Inger Høgås Markussen skrifaði:
Hvordan skrive ut oppskriften
07.05.2025 - 16:17
Inger Vanggaard skrifaði:
Jeg er i tvivl om, hvor jeg skal tælle fra på den runde, hvor der sættes masker af til hånd og lillefinger. Er de 3 nye m over tomlen nr: 1,2 og 3 på højre handske?
07.11.2024 - 15:12DROPS Design svaraði:
Hei Inger. Ja, det er de :) mvh DROPS Design
11.11.2024 - 09:46
Krist L skrifaði:
Ik ben de Michelle Gloves ah breien, maar ik begrijp dit niet goed… “Herhaal dit meerderen elke 3e nld nog 2-3-4 keer (meerder aan elke kant van alle duim st, dus meerder 2 st tussen elke meerdering) = 7-9-11 duim st. “
06.11.2024 - 00:13DROPS Design svaraði:
Dag Krist,
Je breit verder en 3 naalden verderop pas je het meerderen nog een keer toe, dit doe je dus in totaal nog 2-3-4 keer (de reeks getallen refereren naar de maten, dus 2 keer herhalen voor de kleinste maat, 3 keer voor de middelste, enz).
06.11.2024 - 13:46
Hrefna skrifaði:
I am knitting size 3/5 Michelle gloves When piece measures a total of 9-11-13 cm, slip the 7-9-11 thumb sts My question ... 9cm length is that measurement without or with the rib Best wishes
18.10.2024 - 17:16DROPS Design svaraði:
Dear Hrefna, the pattern particularly mentions, " When piece measures a total of 9-11-13 cm..." in which "total" means inculding the ribbing. Happy Knitting!
19.10.2024 - 07:37
Caroline skrifaði:
How strange to publish a 'gloves pattern, when in one photo the child has her hands out of shot, and in the second her fingers are so curled you can't see the gloves properly. I have used your patterns in the past and have enjoyed them. When making such a complicated accessory, it would be helpful to see a close up.
05.02.2024 - 19:08
Annie Rittig skrifaði:
De 3 masker der slåes op over tråden til tommelfinger ,skal de sidde i begyndelsen af 1 pind eller til slut i sidste pind? Har det betydning for hvor masker til lillefinger tælles fra??
27.12.2021 - 10:13DROPS Design svaraði:
Hei Annie. Disse 3 maskene legges "over" de maskene du har satt på tråd. Siden du avsluttet omgangen, satte tommelmaskene på og så legges det opp 3 nye masker blir dette begynnelsen av omgangen. mvh DROPS Design
04.01.2022 - 13:26
Sadie skrifaði:
Tussen de vingers ontstaan gaten door de extra opgezette steken. Hoe maak je die weer dicht?
22.08.2021 - 20:54
Masome skrifaði:
Hello You said:Continue in stockinette st – AT THE SAME TIME on 1st round dec 2 sts evenly = 38-42-46 sts.I couldn't understand where I should Dec 2sts?
30.01.2021 - 07:32DROPS Design svaraði:
Hi Masome, how to increase stitches evenly you will find HERE. Happy knitting!
30.01.2021 - 19:23
Masome skrifaði:
Excuse me I couldn't understand how much yarn need just for gloves?50g purple?
06.01.2021 - 15:00DROPS Design svaraði:
Dear Masome, to work the gloves, you need 1 ball 50 g DROPS BabyMerino + if you like to make the flower, you need 1 ball (or leftover) in 2 other colours + 1 spoon DROPS Glitter to add a glitter effect to the flower. Happy knitting!
06.01.2021 - 15:49
Solange skrifaði:
Bonjour, J'ai voulu tricoter la taille 6/9 pour un enfant de 7 ans assez mince. Mon échantillon tel que décrit ci-dessus (aiguilles 2.5) donne pour moi : 11cm/8cm ! j'ai tout de même essayé. la main ça passe mais le petit doigt, lui qui a les doigts fins, ne passe pas. Alors je me suis demandé si j'aurais dû prendre les aiguilles 3 ??? Merci
03.11.2018 - 23:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Solange, vous devez avoir 10 cm pour 26 m, si vous avez trop de mailles pour 10 cm, il vous faudra essayer à nouveau avec des aiguilles plus grosses, donc effectivement, essayez votre échantillon à nouveau avec des aiguilles 3. Bon tricot!
05.11.2018 - 09:19
Michelle gloves#michellegloves |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðir fingravettlingar fyrir börn með hekluðu blómi úr DROPS BabyMerino og Glitter. Stærð 3 – 12 ára.
