Drops Design skrifaði:
Hej. Du fortsætter med M.2 derfra hvor du kom til, så møsnteret fortsætter på alle dele. God fornøjelse!
04.02.2011 - 14:14
Leen skrifaði:
Hejsa igen Hvordan får man mønstret til at passe. Jeg strikker i str. 2 år og har, når jeg sætter ærmerne ind på rundpinden 285 m. Men det passer jo ikke med antallet af masker i mønster 2.
31.01.2011 - 16:37
Drops Design skrifaði:
Hej. Så er der noget galt...For at få 26 m på 10 cm er du nødt til at strikke på en p 2,5 (eller muligvis 3). Er du oppe i p 4,5 så bliver trøjen alt for stor og du får da for lidt garn. Du er nødt til at lave en lille strikkeprøve så du er sikker på at du har 26 m på 10 cm (du strikker med en tråd ad gangen). God fornøjelse
14.01.2011 - 09:53
Lene skrifaði:
Hejsa Kan denne strikkefasthed passe? Jeg skal bruge pind 4,5 for at overholde strikkefastheden, og har ikke garn nok. Jeg strikker i str. 2 år og har 100 gram i hver farve, men kan se at jeg slet ikke har nok...
13.01.2011 - 21:42
Carnival Star#carnivalstarjacket |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með röndum, doppum og laskalínu og sokkum úr DROPFabel. Heklað dýr og snudduband úr DROPS Fabel og DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 19-4 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu): FRÁ RÉTTU: Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 l á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. FRÁ RÖNGU: Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 l á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 snúnar l br saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br saman. ATH! Passið uppá að lykkjan snúi í rétta átt séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 148-168-184 (200-220) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 2,5 með litnum bleikur draumur. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff = 2 l sl/2 l br með 1 kantlykkju og 2 l slétt í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 17-21-21 (21-25) l jafnt yfir = 131-147-163 (179-195) l. Setjið prjónamerki 33-37-41 (45-49) l inn frá hvorri hlið = 65-73-81 (89-97) l á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið við miðju að framan. ATH! M.1 er endurtekið þar til 2 l eru eftir á prjóni, prjónið 1 l eins og 1. lykkja í M.1 og endið á 1 kantlykkju. Eftir M.1 er prjónað áfram M.2 alveg eins með 1 kantlykkju í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-27) cm – stillið af eftir 1 rönd í M.2 (þ.e.a.s. eftir 5 umf með einum lit) – prjónið næstu umf þannig: Prjónið 29-33-37 (41-45) l (= framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 57-65-73 (81-89) l (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 29-33-37 (41-45) l (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-44-44 (48-52) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum bleikur draumur. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff = 2 l sl/ 2 l br. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 3 l jafnt yfir = 37-41-41 (45-49) l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið M.1. ATH! M.1 er endurtekið þar til 1 l er eftir í umf. Prjónið þessa l eins og 1. lykkju í M.1. Eftir M.1 er haldið áfram með M.2 alveg eins. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu í 4.–4.- 4.- (5.- 6.) hverri umf alls 8-8-12 (12-12) sinnum = 53-57-65 (69-73) l – útauknu l eru prjónaðar inn í mynstur. Þegar stykkið mælist ca 16-17-20 (24-28) cm – stillið af að endað er á sama stað í M.2 eins og á fram- og bakstykki – fellið af í næstu umf 8 l fyrir miðju undir ermi = 45-49-57 (61-65) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 205-229-261 (285-309) l. Setjið eitt prjónamerki í allar 4 skiptingar milli erma og fram- og bakstykkis. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram með M.2 þannig að rendurnar passa yfir fram- og bakstykki og ermi. LASKALÍNA: Fækkið um 1 l hvoru megin við öll prjónamerkin með byrjun frá réttu (= 8 úrtökur í hverri umf) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 12-14-13 (14-16) sinnum og síðan í hverri umf: 4-4-9 (10-10) sinnum. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-29 (32-36) cm er lykkjum fækkað fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf þannig: 6-8-8 (8-10) l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 2-2-2 (4-4) sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og úrtöku fyrir hálsmáli eru 57-61-61 (65-69) l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl. Setjið lykkjur á þráð. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Takið upp ca 68-76-88 (96-108) l (deilanlegar með 4) meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 2,5 með litnum bleikur draumur. Prjónið stroff fram og til baka með 1 kantlykkju með garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur en eftir 2 umf er fellt af fyrir 4-4-4 (5-5) hnappagötum jafnt yfir. Neðsta hnappagatið á að vera ca 2 cm frá neðri kanti og það efsta ca 4 cm frá efri kanti (það á einnig að gera 1 hnappagat efst í hálsmáli). 1 HNAPPAGAT = Prjónið 2 l slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. ATH! Það er fallegast þegar fellt er af í br l (séða frá réttu) með því að prjóna 2 l br saman. HÁLSMÁL: Setjið til baka l af þræði í hálsmáli yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið að auki upp ca 16 til 22 l með litnum bleikur daumur í hvorri hlið að framan við hálsmál (takið einnig upp l yfir kant að framan) = ca 89-113 l. Prjónið 1 umf br frá röngu (síðasta l í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjóni) JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 84-88-92 (96-100) l. Prjónið síðan stroff með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). JAFNFRAMT eftir 2 umf með stroffi er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin á hægri kanti að framan. Þegar hálsmálið mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- SOKKAR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 l saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjóanð í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-52 (56-60) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum bleikur draumur. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 5-6-6 (7-7) cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Prjónið nú M.1. Eftir M.1 er prjónað áfram með litnum natur og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-8-8 (9-9) cm haldið eftir fyrstu 18-20-20 (22-26) l á prjóni fyrir hæl og hinar 18-20-20 (22-22) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú upp 8-9-10 (10-11) l hvoru megin við hæl og l af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 42-48-50 (52-56) l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umf, fækkið um 1 l á undan 18-20-20 (22-22) l á fæti með því að prjóna 2 l slétt saman, fækkið um 1 l á eftir 18-20-20 (22-22) l á fæti með því að taka 1 l óprjónaða, prjónið 1 l sl og steypið óprjónuðu l yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-6-7 (5-7) sinnum = 36-36-36 (42-42) l. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum (= 18-18-18 (21-21) l á milli prjónamerkja, bæði ofan á fæti og undir fæti). Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki - sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 7-7-7 (8-8) sinnum = 8-8-8 (10-10) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festi vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. -------------------------------------------------------- HEKLAÐ SNUDDUBAND: Sjá BabyDROPS 19-34 -------------------------------------------------------- HEKLAÐ DÝR: Sjá BabyDROPS 19-35 -------------------------------------------------------- |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #carnivalstarjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.