Oddbjørg skrifaði:
Enn helt i begynnelsen av felling,skal der strikkes M1+12m ut omgangen å så felle først neste rett pinne. skal det så felles slik 8 ggr.før man begynne på M2 :)
13.03.2012 - 22:13DROPS Design svaraði:
Nei, fellingene og M1/M2 gjøres samtidig.
14.03.2012 - 09:22
Oddbjørg skrifaði:
Synest at det er veldig dårlig beskrivelse av hvordan man skal felle på bærstykket.står helt fast
09.03.2012 - 20:25DROPS Design svaraði:
Du feller i hver vrang partie mellom flettene. Første gang felles det i starten av hver partie, neste gang felles det i slutten av hver partie....
12.03.2012 - 10:51
Pauline skrifaði:
What does M.2 mean in pattern no Z-075-by-Z-076-by-Z-077-by
21.02.2012 - 17:48DROPS Design svaraði:
Dear Pauline. It's the diagramme M.2 - for the yoke on the jacket. Look at the bottom of the pattern.
22.02.2012 - 15:19
Joan skrifaði:
Hej igen,det er bare fordi,at på fotoet ser det ud som om,at det kun er i den ene side af v.partiet ?
21.10.2011 - 17:51
Drops Design skrifaði:
Hej! Du tager ind i den ene side af vr-partiet på den ene p og næste gang gang tager du ind i den anden siden af vr-partiet. God fornøjelse!
21.10.2011 - 15:19
Joan skrifaði:
Hej-jeg er i tvivl:skal jeg tage ind,skiftevis højre og venstre side,af vr.partiet på samme pind,elskiftevis på hver anden 1cm?
21.10.2011 - 14:54
DROPS Design skrifaði:
Hej, Det stämmer att minskningarna i avigt parti är totalt 88 maskor, men du har minskningarna i diagram M2, dvs 4 minskningar per M2 och dessa minskningar + 88 blir totalt 136 minskade maskor. Lycka till!
12.10.2011 - 09:12
Petra skrifaði:
Hej! Jag har fastnat på samma ställe som jag kan se att nedan har gjort också. Jag stickar stl 12-18 mån och har efter ökningar alltså 290 m på oket. Om jag förstår det rätt så ska jag minska 1 m/avigt parti (först höger sida och sedan 1 cm senare på vänster). Det betyder alltså 11 minskningar per gång. 11 x 8 = 88 m. Jag förstår inte hur det kan bli 154 m efter alla minskningar?
07.10.2011 - 21:59
DROPS Design skrifaði:
Natacha, first time you dec on the right side of each section with purled sts. Next time 1 cm later you dec on the left side of each section with purled st. Next time again another cm later you again dec in the right side and so on, a total of times stated for the size you are making.
26.09.2011 - 21:19
Natacha skrifaði:
I've emailed too but am also posting here. What exactly does this mean - "dec from RS on the right and left side alternately of each P-section on every 1 cm / 3/8'' a total of 6-7-8 (9-9) times". Could you please clarify how many stitches will need to be lost in each of the 8 decrease rows. Thanks a mil.
22.09.2011 - 19:05
Little Chestnut#littlechestnutjacket |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki, húfa og sokkar með köðlum úr DROPS Alpaca.