DROPS Children 23-13 |
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað á sokkaprjóna. HÆGRI FINGRAVETTLINGUR: Fitjið upp 40-44-48 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum fjólublár. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 6-7-8 cm. Haldið áfram í sléttprjón – JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir = 38-42-46 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra lykkju í umferð (= þumallykkja). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónað hefur verið 1 cm sléttprjón byrjar útaukning fyrir þumalfingur með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við þumallykkju, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt. Endurtakið útaukningu í 3. hverri umferð 2-3-4 sinnum til viðbótar (aukið er út hvoru megin við allar þumallykkjur, þ.e.a.s. það verða 2 lykkjur fleiri á milli útaukninga í hvert skipti) = 7-9-11 þumallykkjur. Þegar stykkið mælist alls 9-11-13 cm eru 7-9-11 þumallykkjur + 1 lykkja hvoru megin settar á þráð (= 9-11-13 lykkjur á þræði). Fitjið síðan upp 3 lykkjur yfir lykkjur á þræði = 38-42-46 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 11-14-17 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 14-16-17 lykkjur og setjið þær síðan á þráð = innan í lófa, haldið eftir næstu 10-10-12 lykkjum á prjóni fyrir litlafingur og setjið síðustu 14-16-17 lykkjur á annan þráð = ofan á hönd. Prjónið nú fingur. LITLIFINGUR = 10-10-12 lykkjur, fitjið að auki upp 2 nýjar lykkjur við lykkjur á þræði = 12-12-14 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 3½-4-4½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. BAUGFINGUR: Setjið til baka 4-4-5 lykkjur af hvorum þræði á prjóninn. Prjónið að auki upp 3 lykkjur að litla fingri og fitjið upp 2 nýjar lykkjur við lykkjur á þræði = 13-13-15 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 4½-5-6 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. LANGATÖNG: Setjið til baka 4-4-5 lykkjur af hvorum þræði á prjóninn. Prjónið að auki upp 3 lykkjur að baugfingri og fitjið upp 2 nýjar lykkjur við lykkjur á þræði = 13-13-15 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 5-6-7 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. VÍSIFINGUR: Setjið til baka þær 6-7-7 lykkjur af hvorum þræði á prjóninn og prjónið að auki upp 2 lykkjur að löngutöng = 14-16-16 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 4½-5-6 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka 9-11-13 lykkjur af þræði fyrir þumalfingur á prjóninn, prjónið að auki upp 5 lykkjur í kant á bakhlið við þessar lykkjur = 14-16-18 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn í 3-4-5 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2, klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. VINSTRI FINGRAVETTLINGUR: Prjónið á sama hátt hægri fingravettlingur, nema gagnstætt, þ.e.a.s. aukið er út fyrir þumalfingur hvoru megin viðnæst síðustu lykkju í umferð. Þegar prjóna á litlafingur er prjónað þannig: Prjónið fyrstu 14-16-17 lykkjur og setjið þær síðan á þráð = ofan á hönd, haldið eftir næstu 10-10-12 lykkjur á prjóni fyrir litlafingur og setjið síðan síðustu 14-16-17 lykkjur á annan þráð = innan í hönd. HEKLAÐ BLÓM: Blómið er heklað með heklunál 3 með BabyMerino + Glitter. Heklið 4 loftlykkjur með litnum ljós bleikfjólublár + silfur og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju. UMFERÐ 1: 1 loftlykkja, 6 fastalykkjur um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju. UMFERÐ 2: Heklið 4 loftlykkjur (= 1 fastalykkja + 3 loftlykkjur), * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 3 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum og endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 6 loftlykkjubogar. UMFERÐ 3: 1 loftlykkja, heklið síðan um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 fastalykkja, 1 loftlykkja, 3 stuðlar, 1 loftlykkja og 1 fastalykkja, endið um ferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 6 blöð, klippið frá þráðinn með BabyMerino. UMFERÐ 4 (Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár + silfur): Heklið 7 loftlykkjur, * 1 fastalykkja á milli 2 næstu blaða, 6 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið umferð með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð = 6 loftlykkjubogar. UMFERÐ 5: 1 loftlykkja, heklið síðan um hvern loftlykkjuboga þannig: 1 fastalykkja, 1 hálfur stuðull, 5 stuðlar, 1 hálfur stuðull og 1 fastalykkja, endið umferð með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 6 blöð, klippið frá og festið enda. Heklið annað blóm á sama hátt. Saumið 1 blóm á hvorn fingravettling. ---------------------------------------------------------- Alpahúfa og hálsklútur – sjá DROPS Children: 23-12 ---------------------------------------------------------- |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #michellegloves eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 23-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.