Bianca Blumenrath skrifaði:
Welche Größe verbirgt sich hinter den einzelnen Bezeichnungen S-M-L-XL-XXL-XXXL? Ich möchten den Pullover in Größe 44/46 stricken, an welche Angabe soll ich richten?
29.09.2013 - 18:12DROPS Design svaraði:
Liebe Bianca, Sie finden unten in der Skizze die genauen Angaben in cm. Wenn Sie unsicher sind, messen Sie am besten ein gut sitzendes Kleidungsstück aus.
30.09.2013 - 08:11
H Méteyer skrifaði:
Bonjour Je suis en train de finir le pull Anna . Mais je ne comprends pas / sur la photo le début du col ne semble pas être fait au point fantaisie ,celà ressemble plutot à un point mousse!!!!!!!!!
07.03.2013 - 13:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Madame Méteyer, le col se tricote au point fantaisie puis, à 19-24 cm (cf taille), au point mousse. Bon tricot !
07.03.2013 - 15:14
Rebecca skrifaði:
Hej, Jag tror det har blivit fel i beskrivningen av kragen här. Jämför med herrmodellen - där ser det ut att stå rätt. Och följer jag herrbeskrivningen så verkar det bli rätt. Något är helt klart fel i dambeskrivningen.
05.02.2013 - 15:22
Joke Boere skrifaði:
Ik heb hem helemaal gebreid volgens het patroon maar dan de kraag in elkaar zetten daar klopt bij mij helemaal niets van zoals hij op het plaatje staat.Hij is dan heel anders en nu met dit slechte weer is naar een winkel gaan geen optie nieuwegein en dan helemaal naar Nieuwpoort.
21.01.2013 - 13:33DROPS Design svaraði:
Ja, het weer kunnen we niet zo veel aan doen ;o). Het patroon zou kloppen en ik kan natuurlijk niet zien hoe uw kraag eruitziet. Je neemt voor de rechter kraag 26 tot 36 st op van de BINNENKANT van de st op de hulpdraad en breit patroon. Na 19 tot 24 cm breit u RIBBELST en VERKORTE TOEREN (vind link in index onder V) om de kraag breder langs de voorkant te maken. Als je klaar bent herhaal je dit op de linker kraag (nu in spiegelbeeld).
21.01.2013 - 16:11
Joke Boere skrifaði:
Wie heeft deze trui gebreid en ook moeilijkheden met de kraag.
17.01.2013 - 17:19DROPS Design svaraði:
Als je kan uitleggen wat het probleem precies is, dan kunnen wij proberen te helpen. Als mogelijk kan je ook proberen bij de winkel
18.01.2013 - 17:34
Karoliina skrifaði:
En ymmärrä takaosan hihojen kavennuskohtaa! Voisikohan sitä hieman avata?:)
19.10.2012 - 13:49DROPS Design svaraði:
Takakappaleen kädentien s:t päätetään tavalliseen tapaan. Videoarkistostamme löydät videon, joka näyttää miten silmukoita päätetään.
06.11.2012 - 13:26
Stine Cramon Jensen skrifaði:
Men det forstår jeg ikke så... I jeres andre opskrifter hvor det er dobb. perlestrik er det 2 r - 2 vr. Er dobb. perlestrik i denne opskrift så en anden slags dobb. perlestrik? Måske det bare er mig der ikke forstår det - er nybegynder. Synes bare det så frygtelig rodet ud da jeg strikkede efter opskriften!
24.10.2011 - 16:43
Drops Design skrifaði:
Nej modellen er strikker ifølge forklaringen i opskriften: DOBBELT PERLESTRIK: 1.omg: *1 r, 1 vr *, gentag fra *-*. 2.omg: ret over ret og vrang over vrang. 3.omg: *1 vr, 1 r *, gentag fra *-*. 4.omg: Vrang over vrang og ret over ret.
24.10.2011 - 10:33
Stine Cramon Jensen skrifaði:
Der er fejl i beskrivelsen af det dobbelte perlestrikmønster: det skal være: 1.p: 2 r 2 v 2.p: r over r og vr over vr 3. p: 2 vr 2 r 4.p: vr over vr og r over r Og så forstår jeg ikke hvorfor strikkeprøven skal laves i glatstrik når opskriften er dobb. perlestrik...
23.10.2011 - 13:24
Diny skrifaði:
Hoop dat het patroon snel online staat.
09.07.2011 - 19:38
Anna#annasweater |
|
|
|
Prjónuð peysa með sjalkraga úr DROPS Karisma. Stærð S-XXXL.
