DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Fabel yarn
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6006.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Baby 17-23

#summerfruitset

DROPS design: Mynstur nr FA-003-by
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærði í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
100-150-150 (150-200) gr litur nr 903, gulur/bleikur.

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál på cm:
40/42-42/44-44/46 (48/50-50/52)

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) gr litur nr 903, gulur/bleikur.

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærði í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-200 (200-250) gr litur nr 6347, gráfjólublár.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) gr litur nr 100, natur.

PEYSA:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 513: 5-5-5 (6-6) st

HÚFA:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 - eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

BUXUR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 51 umferð með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
TEYGJA: ca 60 cm.

SOKKAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 682.00 kr /50g
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6006.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 HNAPPAGAT = Prjónið saman 2. og 3. lykkjur frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 3, 8, 13 og 18 cm.
STÆRÐ 6/9 MÁN: 3, 9, 14 og 20 cm.
STÆRÐ 12/18 MÁN: 4, 10, 16 og 22 cm.
STÆRÐ 2 ÁRA: 4, 10, 16, 21 og 27 cm.
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 5, 11, 17, 23 og 29 cm.
Fellið einnig af fyrir 1 hnappagati í kanti í hálsmáli.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um laskalínu á peysu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 lykkjur á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (5-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (5-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-8-10 (10-10) lykkjur eru eftir á prjóni.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um sokka):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 130-144-160 (176-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Fabel.
Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan í garðaprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3-3-4 (4-5) cm fellið af fyrir HNAPPAGAT meðfram hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan!
Þegar stykkið mælist 16-17-20 (23-25) cm prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur (umferð 1 = ranga).
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 31-34-38 (41-45) lykkjur (= hægra framstykki), fellið af 8-8-8 (10-10) lykkjur (= handvegur), 52-60-68 (74-82) lykkjur (= bakstykki), fellið af 8-8-8 (10-10) lykkjur (= handvegur), 31-34-38 (41-45) lykkjur (= vinstra framstykki).
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 38-40-42 (44-44) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Fabel. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu í 10.-8.-6. (8.-7.) hverri umferð, alls 4-6-8 (9-12) sinnum = 46-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 16-18-20 (25-29) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru felldar af 8-8-8 (10-10) lykkjur mitt undir ermi (= 4-4-4 (5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerki.) = 38-44-50 (52-58) lykkjur eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki, þar sem fellt var af fyrir handveg = 190-216-244 (260-288) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykkis.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
LASKALÍNA: Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur áður en úrtakan byrjar. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð 1, frá réttu, er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerkin (= 8 lykkjur færri) – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA!
Endurtakið úrtöku í 4. hverri umferð alls 9-10-9 (9-9) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 3-4-8 (8-11) sinnum.
HÁLSMÁL: Jafnframt þegar stykkið mælist 23-25-27 (32-35) cm eru fyrstu 8-10-10 (13-13) lykkjurnar á prjóni settar á þráð fyrir hálsmáli, síðan er fyrstu 8-10-10 (13-13) lykkjur í byrjun á næstu umferð settar á þráð fyrir hálsmáli í hinni hliðinni. Haldið síðan áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð frá miðju að framan: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og úrtöku fyrir hálsmáli eru 66-72-76 (86-90) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 27-29-33 (37-40) cm upp að öxl.

FRÁGANGUR:
Prjónið upp ca 15 til 20 lykkjur í hvorri hlið fram í hálsmáli (meðtaldar lykkjur á þráðum) = ca 96 til 130 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 79-79-85 (91-97) lykkjur (ekki fækka lykkjum yfir kanta að framan). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, fellið af fyrir einu hnappagati yfir hin á kanti að framan. Þegar kantur í hálsmáli mælist 2-2½-2½ (3-3) cm fellið af með sléttu yfir slétt og brugðið yfir brugðið.
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón og sokkaprjóna, neðan frá og upp á topp.

HÚFA:
Fitjið upp 98-105-112 (119-126) lykkjur á hringprjón 2,5 með Fabel.
Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 10-10-10 (12-12) cm. Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15-16-17 (19-20) cm er fækkað um 14-15-16 (17-18) lykkjur jafnt yfir með því að prjóna 6. og 7. hverja lykkju slétt saman = 84-90-96 (102-108) lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt, í umferð 4 er úrtakan endurtekin með 1 lykkju færri á milli hverra úrtöku (þ.e.a.s. prjónið 5. og 6. hverja lykkju slétt saman). Haldið áfram að fækka lykkjum svona í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar = 14-15-16 (17-18) lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið uppá neðstu 5-5-5 (6-6) cm tvöfalt að réttu.
Húfan mælist nú 14-15-16 (17-18) cm.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Buxurnar eru allar prjónaðar í garðaprjóni fram og til baka í tveimur hlutum.

