Kathrin skrifaði:
Hallo, kleine Frage, werden die Blenden rechts und links auch über die kleine Kante gestrickt oder fängt man darüber an, die , in meinem Fall 70 M aufzunehmen? Vielen Dank
30.06.2016 - 21:44DROPS Design svaraði:
Liebe Kathrin, die Kante wird über die gesamte Länge gestrickt.
06.07.2016 - 09:03
Kathrin skrifaði:
Hallo, Frage zum Vorderteil, wird der 2. rosa Streifen (vor dem Muster M1) in der Hinrunde rechts und der Rückrunde links gestrickt, oder , wie der erste Streifen hin und rück rechts? Vielen Dank
09.05.2016 - 05:32DROPS Design svaraði:
Liebe Kathrin, der erste rosa Streifen hat die Krausrippe, da dies die Umbruchkante bildet, die dann nach innen gefaltet und angenäht wird. Der zweite Streifen wird glatt rechts gestrickt.
10.05.2016 - 09:16
Mia skrifaði:
Kan man slet ikke købe jeres strik på nettet? Altså færdiglavet;-)
07.09.2014 - 20:45Sketeryte skrifaði:
Hello, I don't understand this place " adjust to after row 3 in pattern repeat. K 1 row from RS, AT THE SAME TIME adjust no of sts to 54-60-66 (72-78). Slip sts on a stitch holder". Please explain how I have to make 78 stitches? I am not very good in english. could you explain easer?
28.08.2014 - 23:04DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Sketeryte, after row 3 in pattern repeat, K1 row while decreasing sts evenly to get a total number of 78 sts at the end of this row. Happy knitting!
29.08.2014 - 09:27
Winnie skrifaði:
Er indtagningen rigtig på kyssen?
25.08.2014 - 11:14DROPS Design svaraði:
Hej Winnie. Umiddelbart ser det rigtig ud, men ellers maa du lige uddybe i hvilken str og hvor du mener at det skulle vaere fejl.
25.08.2014 - 13:45
Hanna skrifaði:
Hallo! Kann mir jemand erklären wie ich das Muster in der Haube in der Rückreihe stricke? Nur rechts mit Nadelspiel würde ich es verstehen, aber rechts/links verstehe ich nicht. Danke!
16.01.2014 - 12:08DROPS Design svaraði:
Liebe Hanna, die Haube wird in Hin- und Rück-R gestrickt. Damit es glatt rechts wird, müssen Sie die Rück.R li stricken. Es handelt sich um eine ältere Übersetzung, wir haben nun ein paar missverständliche Formulierungen korrigiert, vielleicht ist es nun einfacher.
17.01.2014 - 15:39
Veronika skrifaði:
Hallo, wer kann mir zu dieser Garnitur Anleitung erklären, bzw. wer hat dieses Teil scho gefertigt. Grüsse Veronika
13.10.2013 - 23:17DROPS Design svaraði:
Liebe Veronika, wenn Sie konkrete Fragen haben, helfen wir hier gerne weiter.
14.10.2013 - 09:28
Cathrine Løvmon skrifaði:
Hei, FØrste gang jeg strikker noe avansert og trenger å følge oppskrift:) jeg skal nå starte på M1- Når diagrammet viser 5 rader med rett på retten og vrang på vrangen vil det si 5 pinner glattstrikk eller 10 pinner glattstrikk? Med andre ord-viser en rad i diagrammet en pinne eller en frem og tilbake?
29.09.2013 - 03:28DROPS Design svaraði:
Hei Cathrine. Diagrammet viser baade retten og vrangen, dvs du starter med 5 pinde glattstrikk: 1 r, 1 vr, 1 r, 1 vr og 1 r. Pind 6 er saa en r fra vrangen.
01.10.2013 - 14:00
Lone skrifaði:
Hej igen.... Nu er jeg kommet til indagningerne på bærestykket efter mønsterborten, men jeg kan ikke få antallet af masker efter indagningerne til at stemme: man starter med 217 m, tager 15 m ind på hver 4. P ialt 7 gange (105 m taget ind = 112 m tilbage på p) - men i opskriften står der, at der skal være 97 m tilbage???
15.09.2013 - 00:21DROPS Design svaraði:
Det er totalt 8 gange. 1 gang (sidste p af M.2) og så ialt 7 gange til på hver 4.p. Da har du 97 tilbage.
18.09.2013 - 15:04
Lone Larsen skrifaði:
Hej! Har lige slået m op til denne yndige trøje, men har fået et lille problem: jeg har altid lært, at den 1. P, man strikker efter opslagning = vrangsiden. Men i jeres opskrift står, at 1. P = retsiden? Er det korrekt?
