Bertron skrifaði:
Que veut dire M 1 merci
21.11.2022 - 09:22DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Bertron, M.1 à M.5 correspondent aux différents diagrammes de ce modèle que vous retrouverez en bas de page. Découvrez ici comment lire un diagramme. Bon tricot!
21.11.2022 - 10:45
Engelhorn skrifaði:
Êtes vous sûrs du nombre de mailles à monter pour le bonnet ? Ce chiffre me semble énorme : 232 mailles. Merci de votre confirmation.
11.11.2022 - 11:07DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Engelhorn, tout à fait, vous tricotez ensuite le diagramme M.1 qui correspond au volant en bas du bonnet, après M.1, il restera 116 mailles uniquement. Bon tricot!
14.11.2022 - 08:42
Lena skrifaði:
Det heter väl för guds skull set, inte sätt..... Suck!!!
20.12.2015 - 20:54
Tina skrifaði:
Sono anni che lavoro con i ferri, ma non riesco con quelli circolari. Perché non ci sono spiegazioni con i ferri normali?
26.11.2013 - 07:22DROPS Design svaraði:
Buongiorno Tina, in questo caso il modello è lavorato in tondo sui f circolari, ma tanti modelli DROPS sono lavorati avanti e indietro sui f quindi può tranquillamente usare i f dritti, anche se per il n° elevato di m sono meglio i circolari. All'estero la maggior parte delle knitters usano i circolari, faccia una prova, sono davvero molto più comodi dei f dritti!! Buon lavoro!!
26.11.2013 - 14:03
Melafruin skrifaði:
Big like :)
23.06.2010 - 14:24
Jarka skrifaði:
Krásný komplet!!
20.06.2010 - 10:23
C. Clausen skrifaði:
Lige hvad jeg har ledt efter til cykelturen om vinteren (halsedissen og luffer) og en super sød hue til gåturen i weekenden.
08.06.2010 - 22:17
Fire Crystal#firecrystalset |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð húfa, hálsskjól og vettlingar úr DROPS Karisma með norrænu mynstri.
DROPS 122-3 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.5 – Mynsturteikning sýnir 1 mynstureiningu af mynstri. -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring. HÚFA: Fitjið upp 232 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum vínrauður. Prjónið M.1, eftir M.1 eru 116 l á prjóni, haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br í 3 cm (stykkið mælist nú alls ca 5 fm). Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 2 umf slétt – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 28 l jafnt yfir = 144 l. Prjónið M.5 (= 9 mynstureiningar). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir M.5 eru 36 l á prjóni. Prjónið 1 umf með litnum vínrauður þar sem allar l eru prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 18 l. Klippið frá, þræðið 2 sinnum í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 24 cm á hæðina. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.4 og M.6 – Mynsturteikning sýnir 1 mynstureiningu af mynstri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp. HÁLSSKJÓL: Fitjið upp 264 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum vínrauður. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið næstu umf þannig: * 2 l sl saman, 2 l sl saman, 2 l sl *, endurtakið frá *-* = 176 l. Haldið áfram með M.4. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 eftir M.4. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 16 l jafnt yfir = 160 l. Haldið áfram með stroff = 2 ls l /3 l br í 4 cm. Í næstu umf er öllum 3 l br fækkað í 2 l br = 128 l. Haldið áfram með 2 l sl /2 l br í 6 cm. Prjónið nú M.6 – passið uppá að brugðnu lykkjurnar og sléttu lykkjurnar verði yfir hverja aðra. Eftir M.6 eru 320 l á prjóni. Fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR: MYNSTUR: Sjá mynsturrteikningu M.1 og M.2 – Mynsturteikning sýnir 1 mynstureiningu af mynstri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 96 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum vínrauður. Prjónið M.1, eftir M.1 eru 48 l. Prjónið nú stroff með sl yfir sl og br yfir br í 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram með M.2 - JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í 2. l í umf (= þumal-l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út fyrir þumal þannig: Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki – aukið út með því að slá uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til þess að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 6 sinnum (allar útauknar lykkjur eru prjónaðar með litnum vínrauður) = 13 þumal-l og 60 l alls. Þegar stykkið mælist 6 cm eru settar 13 þumal-l á þráð. Í næstu umf er fitjuð upp 1 ný l fyrir aftan þumal-l = 48 l alls. Eftir M.2 er prjónað áfram með litnum vínrauður – JAFNFRAMT, eftir M.2, er sett 1 prjónamerki í hvora hlið (= 24 l á milli prjónamerkja). Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 5 sinnum, síðan í hverri umf 4 sinnum = 12 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Allur vettlingurinn mælist ca 29 cm. ÞUMALL: Setjið inn 13 l frá þumli á sokkaprjóna nr 3 og takið að auki upp 3 l í kanti fyrir aftan þumal-l = 16 l. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður í ca 6 cm, prjónið síðan allar l saman 2 og 2 slétt. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 8 l sem eftir eru, herðið að. VINSTRI VETTLINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri vettlingur, en aukið út fyrir þumal beggja vegna við næst síðustu lykkju í umferð. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firecrystalset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 122-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.