HÆGRI SKÁLM:
Fitjið upp 52-60-64 (70-74) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 1½-2-2½ (3-4) cm millibili alls 8 sinnum = 68-76-80 (86-90) lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-25-28 (33-38) cm fellið af 2 lykkjur í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-72-76 (82-86) lykkjur.
Fækkið síðan um 1 lykkju á annarri hlið á stykki (= miðja að framan) – endurtakið úrtöku við miðju að framan í annarri hverri umferð alls 2-6-6 (10-12) sinnum = 62-66-70 (72-74) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 40-46-50 (56-62) cm. Prjónið síðan sléttprjón í 2 cm fyrir saumfald, áður en fellt er af.

VINSTRI SKÁLM:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri skálm, nema spegilmynd.

FRÁGANGUR:
Saumið saum að innan verðu á skálm innan við 1 kantlykkju – ATH: Þeir 4-5 neðstu cm eru saumaðir með kantinn út á við, svo að saumurinn sjáist ekki þegar brotið er uppá kantinn.
Saumið buxurnar saman alla leið frá miðju að framan að miðju að aftan innan við 1 kantlykkju. Brjótið uppá saumfald efst tvöfalt að röngu og saumið niður með smáu spori. Þræðið teygju í gegnum faldinn. Brjótið uppá 4-5 neðstu cm á skálmum.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 44-44-48 (48-52) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með Alpaca.
Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið í 4-5-5 (6-6) cm. Prjónið síðan 1 umferð sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44 (44-48) lykkjur. Haldið eftir fyrstu 18-18-20 (20-22) lykkjur á prjóni fyrir hæl (hinar 22-22-24 (24-26) lykkjur eru settar á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan!
Nú eru teknar upp 8-9-10 (11-12) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði ofan á fæti eru settar til baka á prjóninn = 46-48-54 (56-60) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við lykkjur sem voru á þræði. Haldið áfram með sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við 22-22-24 (24-26) lykkjur ofan á fæti – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 7-6-9 (8-8) sinnum = 32-36-36 (40-44) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 7-8-9 (10½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 3-3-3 (3½-3½) cm að loka máli). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki, þ.e.a.s. það verða 16-18-18 (20-22) lykkjur bæði á ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum og síðan í hverri umferð 2-3-3 (4-5) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS Baby 17-23
Diagram measurements for DROPS Baby 17-23

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerfruitset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (83)

country flag Karina skrifaði:

Hallo, Ich habe die Jacke in Größe 6/9 gestrickt und bin bei der Rundpasse, die Restmaschen nach allen Abnahmen stimmen nicht. bei 216 Maschen absolut und 112 Abnahmen für den Raglan, sowie 40 Maschen auf den Hilfsfaden, 12 Abnahmen für den Hals bleiben 52 Maschen übrig und nicht 72!!!

13.08.2019 - 18:34

DROPS Design svaraði:

Liebe Karina, für den Raglan werden ja 112 M abgenommen, dann für den Halsaussschnitt werden auf beiden Seiten 10 (stillgelegt) + 4 + 2 (abgekettet) = 16 M x 2 Seiten = 32 M. Dann haben Sie: 216-112-32= 72 M. Viel Spaß beim stricken!

14.08.2019 - 07:50

country flag Pauline Davidson skrifaði:

I would like to advise you that, compared to those given on the diagram, the measurements given in the written instructions for the sleeves are wrong. Having worked the sleeves according to the written instructions, the sleeves are much too long. I hope you can correct this.

25.06.2019 - 21:14

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Davidson, measurements on sleeve are the same as in the written pattern, the sleeve before yoke should measure: 12-14-16 (21-25) + 5 cm = 17-19-21 (26-30) cm. In the written pattern, you start working 2 ridges when sleeve measures 16-18-20 (25-29) cm + approx. 1 cm (= ridge) = 17-19-21 (26-30) cm. Happy knitting!

26.06.2019 - 06:52

country flag Hourdebaigt Paule skrifaði:

Bonjour. Je viens de recevoir la laine pour faire ce modèle en 2 ans pour un petit garçon. J’ai un problème d’echantillon. En tricotant en 3 je n’arrive qu’à 8cm pour 26m. Si je tricote avec plus gros ça devient laid, trop lâche. Que doit je faire? Pensez vous que si je fais la taille 3/4 ans je vais retomber sur une taille 2 ans. Merci.

17.06.2019 - 13:04

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Hourdebaigt, 26 mailles est un nombre de mailles classique pour Fabel, essayez de bloquer votre échantillon pour vérifier ses mesures, si vous n'arrivez toujours pas à 10 x 10 cm, il vous faudra utiliser des aiguilles plus grosses. Vous trouverez ici plus d'infos sur l'échantillon. Bon tricot!

