DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Chestnut Hat

Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki, húfu og sokkum með köðlum úr DROPS Alpaca

DROPS Baby 19-31
DROPS Design: Mynstur nr Z-075-by-Z-076-by-Z-077-by
--------------------------------------------------------
PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 -98/104)
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150 gr í allar stærðir litur nr 618, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA BRENND, NR 513: 5 - 5 - 6 (6 - 6) stk.

HÚFA:
Höfuðmál: ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm
Efni:
DROPS ALPACA fra Garnstudio
50 gr í allar stærðir litur nr 618, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf tilað 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 10 - 11 - 12 (14 - 16) cm
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50 gr í allar stærðir litur nr 618, ljós beige

DROPS PRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikninu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

HNAPPAGAT.
Fellt er af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan.
1 hnappagat = fellið af 3. og 4. kantlykkju að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 4, 9, 14, 19 og 24 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 3, 8, 14, 19, 25 og 30 cm.
STÆRÐ 2 ára: 4, 10, 16, 22, 28 og 34 cm.
STÆRÐ 3/4 ára 3, 10, 17, 24, 31 og 38 cm.
--------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Fitjið upp 139-151-170 (183-192) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. JAFNFRAMT í 4. umf er aukið út um 17-19-14 (15-20) l jafnt yfir = 156-170-184 (198-212) l. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón (= kantur að framan), 2 l br, M.1, * 6 l br, M.3 *, endurtakið frá *-* yfir næstu 112-126-140 (154-168) l, endið á 6 l br, M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 7-7-7 (8-8) cm. ATH! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá skýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 21 l inn á hvorri hlið eins og áður, aðrar l eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-13-8 (9-14) l jafnt yfir = 147-157-176 (189-198) l. Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21 l á hvorri hlið eins og áður, aðrar l eru prjónaðar slétt.
Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2 l br, M.1, 2 l br, sléttprjón yfir næstu 105-115-134 (147-156) l, 2 l br, M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón.
Haldið áfram alveg eins þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm.
Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 21 l eins og áður og 14-18-24 (26-29) l sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 61-63-70 (79-82) l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, 14-18-24 (26-29) l sléttprjón og 21 l eins og áður (= vinstra framstykki) = 131-141-160 (173-182) l eftir á prjóni. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 36-38-40 (42-44) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN - sjá skýringu að ofan. Haldið áfram með sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvorum megin við prjónamerkin, endurtakið útaukningu í 6.-5.-5.- (6.-6.) hverri umf alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-58 (62-68) l. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 (25-29) cm. Fellið af 8 l við miðju undir ermi (4 l hvoru megin við prjónamerki) = 40-44-50 (54-60) l.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 211-229-260 (281-302) l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umf frá röngu eru prjónaðar 21 l inn á hvorri hlið eins og áður, hinar eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-27-30 (33-36) l jafnt yfir = 233-256-290 (314-338) l. Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, 2 l br, * M.1, 11-11-12 (12-12) l br *, endurtakið frá *-* alls 9-10-11 (12-13) sinnum og endið á M.1, 2 l br og 5 l garðaprjón. JAFNFRAMT er fellt af frá réttu til skiptis frá hægri og vinstri hlið í hverri br mynstureiningu (ATH! Ekki fella af í 2 l br yst á hvorri hlið), fellið af með því að prjóna 2 l br saman, með eins cm millibili alls 6-7-8 (9-9) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1-1-2 (3-4) cm er M.2 prjónað yfir allar l í M.1 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður).
Þegar M.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með M.3. Eftir alla úrtöku eru 139-142-154 (154-165) l á prjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm, stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina. Prjónið síðan M.4 yfir allat M.3 (aðrar l eru prjónaðar eins og áður)
= 99-98-106 (102-109) l. Þegar M.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónuð 1 umf slétt frá réttu yfir allar l JAFNFRAMT er fellt af 13-10-14 (6-9) l jafnt yfir = 86-88-92 (96-100) l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.
--------------------------------------------------------