DROPS Baby 19-17 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. PERLUPRJÓN (prjónað í hring): UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið umferð 2. HNAPPAGAT. Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. kantlykkju að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 4, 9, 14, 19 og 24 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 3, 8, 14, 19, 25 og 30 cm. STÆRÐ 2 ára: 4, 10, 16, 22, 28 og 34 cm. STÆRÐ 3/4 ára 3, 10, 17, 24, 31 og 38 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 139-151-170 (183-192) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 4. umf er aukið út um 17-19-14 (15-20) l jafnt yfir = 156-170-184 (198-212) l. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan), 2 l br, M.1, * 6 l br, M.3 *, endurtakið frá *-* yfir næstu 112-126-140 (154-168) l, endið á 6 l br, M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 7-7-7 (8-8) cm. ATH! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 21 l inn í hvorri hlið eins og áður, aðrar l eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-13-8 (9-14) l jafnt yfir = 147-157-176 (189-198) l. Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21 l í hvorri hlið eins og áður, aðrar l eru prjónaðar slétt. Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2 l br, M.1, 2 l br, sléttprjón yfir næstu 105-115-134 (147-156) l, 2 l br, M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón. Haldið áfram alveg eins þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 21 l eins og áður og 14-18-24 (26-29) l sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 61-63-70 (79-82) l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 14-18-24 (26-29) l sléttprjón og 21 l eins og áður (= vinstra framstykki) = 131-141-160 (173-182) l eftir á prjóni. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40 (42-44) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN - sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvorum megin við prjónamerkin, endurtakið útaukningu í 6.-5.-5.- (6.-6.) hverri umf alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-58 (62-68) l. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 (25-29) cm. Fellið af 8 l við miðju undir ermi (4 l hvoru megin við prjónamerki) = 40-44-50 (54-60) l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 211-229-260 (281-302) l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21 l inn í hvorri hlið eins og áður, hinar eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-27-30 (33-36) l jafnt yfir = 233-256-290 (314-338) l. Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2 l br, * M.1, 11-11-12 (12-12) l br *, endurtakið frá *-* alls 9-10-11 (12-13) sinnum og endið á M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá réttu til skiptis frá hægri og vinstri hlið í hverri br mynstureiningu (ATH! Ekki fækka lykkjum í 2 l br yst í hvorri hlið), fækkið lykkjum með því að prjóna 2 l br saman, með eins cm millibili alls 6-7-8 (9-9) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1-1-2 (3-4) cm er M.2 prjónað yfir allar l í M.1 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Þegar M.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með M.3. Eftir alla úrtöku eru 139-142-154 (154-165) l á prjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm, stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina. Prjónið síðan M.4 yfir allat M.3 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður) = 99-98-106 (102-109) l. Þegar M.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónuð 1 umf slétt frá réttu yfir allar l JAFNFRAMT er fækkað um 13-10-14 (6-9) l jafnt yfir = 86-88-92 (96-100) l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. HÚFA: Fitjið upp 95-100-105 (110-120) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, 11-12-13 (14-16) l br *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 115-120-125 (130-140) l. Í næstu umf er prjónað sl yfir sl og br yfir br, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt (= 12 l sl, 11-12-13 (14-16) l br). Prjónið nú áfram þannig: * M.1, 11-12-13 (14-16) l br *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm (stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina) prjónið M.2 yfir allt M.1. ATH! Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 eftir þörf þegar lykkjum fækkar. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er M.3 prjónað yfir allt M.2. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm er fækkað um 2 l í hverri br-mynstureiningu, með því að prjóna 2 síðustu l br saman í hvorri hlið. Fækkið lykkjum með 1 cm millibili alls 4 sinnum = 55-60-65 (70-80) l. Prjónið síðan M.4 yfir allt M.3 = 35-40-45 (50-60) l. Í næstu umf er prjónað slétt yfir allar l JAFNFRAMT er l fækkað og þær prjónaðar saman 2 og 2 = 18-20-23 (25-30) l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist nú ca 14-15-16 (17-18) cm. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 50-50-54 (58-62) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: STÆRÐ 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 2 ára: Prjónið 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 l, 2 l br, M.5 (= 12 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 l, 2 l br, 1 l sl. STÆRÐ 12/18 mánaða - 3/4 ára: Prjónið 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 l, M.5 (= 12 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 l, 1 l br. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6-7-7 (8-8)cm. Prjónið 1 umf JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir í umf, fækkið ekki lykkjum yfir 16 l á ofan á fæti (= M.5 + 2 l br í hvorri hlið) = 46-46-50 (54-58) l. Haldið eftir 16 l ofan á fæti prjóni, þær 30-30-34 (38-42) l sem eftir eru, eru settar á þráð. Haldið áfram með M.5 með 2 l br í hvorri hlið fram og til baka í 3-3½-4 (5-6) cm. Næsta umf frá réttu er fækka um 4 l yfir M.5 = 12 l á fæti. Prjónið nú upp 6-8-8 (10-14) l til hliðar ofan á fæti, setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið upp 6-8-8 (10-14) l í hinni hliðinni ofan á fæti = 54-58-62 (70-82) l. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – hringinn yfir allar l í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið nú 1 umf brugðið. Fellið af allar l nema 12 l við miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm í perluprjóni fram og til baka og til þess að gera sóla. Fellið af og saumið sólann á sokkinn, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlechestnutjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.