Katja skrifaði:
Rigtig fin bluse vil prøve at lave den i vest
05.11.2008 - 19:04
Anna skrifaði:
Klädsam vardagströja till både tjejen och killen.
03.11.2008 - 23:20
Loulou skrifaði:
Là encore, j'aime le côté folklorique! Tous ces modèles sont vraiment parfaits! Bravo aux stylistes!
31.10.2008 - 16:37
Kerstin Andersson skrifaði:
Riktigkt fin 70-talströja
24.10.2008 - 14:52
Ingrid skrifaði:
Ist der nicht süß ?? Sieht in jeder Farbstellung niedlich aus. Tolles Modell!!
22.10.2008 - 14:43
Alvhild skrifaði:
Søt genser, denne passer også til både jenter og gutter, men kanskje ikke til de aller minste.
21.10.2008 - 21:22
Marianne skrifaði:
Super smart
20.10.2008 - 17:01
Christina skrifaði:
Så söt
18.10.2008 - 10:15
Tone skrifaði:
Fantastisk genser!! Blir en favoritt.
17.10.2008 - 20:39
Marianne skrifaði:
Fina färger tillsammans,mycket bra mönster på oket
17.10.2008 - 18:09
Squirrel Song#squirrelsongsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hringlaga berustykki, íkornum og hjörtum ásamt sokkum úr DROPS Alpaca
DROPS Baby 17-15 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (7-8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) l eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um sokka): Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 148-168-184 (204-220) l á hringprjóna nr 2,5 með litnum beige. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 4 cm. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 18-22-24 (28-30) l jafnt yfir = 130-146-160 (176-190) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-18-21 (24-27) cm prjónið næstu umf þannig: Fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 57-65-72 (80-87) l (= framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 57-65-72 (80-87) l (= bakstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 40-44-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum beige. Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 3 cm. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 4-6-8 (10-12) l jafnt yfir = 36-38-40 (42-44) l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-5. (6.-6.) hverri umf alls 7-8-9 (10-12) sinnum = 50-54-58 (62-68) l. Þegar stykkið mælist 14-16-18 (22-26) cm fellið af 8 l mitt undir ermi (= 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 42-46-50 (54-60) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 198-222-244 (268-294) l. Byrjið síðan umf fyrir miðju aftan á peysu. Prjónið 1-1-3 (7-10) umf með litnum beige – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 6-6-4 (4-6) l jafnt yfir = 192-216-240 (264-288) l. Prjónið síðan og fækkið l samkvæmt M.1. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-26-30 (34-38) cm er stykkinu skipt fyrir miðju að aftan fyrir klauf/op þannig: Prjónið fram að miðju baki, fitjið upp 3 nýjar l (= hægri kantur fyrir tölur), snúið við, prjónið áfram fram og til baka með 3 síðustu l í hvorri hlið með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fyrir tölu og kant fyrir hnappagötum (þær 3 nýju l eru prjónaðar með grunnlit í hveri umf í mynstri). JAFNFRAMT 2 cm eftir skiptingu er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri hlið með því að prjónað aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og síðan að slá 1 sinni uppá prjóninn. Þegar M.1 hefur verið prjónað eru 83-93-103 (113-123) l á prjóni og stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón – JAFNFRAMT er l fækkað jafnt yfir til 72-76-80 (84-88) l. Prjónið 4 umf garðaprjón og haldið síðan áfram þannig (séð frá réttu): 3 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið á 2 l sl og 3 l garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 1-1-1 (1½-1½) cm er fellt af fyrir hnappagötum yfir hin í vinstri hlið, endurtakið úrtöku þegar stroffið mælist 3-4-4 (4½-4½) cm. Fellið af þegar stroffið mælist 4-5-5 (6-6) cm. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið í hálsmáli saman tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu spori. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í kant að aftan. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum beige. Prjónið stroff = 2 l sl/2 l br í 5-5-6 (6-7) cm. Prjónið síðan 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-48) l. Haldið síðan eftir fyrstu 18-20-20 (22-26) l á prjóni (fyrir hæl) og hinar 18-20-20 (22-22) l eru settar á þráð (ofan á fæti). Prjónið sléttprjón í 3-3½-4 (4-4½) cm yfir hællykkjur og setjið síðan eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Takið upp 8-9-10 (10-11) l hvoru megin við hællykkjur og setjið til baka l af þræði á prjóninn = 42-48-50 (52-56) l. Prjónið síðan sléttprjón – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 1 l á undan 18-20-20 (22-22) l ofan á fæti með því að prjóna 2 l slétt saman og fækkað er um 1 l á eftir 18-20-20 (22-22) l ofan á fæti með því að prjóna 2 l snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3-6-7 (5-7) sinnum = 36-36-36 (42-42) l. Þegar sokkurinn mælist 6-7-8 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl er prjónað M.2. Setjið síðan prjónamerki í hvora hlið á sokknum (þ.e.a.s. þannig að það verða 18-18-18 (22-22) l ofan á fæti og 18-18-18 (20-20) l undir fæti. Haldið áfram með litnum natur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hverri umf alls 7-7-7 (8-8) sinnum = 8-8-8 (10-10) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #squirrelsongsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.