DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Limestone

Prjónuð peysa fyrir herra með sjalkraga úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine. Stærð S-XXXL

DROPS 135-1
DROPS Design: Mynstur nr U-639
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr. 21, milligrár
300-300-300-350-350-400 gr litur nr. 44, ljós grár

Eða notið:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 g litur nr. 04, milligrár
300-300-300-350-350-400 g litur nr. 05, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá prjónastærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA duffel NR 520: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir sl og br yfir br.
UMFERÐ 3: * Prjónið 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 4: Prjónið br yfir br og sl yfir sl.
Endurtakið umf: 1-4.

RENDUR:
Prjónið til skiptis með litnum milligrár og litnum ljós grár með 11-11-11½-12-12-12½ cm millibili.
ATH: Fyrsta röndin er mæld frá uppfitjunarkanti. Prjónið með litnum milligrár síðustu röndina í fram- og bakstykki sem og ermi til loka.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúin (þ.e.a.s. aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

MYNSTUR 1:
UMFERÐ 1: (= frá réttu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: (= frá röngu): *Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
Endurtakið umf 1 og 2.

GARÐAPRJÓN: (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 213-234-255-288-318-351 l á hringprjóna nr. 3,5 með litnum ljós grár Karisma eða Merino Extra Fine. Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 53-58-63-72-78-87 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna 3. og 4. hverja l saman) = 160-176-192-216-240-264 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN og RENDUR- sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm eru sett tvö prjónamerki í stykkið, 1 prjónamerki í byrjun á umf og 1 prjónamerki eftir 80-88-96-108-120-132 l (merkir hliðar). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING að ofan = 4 nýjar l í umf. ATH: Nýju l eru prjónaðar inn í tvöfalt perluprjón. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 30-30-32-32-34-34 cm = 168-184-200-224-248-272 l. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm og er stykkinu skipt við prjónamerki. Bakstykki og framstykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 84-92-100-112-124-136 l (umf 1 = rétta). Haldið áfram að prjóna RENDUR og TVÖFALT PERLUPRJÓN – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2-4-6-8 sinnum og 1 lykkju 1-2-3-4-5-6 sinnum = 76-78-80-82-84-86 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm eru felldar af miðju 24-26-28-30-32-34 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli, fellt er af með því að prjóna 2 síðustu l við hálsmál saman) = 25 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

FRAMSTYKKI:
= 84-92-100-112-124-136 l. Haldið áfram að prjóna RENUDUR og TVÖFALT PERLUPRJÓN. Byrjið að fella af fyrir handvegi á sama hátt og á bakstykki í umf 1 (= rétta) – JAFNFRAMT eru miðju 26-28-30-32-34-36 l settar á þráð fyrir hálsmáli að framan, nú er hvort stykki prjónað fyrir sig. Fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 25 l á hvorri öxl. Haldið áfram með tvöfalt perluprjón og rendur. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm er fellt laust af allar l.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 63-66-69-72-75-78 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós grár Karisma eða Merino Extra Fine. Prjónið stroff: *Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt –JAFNFRAMT er fækkað um 15-16-17-18-19-20 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja l slétt saman)= 48-50-52-54-56-58 l. Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 4 og setjið prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú í hring með TVÖFALT PERLUPRJÓN og RENDUR. Þegar stykkið mælist 8-8-7-7-7-6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu með 5-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-13-15-17-18 sinnum = 68-72-78-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 57-57-56-56-54-53 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki (= 6 l fyrir miðju undir ermi). Prjónið fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram að fella af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 2 l 2-2-3-3-5-5 sinnum og síðan 1 l 3-4-4-5-5-6 sinnum. Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stikkið mælist 64-65-65-66-66-67 cm, fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið laust af allar l. Stykkið mælist ca 65-66-66-67-67-68 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma með lykkjuspori. Saumið ermar í.

