Ineke skrifaði:
Ik zie het al. Op de print van het patroon was de allerlaatste steek van het patroon weggevallen. Het zijn als laatste 4 st a
11.02.2013 - 14:52DROPS Design svaraði:
Mooi dat het is gelukt. Veel breiplezier verder.
12.02.2013 - 11:39
Ineke skrifaði:
Pas:beginnen met telpatroon M1 voor maat L Moet ik gelijk MiddenAchter beginnen met 3a,6r,1a,6r,3a en dit direkt herhalen dus aaneengesloten patroon breien?
11.02.2013 - 14:28
Carina Wernersson skrifaði:
Hej igen :) Nu har jag stickat ärmarna och fått repat upp dom då det verkar vara fel i mönstret igen...denna gång verkar ni ha vänt på storlekarna. Kanske bäst ni kollar igenom mönstret ordentligt. MVH/Carina
06.02.2013 - 13:13DROPS Design svaraði:
Ärmarna stämmer bara följ beskrivningen!
11.02.2013 - 16:20
Ineke skrifaði:
Mouw: Er staat: meerder bij een hoogte van 12cm 2 st midden onder de mouw.Bedoelen ze aan het begin of het midden van de naald?
02.02.2013 - 22:14DROPS Design svaraði:
Je moet dan meerderen aan het begin en eind van de nld (= midden van de ondermouw).
04.02.2013 - 14:14
Carina Wernersson skrifaði:
Står fel i mönstret, 2 m på hj.st bakom arb (står så på båda) Kragen: står kort rundsticka 4,5 men i början av informationen står det kort rundsticka nr 5, vilken ska det vara?
23.01.2013 - 22:36DROPS Design svaraði:
Diagramförklaring skal vi ändra, tack för info! Resåren i halsen stickar du på st 4,5
24.01.2013 - 11:59
Annelie skrifaði:
En underbart härlig tröja i mitt favoritgarn, den här måste jag bara göra!
14.11.2012 - 20:26
Anna skrifaði:
Love this one, can hardly wait til I can get this pattern!
28.07.2010 - 06:44
Anneli skrifaði:
Det här är min absoluta favorit! Det här blir en bra höststickning. Vacker modell. Och jag är nyfiken på Nepal, ska bli kul att testa.
18.07.2010 - 21:52
Andrea skrifaði:
Wunderschönes Modell, möchte es unbedingt stricken
08.07.2010 - 19:55
Lisbet skrifaði:
Sej sweater
07.07.2010 - 20:49
Autumn Sunrise#autumnsunrisesweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum úr DROPS Nepal. Stærð S - XXXL.
DROPS 122-8 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MÆLING: Vegna þyngdar á stykkinu verður öll lengdarmæling að gerast þegar stykkinu er haldið uppi annars verður það of langt. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki): Fækkið lykkjum 2 lykkjum á undan prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 fyrir rétta stærð. Mynstrið er prjónað í hring á hringprjóna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 208-232-248-272-296-320 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt og prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkju brugðið. Þegar stykkið mælist 10 cm skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT í 1 umferð er fækkað um 50-60-60-66-74-80 lykkjur jafnt yfir = 158-172-188-206-222-240 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið með 79-86-94-103-111-120 lykkjur á milli merkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12 cm – LESIÐ MÆLING – er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 4-4½-4-4½-4½-4½ cm millibili alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 134-148-160-178-194-212 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-40-41-43-43-44 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 150-164-176-194-214-232 l. Þegar stykkið mælist 52 cm í öllum stærðum eru felldar af 10 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 65-72-78-87-97-106 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 65-70-70-70-75-75 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Nepal. Prjónið 1 umferð slétt og prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Þegar stroffið mælist 4 cm er lykkjum fækkað í öllum einingum með 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið = 52-56-56-56-60-60 l. Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 12-16-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 40-40-42-42-44-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-11-11-12-14-12 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 10-11-12-13-15-16 sinnum = 60-62-66-68-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-40-39-38 cm fellið af 10 lykkjur mitt undir ermi = 50-52-56-58-64-66 lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama stað. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 230-248-268-290-322-344 lykkjur. Nú er byrjun umferðar við miðju að aftan (Í stærð S + XL + XXL byrjar umferðin í miðju lykkjunni að aftan. Í öðrum stærðum byrjar umferðin á milli 2 miðju lykkja að aftan). Prjónið 2-0-2-3-1-2 cm sléttprjón JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 10-8-8-10-2-4 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-280-320-340 lykkjur. Prjónið síðan og fækkið lykkjum samkvæmt M.1 – veljið mynstur fyrir rétta stærð. Eftir M.1 eru 99-108-117-126-144-153 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað í öllum einingum með 3 lykkjum brugðnar í 2 lykkjur brugðnar = 88-96-104-112-128-136 lykkjur. Nú eru 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið hringinn. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN Í HNAKKA: Byrjið frá réttu við miðju að aftan og prjónið stroff eins og áður fram og til baka þannig: Prjónið 29 lykkjur, snúið stykkinu, takið 1. lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 57 lykkjur. Snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 47 lykkjur, snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 37 lykkjur. Snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 27 lykkjur, snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 17 lykkjur. Snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan. KRAGI: Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 4,5 og haldið áfram með stroff hringinn yfir allar lykkjur þar til kraginn mælist 18 cm frá prjónamerki að framan. Aukið síðan út í öllum einingum með 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt. Þegar kraginn mælist 28 cm er aukið út í öllum einingum með 3 lykkjur slétt til 4 lykkjur slétt. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þegar kraginn mælist ca 30 cm (eða að óskaðri lengd). Brjótið kragann út að réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnsunrisesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 122-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.