Cimarron skrifaði:
How precious...so very sweet.
24.07.2016 - 08:46
Outi Rajala skrifaði:
Kuinka neulotaan winter wonder haalarin mallineule 2. En saa kirjoneuletta onnistumaan kun kuviolanka jää väärään reunaan.
26.02.2016 - 21:22DROPS Design svaraði:
Hei! Joudut valitettavasti katkaisemaan lankoja joidenkin kerrosten jälkeen.
14.03.2016 - 14:09
Heidi Johannessen skrifaði:
Hei! Når man strikker på settp og øker masker på hver side av merketråden, skal man overføre masker til de andre pinnene? Eller skal to pinner ha 11 masker og de to andre ha 11+de økte maskene gjennom hele benet?
15.02.2016 - 18:57DROPS Design svaraði:
Hej. Ja när du ökar maskor så kan du flytta över maskor till de andra pinnene så att det blir jämnt fördelat. Lycka till!
16.02.2016 - 10:25
Heidi Johannessen skrifaði:
Hei! Når man strikker på settp og øker masker på hver side av merketråden, skal man overføre masker til de andre pinnene? Eller skal to pinner ha 11 masker og de to andre ha 11+de økte maskene gjennom hele benet?
01.02.2016 - 20:03
Caroline Polke Hansgaard skrifaði:
Hej Når man strikker benet, og er færdig med at strikke perlestrik, har skiftet til den lyse farve, har taget ud til 66 masker (str 1-3 mdr), står der man skal strikke til arbejdet måler 21 cm. Er det 21 inkl. den mørke perlestrik kant, eller er det 21 cm med den lyse farve i glatstrik?
26.09.2015 - 16:26DROPS Design svaraði:
Hej Caroline, Hvis du ser på måleskitsen, så kan du se at benet er totalt 21 cm (9+12cm i den mindste str). God fornøjelse!
01.10.2015 - 16:11
Kristin skrifaði:
Ser av tidligere spørsmål at mange mener at den er liten i str. Da bør det vel være mulig å gå opp til p. 3?
22.09.2015 - 09:27DROPS Design svaraði:
Hej Kristin, det er bedre at følge den størrelse som ifølge måleskitsen har de ønskede mål. Sørg for at overholde strikkefastheden. God fornøjelse!
23.09.2015 - 15:49
Lisa skrifaði:
Hallo! Stricke den Strampler in Größe 56/62, die Ärmel kommen mir dabei sehr kurz vor. Sind es wirklich nur insgesamt 14 cm (also 10 cm von Öffnung bis M1) oder beginnen die 10 cm bis M1 erst nach dem Perlmuster? Vielen Dank!
06.04.2015 - 20:27DROPS Design svaraði:
Ja, es sind ab Anschlag bis zum Armausschnitt insgesamt 14 cm. Sie stricken als Ärmelblende 5 cm im Perlmuster, dann weitere 5 cm glatt re und dann M.1, das sind 4 cm (bei korrekter Maschenprobe). Sie können die Abstände zwischen den Zunahmen vergrößern und so den Ärmel verlängern, wenn er Ihnen zu kurz erscheint, aber messen Sie vorher genau nach.
07.04.2015 - 10:24
Edith skrifaði:
Bonjour, Les couleurs proposées sur la page du modèle sont beaucoup moins nombreuses que celles du nuancier.... est-ce dû à des ruptures de stock ? Merci pour votre réponse.
03.04.2015 - 11:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Edith, les 2 couleurs utilisées dans ce modèle (BabyAlpaca Silk 1760 et 4314) sont toutes les 2 disponibles - contactez votre magasin DROPS pour plus d'informations sur ses disponibilités. Bon tricot!
03.04.2015 - 17:46
Solveig Svedberg skrifaði:
Hej! Jag undrar om det här är ett svårt mönster? Med vänlig hälsning/Solveig
27.02.2015 - 08:36DROPS Design svaraði:
Hej Solveig. Det er ikke et begynder mönster, og siden jeg ikke ved dit niveau kan jeg heller ikke sige om det er for svaert for dig. Laes mönstret godt igennem og se om det er noget for dig.
27.02.2015 - 15:59
Lene Mejdal Iversen skrifaði:
Jeg forstår ikke, at M1 skal strikkes fra hhv. Ret og vrangsiden. Hvis jeg læser mønstrest fra højre mod venstre, kommer det ikke til at passe, når jeg skal strikke 4. Pind fra vrang siden.
