DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alaska yarn
DROPS Alaska
100% Ull
frá 594.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6534.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
Velja stærð:
DROPS 141-9

#wintermorningcardigan

DROPS Design: Mynstur nr x-390
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
550-600-650-700-800-850 gr litur nr 57, gallabuxnablár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 4,5 – fyrir stroff.
DROPS SILFURTALA NR 533: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 594.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6534.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum frá RÉTTU þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l sl saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum frá RÖNGU þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br saman.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir 3 hnappagötum frá réttu í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 5. og 6. l frá miðju að framan, fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 24, 32, 40 cm.
STÆRÐ M: 25, 33, 41 cm.
STÆRÐ L: 24, 33, 42 cm.
STÆRÐ XL: 25, 34, 43 cm.
STÆRÐ XXL: 24, 34, 44 cm.
STÆRÐ XXXL: 24, 34, 44 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 140-156-172-192-212-232 l með Alaska á hringprjóna nr 4,5.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - i 8-8-8-9-9-9 cm. Í næstu umf frá réttu er skipt yfir á hringprjóna nr 5, prjónið sléttprjón – en síðustu 6-6-6-8-8-8 l í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= kantur við miðju að framan). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Haldið áfram í sléttprjóni með 6-6-6-8-8-8 l með garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 9-9-9-10-10-10 cm. Setjið 1 prjónamerki 38-42-46-52-57-62 l inn frá hvorri hlið (= 64-72-80-88-98-108 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING = 4 útauknar l í umf. Endurtakið útaukningu með 4-4-4½-4½-4½-4½ cm millibili 4 sinnum til viðbótar (alls 5 sinnum) = 160-176-192-212-232-252 l (= 74-82-90-98-108-118 l á milli prjónamerkja á bakstykki) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-25-24-25-24-24 cm er fellt af fyrir 1. HNAPPPAGAT í hægri kanti að framan - sjá útskýringu að ofan.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm. Fellið nú af 3 l hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg (þ.e.a.s. 6 l færri í hvorri hlið) = 148-164-180-200-220-240 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 36-38-40-42-44-44 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Alaska.
Prjónið garðaprjón í 8 cm. Skiptið nú yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið áfram í sléttprjóni.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu 10-11-12-12-13-15 sinnum til viðbótar með 3½-3-3-3-2½-2 cm millibili (alls 11-12-13-13-14-16 sinnum) = 58-62-66-68-72-76 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-47-46-46 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerkið (þ.e.a.s. 6 l færri við miðju undir ermi) = 52-56-60-62-66-70 l eftir á prjóni.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 252-276-300-324-352-380 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki), látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónið nú sléttprjón með 6-6-6-8-8-8 l í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 18-18-18-20-20-20 sinnum, síðan í hverri umf 2-4-6-4-6-8 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-45 cm eru fyrstu l í byrjun hverrar umf frá hálsi settar á þráð þannig: 8-8-10-10-12-12 l 1 sinni, 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 2 sinnum, síðan 1 l þar til úrtaka fyrir laskalínu lokið.

KRAGI:
Eftir úrtöku fyrir laskalínu er skipt yfir á hringprjóna nr 4,5, prjónið upp l af þræði = ca 80 til 120 l meðfram kanti við háls. Prjónið 1 umf slétt – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 84-88-92-96-100-108 l. Prjónið nú garðaprjón þar til kraginn mælist 8-8-8-9-9-9 cm. Fellið laust af allar l.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS 141-9
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintermorningcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (113)

country flag Lene Sørensen skrifaði:

Jeg er nået til halsen. Jeg strikker str. xxxl. Ærmer, ryg og forstykke i alt. 380 m (begyndelse på bærestykke) 20 indtagninger x 8 m 160 m i alt 220 m tilbage 8 indtagninger x 8 m 64 m i alt 156 m tilbage hvoraf de 50 m er dem der sidder på trådene. Så der er mange flere masker end de 120 m der står i opskriften. Så nu er jeg kørt fast så tæt ved målet :) Hjæææææææælp Hilsen Lene Sørensen

18.01.2016 - 20:14

DROPS Design svaraði:

Hej Lene, Jo men når du til sidst strikker maskerne op fra trådene, kan du strikke 2 m sammen jævnt fordelt hele vejen rundt, så du har 120 m på pinden, på næste p justerer du igen ifølge opskriften. God fornøjelse!

08.03.2016 - 11:18

country flag PITSCHON MARTINE skrifaði:

Bonjour, je dois commencer à tricoter les manches : 38 mailles en rond ? n'est-ce pas un peu juste pour un poignet Taille M ? Merci de votre aide.

20.11.2015 - 16:53

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Pitschon, 38 m = 22 cm environ en taille M sur la base de l'échantillon - vous pouvez ajuster la largeur du bas des manches à votre convenance si vous la préférez plus large. Bon tricot!

