DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 147-12
DROPS Design: Mynstur nr oo-098
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS VIVALDI frá Garnstudio
100-100-100-100-150-150 gr litur nr 15, kirsuber

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l með gatamynstri eftir mynstri A.1 verði 10 cm á breidd. 1 mynstureining með A.2/A.3 mælist 10 cm á breidd.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA NR 521: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 29 og 35 cm
STÆRÐ M: 31 og 37 cm
STÆRÐ L: 32 og 39 cm
STÆRÐ XL: 32 og 39 cm
STÆRÐ XXL: 33 og 41 cm
STÆRÐ XXXL: 35 og 43 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Leggið hringprjóna nr 4 og 5 saman.
Fitjið upp 54-58-64-70-78-86 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) yfir báða hringprjónana með Vivaldi. Dragið hringprjóninn nr 4 frá og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, á hringprjóna nr 5 (þetta er gert til þess að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur). Í næstu umf á eftir garðaprjóni (= rétta) prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermar í lok hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fitjið upp 2 l 3-3-3-3-4-5 sinnum, 4 l 2-2-2-2-1-0 sinnum og síðan 10-8-8-6-6-6 l 1 sinnum = 102-102-108-110-114-118 l í umf – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Eftir síðustu útaukningu er haldið áfram með mynstur eins og áður, en síðustu 5 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur á ermar). Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar l JAFNFRAMT er aukið út í 1. umf (= rétta) 46-50-50-52-52-54 l jafnt yfir = 148-152-158-162-166-172 l. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm eru felldar af miðju 34-34-36-36-38-38 l fyrir hálsmál og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsi = 55-57-59-61-62-65 l eftir á öxl. Fellið laust af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Leggið hringprjóna nr 4 og 5 saman og fitjið upp 34-36-40-42-46-52 l (meðtaldar 5 kantlykkjur við miðju að framan og 1 kantlykkja í hlið) yfir báða hringprjónana. Dragið hringprjón nr 4 frá og prjónið 4 umf garðaprjón á hringprjón nr 5 (1. umf = rétta). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið mynstur A.2 (= 16 l), prjónið nú mynstur eftir A.1 þar til 1 l er eftir á prjóni, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm eru fitjaðar upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf í hlið, eins og á bakstykki = 58-58-62-62-64-68 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1. Eftir síðustu útaukningu er haldið áfram með mynstur eins og áður, en síðustu 5 l í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur á ermum). Munið eftir HNAPPAGAT i kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Í fyrstu umf frá réttu eftir síðasta hnappagatið eru fyrstu 11-11-11-11-13-15 l í byrjun umf settar á þráð fyrir hálsmáli (l eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn). Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 38-38-42-42-42-44 l eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við hálsmál og 5 l garðaprjón við handveg. Þegar stykkið mælist 43-45-47-49-51-53 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar l JAFNFRAMT er aukið út um 17-19-17-19-20-22 l jafnt yfir í 1. umf = 55-57-59-61-62-66 l. Fellið laust af þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið 4 umf garðaprjón á sama hátt og hægra framstykki. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.1 þar til 21 l er eftir, prjónið A.3 (= 16 l) og endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ATH: Fellið ekki af fyrir hnappagötum í vinstra framstykki, þ.e.a.s. setjið lykkjur á þráð fyrir hálsmáli þegar stykkið mælist 36-38-40-40-42-44 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn. Saumið sauma undir ermi og hliðarsaum í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

HÁLSMÁL:
Prjónið upp ca 105-115 l í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan), á hringprjóna nr 4 með Vivaldi. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Fellið laust af með sl frá röngu.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er annar uppslátturinn látinn falla niður og hinn er prjónaður brugðið
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Brigitte wrote:

Bonjour, peut-on recevoir les explications en français ? Merci pour votre réponse, cordialement.

12.08.2023 - 16:01

DROPS Design answered:

Bonjour Brigitte, vous pouvez volontiers modifier la langue de tous nos modèles, ils sont tous disponibles en français: cliquez sur le menu déroulant sous la photo et choisissez "français". Bon tricot!