11.09.2013 - 22:01DROPS Design svaraði:
Hej Lone. Ja, det er korrekt. Vi starter altid med 1. p paa retsiden - mm andet bliver meldt i opskriften
12.09.2013 - 10:42
Easter Finest#easterfinestset |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Sett með peysu fyrir börn með hringlaga berustykki og blómum, húfu og sokkum úr DROPS Alpaca.
DROPS Baby 17-14 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3 – Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. M.2 er prjónað í sléttprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um peysu): Fækkið um 1 lykkju til skiptis vinstra og hægra megin við öll prjónamerki með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti er þetta gert vinstra megin við öll prjónamerki og í næsta skipti er þetta gert hægra megin við öll prjónamerki o.s.frv. PICOT KANTUR: Heklið með litnum fjólublár og heklunál 2,5. Heklað er í bleika uppábrotið þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í fyrstu loftlykkju (= 1 picot), hoppið yfir 1 loftlykkju, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-148-164 (176-192) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með litnum bleikur. Prjónið 1 umferð slétt (umferð 1 = rétta). Skiptið yfir í litinn natur, prjónið 7 umferðir í sléttprjóni (= umferð 1 = ranga), skiptið yfir í litinn bleikur, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 7 umferðir í sléttprjóni með litnum natur, klippið frá (í næsta skipti þegar prjónað er með litnum natur á að byrja í hinni hliðinni). Bleiki þráðurinn hangir nú á hægri hlið, færið lykkjurnar til baka til hægri á prjóninum og prjónið 2 umferðir slétt með litnum bleikur. Haldið áfram með M.1 og litinn natur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 17-18-21 (24-27) cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu af M.1 – prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 29-33-37 (40-44) lykkjur slétt (= hægra framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 58-66-74 (80-88) lykkjur slétt (= bakstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, 29-33-37 (40-44) lykkjur slétt (= vinstra framstykki). Klippið frá, geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-38-40 (42-44) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum bleikur. Prjónið 1 umferð brugðið. Prjónið síðan þannig: 7 umferðir slétt með litnum natur, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið með litnum bleikur – HÉÐAN ER NÚ MÆLT – 7 umferðir slétt með litnum natur, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið með litnum bleikur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið síðan M.1 með litnum natur – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu í 6.-5.-5. (6.-6.) hverri umferð alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 15-16-18 (22-26) cm – stillið af eftir heila mynstureiningu af M.1 – prjónið 1 umferð slétt. Í lok þessara umferðar eru felldar af 8 lykkjur mitt undir ermi = 40-44-50 (54-60) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 196-220-248 (268-296) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu með litnum natur – JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-7 (3-7) lykkjur jafnt yfir = 193-217-241 (265-289) lykkjur, prjónið síðan M.2 með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið – JAFNFRAMT á undan síðustu umferð á M.2 eru sett 15 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu): Fyrsta eftir 13-18-16 (21-19) lykkjur, síðan á að vera 12-13-15 (16-18) lykkjur á milli hverra prjónamerkja, þá koma til með að vera 12-17-15 (20-18) lykkjur eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umferð (= síðasta umferð af M.2) er fækkað um 1 lykkju hægra megin við öll prjónamerkin með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt. Prjónið síðan M.3 – JAFNFRAMT er haldið áfram að fækka lykkjum í 4. hverri umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA - 6-7-8 (9-10) sinnum til viðbótar = 88-97-106 (115-124) lykkjur. Prjónið M.3 áfram þar til stykkið mælist ca 28-30-34 (38-42) cm upp að öxl – stillið af eftir 3. umferð í mynstureiningu. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 54-60-66 (72-78) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Brjótið uppá kantinn neðst á peysunni og ermar tvöfalt að röngu og saumið niður með litnum bleikur. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónað er fram og til baka á hringprjón. Prjónið upp ca 65-70-80 (90-100) lykkjur meðfram vinstri kanti að framan innan við 1 kantlykkju á hringprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 6 umferðir sléttprjón með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið. Skiptið yfir í litinn bleikur, prjónið 2 umferðir slétt (= uppábrot), skiptið yfir í litinn natur, prjónið 7 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið (= innanverðu á kanti), fellið af með sléttu frá röngu. Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður með litnum natur. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur en eftir 2 umferðir í sléttprjóni með litnum natur er fellt af fyrir 5-5-6 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – efsta hnappagatið á að vera 2 lykkjum ofan frá og neðsta ca 3 cm frá neðri kanti. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar í næstu umferð. Gerið einnig hnappagöt á sama stað á kanti eftir 3 umferðir slétt. