88-100 l br til baka. Haldið áfram þannig með því að prjóna 2 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 98-106-116-124-132-144 l. Snúið við, prjónið nú hringinn yfir allar l. Fjarlægið prjónamerki við miðju að aftan. Allar mælingar eru gerðar þar sem peysan er styst (miðja að framan). Þegar stykkið mælist 4-5-6-7-8-9 cm er prjónað – frá hlið þannig: Prjónið 17-20-24-27-32-37 l sléttprjón, A.1 (= 37 l), 34-40-48-54-64-74 l slétt, A.1 (= 37 l), 17-20-24-27-32-37 l sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l á hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 63-69-77-83-93-103 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 44-48-48-52-52-56 l á sokkaprjóna nr 5,5 með 1 þræði af Alpaca og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 6. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 7-9-9-11-9-11 l jafnt yfir = 37-39-39-41-43-45 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið nú þannig: Prjónið 12-13-13-14-15-16 l sléttprjón, A.2 (= 13 l), 12-13-13-14-15-16 l sléttprjón. Haldið áfram með þetta mynstur til loka. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 4-3½-2½-2½-2½-2½ cm millibili 10-11-13-13-14-14 sinnum til viðbótar (alls 11-12-14-14-15-15 útaukningar) = 59-63-67-69-73-75 l. Þegar stykkið mælist 50-50-49-49-48-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af 8 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 51-55-59-61-65-67 l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 228-248-272-288-316-340 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram með mynstur A.1 og A.2, þegar A.1 hefur verið prjónað á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar l á fram- og bakstykki, haldið áfram með ermar eins og áður.
JAFNFRAMT er byrjað á laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig – LESIÐ ÚRTAKA og LEIÐBEININGAR!
Lykkjum er fækkað í annarri hverri umf alls 16-16-16-17-17-18 sinnum, síðan í hverri umf alls 1-3-5-5-7-7 sinnum.
Eftir að laskalína hefur verið prjónuð til loka 92-96-104-112-124-140 l eftir í umf. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, jafnframt í 1. umf er fellt af 6-8-12-16-26-38 l jafnt yfir = 86-88-92-96-98-102 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.02.2013
Nýtt mynstur A.1

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (46)

country flag Sanne wrote:

Har et helt nøgle Kid Silk i overskud... det rækker jo også betydeligt længere...

15.09.2019 - 19:42

country flag Krystel wrote:

Merci pour ce modèle, je l'attaque dès demain mais en version droite simple, car je ne suis pas adepte de l'asymétrie :)

05.03.2018 - 00:16

country flag Małgorzata wrote:

Bardzo dziękuję za odpowiedź. Mam jeszcze jedno pytanie. Czy w zdaniu; "Dalej przerabiać tak samo przerabiając o 2o. więcej za każdym razem przed obróceniem robótki itd." chodzi o przerobienie 2o. z lewej i prawej strony tyłu, czy po 1o., jak do tej pory, czyli w sumie 2o. na jeden rząd?

21.10.2017 - 15:00

DROPS Design answered:

Witaj Małgorzato! Tak jak do tej pory, czyli na końcu rzędu, ponieważ dalej przerabiamy rzędy skrócone. Pozdrawiam

21.10.2017 - 15:28

country flag Małgorzata wrote:

Witam. Mam pytanie odnośnie przerabiania rzędów skróconych. Jeżeli zacznę je przerabiać od środka tyłu (tak jak w opisie), to połowa tyłu będzie o jeden rząd dłuższa. Czy dobrze zrozumiałam opis? Dziękuję za odpowiedź.

20.10.2017 - 15:56

DROPS Design answered:

Witaj Małgorzato! Zgadza się, ta różnica nie będzie jednak widoczna. Miłej pracy nad robótką!

20.10.2017 - 18:04

country flag Titti wrote:

Non mi è chiaro questo passaggio : " SPRONE: Trasferire le m delle maniche sullo stesso ferro circolare usato per lavorare il dietro e il davanti, nel punto in cui sono state chiuse le m per gli scalfi = 228-248-272-288-316-340 m. Inserire ora 1 segno in corrispondenza di ogni passaggio tra le maniche ed il davanti/dietro (= 4 segni)." Cosa si intende ? Devo mettere 1 segnapunti ai lati di ogni manica? Grazie per l'aiuto

26.10.2015 - 10:52

DROPS Design answered:

Buongiorno Titti. Sì esatto, i segnapunti vanno inseriti ai lati delle maniche. Buon lavoro!

26.10.2015 - 13:32

country flag Christine wrote:

Bjr c'esr possible de recevoir des modele de tricots car je recherche des modéles pour faire des chaussons pour adulte merci

10.03.2013 - 13:54

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, je vous recommande d'utiliser le moteur de recherche de la page d'accueil pour trouver des modèles de chaussons. Bon tricot!

11.03.2013 - 09:17

country flag Tribillon Liliane wrote:

Il y a une erreur dans le modele 146-17 dans le diagramme a1 apres 3 losanges au niveau du triangle noir sur la ligne la il y en a 2 et il a ete oublie le rond du jete. A bientot et merci pour vos beaux modeles

23.02.2013 - 22:41

DROPS Design answered:

Bonjour Madame Tribillon,un nouveau diagramme est désormais disponible. Bon tricot !

25.02.2013 - 10:43

country flag Tribillon Liliane wrote:

Il y a une erreur dans le modele 146-17 dans le diagramme a1 apres 3 losanges au niveau du triangle noir sur la ligne la il y en a 2 et il a ete oublie le rond du jete. A bientot et merci pour vos beaux modeles

23.02.2013 - 22:41

country flag Trine wrote:

Hej - Jeg mener der er en fejl i opskriften. I diagrammet mangler der i række 47 to omslag. Strikker man efter diagrammet kommer der til at mangle to masker. Håber i retter opskriften.

22.02.2013 - 14:32

DROPS Design answered:

Det har du fuldstaendig ret i. Vi har rettet diagrammet. Tak for meldingen.

25.02.2013 - 10:48

country flag Sif wrote:

Fluffy Sky

06.02.2013 - 20:18