DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 146-8
DROPS Design: Mynstur nr r-632
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio
350-400-450-500-500-550 gr litur nr 07, ljós gulur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4004.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá byrjun fyrir þína stærð í A.5.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Prjónað er í hring á hringprjóna neðan frá og upp.

TOPPUR:
Fitjið upp 224-240-264-296-328-360 l á hringprjóna nr 4 með Muskat.
Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú A.1 yfir allar l. Prjónið A.1 2 sinnum á hæðina, prjónið nú A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 168-180-198-222-246-270 l á prjóni. Prjónið A.3 yfir allar l, alls 9-9-10-10-11-11 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 40-40-43-43-46-46 cm. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun umf og 1 eftir 84-90-99-111-123-135 l (= í hlið). Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 53-55-58-60-64-66 cm prjónið 4 umf garðaprjón yfir 4 l í hvorri hlið (= 2 l hvoru megin við prjónamerki), aðrar l eru prjónaðar eins og áður. Fellið nú af miðju 4 l í hvorri hlið fyrir handveg = 80-86-95-107-119-131 l á fram/bakstykki. Stykkið mælist nú ca 54-56-59-61-65-67 cm.

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón yfir framstykki, fitjið upp 81-81-89-89-97-97 nýjar l yfir handveg, prjónið sléttprjón yfir bakstykki, fitjið upp 81-81-89-89-97-97 nýjar l yfir handveg í hinni hliðinni = 322-334-368-392-432-456 l. Prjónið 3 umf yfir allar l þannig: Prjónið garðaprjón yfir nýju 81-81-89-89-97-97 l fyrir ermi á hvorri hlið, þær l sem eftir eru, eru prjónaðar í sléttprjóni. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við nýju l fyrir ermi í hvorri hlið (= 4 prjónamerki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú þannig: Sléttprjón yfir fyrstu 80-86-95-107-119-131 l (= framstykki), A.4 A (= 8 l), A.4 B (= 8 l) alls 8-8-9-9-10-10 sinnum, A.4 C (= 9 l), prjónið sléttprjón yfir næstu 80-86-95-107-119-131 l (= bakstykki), A.4 A (= 8 l), A.4 B (= 8 l ) alls 8-8-9-9-10-10 sinnum, endið á A.4 C (= 8 l). Haldið áfram með þetta mynstur, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir laskalínu á fram /bakstykki, á ermi er A.4 prjónað án úrtöku.

Fækkið lykkjum fyrir laskalínu í annarri hverri umf (4 úrtökur í hverri umf) – þannig:
Í byrjun á fram/bakstykki er lykkjum fækkað - byrjið eftir prjónamerki þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, prjónið 1 l, steypið óprjónuðu l yfir.
Í lok á fram/bakstykki er lykkjum fækkað þannig: Byrjið 3 l á undan prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl.

Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (nú hefur lykkjum verið fækkað 6 sinnum á fram- og bakstykki) prjónið nú A.5 yfir A.4 – haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku í annarri hverri umf á fram/bakstykki. Skiptið yfir á stutta hringprjóna eftir þörfum. Haldið áfram þar til A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina (nú hefur lykkjum verið fækkað alls 20-20-22-22-24-24 sinnum á fram- og bakstykki) = 118-130-140-164-180-204 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 0-4-10-30-42-58 l jafnt yfir = 118-126-130-134-138-146 l. Fellið af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = búið er að fella af þessa lykkju
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Anette

Fabienne, Switzerland

Anette

Monika, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 146-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Helena Karlström wrote:

Hjälp! Frågan gäller ärmhålet. När jag bara maskat av 4 maskor på varje sida och sen ska lägga upp 81 nya maskor på samma ställe blir det så trångt att det inte går att sticka. Hur ska man göra? Mvh Helena

19.09.2022 - 22:09

DROPS Design answered:

Hej Helena, det är samma princip som här, när du har alla maskorna på stickan, det är lite tight i början: Raglan Skillnaden är att du lägger upp nya maskor på samma sticka (här stickas dom in på samma sticka) :)

20.09.2022 - 15:13

country flag April wrote:

Thanks but it took me to a page not found. I tried several times.

01.07.2022 - 04:15

DROPS Design answered:

Dear April, find the video here - after you will have cast on the new stitches as shown in the video, continue working in the round (do not turn as shown in the video). You can use another circular needle same size/length if you need. Happy knitting!

01.07.2022 - 08:08

country flag April wrote:

I’m having a little trouble trying to figure out the best way to cast on the 97 st in the 4 cast off space. What’s the best way to do that? By the way, I love your patterns.

30.06.2022 - 19:22

DROPS Design answered:

Dear April, you can see this video on how to cast on these stitches: https://www.garnstudio.com/video.php?id=94&lang=en. Happy knitting!

