Haulrig skrifaði:
Hm... det fremgår ikke helt tydeligt, hvad der er for nogle slidser, der er tale om...
16.01.2013 - 17:44
Haulrig skrifaði:
Fin og meget luxuriøs sweater. Kan bruges til både jeans og kjoler.
14.01.2013 - 22:13
Maisonneuve Annick skrifaði:
Douce chaleur, douillet comme un ourson blanc
08.01.2013 - 01:10
FILIO skrifaði:
TELIO GIA TA VRADIA
07.01.2013 - 09:05
Mette skrifaði:
Dejlig, tidsløs. Min datter vil gerne have denne model. Håber den snart kommer.
05.01.2013 - 17:56
Ansku skrifaði:
Kaunis ja tyylikäs vaate
03.01.2013 - 17:14
Eva Henriksson skrifaði:
Just ett sådant mönster jag är ute efter. Hoppas det kommer snart. Helst nu. namnförslag: Wilma
02.01.2013 - 10:02
Elisabeth Westdahl skrifaði:
Tidlösa
02.01.2013 - 02:59
Elisabeth skrifaði:
Enkel fin basmodell.
02.01.2013 - 02:16
Virpi skrifaði:
Nimiehdotus: Auli
01.01.2013 - 19:05
White sand#whitesandsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa í garðaprjóni úr DROPS BabyAlpaca Silk og DROPS Kid Silk. Stærð S - XXXL
DROPS 145-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN: Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 91-101-109-119-129-139 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið stroff í 1. umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff í 4 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sl yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 15-17-19-21-21-21 l jafnt yfir = 76-84-90-98-108-118 l. Prjónið garðaprjón til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-9-9-9 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (hér byrjar op/klauf). Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 3-4-4-5-6-7 l í byrjun á næstu 2 umf = 70-76-82-88-96-104 l. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm. Fellið nú af miðju 20-20-22-24-26-28 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 2 l í næstu umf frá hálsi = 23-26-28-30-33-36 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki – en framstykkið er prjónað 4 cm styttra á hæðina. Fitjið upp og prjónið fyrst stroff og síðan garðaprjón á sama hátt og á bakstykki (ATH: Ekki setja prjónamerki). Þegar framstykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm er fellt af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki. Haldið áfram í garðaprjóni þar til framstykkið mælist 44-46-47-49-50-52 cm. Fellið nú af miðju 14-14-16-16-18-18 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuðu til loka fyrir sig. Fellið nú af í hveri umf frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 1 l 3-3-3-2-2-3 sinnum = 23-26-28-30-33-36 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar framstykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 44-46-50-52-54-56 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4,5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið stroff 1. umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* út umf, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff í 4 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5 og prjónað sl yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-8-8-8-8 l jafnt yfir = 38-40-42-44-46-48 l. Prjónið nú garðaprjón til loka. Þegar stykkið mælist 8-8-8-7-7-7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 6½-5½-5-4-3½-3½ cm millibili 6-7-8-9-10-10 sinnum til viðbótar (alls 7-8-9-10-11-11 útaukningar) = 52-56-60-64-68-70 l. Þegar stykkið mælist 50-49-49-47-45-43 cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á ermi (fyrir frágang). Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 52-51-51-50-49-47 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í, saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju – ATH: Sú eining sem prjónuð var á eftir prjónamerki efst á ermi á að passa inn í úrtöku fyrir handveg. Saumið hliðarsaum frá handveg niður að prjónamerki á bakstykki (op/klauf = 8-8-8-9-9-9 cm mælt á bakstykki). HÁLSMÁL: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónið upp frá réttu ca 90-110 l meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 4,5 (40 cm). Í næstu umf er prjónað sl – JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður að 90-94-98-102-106-110 l. Prjónið nú stroff (= 1 l sl, 1 l br) þar til hálsmálið mælist ca 2½ cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitesandsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.