DROPS 135-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir sl og br yfir br. UMFERÐ 3: * Prjónið 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 4: Prjónið br yfir br og sl yfir sl. Endurtakið umf: 1-4. RENDUR 1 (á við um fram- og bakstykki): Prjónið til skiptis með litnum milligrár og ljós grár með 11-11-11½-12-12-12½ cm millibili. ATH: Fyrsta röndin er mæld frá uppfitjunarkanti. Prjónið með litinn milligrár síðustu röndina á fram- og bakstykki sem og ermi til loka. RENDUR 2 (á við um ermi): Prjónið til skiptis með litnum milligrár og ljós grár með 10 cm millibili. ATH: Fyrsta röndin er mæld frá uppfitjunarkanti. Prjónið með litnum milligrár í síðustu rönd til loka. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúin (þ.e.a.s. aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. MYNSTUR 1: UMFERÐ 1: (= frá réttu): Prjónið slétt. UMFERÐ 2: (= frá röngu): * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. Endurtakið umf 1 og 2. GARÐAPRJÓN: (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð á hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 213-234-255-288-318-351 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Karisma. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 53-58-63-72-78-87 l jafn yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja l slétt saman) = 160-176-192-216-240-264 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið í hring með TVÖFALT PERLUPRJÓN og RENDUR- sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm eru sett tvö prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun umf og 1 eftir 80-88-96-108-120-132 l (merkir hliðar). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING = 4 nýjar l í umf. ATH: Nýju l eru prjónaðar inn jafnóðum í tvöfalda perluprjónið. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 30-30-32-32-34-34 cm = 168-184-200-224-248-272 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm (passið uppá að síðasta umf er 2. eða 4. umf í perluprjóni). Skiptið stykkinu við prjónamerki og hvort stykki er prjónað fyrir sig til loka. BAKSTYKKI: = 84-92-100-112-124-136 l (umf 1 = rétta). Haldið áfram með RENDUR 1 og TVÖFALT PERLUPRJÓN – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 0-1-2-4-6-8 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum = 76-78-80-82-84-86 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli (fellið af með því að prjóna 2 síðustu l við háls saman) = 25 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. FRAMSTYKKI: = 84-92-100-112-124-136 l. Haldið áfram að prjóna RENDUR 1 og TVÖFALT PERLUPRJÓN. Byrjið að fella af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki í umf 1 (= rétta) – JAFNFRAMT eru miðju 26-28-30-32-34-36 l settar á þráð fyrir hálsmáli að framan. Nú er hvort stykki prjónað fyrir sig til loka. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 25 l á hvorri öxl. Haldið áfram með RENDUR 1 og TVÖFALT PERLUPRJÓN. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm eru fellt laust af allar l. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 63-66-69-72-75-78 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Karisma. Prjónið stroff: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt –JAFNFRAMT er fækkað um 15-16-17-18-19-20 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. l slétt saman)= 48-50-52-54-56-58 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og setjið prjónamerki í byrjun á umf. Prjónið nú hringinn með TVÖFALT PERLUPRJÓN og RENDUR 2 – Sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-7-7-8-7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 10-11-13-15-17-18 sinnum = 68-72-78-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-47-45 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki (= 6 l fyrir miðju undir ermi). Prjónið nú stykkið fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 2 l 2-2-3-3-5-5 sinnum og síðan 1 l 3-4-4-5-5-6 sinnum. Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-57-58-59-59 cm, fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið laust af allar l. Þegar stykkið mælist ca 57-58-58-59-60-60 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma með lykkjuspori. Saumið ermar í. HÆGRI KRAGI: Kraginn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 4 með litnum milligrár DROPS Karisma þannig: Prjónið upp l af þræði við miðju að framan (látið þráðinn vera áfram í fyrir vinstri kraga) = 26-28-30-32-34-36 l. Með byrjun frá næstu umf (= rétta) er prjónað nú MYNSTUR 1 – Sjá útskýringu að ofan. ATH: Setjið prjónamerki í lok umf 1 frá réttu. Þegar kraginn mælist 19-20-21-22-23-24 cm er prjónað áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka – Jafnframt eru prjónaðar styttri umf (með byrjun frá næstu umf frá réttu) þannig: Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir síðustu 20 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm frá prjónamerki (á styttri hlutanum). Fellið af. VINSTRI KRAGI: Prjónið upp miðju l af þræði aftur frá réttu fyrir aftan hægri kraga = vinstri kraginn liggur undir hægri kraga. Prjónið á sama hátt og hægri kragi nema spegilmynd (prjónið styttri umf yfir síðustu 20 l við miðju að framan. FRÁGANGUR: Saumið hægri kraga við hægra framstykki og vinstri kraga við vinstra framstykki í ystu l. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið að hálsi og að bakstykki. LYKKJA FYRIR TÖLU: Gerið 1 lykkju þannig: Snúið 2 þráðum með 40 cm með litnum milligrár og leggið þá saman tvöfalda. Gerið 1 lykkju til viðbótar eins. Festið lykkjurnar ca 4 og 11 cm frá neðri kant á hægra kraga (ca 1 cm frá kanti við miðju að framan). Þræðið lykkjuna í gegnum kragann með nál og festið endana á bakhlið. Saumið hnappa í vinstri kraga ca 2 og 4 cm innan við sauminn á vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #annasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.