DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS SS24

Hello Stripes

Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með röndum, doppum og laskalínu, buxum og sokkum úr DROPS Fabel

DROPS Baby 19-3
DROPS Design: Mynstur nr FA-028-by-FA-029-by-FA-030-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-100 (100-100) gr litur nr 910, þokumistur
50-50-50 (100-100) gr litur nr 100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA nr 513: 4 stk.

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-100-100 (100-100) g litur nr 100, natur
50-50-50 (50-50) g litur nr 910, þokumistur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
TEYGJA: ca 60 cm.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 10 - 11 - 12 (14 - 16) cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) g litur nr 100, natur
50-50-50 (50-50) g litur nr 910, þokumistur

DROPS PRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um laskalínu):
FRÁ RÉTTU:
Í byrjun á umf: 1 kantlykkja, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Í lok umf (byrjið þegar 3 l eru eftir): Prjónið 2 l slétt saman, 1 kantlykkja.
Við 3 prjónamerki er lykkjum fækkað í skiptingunni á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 l á undan prjónamerki): Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

FRÁ RÖNGU:
Í byrjun á umf: 1 kantlykkja, 2 l br saman.
Í lok umf (byrjið þegar 3 l eru eftir): 2 l snúnar br saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), 1 kantlykkja.
Við 3 prjónamerki er lykkjum fækkað í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma (byrjið 3 l á undan prjónamerki): 2 lykkjur snúið brugðið saman, 2 lykkjur brugðið (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 lykkjur brugðið saman.
ATH! Passið uppá að lykkjur leggist í rétta átt séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við sokka):
Fækkið lykkjum 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt.
Fækkið um lykkjur á eftir prjónamerki: 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni.

ÚRTAKA (á við um sokka):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 140-156-176 (192-212) l á hringprjóna nr 2,5 með litnum þokumistur.
Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff = 2 l sl/2 l br. Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 12-12-16 (16-20) l jafnt yfir = 128-144-160 (176-192) l. Setjið prjónamerki í hvora hlið = 64-72-80 (88-96) l á milli prjónamerkja. Prjónið M.1. Eftir M.1 er M.2 prjónað áfram. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-27) cm – stillið af eftir 1 rönd í M.2 (þ.e.a.s. eftir 5 umf með einum lit) – prjónið næstu umf þannig: Fellið af 4 l fyrir handvegi, prjónið 57-65-73 (81-89) l (= framstykki), fellið af 7 l fyrir handvegi, prjónið 57-65-73 (81-89) l (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 l fyrir handvegi, klippið frá. Setjið prjónamerki í miðjulykkju á bakstykki (= miðja aftan við hnakka). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 40-44-44 (48-52) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum þokumistur.
Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff = 2 l sl/ 2 l br. Þegar stroffið mælist 3 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið M.1. Eftir M.1 er M.2 prjónað áfram upp úr. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu í 4. – 4.- 4.- (5.- 6.) hverri umf alls 8-8-12 (12-12) sinnum = 52-56-64 (68-72) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur. Þegar stykkið mælist ca 16-17-20 (24-28) cm – stillið af að endað er á sama stað í M.2 eins og á fram- og bakstykki – fellið af í næstu umf 7 l fyrir miðju undir ermi (= 4 l á eftir prjónamerki í byrjun umf og 3 l á undan prjónamerki í lok umf = 45-49-57 (61-65) l eftir á prjóni. Klippið frá og geymið stykkið.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 204-228-260 (284-308) l. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis nema vinstri hlið að framan (þar sem klætt er í flíkina).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið nú fram og til baka frá vinstri hlið að framan. Haldið áfram með M.2 þannig að rendur passi yfir fram- og bakstykki og ermi. Byrjið með að fækka um 3 l í byrjun á 2 fyrstu umf (= laskaop).

