DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Merino Extra Fine yarn
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3220.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS Baby 19-5

#littlepixiejacket

DROPS Design: Mynstur nr ME-046-by
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 -98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
250-300-300 (350-350) gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
DROPS TRÉTALA, nr 511: 4-4-5 (5-5) stykki.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 644.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3220.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
Umferð 1 í M.1 og M.3 = ranga.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð 1/3 mán: 4, 10, 16 og 22 cm.
Stærð 6/9 mán: 4, 11, 18 og 24 cm.
Stærð 12/18 mán: 3, 9, 15, 21 og 27 cm.
Stærð 2 ára: 3, 10, 17, 24 og 31 cm.
Stærð 3/4 ára: 3, 11, 19, 27 og 34 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og upp að handveg. Eftir það er framstykki og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. Fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermar og prjónið upp að öxl. Saumið flíkina saman á öxlum/yfir ermi og undir ermum.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 117-131-145 (155-169) lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju) á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (umferð 1 = rétta). Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í 10. og 11. lykkju frá miðju að framan, endurtakið útaukningu í lok umferðar (11 og 10 lykkju frá síðustu lykkju í umferð) = 121-135-149 (159-173) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í 34-38-42 (44-48) lykkju frá hvorri hlið (= 53-59-65 (71-77) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan næstu umferð frá röngu þannig: 6 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), M.3 (= 10 lykkjur), M.2 yfir næstu 89-103-117 (127-141) lykkjur, M.1 (= 10 lykkjur) og 6 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram samkvæmt mynstri alveg eins – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm skiptist stykkið við prjónamerki og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 34-38-42 (44-48) lykkjur. Haldið áfram samkvæmt mynstri eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar í hlið þannig: 4 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum, 8 lykkju 1-1-1 (1-3) sinnum, 10 lykkjur 1-1-1 (2-1) sinnum og 19-22-23 (23-24) lykkjur 1 sinni = 79-86-95 (107-118) lykkjur. ATH! Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í M.2. Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram samkvæmt mynstri eins og áður en ystu 10 lykkjur á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni (= uppábrot á ermi). Þegar eftir er 1 umferð áður en stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm – stillið af að þetta sé umferð frá röngu – er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal með því að prjóna 4 lykkjur í kaðli brugðið saman tvær og tvær. Í næstu umferð frá réttu eru ystu 9-11-12 (12-13) lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2-2-3 (3-3) sinnum = 62-67-74 (86-96) lykkjur eftir á prjóni (= öxl + ermi). Haldið áfram með M.2 og fellið af þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt.

BAKSTYKKI:
= 53-59-65 (71-77) lykkjur. Haldið áfram með M.2 eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar í hvorri hlið, fitjið upp í lok hverrar umferðar á sama hátt og á framstykki = 143-155-171 (197-217) lykkjur. Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram með M.2 en 10 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= uppábrot). Þegar stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm fellið af miðju 17-19-21 (23-23) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 62-67-74 (86-96) lykkjur eftir á prjóni (= öxl + ermi). Fellið af þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm. Endurtakið í hinni hliðinni.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og sauma yfir ermum kant í kant með smáu spori svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í. Brjótið uppá neðstu 5 cm á hvorri ermi og saumið niður uppfitjunarkantinn með smáu spori.

HETTA:
Takið upp ca 55 til 75 cm í kringum hálsmál frá réttu (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4 og Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 85-89-93 (97-101) lykkjur. Prjónið síðan M.2 en garðaprjón yfir 6 lykkjur yst í hvorri hlið – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur fyrir uppábrot sem prjónaðar eru í garðaprjóni í lok 2 næstu umferða (= 97-101-105 (109-113) lykkjur). Haldið áfram með M.2 með 12 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm og fellið síðan af. Brjótið uppá hettuna tvöfalt og saumið saman efst uppi. Brjótið út 6 ystu lykkjurnar með garðaprjóni að réttu og saumið fallega niður uppábrotið við kant í hálsmáli í hvorri hlið með smáu spori.

Mynstur

slétt frá réttu, brugðið frá röngu = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
brugðið frá réttu, slétt frá röngu = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS Baby 19-5
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (127)

country flag Hev skrifaði:

If the charts show the RS only, how do you know what to do on the WS please? Thank you for your assistance

17.02.2016 - 11:35

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Hev, in diagrams 1 square = 1 st x 1 row. The x symbol= reversed stocking st (= P from RS but K from WS) and the white symbole = stocking st (= K from RS but P from WS), as explained under diagram text. So that M.1 is worked over 10 sts and 4 rows. Happy knitting!