HÆGRI KRAGI:
Kraginn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 4 með litnum milligrár Karisma eða Merino Extra Fine þannig: Prjónið upp l af þræðii við miðju að framan (látið þráðinn vera áfram í) = 26-28-30-32-34-36 l, prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú MYNSTUR 1 frá réttu – Sjá útskýringu að ofan. Þegar kraginn mælist 19-20-21-22-23-24 cm (síðasta umf = umf 2 í MYNSTUR 1 = ranga), setjið prjónamerki í lok umf séð frá réttu. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka – Jafnframt eru prjónaðar stuttar umferðir þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir síðsutu 20 l við miðju að framan*, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm frá prjónamerki (frá styttri hlið). Fellið af.

VINSTRI KRAGI:
Prjónið upp miðju l af þræði aftur frá réttu fyrir aftan hægri kraga = vinstri kraginn liggur undir hægri kraga. Prjónið á sama hátt og hægri kragi nema spegilmynd (prjónið styttri umf yfir síðustu 20 l við miðju að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið hægri kraga við hægra framstykki og vinstri kraga við vinstra framstykki í ystu l. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið að hálsmáli og að bakstykki.

LYKKJA FYRIR TÖLU:
Gerið 1 lykkju þannig: Snúið 2 þráðum með 40 cm litnum milligrár Karisma eða Merino Extra Fine og leggið þá saman tvöfalda. Gerið 1 lykkju til viðbótar á sama hátt. Festið lykkjurnar ca 4 og 11 cm frá neðri kant á hægri kraga (ca 1 cm frá kanti við miðju að framan). Festið þræðina í gegnum kragann með nál og festið enda á bakhlið. Saumið tölur í vinstri kraga ca 2 og 4 cm innan við saum á vinstra framstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Limestone

Joe5, France

Jumper with shawl collar

Lineke, Netherlands

Christmas present

Martina, Czech Republic

Limestone

Woll Elli, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (112)

country flag Nicky Swan wrote:

Can someone please help me. I am struggling to understand knitting up the collar. Says to pick stitches from holder for right Collar, when I go to do the left collar where do I get stitches for that please? Thankyou in advance

30.03.2024 - 22:10

DROPS Design answered:

Dear Nicky, You should pick up those stitches in the same stitches that were on the stitch holder, but BEHIND the stitches you piced up for the left collar. Please look at the picture, you can see that the swo half of the collar are behind each other. I hope this helps. Happy Knitting!

31.03.2024 - 21:03

country flag Julie wrote:

Når man skal felle av på ermet står det: Det fortsettes å felles til ermtopp i hver side på hver 2.p slik: 2 m 2 ganger og deretter 1 m 4 (strikker M). Skal man felle av på hver side eller kun 2 m på starten av hver andre pinne?

08.11.2023 - 06:46

DROPS Design answered:

Hei Julie. Du feller av på hver side, slik at sidenen blir like. mvh DROPS Design

13.11.2023 - 11:34

country flag Jenni wrote:

Hallo! Ich bin total verwirrt mit den Angaben. Ich habe exakt nach Angaben gestrickt und meine Maschenprobe, glatt rechts gestrickt, passte auch. Solange ich den Bund gestrickt habe passte das mit den 53 cm. Jetzt habe ich die 74 Maschen abgenommen und das Perlmuster begonnen und jetzt „explodiert“ mir die Breite auf 65cm. Reguliert dich das wieder? Oder habe ich etwas falsch gemacht? Danke schonmal für eure Mühen!

16.01.2023 - 08:28

DROPS Design answered:

Liebe Jenni, welche Größe stricken Sie? unten bei dem Bündchen sind es 38-42-46-51-57-63 cm dann, nach den 2 Zunahmen an beiden Seiten und vor Armlöcher sollen Sie 40-44-48-53-59-65 cm haben. Viel Spaß beim stricken!

16.01.2023 - 10:40

country flag Bärbel wrote:

Eine Frage zu den Ärmeln: irgendwann sollen für die Armkugeln zu Beginn der Reihe Maschen abgekettet werden. Tatsächlich nur am Anfang der Reihe, oder beidseitig?

