DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 147-4
DROPS Design: Mynstur nr bs-045
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL
Yfirvídd: 84/94 - 100/110 - 120/130 cm

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
200-250-300 gr litur nr 6235, gráblár

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 st og 13 umf verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 – ATH: Fyrsta umf með fl í mynstri er ekki með í mynstureiningu og er því ekki endurtekin.

ÚRTAKA:
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað frá miðju að aftan. Fyrst er önnur hliðin hekluð niður við byrjun á ermi, síðan er hin hliðin hekluð niður við byrjun á hinni erminni. Að lokum er ermasaumarnir saumaðir og heklaður er blúndukantur í kringum allt opið.

FYRRI HLIÐ:
Heklið 113-135-156 ll með BabyAlpaca Silk með heklunál nr 3. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, haldið áfram með 1 fl í 3-1-4 næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 5 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 94-112-130 fl (fyrsta ll í umf er EKKI talin sem ein fl). Haldið áfram með mynstur A.1 yfir fyrstu 90-108-126 fl og mynstur A.2 yfir síðustu fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGA! Endurtakið mynstur til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 27-30-33 cm er sett 1 prjónamerki í hlið (það merkir hversu langt sauma á upp ermasaum í lokin). Í næstu umf er fækkað um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 næst síðustu st saman – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 16-20-24 sinnum = 62-72-82 l eftir – ATH: Þegar úrtakan er í gangi, er einungis heklað st yfir l sem ekki ganga upp í mynstri. Heklið nú mynstur þar til stykkið mælist alls ca 47-50-53 cm – endið eftir umf einungis með st, klippið frá.

SEINNI HLIÐ:
Heklið 1 fl í hverja af 94-112-130 fl sem heklaðar voru í umf 1 í fyrri hlið (þ.e.a.s. miðja að aftan). Heklið nú mynstur eins og á fyrri hlið. Passið á að enda í sömu umf í mynstri neðst niðri á ermi á báðum hliðum.

FRÁGANGUR:
Brjótið stykkið saman tvöfalt á lengdina og saumið saman, byrjið neðst niðri á hvorri ermi og upp þar sem prjónamerki er staðsett í hvorri hlið – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

BLÚNDUKANTUR Í KRINGUM OP:
Heklið nú í kringum allt opið á jakkanum (byrjið við miðju að aftan) þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í fyrstu l, * 3 ll, 1 fl um næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 ll og 1 kl í fyrstu kl í byrjun umf – ATH: Passið uppá að fjöldi ll-boga verði jafn annars kemur umf 5 ekki að ganga upp.
UMFERÐ 2: Heklið 1 kl og 1 fl um fyrsta ll-boga, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 3 og 4: Heklið eins og umf 2.
UMFERÐ 5: Heklið 1 kl og 1 fl um fyrsta ll-boga, * 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 1 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 6: Heklið 1 ll, 1 fl um fyrsta stóra ll-boga, [* 4 ll, 1 st í fyrstu ll sem var hekluð (= 1 picot), 1 fl um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. það eru 3 picot um stóra ll-bogann), 1 fl um litla ll-bogann (það er bara 1 ll sem er á milli stóru ll-boga), 1 fl um næsta stóra ll-boga], endurtakið frá [-] umf hringinn, í stað síðustu fl, heklið 1 kl í fyrstu fl í umf. Klippið frá og festið enda.

BLÚNDUKANTUR Á ERMUM:
Neðst niðri í kringum ermar er heklaður aðeins styttri kantur, hér er einungis hekluð umf 1, 5 og 6 af blúndukanti sem heklaður var í kringum op – ATH: Í 1. umf er hoppað yfir 1 st á milli hverra ll-boga.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 stuðull
symbols = heklstefna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (145)

country flag Majbrit wrote:

Kan ikke bruge jeres opskrifter da de med diagram. Søger at der laves opskrifter der bliver beskrevet trin for trin/række for række istedet. Denne opskrift har jeg givet op på.

23.09.2022 - 00:00

country flag Maurer wrote:

Bei mir wellt sich die letzte Reihe am Volantrand. Maschenprobe war gut. Ich habe den ganzen Volantrand schon mit einer kleineren Nadel gehäkelt, immer noch wellig. Auch habe ich die Picots mit festen Maschen gearbeitet - auch wellig. Können Sie mir bitte helfen? Was mache ich falsch? Vielen Dank.

01.06.2022 - 10:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Maurer, bei der 5. Runde, beachten Sie, daß Sie 8 Lm nur in jede 2. Lm häkeln, dh, es ist abwechslungsweise *1 LmBogen mit 8 Lm, 1 LmBogen mit nur 1 Lm* und dazwischen immer 1 M in jedem LmBogen. Dann wird Sie die 4. Runde auch etwas wellen, aber es sollte auch nicht zu wellig sein. Vielleicht können Sie auch mal Ihr DROPS Laden zeigen (auch ein Foto per mail senden), so kann man Ihnen am besten weiterhelfen. Viel Spaß beim häkeln!

