Sarah Sommer skrifaði:
Ich wollte diese Jacke für ein Neugeborenes stricken. Nach erfolgreicher Maschen Probe habe ich nach 10 cm alles wieder aufmachen müssen. Ja, das Strickstück ist 60cm breit (Umfang) geworden wie es die Skizze auch sagt. ABER das ist niemals Größe 50/56. Ein Neugeborenes hat eine Brustumfang von 40-42cm. In einer Größentabelle stand, dass ein Brustumfang von 60 einer Kleidergröße 110 entspricht. Bitte das unbedingt ändern!
16.01.2018 - 16:20DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Sommer, stimmt Ihre Maschenprobe? Mit 118 M in der 1. Größe nach den Bündchen bekommen Sie ca 65 cm, inkl die Blendemaschen, dh genauso wie in der Maßskizze (= 30 cm am unteren Rand). Viel Spaß beim stricken!
16.01.2018 - 17:05
Wiegmann, Christina skrifaði:
Leider ist nach Fertigstellung dieser Jacke Ihre Wollangabe nicht ausreichend. 12/18Monate sind 200 gr Wolle nicht ausreichend. Nach Vorgabe gestrickt, Maße auch korrekt, nur eben die Wollende nicht. Da ich eine zweite Jacke für Größe 5/6 Jahre stricke, mußte ich davon Wolle verwenden und werde wohl leider darum nicht ausreichend Wolle haben. Das stimmt mich etwas ärgerlich
19.03.2017 - 13:58
Terese skrifaði:
Jeg har købt Drops Baby Merino som garnalternativ - skal jeg også strikke med to tråde med dét?
01.01.2017 - 11:34DROPS Design svaraði:
Hej Terese. Ja, det skal du. Glem ikke at strikke en pröve först for at tjekke din strikkefasthed.
02.01.2017 - 12:02
Irene Mehringer skrifaði:
Die Massangaben In Der Skizze Sind Das Cm (wohl Nicht?) Oder Reinen? Daraus Werde Ich Nicht Schlau. Danke.
23.11.2016 - 13:57DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Mehringer, stimmt, alle Massangaben sind im cm gegeben - siehe hier. Viel Spaß beim stricken!
23.11.2016 - 15:38
Irene Mehringer skrifaði:
Hallo. Ja die maschenprobe stimmt überein. Generell ist die Jacke ja eher weiter. Normalerwiese stimmen die größten ja für.meinen Sohn überein aber hier waren es mehr als 10 cm zu gross. Ist mir noch ein Rätsel. Ich glaub wenn ich es statt mit zwei Fäden mit einem stricke für es mit den 162 m für 2 Jahre gut hinkomme n ;)
18.11.2016 - 15:45
Irene Mehringer skrifaði:
Hallo. Ich habe die Jacke genau nach Angabe mit zwei Fäden mit 162 m für Größe 2 Jahre gestrickt. Und die weste meinem Sohn um viele cm zu gross mitlerweile bin ich bei der 1/3monate grösse angekommen, die nun hoffentlich passen wird. Aber mir leuchtet das ganze nicht ein, dass es da so grosse Unterschiede gibt. !!??? Lg
15.11.2016 - 20:21DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Mehringer, stimmt Ihre Maschenprobe? dh: 18 M. x 23 R. mit 2 Fäden Delight glatt gestrickt = 10 x 10 cm. Alle Maßnahmen finden Sie in dem Maßskizze unten nach der schriftlichen Anleitung, mit der richrigen Maschenprobe bekommen Sie die genaue Größe wie in der Skizze. Viel Spaß beim stricken!
16.11.2016 - 09:25
Nancy skrifaði:
Hallo, ik ben bij het einde van het breien van de eerste mouw. In het patroon staat: brei dan nog 1 naald recht en minder TEGELIJKERTIJD 8 steken mid onder de mouw. Bedoelt u hier 8 steken afkanten of echt minderen door samenbreien?
21.06.2016 - 23:37DROPS Design svaraði:
Hoi Nancy. Het moet uiteraard afkanten zijn en geen minderen. Het patroon is aangepast. Bedankt voor het melden.