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp með litnum natur: 5 lykkjur yfir hægri kant að framan, prjónið síðan inn lykkjur frá þræði og prjónið upp 5 lykkjur yfir vinstri kant að framan = ca 64-70-76 (82-88) lykkjur. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu og 4 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið, skiptið yfir í litinn bleikur, prjónið 2 umferðir slétt (= uppábrot), skiptið yfir í litinn natur og prjónið 5 umferðir í sléttprjóni með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið áður en fellt er af með sléttu frá röngu. Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður með litnum natur. Saumið tölur í. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið PICOT KANTUR neðst á fram- og bakstykki – sjá útskýringu að ofan – í kringum ermar og í kringum hálsmál. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið laust upp 40-40-40 (48-48) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= innanverðu á kanti), skiptið yfir í litinn bleikur, prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið (= uppábrot), skiptið til baka yfir í litinn natur og prjónið 4 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan M.2 – byrjið efst til hægri í mynsturteikningu og prjónið niður á við (þannig að blómið vísi upp á sokknum). Eftir M.2 er sokkurinn prjónaður til loka með litnum natur, prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 40-44-44 (48-52) lykkjur, prjónið síðan 2 cm stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið. Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. Prjónið 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 6 lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42-46) lykkjur. Í næstu umferð eru fyrstu 12-14-14 (15-17) lykkjur settar á þráð, haldið eftir næstu 10-10-10 (12-12) lykkjum á prjóni og setjið síðustu 12-14-14 (15-17) lykkjur á þráð. Eftir það er M.3 prjónað fram og til baka yfir lykkjur á prjóni í 3½-4-4½ (6-7) cm (= efra stykki). Takið upp 9-10-12 (15-19) lykkjur hvoru megin við efra stykkið og setjið til baka lykkjur af þráðum á prjóninn = 52-58-62 (72-84) lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka frá miðju að aftan – JAFNFRAMT eftir 1½-2½-3 (3-4) cm er lykkjum fækkað þannig: Prjónið saman 2 lykkjur slétt í byrjun og lok umferðar og hvoru megin við 2 miðjulykkjur, endurtakið þessa úrtöku í annarri hverri umferð þar til kanturinn mælist 3-4-5 (5-6) cm. Fellið af. Prjónið annan sokk á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saum undir fæti og upp að gataumferð mitt að aftan – saumið í ystu lykkjubogana þannig að saumurinn verði ekki þykkur. Brjótið uppá kantinn efst á sokknum að röngu og saumið niður með litnum natur. Heklið PICOT KANTUR efst í hring á sokk – sjá útskýringu að ofan! SNÚRA: Heklið með heklunál 2,5 með 2 þráðum í litnum bleikur loftlykkju snúru ca 50 cm. Þræðið snúruna í gataumferðina á sokknum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. HÚFA: Fitjið laust upp 81-89-97 (105-105) lykkjur á hringprjón 2,5 með litur natur. Prjónið 6 umferðir sléttprjón (umferð 1 = rétta), skiptið yfir í litinn bleikur og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið til baka yfir í natur og prjónið 6 umferðir sléttprjón. Prjónið síðan M.2 með 1 kantlykkju í hvorri hlið – byrjið efst til hægri í mynsturteikningu og prjónið niður á við – JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju mitt í stykki með því að prjóna saman 2 lykkjur slétt = 80-88-96 (104-104) lykkjur. Haldið áfram með M.1 – byrjið í 5. umferð í mynsturteikningu þannig að það verða einungis 2 umferðir í sléttprjóni með litnum natur á undan 1 umferð brugðið. Þegar stykkið mælist 12-13-14 (15-16) cm fellið af 4-5-6 (4-4) lykkjur í hvorri hlið = 72-78-84 (96-96) lykkjur. Setjið síðan 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta eftir 1 lykkju, næstu 5 með 12-13-14 (16-16) lykkju millibili, þá eru 11-12-13 (15-15) lykkjur eftir síðustu lykkju. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – jafnframt í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á eftir hverju prjónamerki, endurtakið úrtöku í hverri umferð frá réttu þar til 12 lykkjur eru eftir á prjóni. Prjónið síðan saman lykkjur 2 og 2 og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Herðið að og notið þráðinn til að sauma húfuna saman við miðju að aftan – saumið í ystu lykkjubogana, það á einnig að sauma í 4-5-6 (4-4) lykkjur sem voru fyrst felldar af. FRÁGANGUR: Brjótið uppá kantinn fram að röngu og saumið niður með litnum natur. FALDUR FYRIR SNÚRU: Prjónið upp með litnum natur á hringprjón 2,5 ca 66 til 80 lykkjur innan við 1 kantlykkju neðst á húfu. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir í litinn bleikur, prjónið 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot), prjónið síðan 5 umferðir í sléttprjóni með litnum natur, fellið af með sléttum lykkjum frá röngu. Brjótið uppá kantinn að röngu og saumið niður. Heklið PICOT KANTUR í kringum húfu að framan – sjá útskýringu að ofan. SNÚRA: Heklið með heklunál 2,5 með 2 þráðum í litnum bleikur loftlykkju snúru ca 70 cm. Þræðið snúruna í faldinn fyrir snúru neðst á húfu |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #easterfinestset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.