17.06.2019 - 15:49

country flag Dorthe skrifaði:

Jeg er ved at strikke jakken. Er kommet til halslukning: forstår ikke, at jeg skal sætte de 8 første masker på pinden på en tråd? De kan jo ikke strikkes hvis jeg sætter dem på en tråd?

02.10.2018 - 16:57

DROPS Design svaraði:

Hei Dorthe. Det stemmer, halskanten er det siste du strikker. Du setter 8 masker i hver side (= 16 masker rett foran) på en tråd til hals, så strikker du ferdig skuldrene. Tilslutt setter du maskene på en tråd tilbake på pinnen og plukker opp masker på hver side. Så strikker du halskanten som forklart under "montering". God fornøyelse.

03.10.2018 - 14:29

country flag Els skrifaði:

Door de keuze van een ribbelboordje krult het vestje steeds om. Ik denk dat ik de boord eraf haal en vervang door boordsteek. Jammer!

28.07.2018 - 22:06

country flag Ludmila skrifaði:

Dobrý den, prosím, nerozumím tvarování průkrčníku, konkrétně nevím, co znamená "uzavřeme na každé straně na začátku řady vždy 2x 2 oka a 2x 1 oko. Jak ujímat zároveň průkrčník a pokračovat s raglánem? Rovněž nerozumím větě "Z okraje průkrčník nabereme nad každým předním dílem" v sekci "Dokončení". Velmi Vám děkuji za brzkou odpověď.

21.09.2017 - 01:46

DROPS Design svaraði:

Milá Ludmilo, pro průkrčník odložíme 2x po sobě 8-10-10 (13-13) ok (na začátku lícové, pak hned i rubové řady, tj. na obou stranách svetru). Následuje lícová ř.: na začátku uzavřeme 2 oka, pak 2 oka na začátku rubové ř. (= uzavřeli jsme 2x 2 oka). Stejně tak uzavřeme 2x 1 oko. Současně v lícových ř. ujímáme pro raglán (tj. splétáme a přetahujeme - viz popis). Lem průkrčníku (začínáme z lícu): vrátíme odložená oka, k nim nabereme 15-20 ok z okraje předního dílu, pak nad ramenem, zády, ramenem, 15-20 ok nad 2. předním dílem a odložená oka. Hodně zdaru! Hana

23.09.2017 - 19:00

country flag Dominique skrifaði:

Comment fait-on pour relever les mailles au niveau de l.encolure entre le devant et le dos? Merci

07.09.2017 - 14:46

DROPS Design svaraði:

Bonjour Dominique, on relève les mailles le long de l'encolure devant, de chaque côté, et on reprend les mailles restant sur l'aiguille après le dernier rang de l'empiècement. Bon tricot!

07.09.2017 - 16:18

country flag Joan skrifaði:

Kan ik dit patroon ook met gewone breinaalden breien, ik heb nog nooit met rondbreinaald gewerkt en vind dit niet fijn.

03.05.2017 - 15:39

DROPS Design svaraði:

De meeste patronen kunnen aangepast worden voor gewone naalden, maar dit patroon is minder geschikt omdat de pas in een stuk gebreid wordt van midden voor tot midden voor. Er staan dan veel steken op de naald en bovendien is het bij de overgangen van panden naar mouwen lastig. Om toch met gewone naalden te breien zou er eventueel een naad op de schouder kunnen. In deze link wordt uitgelegd hoe je een patroon aan kunt passen naar gewone naalden.

04.05.2017 - 16:47

country flag Ana Merino skrifaði:

No acabo de entender la última parte de la explicación de la chaqueta: Levantar de 15 a 20 puntos y al mismo tiempo ajustar los puntos. a 79? Hay que añadir entre 39 y 40 a los que ya tengo (72+ 40) y disminuir a 79?. Gracias

02.03.2017 - 16:40

DROPS Design svaraði:

Hola Ana. Si, hay que recoger 15-20 puntos a cada lado del delantero, incluido los pts en los ganchos o seguros aux y en la primera fila disminuir/aumentar el número total de puntos hasta 79.

04.03.2017 - 11:53

country flag Denise Lafleur skrifaði:

In the assembly part of the jacket, you say AT THE SAME TIME adjust no of sts evenly to 85 sts. Do I need to take the approx 96 to 130 sts and decrease to 85 sts - thank you for your help

25.02.2017 - 21:46

DROPS Design svaraði:

Dear Mrs Lafleur, pick up sts along neckline, you should have approximatively more than 96 sts and less than 130 sts, then K 1 row from WS adjusting number of sts to 85 sts. Happy knitting!

27.02.2017 - 10:31