16.02.2015 - 22:20
Winter Wonder#winterwonderonesie |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónaður galli fyrir börn með norrænu mynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS Baby 21-3 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið umferð 2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í 1 l á undan og á eftir prjónamerki. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum með því að prjóna 4. og 5. l frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum í hægri kanti að framan þegar stykkið mælist, frá þeim stað sem skálmar voru settar saman við: 1/3 mán: 6, 12, 17, 22, 27 cm. 6/9 mán: 6, 12, 18, 24, 30 cm. 12/18 mán: 7, 14, 21, 28, 34 cm. 2 ára: 7, 14, 20, 26, 32, 38 cm. 3/4 ára: 7, 14, 21, 28, 35, 42 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmar settar á sama prjón og stykkið er prjónað áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna SKÁLM: Fitjið upp 38-44-50 (54-60) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum gráfjólublár, prjónið 9-10-10 (10-10) cm PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf (= innanverðu á skálm) og látið prjónamerkið fylgja með upp úr. Skiptið nú yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu með 2-3-4 (4-4) umf millibili alls 14-15-16 (18-19) sinnum = 66-74-82 (90-98) l. Þegar stykkið mælist 21-25-29 (33-37) cm fellið af 2 l hvoru megin við prjónamerki (= 4 l færri) = 62-70-78 (86-94)l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn báðar skálmarnar á sama hringprjóna nr 2,5 með úrtöku á móti hvorri annarri = 124-140-156 (172-188) l. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN. Prjónið síðan áfram fram og til baka frá miðju að framan með litnum ljós gráfjólublár þannig (umf 1 = rétta): Fitjið upp 5 nýjar l á prjóninn, prjónið slétt yfir allar l og fitjið upp 5 nýjar l í lok umf = 134-150-166 (182-198) l. Setjið prjónamerki 36-40-44 (48-52) l inn frá hvorri hlið (= 62-70-78 (86-94) l á milli prjónamerkja á bakstykki). Látið prjónamerkin fylgja með upp úr. Prjónið síðan sléttprjón en þær 5 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN til loka – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-7 (7-7) cm fellið af fyrir fyrsta HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (26-29) cm prjónið næstu umf frá réttu mynsturteikning M.1 með 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. ATH: Í síðustu umf í M.1 (= ranga) fellið af 4-4-4 (5-5) l hvoru megin við hvort prjónamerki fyrir handveg (= 8-8-8 (10-10) l felldar af í hvorri hlið) = 118-134-150 (162-178) l. Nú mælist stykkið ca 20-24-27 (30-33) cm frá þeim stað þar sem skálmar voru settar saman. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 38-40-42 (44-46) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum grá fjólublár, prjónið 5-5-5 (6-6) cm perluprjón. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og látið prjónamerki fylgja með upp úr. Skiptið nú yfir í litinn ljós gráfjólublár og prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið í næstu umf. Endurtakið útaukningu með 2-3-3(4-5) umf millibili alls 7-8-9 (10-11) sinnum = 52-56-60 (64-68) l. Þegar stykkið mælist 10-13-15 (18-23) cm prjónið M.1 – Í síðustu umf í M.1 eru felldar af 4-4-4 (5-5) l hvoru megin við prjónamerki fyrir handveg (= 8-8-8 (10-10) l felldar af) = 44-48-52 (54-58) l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 206-230-254 (270-294) l. Prjónið nú fram og til baka í mynsturteikningu M.2 með 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (umf 1 = rétta). ATH: Fellið af 20-20-24 (24-28) l jafnt yfir í umf sem er merkt með ör í M.2. MUNIÐ EFTIR AÐ HALDA ÁFRAM AÐ FELLA AF FYRIR HNAPPAGÖTUM Í HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN! Þegar M.2 hefur verið prjónað eru 86-110-110 (126-126) l í umf og stykkið mælist ca 12-12-13 (14-15) cm frá þeim stað þar sem ermar voru settar í (þ.e.a. s. umf 1 í mynstri M.2). HÁLSMÁL: Prjónið síðan fram og til baka í perluprjóni með litnum gráfjólublár þannig: Prjónið slétt frá réttu jafnframt því sem fækkað er um 4-20-16 (30-26) l jafnt yfir í umf 1 (= rétta) = 82-90-94 (96-100) l. Prjónið nú 1 umf í perluprjóni. Í næstu umf frá réttu er fellt af fyrir síðasta hnappagatið í hægri kanti að framan. Haldið áfram í perluprjóni þar til kanturinn á hálsmáli mælist 2-2-2 (3-3) cm. Fellið laust af allar l. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og á milli skálma, saumið tölur í. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterwonderonesie eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.