Silke Kiehl skrifaði:
Sehr schoene Anleitungen.
28.11.2008 - 14:27
Therese skrifaði:
Jättesöt. Ska be mamma att sticka den till Filippa
26.11.2008 - 14:39
Therese skrifaði:
Jättesöt. Ska be mamma att sticka den till Filippa
26.11.2008 - 14:39
Ma skrifaði:
Håper oppskriften kommer snart. Vil gjerne strikke den nå til en baby som kommer snart.
22.11.2008 - 12:31
Moster skrifaði:
Har fått önskemål om denna tröja till en kommande baby i familjen .Hoppas mönstret kommer fort!
20.11.2008 - 18:18
Neyret skrifaði:
Très élégant!
18.11.2008 - 22:22
Ingrid skrifaði:
Vilken underbar kofta!!! När kommer mönstret så att jag kan få börja sticka till vår lilla prinsessa? Ingrid
18.11.2008 - 15:26
Kirsti skrifaði:
Denne var lekker...
16.11.2008 - 15:59
Jorunn skrifaði:
Kjempefin jakke! Denne gleder jeg meg til å strikke!
16.11.2008 - 13:49
Lone skrifaði:
Den mest elegante børnesweater jeg nogensinde har set en strikkeopskrift på. Kommer opskriften så den kan nåes inden jul???
14.11.2008 - 22:17
Miss Mossy#missmossyjacket |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn og sokkar með perluprjóni úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 18-10 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið umferð 2. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið saman aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar kantur að framan mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 11,16 og 21 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 13, 18 og 23 cm. STÆRÐ 12/18 MÅN: 16, 21 og 26 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 15, 21 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 18, 24 og 30 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bæði framstykkin eru prjónuð fyrst, jafnframt er aukið út fyrir ermar, síðan eru framstykkin sett á sama hringprjón, prjónað er niður yfir bakstykki, ermar eru felldar af og prjónað er áfram yfir bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónað er fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-39-42 (45-48) l (meðtalin 1 kantlykkja og 12 kantlykkjur að framan) með Merino Extra Fine á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð frá miðju að framan þannig: Prjónið 12 kantlykkjur að framan með PERLUPRJÓN – sjá skýringu að ofan – 23-26-29 (32-35) l sléttprjón og 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 lykkju í hlið, endurtakið úrtöku með 2-2½-3 (3-3½) cm millibili, alls 5 sinnum = 31-34-37 (40-43) l. Munið eftir HNAPPAGATI í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fitjið upp l fyrir ermi. Fitjið upp í lok hverrar umf frá hlið: 4 l 1-1-2 (1-2) sinnum, 6 l 1-1-1 (1-1) sinni, 8 l 1-1-1 (2-2) sinnum og 17-19-19 (23-26) l 1 sinni = 66-71-78 (89-99) l á prjóni – haldið áfram í sléttprjóni og 12 l perluprjón í kanti að framan og 10 l perluprjón neðst á ermi. Þegar stykkið mælist 22-24-27 (28-31) cm setjið síðustu 9-10-11 (12-12) l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af í byrjun hverrar umf frá hálsmáli: 2 l 1 sinni og 1 l 3 sinnum= 52-56-62 (72-82) l á öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið prjónamerki (= miðja á öxl). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjóni 1 cm til viðbótar, geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd – ekki er fellt af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. BAKSTYKKI: Prjónið inn l frá vinstra framstykki á prjóninn, fitjið upp 16-18-20 (22-22) nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn l frá hægra framstykki á prjóninn = 120-130-144 (166-186) l. Prjónið síðan sléttprjón með 10 l perluprjóni í hvorri hlið (= neðst á ermum). Þegar stykkið mælist 7½-8½-8½ (9½-10) cm fellið af ermalykkjur í hvorri hlið þannig: Fellið af í byrjun hverrar umf: 17-19-19 (23-26) l 1 sinni, 8 l 1-1-1 (2-2) sinnum, 6 l 1-1-1 (1-1) sinni og 4 l 1-1-2 (1-2) sinnum = 50-56-62 (68-74) l eftir á prjóni. Prjónið sléttprjón með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 13-13-14 (16-17) cm aukið út um 1 l í hvorri hlið með 2-2½-3 (3-3½) cm millibili, alls 5 sinnum = 60-66-72 (78-84) l. Þegar stykkið mælist 25-27-30 (32-35) cm eru prjónaðar 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið síðan af. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 46 til 66 l í kringum hálsmál (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið erma- og hliðarsauma í eitt, innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í innst í vinstra kant að framan þannig að kantarnir komi aðeins á ská. Brjótið upp ermar eftir þörf. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 40-44-48-(48-52) l á sokkaprjóna nr 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf sléttprjón, haldið áfram með stroff = 2 l sl /2 l br í 6-7-7 (8-8) cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6 l jafnt yfir umf = 34-38-42 (42-46) l. Haldið eftir fyrstu 10-10-12 (12-14) l á prjóni (= efra stykki), þær 24-28-30 (30-32) l sem eftir eru, eru settar á þráð. Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 3-3½-4 (5-6) cm yfir l á efra stykki. Prjónið nú upp 7-8-9 (12-14) l hvoru megin við efra stykkið og l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 48-54-60 (66-74) l. Prjónið nú perluprjón hringinn yfir allar l í 1½-2-2½ (3-3½) cm, prjónið nú 1 umf br. Fellið af allar l nema 10-10-12 (12-14) l fyrir miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm perluprjón fyrir sóla yfir þessar l. Fellið af og saumið sólann við sokkinn, saumið kant í kant svo saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #missmossyjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.