LASKALÍNA:
Fækkið um 1 l, með byrjun frá réttu, hvoru megin við 3 prjónamerkin, að auki er fækkað um 1 l í byrjun og lok umf (= 8 úrtökur í hverri umf) – LESIÐ ÚRTAKA!
Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 10-12-11 (12-14) sinnum og síðan í hverri umf: 6-6-11 (12-12) sinnum.
Eftir allar úrtöku eru 70-78-78 (86-94) l eftir á prjóna og stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að ölx.
Prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka frá réttu – haldið áfram með þann lit sem notaður er í mynstri og prjónið nú með einum lit: Prjónið að prjónamerki við miðju aftan við hnakka, prjónið að auki 6-7-7 (8-9) l og snúið við (til þess að koma í veg fyrir göt er fyrsta lykkjan tekin laust af þegar snúið er við og hert er á þræði). Prjónið 12-14-14 (16-18) l og snúið við, prjónið 18-21-21 (24-27) l og snúið við, prjónið 24-28-28 (32-36) l og snúið við. Setjið allar lykkjur á þráð og prjónið kant með laskalínu að framan á undan hálsmáli.

KANTUR MEÐ LASKALÍNU AÐ FRAMAN:
Prjónið upp ca 24 til 32 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju með fram lasklínu opi á ermi með prjóna nr 2,5 og litnum þokumistur. Prjónið stroff með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið, séð frá réttu. Þegar kantur að framan mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.
Endurtakið meðfram laskalínu opi á framstykki, en eftir 2 umf er fellt af fyrir 3 hnappagötum jafnt yfir (það verður einnig 1 hnappagat í hálsmáli). 1 hnappagat = fellið af 2 l og fitjið upp í næstu umf 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af.

HÁLSMÁL:
Setjið til baka l af þræði í hálsmáli yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið að auki upp 5 nýjar l yfir kant að framan með litnum þokumistur = 80-88-88 (96-104) l. Prjónið stroff fram og til baka frá laskalínu opi, séð frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l sl/2 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. JAFNFRAMT eftir 2 umf er fellt af fyrir einu hnappagati yfir hin í laskalínu kanti að framan. Þegar hálsmálið mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið saman laskalínu kant að framan neðst, með opið á móti ermi. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp.

SKÁLM:
Fitjið laust upp 52-56-60 (64-68) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum þokumistur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan verðu á skálm. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff = 2 l sl/2 l br í hring í 5-5-6 (6-6) cm. Prjónið 1 umf slétt. Síðan er M.1 prjónað. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir M.1 er prjónað áfram með litnum natur og sléttprjón. JAFNFRAMT í fyrstu umf eftir M.1 er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 3.-4.-5.- (8.-12.) hverri umf alls 10-11-10 (9-8) sinnum = 72-78-80 (82-84) l. Þegar stykkið mælist 16-19-22 (27-33) cm (nú á að vera búið að auka út) skiptist stykkið við innan verðu á skálm og prjónað er áfram fram og til baka (þetta er gert svo að léttara verði að setja skálmarnar saman á sama hringprjón). Fitjið upp 1 nýja l hvoru megin við kant = 74-80-82 (84-86) l. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-35) cm fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf, með byrjun frá réttu = 68-74-76 (78-80) l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt.

BUXUR:
Setjið inn skálmarnar á sama hringprjóna nr 2,5 = 136-148-152 (156-160) l – byrjun umf = miðja að aftan. Setjið prjónamerki við miðju að framan. Prjónið sléttprjón í hring með litnum natur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 5-8-7 (6-5) sinnum = 126-132-138 (144-150) l. Þegar stykkið mælist 32-38-42 (48-55) cm prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fjöldi l jafnaður út til 124-132-140 (144-152) l. Prjónið nú upphækkun að aftan: Prjónið 12 l frá byrjun umf, snúið við (til þess að sleppa við göt er fyrsta l tekin laust af þegar snúið er við og hert á þræði). Prjónið 24 l og snúið við, prjónið 36 l og snúið við, prjónið 48 l og snúið við. Haldið áfram að prjóna 12 l fleiri í hvert sinn sem snúið er við 6-6-6 (8-8) sinnum til viðbótar. Prjónið síðan M.1 yfir allar l en mynstur er prjónað ofan frá og niður eftir mynsturteikningu. Eftir M.1 er prjónað áfram með litnum þokumistur og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 36-42-46 (52-59) cm prjónið næstu umf þannig: * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn (= uppábrot). Prjónið síðan sléttprjón í 2 cm, að kanti, áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op innan verðu á hvorri skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op á milli skálma. Brjótið kantinn saman að röngu í uppábrotskantinn og saumið með fínu spori niður á röngu, skiljið eftir lítið op til þess að þræða teygjuna í gegn.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 48-52-52 (56-60) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum þokumistur.
Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 5-6-6 (7-7) cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 12 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Prjónið nú M.1. Eftir M.1 er prjónað áfram með litnum natur og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-8-8 (9-9) cm haldið eftir fyrstu 18-20-20 (22-26) l á prjóni fyrir hæl og hinar 18-20-20 (22-22) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú upp 8-9-10 (10-11) l hvoru megin við hæl og l af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 42-48-50 (52-56) l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umf, fækkið um 1 l á undan 18-20-20 (22-22) l á fæti með því að prjóna 2 l slétt saman, fækkið um 1 l á eftir 18-20-20 (22-22) l á fæti með því að lyfta 1 lykkju af prjóni, prjóna 1 lykkju slétt og steypa lyftu lykkjunni yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-6-7 (5-7) sinnum = 36-36-36 (42-42) l.
Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl, skiptið yfir í litinn þokumistur og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar sokkurinn mælist 8-9-10 (12-14) cm frá prjónamerki er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á sokknum (= 18-18-18 (21-21) l á milli prjónamerkja, bæði ofan á fæti og undir fæti). Fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 7-7-7 (8-8) sinnum = 8-8-8 (10-10) l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festi vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = natur
symbols = þokumistur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Hello Stripes!