30.06.2022 - 21:12

country flag Dorthe Laulund wrote:

Str M siger 400 Gran muskat. Min strikkefasthed passer og jeg havde endda 429 gram muskat. Og det var stadig ikke nok. Der burde nok stå 500 gram garn ved str M😳🧐. Øv at pille et helt projekt op da indfarvning ikke kan skaffes længere

18.07.2021 - 22:36

country flag Brenda wrote:

400 gram voor maat M is absoluut te weinig. Had ipv 8 bollen al 10 bollen gekocht, om ruim voldoende te hebben. Ben nu aan het begin van het tricotgedeelte aangekomen en al in mijn 7e bol bezig. Met 10 bollen ga ik het niet redden dus, terwijl ik het patroon exact heb gevolgd en het werk ook goed is van afmeting. Klopt het dat het materiaal krap is weergegeven? Het is mijn eerste Drops-patroon; kan ik erop rekenen dat materiaal-hoeveelheden kloppen?

16.05.2021 - 15:09

country flag Fabienne wrote:

Bonjour, me voilà au 10ème tour de A1 tout à l'endroit fini. Dois -je reculer de 3 mailles pour commencer le 11ème tour ou seulement de 2 ? Ou alors je commence avec le jeté et je finirai le tour en accord avec les dernières mailles sur la ligne 11. Sinon je fini le tour 10 en commençant la ligne 11, 3 mailles avant la fin (ce qui revient au même que ma première solution. Je comprends que ce n'est pas évident de se faire comprendre ;-) merci d'avance pour votre réponse.

27.05.2020 - 17:14

DROPS Design answered:

Bonjour Fabienne, terminez le 10ème tour avant les 2 dernières mailles, puis faites 1 jeté et tricotez ces 2 dernières mailles avec la 1ère m du tour = le jeté et la maille obtenue après la diminution sont maintenant les 2 premières m du tour, et le 2ème jeté est la 3ème m du tour, tricotez 5 m end et répétez A.1 (= 1 jeté, 1 diminution, 1 jeté, 5 m end) tout le tour. Le début des tours est maintenant avant le 1er A.1 du tour (décalé de 2 m par rapport aux tours précédents). Bon tricot!

28.05.2020 - 08:09

country flag MARGHERITA wrote:

NEI DIAGRAMMI A1-A2 E A3 IL LAVORO SEMBRA SPOSTATO A DX DI DUE MAGLIE. QUALI MAGLIE? NON CAPISCO COME VANNO LAVORATI GLI ULTIMI DUE GIRI. POTETE AIUTARMI PER FAVORE? GRAZIE

17.01.2020 - 18:38

DROPS Design answered:

Buongiorno Margherita. Sul penultimo giro dei diagrammi A1, A2 e A3, le due maglie spostate sono le ultime due maglie del giro precedente. Quindi, al giro precedente, fa 1 maglia gettata prima delle ultime due maglie , passa 1 maglia, lavora 2 m insieme e accavalla la m passata, 1 m gettata. Verifichi il corretto incolonnamento del motivo. Buon lavoro!

18.01.2020 - 06:47

country flag Krysia wrote:

Robie schemat A1 jeden raz w końcu wyszło ale jak chce robić znowu A1 to już nie wychodzi próbowałam wiele razy i nic jak nie widze to nie umiem z tymi przejściami mam problemy szkoda

18.09.2019 - 13:03

DROPS Design answered:

Witaj Krysiu! Jak raz wyszło to i kolejny wyjdzie, nie poddawaj się :) Koniecznie zobacz instrukcje video do tego wzoru, szczególnie ten jak wykonywać ażur wg schematu A.1. Powodzenia!

18.09.2019 - 16:22

country flag Krystyna S wrote:

Dziękuje za filmik ale mam też pytanie czy w schematach A1 A2 A3 mam robić tak jak na filmiku? za odpowiedź z góry dziękuje krysia

19.07.2019 - 12:26

DROPS Design answered:

Witaj Krysiu, tak, zwracaj uwagę na różnice występujące w schematach A.2 i A.3, ale zasada jest taka sama. Pozdrawiamy i życzymy powodzenia! Koniecznie zamieść gotowe ubranie na naszej grupie na facebooku DROPS Workshop

21.07.2019 - 21:55

country flag Krystyna Sliwinska wrote:

Mam problem w szóstym rzędzie nie w piątym przepraszam bardzo prosze o pomoc z góry dziękuje bo nie wychodzi ten kwadracik krysia

21.06.2019 - 05:26

DROPS Design answered:

Witaj Krysiu, w 5-tym rzędzie na środku zamykasz 2 oczka jak na filmie TUTAJ i wykonujesz 2 narzuty, po jednym z każdej strony . W 6-tym rzędzie wszystkie oczka przerabiasz na prawo. Powodzenia!

21.06.2019 - 21:09