Pindala skrifaði:
Sehr schön, gefällt mir ausgesprochen gut
08.01.2013 - 13:18Christa skrifaði:
Ein wunderschönes Modell
03.01.2013 - 15:08
VILLA skrifaði:
La couleur est sublime et le modèle ira avec beaucoup de tenues blanche ou grise
29.12.2012 - 11:27
Merete Christiansen skrifaði:
Mange spændende lange modeller
26.12.2012 - 12:52
Regina Roth skrifaði:
Gefällt ausgesprochen gut
19.12.2012 - 09:07
Anita skrifaði:
En nu nog een hondje erbij met hetzelfde jasje.
19.12.2012 - 08:04
Flore skrifaði:
à le rendre jaloux
16.12.2012 - 19:38Marlene skrifaði:
Trendy-suitable for my young grandaughter.
15.12.2012 - 16:31
Emma skrifaði:
Sommarsaga
14.12.2012 - 03:37
Herma skrifaði:
Mooi
13.12.2012 - 14:32
Sparkling#sparklingbolero |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað axlarskjól með gatamynstri úr DROPS Verdi. Stærð S - XXXL.
DROPS 147-15 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- AXLARSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna fjölda lykkja er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. AXLARSKJÓL: Fitjið LAUST upp 152-164-168-180-192-204 l yfir 2 hringprjóna nr 7 (eða 7 + 8) með Verdi. Dragið annan prjóninn frá (haldið eftir einum hringprjóni nr 7) og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Þegar stykkið mælist 2 cm er 3. og 4. hver l prjónuð slétt saman (= 38-41-42-45-48-51 l færri) = 114-123-126-135-144-153 l. Þegar stykkið mælist 4 cm er önnur hver og 3. hver l prjónuð slétt saman (= 38-41-42-45-48-51 l færri) = 76-82-84-90-96-102 l. Þegar stykkið mælist 8 cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu, fækkið um 26-28-28-30-32-34 l jafnt yfir = 50-54-56-60-64-68 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, mynstur A.1 þar til 4 l eru eftir og endið á 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur með 4 l garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 13 cm (þ.e.a.s. 5 cm frá kanti í garðaprjóni) fitjið upp 4 nýjar l í lok 2 næstu umf fyrir ermar = 58-62-64-68-72-76 l. Haldið áfram með mynstur, en 8 síðustu l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 umf í garðaprjóni í hvorri hlið eru einungis prjónað garðaprjón yfir síðustu 4 l í hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar inn í mynstur). Þegar stykkið mælist 50-54-58-62-66-70 cm eru aftur prjónaðar 6 umf í garðaprjóni yfir 8 síðustu l í hvorri hlið (aðrar l halda áfram í mynstri). Í fyrstu umf á eftir 6 umf í garðaprjóni eru felldar af fyrstu 4 l í byrjun umf. Prjónið út umf, snúið við og fellið af fyrstu 4 l í byrjun umf = 50-54-56-60-64-68 l. Haldið áfram með mynstur með 4 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 58-62-66-70-74-78 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 7. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 26-28-28-30-32-34 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 76-82-84-90-96-102 l. Haldið áfram í garðaprjón fram og til baka. Þegar kantur í garðaprjóni mælist 2 cm er aukið út um 38-41-42-45-48-52 l jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út eftir 1. og 2. l í umf, síðan eftir aðrar hverja l) = 114-123-126-135-144-152 l. Þegar kantur í garðaprjóni mælist 6 cm er aukið út um 38-41-42-45-48-52 l jafnt yfir (þ.e.a.s. aukið út eftir 1. og 2. l í umf, síðan eftir 3. hverja l) = 152-164-168-180-192-204 l. Þegar kantur í garðaprjóni mælist 8 cm (allt stykkið mælist 66-70-74-78-82-86 cm), fellið af mjög laust JAFNFRAMT er slegið uppá prjóninn eftir ca 5. hverja l svo að affellingarkanturinn verði ekki of stífur (fellið uppsláttinn af eins og venjulega l). FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt í fyrstu ystu lykkjuboganna – sjá punktalínu í mynsturteikningu. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sparklingbolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.