HÚFA:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.
Fitjið upp 95-100-105 (110-120) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð þannig: * Prjónið 1 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 2 l sl, sláið uppá prjóninn, 1 l sl, 11-12-13 (14-16) l br *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum = 115-120-125 (130-140) l. Í næstu umf er prjónað sl yfir sl og br yfir br, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt (= 12 l sl, 11-12-13 (14-16) l br). Prjónið nú áfram þannig: * M.1, 11-12-13 (14-16) l br *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm (stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina) prjónið M.2 yfir allt M.1. ATH! Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5 eftir þörfum þegar lykkjum fækkar. Þegar M.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er M.3 prjónað yfir allt M.2.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm er fækkað um 2 l í hverri br-mynstureiningu, með því að prjóna 2 síðustu l br saman á hvorri hlið. Fellið af með 1 cm millibili alls 4 sinnum = 55-60-65 (70-80) l. Prjónið síðan M.4 yfir allt M.3 = 35-40-45 (50-60) l. Í næstu umf er prjónað slétt yfir allar l JAFNFRAMT er l fækkað og þær prjónaðar saman 2 og 2 = 18-20-23 (25-30) l. Klippið frá og dragið bandið í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Húfan mælist nú ca 14-15-16 (17-18) cm.
--------------------------------------------------------

SOKKAR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2.
--------------------------------------------------------

SOKKUR:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Fitjið upp 50-50-54 (58-62) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig:
STÆRÐ 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 2 ára:
Prjónið 1 l sl, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 l, 2 l br, M.5 (= 12 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 l, 2 l br, 1 l sl.
STÆRÐ 12/18 mánaða - 3/4 ára:
Prjónið 1 l br, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 l, M.5 (= 12 l), * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 l, 1 l br.
Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6-7-7 (8-8)cm.
Prjónið 1 umf JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir í umf, fækkið ekki lykkjum yfir 16 lykkjur ofan á fæti (= M.5 + 2 l br í hvorri hlið) = 46-46-50 (54-58) l. Haldið eftir 16 l ofan á fæti á prjóni, þær 30-30-34 (38-42) l eru settar á þráð. Haldið áfram með M.5 með 2 l br á hvorri hlið fram og til baka í 3-3½-4 (5-6) cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 l yfir M.5 = 12 l ofan á fæti. Prjónið nú upp 6-8-8 (10-14) l til hliðar ofan á fæti, setjið til baka l af þræði á prjóninn og prjónið upp 6-8-8 (10-14) l í hinni hliðinni ofan á fæti = 54-58-62 (70-82) l. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – hringinn yfir allar l í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið nú 1 umf brugðið. Fellið af allar l nema 12 l við miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm í perluprjóni fram og til baka og til þess að gera sóla.
Fellið af og saumið sólann á sokkinn, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 2 l slétt saman og 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l slétt saman, 1 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l slétt saman og 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l slétt saman, 1 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið,2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Annette wrote:

Die Jacke wird mit Knöpfen verschlossen. Allerdings finde ich in der Anleitung nicht, in welchem Reihenabstand die Knopflöcher gearbeitet werden sollen und bei welcher Masche vom Rand. Für eine Antwort danke ich Ihnen

18.11.2020 - 17:58

DROPS Design answered:

Liebe Annette, die Knopflöcher werden am Anfang der Anleitung unter KNOPFLÖCHER erklärt, bzw wie und wann man sie strikt. Viel Spaß beim stricken!

19.11.2020 - 09:48

country flag Karina wrote:

Hej! Stickar mössan. Vad betyder Rapp på höjden? Såhär står det: Sedan stickas det vidare så här: * M.1, 11-12-13 (14-16) am *, upprepa *-* totalt 5 ggr. Och vidare: KONTROLLERA STICKFASTHETEN! När arb mäter ca 7-8-9 (10-11) cm (avpassa efter färdig rapp på höjden) stickas M.2 över alla M.1. Betyder det då att jag ska fortsätta med samma sak fler än 5 gånger som det står där innan eller ska jag gå vidare direkt till M.2 över alla M.1? /Karina

19.07.2018 - 11:51

DROPS Design answered:

En rapport i höjden betyder att du ska sticka hela diagrammet (6 varv) innan du börjar på M.2.

20.07.2018 - 14:14

country flag Miriam wrote:

Dobrý den, prosím Vás, pletu kabátek a v tom sedle nerozumím tomu ubíraní. Píšete že ubírat střídavě...jak střídavě? Ne v každé skupine "obrace ok" mezi vrkůčkama ale v každý druhý skupine? a po 1 centimetru pletení zas v tý druhý skupině ubrat?

25.06.2018 - 13:53

DROPS Design answered:

Milá Miriam, pro vytvarování sedla ujímáme v každé skupině obrace pletených ok, 1 na pravé straně, 1 na levé. Hodně zdaru!