17.02.2016 - 11:49

country flag Hev skrifaði:

If the charts show the RS only, how do you know what to do on the WS please? Thank you for your assistance

16.02.2016 - 13:20

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Hev, diagrams show all rows both from RS and from WS - read more here. Happy knitting!

16.02.2016 - 15:50

country flag Hev skrifaði:

On the M2 chart- is this supposed to be seed stitch where you knit the purl stitches and purl the knit stitches on alternate sides? Because it does not look like that's what the chart says. Please can you explain in MORE detail?

16.02.2016 - 13:17

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Hev, M.2 is seed stitch worked double in height - see also video below. Happy knitting!

16.02.2016 - 15:50

country flag Hev skrifaði:

Can you explain how to follow the pattern charts for this particular sweater as it is confusing. It says "see diagram M.1 to M.3. Diagram shows the pattern from RS. First row in M.1 and M.3 = WS." Does this mean you start from the left of the chart instead of the right and then alternate sides you start from on the charts?

16.02.2016 - 13:17

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Hev, that's correct, in M.1 and in M.3 start reading from the bottom corner on the left side and read towards the right from RS then from RS, read from the right towards the left. Happy knitting!

16.02.2016 - 15:48

country flag Tamar Janssen skrifaði:

Er staat in het patroon voor rechtervoorpand: zet in vlg naald aan goede kant 9 st middenvoor op hulpdraad voor de hals. Welke steken zijn dit? Aan het begin v d naald moeten er namelijk al 6 st in totaal afgekant worden in drie volgende naalden.

16.02.2016 - 12:50

DROPS Design svaraði:

Hoi Tamar. De eerste 9 st middenvoor zet je op de hulpdraad zoals er staat. In volgende nld kant je af aan het begin van de nld (dus er wordt in feite afgekant tussen st op hulpdraad en voorpand).

16.02.2016 - 16:44

country flag Hev skrifaði:

Can you explain in detail and/or post a video on how to follow the m.1, m.2 and m.3 charts please?

13.02.2016 - 19:30

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Hev, please read more about diagrams here. Happy knitting!

15.02.2016 - 10:25

country flag Linda Pedersen skrifaði:

Garnmængden til str 3/4 passer ikke. Der bruges 450 g garn og ikke 350 g

16.11.2015 - 20:14

country flag Karolien skrifaði:

Zelfs op naalden 3 1/2 is hij te groot...jammer!

27.08.2015 - 15:24

country flag Nicole skrifaði:

Hallo, ich verstehe leider die Stelle "Bei der nächsten R. von der Vorderseite die äußersten 9-11-12 (12-13) M. auf einen Hilfsfaden legen." nicht. Wo ist die Vorderseite und was passiert später mit diesen Maschen?

21.08.2015 - 09:33

DROPS Design svaraði:

"von der Vorderseite" soll bedeuten, dass Sie die Maschen am Anfang der Hin-R auf einen Hilfsfaden legen (d.h. stilllegen). Das erfolgt für den Halsausschnitt, man könnte diese Maschen auch abketten, aber da man später noch die Kapuze anstrickt, werden diese Maschen wieder gebraucht, daher legt man sie still.

21.08.2015 - 20:35

country flag Yinka skrifaði:

Beste, Ik ben tot tweemaal toe begonnen aan dit patroon, maar het werd steeds vele malen breder dan vermeld staat. Bij de gegevens voor 6/80 maanden werd mijn breiwerk 5 centimeter breder dan op de tekening staat! Een tweede keer breide ik de kleinste maat, maar ook dan viel het veel te groot uit. Ik heb een proeflapje gebreid en dit was wel volledig met de juiste verhoudingen. Klopt er iets niet in het patroon?

13.08.2015 - 23:00

DROPS Design svaraði:

Hoi Yinka. Ik heb de afmetingen bekeken in vergelijking met de stekenverhouding. Met de juiste stekenverhouding zou je wel uitkomen op ongeveer 28 cm voor het achterpand (59 st) en 18 cm per voorpand. Daarbij trekt het kabeltje / gerstekorrel wat meer samen dan tricotsteken.

14.08.2015 - 12:44