14.08.2023 - 09:13

country flag Sigrid Majchrzak wrote:

Hallo, ich möchte gerne Cutie Stricken. Mein Problem ist das ich keine Wolle oder Alpaka Mohair usw. vertrage. Es geht nur Baumwolle. Können Sie mir helfen. Vielen Dank und bleiben Sie gesund Sigrid Majchrzak

17.01.2022 - 11:55

DROPS Design answered:

Liebe Frau Majchrzak, Vivaldi war Garngruppe C; Sie können dann eine Baumwolle von dieser Gruppe benutzen oder 2 Garne der Gruppe A - hier lesen Sie mehr; bitte nur beachten, daß das Ergbenis etwas unterschiedlich aussehen wird, da die beide Garne unsterschiedlich sind. Viel Spaß beim stricken!

17.01.2022 - 15:23

country flag Beena Dahal wrote:

Do you have a video for this pattern pls 😀

26.12.2020 - 06:03

DROPS Design answered:

Dear Beena. This pattern doesn’t have a step by step video. You can see below the pattern videos that may help you while making this piece. Happy knitting!

02.01.2021 - 18:07

country flag Roberta wrote:

I would like to make this in a light cotton or synthetic yarn for summer rather than a wool mohair type yarn. Since it calls for a "c" weight yarn, it looks like it would not look lacy in the alternatives since they are thicker yarns. What yarn would you recommend? Thanks.

14.05.2016 - 18:13

DROPS Design answered:

Dear Roberta, for any further personnal assistance choosing an alternative you are welcome to contact your DROPS Store even per telephone or per mail, they will provide you individual assistance. Happy knitting!

17.05.2016 - 09:19

country flag Catherine wrote:

Bonjour, A quelle hauteur faut-il commencer les diminutions pour l'encolure de devant ? cordialement Catherine

31.10.2013 - 17:55

DROPS Design answered:

Bonjour Catherine, au 1er rang sur l'end après la dernière boutonnière, vous mettez en attente pour l'encolure les 11-15 premières m (cf taille) et rabattez ensuite 3x 2 m et 3x 1 m pour l'encolure. Bon tricot!

31.10.2013 - 17:59

Vee wrote:

Cutie by DROPS Design Knitted DROPS jacket with lace pattern in ”Vivaldi”. Size: S - XXXL.Materials: DROPS VIVALDI from Garnstudio 100-100-100-100-150-150 g It says i only need 150 gms for the large size.this can't be right

01.08.2013 - 01:40

DROPS Design answered:

Dear Vee, on the basis of the indicated tension, you should need 150 g Vivaldi in largest size, DROPS Vivaldi is 50 g/280 m approx. Happy knitting!

01.08.2013 - 10:20

Nashwa Ahmed wrote:

I am sorry but diagram A.1 is only 8 sts not 13 i can't figure it out

23.06.2013 - 12:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nasha Ahmed, A.1 can be repeated on how many sts you'll need, you just need an even number of sts to cast on, eg 14 sts + 1 edge st each side. Happy knitting!

24.06.2013 - 09:15

Nashwa Ahmed wrote:

How to check gauge for this pattern ?

21.06.2013 - 18:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nasha Ahmed, you have to work a swatch in A.1 and then get 13 sts = 10 cm in width + 1 time diagrams A.2/A.3 should be 10 cm in width. Happy knitting!

22.06.2013 - 09:47

country flag Delattre wrote:

Je ne comprends pas l'explication du devant droit. Commence-t-on les boutonnières directement après les augmentations de la manche? Si oui, combien de mailles et comment?

17.06.2013 - 10:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Delattre, toutes les indications pour les boutonnières figurent au début des explications, ainsi la 1ère se situe entre 29 et 35 cm en fonction de la taille choisie. Bon tricot!

17.06.2013 - 10:40

Francesca wrote:

I am working the back and have reached the sleeve increases but I find that both sides are sloped - in opposite directions. Is this right and to be remedied when I block the piece or have a made some kind of mistake?

12.06.2013 - 01:26

DROPS Design answered:

Dear Francesca, maybe some yos have been missed or added after casting on for sleeves ? It is very easy to go wrong with yo when increasing at the same time. Make sure you have always the same amount of 2 tog and yo + inc and keep no of sts right. Happy knitting!

13.06.2013 - 08:49