26.12.2022 - 16:34

DROPS Design answered:

Liebe Bärbel, die Maschen für die Armkugel werden am Anfang jeder Reihe (= Hin- sowie Rücktreihe) abgekettet,dh so wird es abgekettet: 2 Maschen am Anfang der nächsten 4-4-6-6-10-10 Reihen (= 2-2-3-3-5-5 Mal beidseitig) und 1 Masche am Anfang der nächsten 6-8-8-10-10-12 Reihen (= 3-4-4-5-5-6 Mal beidseitig). Viel Spaß beim stricken!

02.01.2023 - 09:21

country flag Katherine wrote:

Hola de nuevo, para hacer la vuelta corta los puntos externos serían los 20 puntos finales del lado derecho o izquierdo? Cuando la labor está del LD. Saludos

13.10.2022 - 10:06

DROPS Design answered:

Hola Katherine, los 20 pts son desde el centro del delantero hacia el borde de costura. Si trabajas por el lado derecho, los 20 pts son los del inicio de la vuelta/ fila.

17.10.2022 - 00:17

country flag Kathy wrote:

Hola, no entiendo la parte del cuello que dice: tejer vueltas cortas (tejer 2 vueltas pto musgo todos los pts ,tejer 2 vetas sobre los 20 pts externos, ¿son 20 pts del centro?). Y no se como tejer las vueltas cortas. Gracias por su ayuda.

11.10.2022 - 16:10

DROPS Design answered:

Hola Kathy, para tejer las vueltas cortas, que ayudan a dar forma redonda al cuello, puedes consultar el siguiente vídeo: https://www.garnstudio.com/video.php?id=438&lang=es. En cuanto a los 20 pts: para la talla S (por ejemplo), trabajas sobre 26 pts de ida y vuelta y luego se trabajan 2 filas sobre los 20 pts más cercanos al centro del delantero. Por lo tanto, comienzas trabajando 20 pts desde el centro del delantero, giras y trabajas de nuevo sobre estos 20 pts de vuelta. Después trabajar otra vez sobre los 26 pts de ida y vuelta.

17.10.2022 - 00:15

country flag Susan wrote:

I am a little confused about the YO increase on either side of the marker - this makes for a double YO which results in a large hole regardless of whether the YOs are worked through the back. Am I missing something? Thanks!

05.06.2022 - 02:56

DROPS Design answered:

Dear Susan, you can work the yarn overs on each side of 2 stitches on the sides, ie work until 1 stitch remains before marker, make 1 yarn over, work the next 2 sts (marker is between these both stitches), make 1 yarn over; and repeat at next marker. Happy knitting!

07.06.2022 - 08:31

country flag Nicky wrote:

Hi all, I am confused, and wonder if you can explain the below in plain terms please? When piece measures 4 cm / 1½’’, K 1 round while AT THE SAME TIME dec 53-58-63-72-78-87 sts evenly (dec by K tog approx. every 3rd and 4th st) = 160-176-192-216-240-264 sts. Then switch to circular needle size 4 mm / US 6 and continue in the round with DOUBLE SEED ST and STRIPES - See explanation above. REMEMBER THE KNITTING GAUGE!

13.09.2021 - 09:13

DROPS Design answered:

Dear Nicky, when piece measures 4 cm you will knit 1 round decreasing evenly (see this lesson, then switch to larger needle and work in double seed stitch following the stripes (see at the beg of the pattern description of both). Can this help?

14.09.2021 - 07:22

country flag Deni wrote:

My question was how to work work increases and maintain double moss stitch

06.01.2021 - 09:07

DROPS Design answered:

Hi Deni, you will add 2 stitches in one side, so just adjust them accordingly, to maintain double moss stitch. Happy knitting!

06.01.2021 - 09:19

country flag Deni wrote:

I'm knitting size xl and is at 16 cm.can you tell me how to proceed with increasing.how to work yarn over through back loop in the next round (when to make purl when to make knit twisted)

06.01.2021 - 08:24

DROPS Design answered:

Hi Deni, please see the video HERE. Happy knitting!

06.01.2021 - 08:56