01.06.2022 - 13:33

country flag Barbora wrote:

Hi, I don 't understand the begining of the Pattern. I made 113ch, than 1cs in 2nd, than one more sc. but than I don't know 🤦‍♀️ what mean next 3-1-4ch? thanks

23.06.2021 - 16:05

DROPS Design answered:

Dear Barbora, it means you have now to work 1 sc in each of the next 3 chains in the first size, in the next chain in the 2nd size and in the next 4 chains in the last size. Each number refers to the size. Since the fundation chain is most often quite tight, you cast on more stitches and then you will skip chains evenly on very first row. Happy crocheting!

23.06.2021 - 16:10

country flag Roswitha Rudolph wrote:

Betreff: bolero CAROLINE Siehe schreiben beim volant häkeln 3 luftmaschen UM die vorhergehende luftmasche herum einstechen , das verstehe ich nicht, ist auch nicht logisch für mich

24.04.2020 - 08:37

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rudolph, es wird bei der 3. Runde 1 fM um den nächsten Lm-bogen - dieses Video zeigt (mit einem anderen Diagram), wie man in oder um die Maschen häkelt. Viel Spaß beim häkeln!

24.04.2020 - 09:39

country flag Tone Frank Stubberud wrote:

Jeg har nå printet ut denne oppskriften, men diagram A1 og diagram A2 er ikke med i oppskriften. Blir ingen bolero uten diagrammene, håper de blir lagt inn på oppskriften.

26.03.2020 - 13:25

DROPS Design answered:

Hej Diagrammen finns längst ner på oppskriften så de ska komma med på utskriften. Kan det vara någon inställning på din printer som gör att de inte kommer med? Jag får med de när jag provar här.. Mvh DROPS Design

26.03.2020 - 14:02

country flag Linda wrote:

I have been crocheting for 65 years so I hope that you will consider my suggestion. I am working on this pattern now and find it very easy to use, but I wonder why you do not begin the project with foundation single crochet, rather than including extra chains which you then skip in the following row of single crochet. The obvious purpose is to avoid having the chain too tight, but foundation single crochet has much more stretch than a chain, and gives a nicer-looking result.

30.01.2020 - 08:13

country flag Donna Louk wrote:

In first row does skip ch1 mean skip 1 ch or ch 1 and skip 1 ch?

13.05.2019 - 03:17

DROPS Design answered:

Dear Mrs Louk, you will skip 1 chain and crochet 1 dc in each of the next 5 chains (= 5 double crochets worked over 6 chains between stars). Read more here. Happy crocheting!

13.05.2019 - 10:28

Mari wrote:

Hi, I'm confused as to how to start the other SECOND SIDE of the vest. The instructions don't seem to tell me to do anything different. Do I crochet it exactly the same? If I do, won't one half be in reverse stitch? Please help out.

03.08.2018 - 08:00

DROPS Design answered:

Dear Mari, 2nd side starts with 1 row with dc (UK-terminology)/sc (US-terminology), then work as first side, ie repeat A.1 and finish with A.2. Happy crocheting!

03.08.2018 - 08:26

Natasja wrote:

Hi there. Im wondering if im wrong, but the pattern says to crochet tr. so i do, but i think i just realized that is not tr that i should crochet, but dc ? I can read this pattern in different languages, and in danish it says that i need to crochet this in dc ? And now im confused, should this be crochet in tr. or dc ? Cause i just crochet 33 cm in tr.

28.11.2017 - 23:04

DROPS Design answered:

Dear Natasja, US and UK crochet terminology are different, make sure you are selecting the correct language you are used to. Read more here. Happy crocheting!

29.11.2017 - 09:17

country flag Betina Ellegaard wrote:

Hej Jeg er igang med denne skønne bolero. Jeg er dog nybegynder i at hækle. Mit spørgsmål lyder på indtagningen i hver side af arbejdet. Hvordan laver man indtagningen der hvor der er 2 luft masker i mønstret, altså der hvor hullerne er i mønstret. et sted er det st m og 2 lm og det gentager sig, hvordan laver jeg så indtagningen der? På forhånd tak Kærlig hilsen Betina Ellegaard

18.08.2017 - 21:42

DROPS Design answered:

Hej Betina, dem tager du ind på samme måde ved at hækle 2 st sammen. Husk at når der ikke er nok masker til en rapport, så hækles der st over de yderste masker. God fornøjelse!

21.08.2017 - 11:11