Kalidou skrifaði:
Très actuel et toujours merveilleuse fabel
27.10.2008 - 16:51
Birgitta skrifaði:
Helt underbar. Efterlängtade annorlunda babymönster
26.10.2008 - 15:46
Maggie skrifaði:
This would be so cute for my grandson, and I love the colors it was done in.
26.10.2008 - 13:12
Cecilia skrifaði:
Äntligen kommer fina tröjor till barn i Fabel. Har väntat.
22.10.2008 - 00:08
Heidi Kolstadbråten skrifaði:
En flott og praktisk jakke i frikse farger, akkurat passe til barn !
21.10.2008 - 09:41
Giroflette skrifaði:
À croquer un superbe choix de couleurs semble assez facile
21.10.2008 - 07:19
Marjan skrifaði:
Heerlijk vest met mutsje door de kleurencombinatie ziet het er geweldig uit
19.10.2008 - 15:41
Kirsten Panduro skrifaði:
God, praktisk og anvendelig babytrøje i et godt garn.
18.10.2008 - 17:34
Marianne Håkansson skrifaði:
Jag instämmer i alla superlativer och hoppas att mönstret kommer ut på nätet Marianne
18.10.2008 - 16:27
Mamie Coucou skrifaði:
J'adore, modèle original, simple et très frais !
17.10.2008 - 16:29
Summer Fruit#summerfruitset |
|
![]() |
![]() |
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu á börn og húfu úr DROPS Fabel ásamt buxum og sokkum úr DROPS Alpaca.
DROPS Baby 17-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = Prjónið saman 2. og 3. lykkjur frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 MÁN: 3, 8, 13 og 18 cm. STÆRÐ 6/9 MÁN: 3, 9, 14 og 20 cm. STÆRÐ 12/18 MÁN: 4, 10, 16 og 22 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 4, 10, 16, 21 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 5, 11, 17, 23 og 29 cm. Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsmáli. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu á peysu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (5-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (5-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-8-10 (10-10) lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 130-144-160 (176-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-3-4 (4-5) cm fellið af fyrir HNAPPAGAT meðfram hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur (umferð 1 = ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 31-34-38 (41-45) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8-8-8 (10-10) lykkjur (= handvegur), 52-60-68 (74-82) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8-8-8 (10-10) lykkjur (= handvegur), 31-34-38 (41-45) lykkjur (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 38-40-42 (44-44) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 10.-8.-6. (8.-7.) hverri umferð, alls 4-6-8 (9-12) sinnum = 46-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 16-18-20 (25-29) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru felldar af 8-8-8 (10-10) lykkjur mitt undir ermi (= 4-4-4 (5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerki.) = 38-44-50 (52-58) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 190-216-244 (260-288) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! LASKALÍNA: Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur áður en úrtakan byrjar. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð 1, frá réttu, er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin (= 8 lykkjur færri) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 9-10-9 (9-9) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 3-4-8 (8-11) sinnum. HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-27 (32-35) cm eru fyrstu 8-10-10 (13-13) lykkjurnar á prjóni settar á þráð fyrir hálsmáli, síðan er fyrstu 8-10-10 (13-13) lykkjur í byrjun á næstu umferð settar á þráð fyrir hálsmáli í hinni hliðinni. Haldið síðan áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og úrtöku fyrir hálsmáli eru 66-72-76 (86-90) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Prjónið upp ca 15 til 20 lykkjur í hvorri hlið fram í hálsmáli (meðtaldar lykkjur á þráðum) = ca 96 til 130 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 79-79-85 (91-97) lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir kanta að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrir einu hnappagati yfir hin á kanti að framan. Þegar kantur í hálsmáli mælist 2-2½-2½ (3-3) cm fellið af með sléttu yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og sokkaprjóna, neðan frá og upp á topp. HÚFA: Fitjið upp 98-105-112 (119-126) lykkjur á hringprjón 2,5 með Fabel. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 10-10-10 (12-12) cm. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-16-17 (19-20) cm er fækkað um 14-15-16 (17-18) lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju slétt saman = 84-90-96 (102-108) lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt, í umferð 4 er úrtakan endurtekin með 1 lykkju færri á milli hverra úrtöku (þ.e.a.s. prjónið 5. og 6. hverja lykkju slétt saman). Haldið áfram að fækka lykkjum svona í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar = 14-15-16 (17-18) lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið uppá neðstu 5-5-5 (6-6) cm tvöfalt að réttu. Húfan mælist nú 14-15-16 (17-18) cm. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Buxurnar eru allar prjónaðar í garðaprjóni fram og til baka í tveimur hlutum. HÆGRI SKÁLM: Fitjið upp 52-60-64 (70-74) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 1½-2-2½ (3-4) cm millibili alls 8 sinnum = 68-76-80 (86-90) lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-25-28 (33-38) cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-72-76 (82-86) lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju á annarri hlið á stykki (= miðja að framan) – endurtakið úrtöku við miðju að framan í annarri hverri umferð alls 2-6-6 (10-12) sinnum = 62-66-70 (72-74) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 40-46-50 (56-62) cm. Prjónið síðan sléttprjón í 2 cm fyrir saumfald, áður en fellt er af. VINSTRI SKÁLM: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri skálm, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið saum að innan verðu á skálm innan við 1 kantlykkju – ATH: Þeir 4-5 neðstu cm eru saumaðir með kantinn út á við, svo að saumurinn sjáist ekki þegar brotið er uppá kantinn. Saumið buxurnar saman alla leið frá miðju að framan að miðju að aftan innan við 1 kantlykkju. Brjótið uppá saumfald efst tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu spori. Þræðið teygju í gegnum faldinn. Brjótið uppá 4-5 neðstu cm á skálmum. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 44-44-48 (48-52) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið í 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið síðan 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44 (44-48) lykkjur. Haldið eftir fyrstu 18-18-20 (20-22) lykkjur á prjóni fyrir hæl (hinar 22-22-24 (24-26) lykkjur eru settar á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Nú eru teknar upp 8-9-10 (11-12) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 46-48-54 (56-60) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við lykkjur sem voru á þræði. Haldið áfram með sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 22-22-24 (24-26) lykkjur ofan á fæti – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 7-6-9 (8-8) sinnum = 32-36-36 (40-44) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 7-8-9 (10½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 3-3-3 (3½-3½) cm að loka máli). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki, þ.e.a.s. það verða 16-18-18 (20-22) lykkjur bæði á ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í hverri umferð 2-3-3 (4-5) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
![]() |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerfruitset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.