27.06.2018 - 12:07

country flag Anja wrote:

Bzgl. der Mütze: Ich stricke diese mit 100 M. und weiß nicht, wie ich hier vorgehen soll: "Die nächste R. wie folgt: * 1 re., 1 Umschlag, 2 re., 1 Umschlag, 2 re., 1 Umschlag, 2 re., 1 Umschlag, 1 re., 11-12-13 (14-16) li. *, von *-* total 5 Mal wiederholen = 115-120-125 (130-140) M." Wie gehe ich mit 100 M. vor? Ich gehe davon aus, dass es sich um "eine R." mit 100 M. handelt?

19.02.2018 - 16:25

DROPS Design answered:

Liebe Anja, wenn Sie über diese 100 Maschen von *bis* stricken, nehmen Sie 4 Maschen (= 4 Umschläge) in jedem Rapport (von *bis*), dann von *bis* 5 x wiederholen = 20 Maschen werden zugenommen, dann haben Sie 120 M am Ende der 1. Rd nach die 4 Krausrippen. Viel Spaß beim stricken!

20.02.2018 - 08:03

country flag Shelby wrote:

I am having a difficult time understanding how to do the yoke of this sweater. I am making a 1-3 month sweater and this instruction: "dec from RS on the right and left side alternately of each P-section (dec by P2 tog, NOTE! do not dec in P2 each side) on every 1 cm / 3/8'' a total of 6-7-8 (9-9) times." is very confusing for me. I don't understand what it means by "on the right and left side alternately" any help would be awesome! Thank you! -Shelby

22.09.2015 - 06:12

DROPS Design answered:

Dear Shelby, on first dec row you will work P2 tog on the right side of each P-section (= at the beg of each P-section), on next dec row you will work P2 tog on the left side of each P-section (= at the end of each P-section). Continue like this. Happy knitting!

22.09.2015 - 11:01

country flag Mary wrote:

I have a question about the booties. I'm making the 6/9 month size and just finished the cuff. Now, I've reached the part where the directions say to knit and decrease. When I go to slip the stitches, my working yarn ends up at the back and then crosses the inside of the bootie in order to knit back and forth. I feel like I must be misinterpreting the directions, but I can't seem to understand how to get the yarn to be in the right place. Can you please explain what I'm missing?

14.04.2015 - 00:09

DROPS Design answered:

Dear Mary, when you have the row with dec, cut the yarn, keep the 16 sts on upper foot on needle and slip remaining sts on a st holder. Work then the 16 sts as stated, then pick up sts along left side of upper foot, work sts from st holder, pick up sts along right side of upper foot, join in the round and continue working as explained. Happy knitting!

14.04.2015 - 10:01

country flag Claudine wrote:

J'ai fait ce bonnet pour ma petite fille. Vraiment très beau!

19.03.2015 - 01:21

country flag Claudine wrote:

J'ai fait ce bonnet pour ma petite-fille. Vraiment très beau.

19.03.2015 - 01:19

country flag Anna wrote:

Ich bin gerade dabei die Mütze zu stricken. Hierbei stellen sich mir zwei Fragen: 1) Es heißt: "nach ca. 7 cm (nach einem ganzen Rapport)M2 über M1 stricken. Werden die 7 ab Anschlag gemessen oder erst wenn man mit dem M1 Muster beginnt? 2) Wiederhole ich das M1 Muster während dieser 7 cm jede Runde oder stricke ich es nur zur Beginn einmal? Ich hoffe meine Fragen sind einigermaßen verständlich gestellt. Liebe Grüße und vielen Dank für die Hilfe =)

24.11.2013 - 00:27

DROPS Design answered:

Liebe Anna, es ist die Gesamthöhe gemeint (Frage 1). Bei Muster M1 ist jede Rd abgebildet, achten Sie darauf, dass es nicht nur aus Verzopfungen besteht, sondern natürlich auch aus Zwischenrunden in glatt re - wie im Diagramm abgebildet.

25.11.2013 - 08:14

country flag Steffi wrote:

Hallo, ich verstehe nicht, wie man bei den Abnahmen bei der Passe (bei Gr. 86/92) auf 154 M kommt. Ich habe zuerst 314 und nehme (so wie ich das verstehe) 12 Linksteile x 9 alle 1 cm (=108 M) ab. das sind dann 314 - 108 = 206 M und nicht 154. Wo liegt mein Denkfehler? Ich bin ratlos. Vielen Dank schonmal für die Hilfe

16.11.2013 - 16:26

DROPS Design answered:

Liebe Steffi, im Mustersatz M2 sind weitere Abnahmen enthalten.

18.11.2013 - 14:34