Elin, Sweden

Hello Stripes

Ülle Grünberg, Estonia

b19-3 Hello Stripes

Liesbeth, Netherlands

Hello Stripes

Aleksandra Strugacz, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Anonyymi wrote:

Villapaidan raglankavennuksessa sanotaan että "kavenna seuraavalla oikean puolen kierroksella". Tarkoittaako se siis että pitää vuoro kierroksin neuloa oikeaa ja nurjaa tai vasemmalle ja oikealle.

06.03.2024 - 10:16

DROPS Design answered:

Kyllä, koska kaarroke neulotaan tasona, eli neulot vuorotellen yhden kerroksen työn oikealta puolelta ja yhden kerroksen työn nurjalta puolelta.

06.03.2024 - 17:00

country flag Linda wrote:

I can see in your picture for the jumper with stripes, dots and raglan, pants and socks, you use more than two colours. Do you have a separate pattern which includes these colours?

24.10.2023 - 04:47

DROPS Design answered:

Hi Linda, The Drops Fabel yarn gives you the extra colours seen in the picture. Happy knitting!

24.10.2023 - 07:19

country flag Fuchs wrote:

Bonjour, merci pour votre précédente réponse. Pouvez-vous m’expliquer quand commencent les rangs raccourcis ? Combien doit il me rester de mailles à la fin pour la taille 18 mois? A quoi sert-il ? Merci

01.12.2022 - 22:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fuchs, Il vous reste 78 m après les diminutions du raglan; les rangs raccourcis tricotés dans le dos du pull permettent à l'encolure dos d'être plus haute que l'encolure devant. Tricotez simplement ainsi en 12/18 mois: à partir du milieu dos: 7 m end sur l'endroit, tournez et tricotez 14 m envers sur l'envers, tournez et tricotez 21 m endroit sur l'endroit, tournez et tricotez 28 m envers sur l'envers, les rangs raccourcis sont terminés. Mettez les mailles en attente et tricotez d'abord la bordure des raglans devant/manche avant de faire le col. Bon tricot!

02.12.2022 - 08:11

country flag Fuchs wrote:

Bonjour Pour le pull, à que moment je commence le raglan ? Est ce que la manche de gauche en fait partie pour terminer le rang? Vous dites de diminuer 3 mailles , où et la 2 ème fous quand ? Pouvez vous expliquer le tout 1er rang et le 2 ème rang maille par maille afin que je puisse comprendre ? Merci d'avance

25.11.2022 - 23:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fuchs, vous commencez à diminuer pour le raglan dès le 3ème rang de l'empiècement; commencez d'abord par rabattre les 3 premières mailles du devant (côté gauche de l'encolure/bordure de boutonnage) tricotez jusqu'à la fin du rang (devant, manche droite, dos, manche gauche), tournez à la fin du rang (manche gauche), rabattez les 3 premières mailles et tricotez le rang suivant sur l'envers. Commencez ensuite à diminuer pour le raglan comme indiqué sous DIMINUTIONS (raglan) = vous diminuez 8 mailles à chacun de ces rangs. Bon tricot!