23.11.2015 - 09:16

country flag Margareta Ljungdahl skrifaði:

Hej! Jag återkommer till min fråga. Hur många maskor skall det vara sammanlagt när man avslutat raglanhoptagningarna och skall börja sticka kragen. I mönstret står det - sticka upp m på trådarna lika med 80 - 120m längs hela halskanten ???. Jag har sammanlagt 144 m som sedan skall minskas till 100 maskor. Var god se tidigare fråga. Hälsningar Margareta

25.03.2015 - 19:09

DROPS Design svaraði:

Hej margareta, jo men det skall gå att minska till 100 m. Om du behöver flera m, går det ju också att sticka kragen med flera maskor. Lycka till!

18.05.2015 - 10:39

country flag Maria Luisa Cevolani skrifaði:

Thank you for this nice and feasible jacket that I enjoyed doing very much!

21.03.2015 - 15:17

country flag Margareta Ljungdahl skrifaði:

Hej! Jag stickar storlek XXL och när okets alla raglanhoptagningar är gjorda har jag kvar 144 maskor, 50 på ryggstycket, 14 på varje ärm och. 33 på varje framstycke inklusive maskorna på tråden. Enligt beskrivningen verkar det som det endast skall vara 80 - 120? Har jag tänkt fel? Tycker modellen är jättefin.

23.02.2015 - 21:18

DROPS Design svaraði:

Hej Margareta, Du bør have omkring 120 m tilbage (incl m på trådene) efter raglanindtagningerne, disse masker justeres da til 108 m på første pind. God fornøjelse!

25.05.2015 - 15:49

country flag Laurence ZUCCHETTO skrifaði:

Bonjour, Merci pour vos modèles qui sortent de l'ordinaire avec de nouvelles techniques pour moi (aiguilles circulaires). Voici ma question : je viens de mettre mes manches sur l'aiguille circulaire avec le corps. J'ai fait le 1er rang avec les diminutions sur l'envers du travail. Faut il que je fasse 18 diminutions tous les 2 rangs c'est à dire uniquement sur l'envers ? Dans l'attente de votre réponse, Cordialement

14.12.2014 - 15:22

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Zucchetto, et merci - les diminutions pour le raglan se font d'abord 18 fois tous les rangs sur l'endroit (= tous les 2 rangs) puis 2-4-6 fois (cf taille) tous les rangs (sur l'endroit + sur l'envers) - vous diminuez 8 m à chacun des rangs de diminutions (1 m avant + 1 m après chacun des 4 marqueurs) - vous trouverez sous l'onglet "vidéos" 2 vidéos montrant la technique des diminutions du raglan (notez bien qu'ici on a 2 m de raglan = entre les diminutions). Bon tricot!

14.12.2014 - 16:42

country flag Susana skrifaði:

Hola. Muchas gracias por la explicación mi anterior duda., ya estoy casi acabando y tengo un problema. No sé cómo se deslizan puntos al inicio de la hilera, he tratado de hacerlo de varias maneras y ha sido un desastre. Me he visto los vídeos de ayuda, pero no hay ninguno que te muestre cómo hacerlo al inicio de la hilera, solo al final. Y tampoco sé cómo tejer estos puntos una vez acabadas las disminuciones, sin que queden agujeros... Podeis ayudarme? Muchísimas gracias.

06.10.2014 - 13:21

DROPS Design svaraði:

Ver la respuesta abajo

25.03.2016 - 09:29

country flag Susana skrifaði:

Hola. Muchas gracias por la explicación mi anterior duda., ya estoy casi acabando y tengo un problema. No sé cómo se deslizan puntos al inicio de la hilera, he tratado de hacerlo de varias maneras y ha sido un desastre. Me he visto los vídeos de ayuda, pero no hay ninguno que te muestre cómo hacerlo al inicio de la hilera, solo al final. Y tampoco sé cómo tejer estos puntos una vez acabadas las disminuciones, sin que queden agujeros... Podeis ayudarme? Muchísimas gracias.

06.10.2014 - 12:58

DROPS Design svaraði:

Hola Susana. Para desl los pts para el cuello, primero trabajamos estos pts y seguido los pasamos a un gancho aux o hilo aux (en esto caso mejor un hilo) y continuamos con la fila. En el otro lado trabajamos de la misma manera. En la sig fila trabajamos de la misma manera que la primera fila. Para el cuello pasamos todos los pts del hilo o gancho aux de vta a la ag y trabajamos según el patrón.

08.10.2014 - 16:30

country flag Susana skrifaði:

Hola!! Soy casi nueva y tengo algunas dudas. Estoy haciendo la manga de la talla L , tengo que hacer aumentos cada 3cm 13 veces, total 39cm, más los 9cm anteriores son 48cm, pero he de rem a los 47 cm. Cómo puedo hacer estos sii a los 47 cm aún me falta por hacer el último aum.? Muchas gracias, y felicidades por la web. Fantástica!!

21.09.2014 - 16:30

DROPS Design svaraði:

Hola Susana. Tus calculas no son del todo correctos. El primer aumento es a los 9 cm, después repetimos 12 vcs más cada 3 cm = 12 x 3 = 36 cm + 9 cm de antes = 45 cm.

22.09.2014 - 15:26

country flag Mactazi skrifaði:

Why do I only need to out 8 stitches unto a stitch holder once? What about the other side of the cardigan?

07.04.2014 - 22:32

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Mactazi, you slip sts on a st holder for neck at the beginning of every row from neck, i.e. each side. Happy knitting!

08.04.2014 - 09:59