Heike Dürrschmidt skrifaði:
Was bedeutet "am Schluss jeder R. gegen die Seite neue M. für den Ärmel anschlagen: 4 M. 2-2-3 (3-3) Mal, 8 M. 1-1-1 (1-3) Mal, 10 M. 1-1-1 (2-1) Mal und 19-22-23 (23-24) M. 1 Mal = 79-86-95 (107-118) M. – die neuen M. werden ins Muster eingestrickt. Mit dem Muster weiterfahren und die untersten 10 M. in Krausrippe stricken"
11.09.2012 - 05:14DROPS Design svaraði:
Dürfen wir Sie bitten, sich für individuelle Strickhilfe an den Laden zu wenden, in dem Sie die Wolle gekauft haben? Vielen Dank für Ihr Verständnis!
11.09.2012 - 07:43
Sabrina skrifaði:
Was bedeutet "am Schluss jeder R. gegen die Seite neue M. für den Ärmel anschlagen: 4 M. 2-2-3 (3-3) Mal, 8 M. 1-1-1 (1-3) Mal, 10 M. 1-1-1 (2-1) Mal und 19-22-23 (23-24) M. 1 Mal = 79-86-95 (107-118) M. – die neuen M. werden ins Muster eingestrickt. Mit dem Muster weiterfahren und die untersten 10 M. in Krausrippe stricken"
09.07.2012 - 18:36DROPS Design svaraði:
Es war etwas unverständlich formuliert, vielelicht ist es jetzt klarer.
10.07.2012 - 17:09
Annett skrifaði:
Hi ich komme leider weniger gut klar als ich dachte. Das Muster, dass bei mir rauskommt sieht so ganz anders aus als auf dem Bild. Ich bin mir immer noch nicht ganz sicher, wie ich die Muster zu lesen habe. M1-M3 - zeigen die denn nur die Vorderseite? oder ist die Reihe untendrunter die Rückreihe? Ich hoffe, dass mir jemand helfen kann.
18.06.2012 - 13:19DROPS Design svaraði:
In unseren Diagrammen werden jeweils ALLE Reihen angezeigt, das ist sicher der Grund, warum das Muster bei Ihnen anders aussieht.
19.06.2012 - 07:53
Drops Design skrifaði:
Nej, som der står i opskriften så starter du diagrammet med 1.p fra vrangen. Og da snoningen kommer på 2.p i diagrammet vil den da automatisk blive strikkes fra retsiden.
27.09.2011 - 15:48
Tove skrifaði:
Vedr.snoninger der starter på vrangsiden først diagram M3 så perlestrik og så M1 - skal man også starte med snoning M3 på retsiden?
27.09.2011 - 15:47
DROPS Design skrifaði:
Nei, hvorfor tror du det?
25.08.2011 - 07:50
Torild Berntsen skrifaði:
Er det slutt med gratis oppskrifter?
24.08.2011 - 22:19
Little Pixie#littlepixiejacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Peysa með hettu fyrir börn í perluprjóni og köðlum úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 1 mánaða til 4 ára.
DROPS Baby 19-5 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Umferð 1 í M.1 og M.3 = ranga. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð 1/3 mán: 4, 10, 16 og 22 cm. Stærð 6/9 mán: 4, 11, 18 og 24 cm. Stærð 12/18 mán: 3, 9, 15, 21 og 27 cm. Stærð 2 ára: 3, 10, 17, 24 og 31 cm. Stærð 3/4 ára: 3, 11, 19, 27 og 34 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og upp að handveg. Eftir það er framstykki og bakstykki prjónað hvort fyrir sig. Fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermar og prjónið upp að öxl. Saumið flíkina saman á öxlum/yfir ermi og undir ermum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 117-131-145 (155-169) lykkjur (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju) á hringprjón 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (umferð 1 = rétta). Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í 10. og 11. lykkju frá miðju að framan, endurtakið útaukningu í lok umferðar (11 og 10 lykkju frá síðustu lykkju í umferð) = 121-135-149 (159-173) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í 34-38-42 (44-48) lykkju frá hvorri hlið (= 53-59-65 (71-77) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan næstu umferð frá röngu þannig: 6 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), M.3 (= 10 lykkjur), M.2 yfir næstu 89-103-117 (127-141) lykkjur, M.1 (= 10 lykkjur) og 6 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram samkvæmt mynstri alveg eins – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm skiptist stykkið við prjónamerki og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 34-38-42 (44-48) lykkjur. Haldið áfram samkvæmt mynstri eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi í lok hverrar umferðar í hlið þannig: 4 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum, 8 lykkju 1-1-1 (1-3) sinnum, 10 lykkjur 1-1-1 (2-1) sinnum og 19-22-23 (23-24) lykkjur 1 sinni = 79-86-95 (107-118) lykkjur. ATH! Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í M.2. Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram samkvæmt mynstri eins og áður en ystu 10 lykkjur á ermi eru prjónaðar í garðaprjóni (= uppábrot á ermi). Þegar eftir er 1 umferð áður en stykkið mælist 23-25-28 (32-35) cm – stillið af að þetta sé umferð frá röngu – er fækkað um 2 lykkjur yfir kaðal með því að prjóna 4 lykkjur í kaðli brugðið saman tvær og tvær. Í næstu umferð frá réttu eru ystu 9-11-12 (12-13) lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2-2-3 (3-3) sinnum = 62-67-74 (86-96) lykkjur eftir á prjóni (= öxl + ermi). Haldið áfram með M.2 og fellið af þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. BAKSTYKKI: = 53-59-65 (71-77) lykkjur. Haldið áfram með M.2 eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermar í hvorri hlið, fitjið upp í lok hverrar umferðar á sama hátt og á framstykki = 143-155-171 (197-217) lykkjur. Þegar allar lykkjur hafa verið fitjaðar upp er haldið áfram með M.2 en 10 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni (= uppábrot). Þegar stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm fellið af miðju 17-19-21 (23-23) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 62-67-74 (86-96) lykkjur eftir á prjóni (= öxl + ermi). Fellið af þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm. Endurtakið í hinni hliðinni. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma og sauma yfir ermum kant í kant með smáu spori svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í. Brjótið uppá neðstu 5 cm á hvorri ermi og saumið niður uppfitjunarkantinn með smáu spori. HETTA: Takið upp ca 55 til 75 cm í kringum hálsmál frá réttu (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á hringprjón 4 og Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 85-89-93 (97-101) lykkjur. Prjónið síðan M.2 en garðaprjón yfir 6 lykkjur yst í hvorri hlið – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 6 nýjar lykkjur fyrir uppábrot sem prjónaðar eru í garðaprjóni í lok 2 næstu umferða (= 97-101-105 (109-113) lykkjur). Haldið áfram með M.2 með 12 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið þar til hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm og fellið síðan af. Brjótið uppá hettuna tvöfalt og saumið saman efst uppi. Brjótið út 6 ystu lykkjurnar með garðaprjóni að réttu og saumið fallega niður uppábrotið við kant í hálsmáli í hvorri hlið með smáu spori. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlepixiejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 10 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.