23.06.2016 - 15:34
Kristine skrifaði:
Hallo, Ich habe nun beide Ärmel und den Körper fertig und beginne mit dem Teil "Passe". Dort steht, das alle teile auf eine rundnadel gelegt werden solle. Ist damit das gemeint, was im video gezeigt wird, also die Ärmel zwischen die abgeketteten Lücken des Körpers stricken? Danke für die Antwort
14.03.2016 - 11:11DROPS Design svaraði:
Liebe Kristine, ja genau, die Ärmel kommen jeweils zwischen Vorder- und Rückenteil.
14.03.2016 - 11:42
Alena skrifaði:
A to samé je u pletení rukávů : nahodíme 30 ok a v první řadě po upletení patentu přidáme rovnoměrně do celkového počtu ok 28. Jak to prosím má tedy být ? Děkuji. Alena
05.03.2016 - 13:30DROPS Design svaraði:
Milá Aleno, oka nepřidáváte, ale ujímáte - pružný vzor se stáhne, potřebuje tedy více ok, oproti tomu lícový žerzej pleteninu narovná a původní počet ok by byl příliš velký, pletenina by byla moc široká a vytvořila nevzhlednou "kapsu", proto je třeba nějaká ta oka ubrat. Hodně zdaru! Hana
07.03.2016 - 18:36
Alena skrifaði:
Dobrý den, nejedná se o chybu v textu českého návodu v počtu nahozených ok a následném rovnoměrném přidání ok po upletení patentu ? Nabereme 132 ok a v první řadě po patentu přidáme na celkový počet ok 118 ? To nesedí. Je možné to opravit ? Děkuji. Alena
05.03.2016 - 13:25DROPS Design svaraði:
Dobrý den, ano, máte pravdu - český text byl plný chyb a nepřesností. Nyní je celý text návodu zrevidován a opraven, takže by už celý postup měl být srozumitelný. Díky a hodně zdaru při pletení! Hana
07.03.2016 - 18:33
Nathan Jacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Delight. Stærð 1 mánaða til 7 ára.
DROPS Baby 20-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð 1/3 mán: 2, 8, 15 og 22 cm Stærð 6/9 mán: 2, 9, 16 og 24 cm Stærð 12/18 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm Stærð 2 ára: 2, 8, 15, 22 og 29 cm Stærð 3/4 ára: 2, 9, 16, 24 og 32 cm Stærð 5/6 ára: 2, 8, 15, 22, 29 og 36 cm ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-138-150 (162-168-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm, munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón en 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni til loka. JAFNFRAMT í umferð 1 eftir stroff er lykkjufjöldinn jafnaður út til 118-128-140 (146-158-168) lykkjur – ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í kanti að framan. Setjið eitt prjónamerki 32-34-38 (39-42-44) lykkjur frá hvorri hlið = 54-60-64 (68-74-80) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-5-6 (6-6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin með 2.-2.-2. (3.-3.-4.) cm millibili alls 5 sinnum = 98-108-120 (126-138-148) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 15-16-17 (19-21-24) cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu – prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-4-4 (4-5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 38-42-46 (50-54-60) lykkjur eftir á bakstykki og 24-25-29 (30-32-34) lykkjur eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 30-30-36 (36-36-36) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm. Haldið áfram í sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 28-28-30 (30-32-32) lykkjur í 1. umferð eftir stroff. Þegar stykkið mælist 8-6-6 (6-6-7) cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi, endurtakið með 7-4-3 (3-3,5-3,5) cm millibili alls 2-4-5 (7-7-8) sinnum = 32-36-40 (44-46-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21 (26-30-34) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, prjónið síðan 1 umferð slétt jafnframt því sem felldar eru af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur mitt undir ermi = 26-28-32 (36-36-38) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 á fram- og bakstykki og setjið inn ermar á sama hringprjón þar sem fellt var af fyrir handvegi= 138-148-168 (182-190-204) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykki (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og prjónið 1 umferð slétt frá röngu áður en laskalína byrjar. LASKALÍNA: Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerki (= 8 úrtökur) – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan! Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð: 7-8-8 (9-10-11) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 0-0-2 (2-2-2) sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-23-25 (28-31-35) cm setjið síðustu 8-8-10 (10-10-12) lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtöku fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 54-56-56 (62-62-64) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 26-28-30 (33-36-40) cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Prjónið upp ca 80 til 105 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjón 4 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 54-60-60 (66-66-72) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig (umferð 1 = ranga): 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (frá réttu verða þetta 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan). Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri hlið. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.