28.11.2022 - 08:55

country flag Sylviane Gaspard wrote:

Bonjour, il est impossible de tricoter les petites tailles avec des aiguilles circulaires et quasiment impossible pour la taille 18 mois car les mailles sont trop étirées. Peut-on utiliser des aiguilles droites quitte à faire une couture sur le coté ? Merci

15.11.2022 - 20:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gaspard; vous pouvez utiliser une aiguille circulaire plus courte que la circonférence totale de l'ouvrage (ex. 40 cm) ou bien tricoter en magic loop ou bien effectivement adapter les explications pour des aiguilles droites. Bon tricot!

16.11.2022 - 09:26

country flag Christine wrote:

Bonjour. Pouvez-vous préciser les numéros d'aiguilles ? Vous indiquez 2,5, mais s'agit-il des numéros US ? Effectivement, si j'utilise les aiguilles 2,5, normes françaises, je suis très loin d'obtenir le nombre de mailles/rangs de votre échantillon. Je dois donc tricoter en 3,5 norme française pour me rapprocher de votre échantillon. Merci pour votre réponse

17.03.2022 - 18:09

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, la taille des aiguilles indiquée dans les modèles français est en système métrique, le même utilisé en France; mais nous tricotons toutes de façons différentes, d'où l'importance de l'échantillon. Si vous obtenez le bon nombre de mailles et de rangs avec les aiguilles 3,5, alors utilisez celles-ci. Bon tricot!

18.03.2022 - 09:27

country flag Inger Nilsson wrote:

Stickar tröjan som finns på mönstret Hello Stripes och undrar över OKET. Står att man ska minska 3 m i början på de 2 första v för raglanöppning. Har gjort det och när jag ska sticka RAGLANFRAMKANT så blir det att resåren kommer mot varandra, inte omlott som det borde göra. Har jag fattat fel? Sen ett tips: Ist för att avmaska för ärmhål och under ärmen så sätt garnet på en tråd och sticka ihop delarna. Blir snyggare är när man syr

15.11.2021 - 10:18

DROPS Design answered:

Hej Inger. När du har stickat upp raglanframkant (på båda sidor) så ska de hamna omlott. Du ska sticka raglanframkant på ca 2 cm per sida, vilket då är mer än det du avmaskade. Mvh DROPS Design

16.11.2021 - 08:32

country flag Gabrielle Ebbens wrote:

What measurements would you recommend for 3-6 months? Thanks :)

03.10.2021 - 18:32

DROPS Design answered:

Dear Gabriela, you can find the measurements of the finished piece on the schematic drawing at the bottom of the pattern. We suggest that you take a piece that fits and compare the measurements. Happy Stitching!

03.10.2021 - 22:41

country flag Inga wrote:

På bukserne, skal forhøjningen ikke kun strikkes bagpå? Jeg strikker den mindste str, hvor m-ant er 124, der står at jeg skal vende yderligere 6 gange efter jeg er på 48 m, hvor der strikkes 12 m mere i hver vending: dvs 60-72-84-96-108-120.... der er jo næsten hele vejen rundt? Er det virkelig rigtig forstået?

28.09.2021 - 23:45

DROPS Design answered:

Hej Inga. Ja det är riktigt, du kommer sticka nästan hela vejen rundt till slut. Mvh DROPS Design

29.09.2021 - 10:08

country flag Simonetta Gerritsen wrote:

Bestaat het patroonook in het Nederlands? Heeft u de maat van een proeflapje ? En voor welke leeftijd is dit patroon beschreven?\r\nDank voor het antwoord. Groetjes simonetta

03.08.2021 - 07:14

DROPS Design answered:

Dag Simonetta,

Ja, het patroon kun je hier in het Nederlands vinden. Bovenaan bij de maten zie voor welke leeftijden je het kunt maken (vanaf 1 maand tot 3/4 jaar). Bovenaan staat ook de stekenverhouding beschreven, namelijk 26 st x 34 nld in tricotst = 10 x 10 cm.

07.08.2021 - 10:48