Estelle skrifaði:
Bonjour, je pense avoir trouve une erreur,1ere ligne du montage devant et dos: Avec les aiguilles double pointes 3 dans le texte en Suedois -Lägg upp (184) 200-224-240-256 m på rundst 3 Rundst(icka):aiguille circulaire en Suedois, pas double pointe.
11.02.2012 - 08:12
DROPS Design skrifaði:
Arbeidet består av 32 rapporter i M1 (i starten over 11 masker og på slutten over 5 masker). Du feller i starte av annhver rapporter 16 ganger.
19.04.2010 - 09:08
IREN PEDERSEN skrifaði:
Hei. sitter og strikker denne genseren i str xl, men skjønner ikke siste delen: når det gjenstår 5 omg i M.1 felles det 16 m ved å felle på samme måte som før men i annenhver rapport - fellingene skal komme over fellingene i MNST. Hva betyr det og hvordan skal jeg gjøre det? Skal det felles 16 m. på en omgang eller? Håper på snarlig svar...:-)
17.04.2010 - 23:36
Helle Kronby skrifaði:
Hej Stine. Som jeg læser opskriften, skal du tage 1 maske ud på hver side af mærketråden,og du skal ha mærketråd for hver 120 masker altså 2, og så tager du 4 masker ud hver gang. Det skal du gøre 6 gange ialt 24 masker ialt 264 masker. Håber dette kan hjælpe dig
26.11.2008 - 23:39
Stine Petersen skrifaði:
Hej.. Jeg er ved at strikke trøjen i str.xl og når jeg har taget ud 6 gange skulle jeg gerne ha' 264m,men jeg har kun 252m.har jeg læst opskriften forkert. Mvh Stine
26.11.2008 - 13:27
Lasse |
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu mynstri og hálsklútur úr DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine.
DROPS 85-21 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. STROFF: * 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni (á við um peysu). Sjá mynsturteikningu M.2. ATH: 1. umferð í mynsturteikningu = 2 umferðir garðaprjón (á við um hálsklút) KÖGUR: Gerið kögur í hvorn enda á hálsklútnum með því að skilja eftir ca 18-20 cm af þræði í hvorum enda á eftir hverja umferð. Þetta þýðir að þú klippir þráðinn frá og byrjar með nýjum þræði eftir hverja umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring. Tölur í () eiga við um minnstu stærðina. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp (184) 200-224-240-256 lykkjur á hringprjón 3 með litnum ljós brúnn DROPS Karisma eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 2 umferðir sléttprjón, skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram með STROFF – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (6) 7-7-7-7 cm er skipt yfir á hringprjón 4 og haldið áfram í sléttprjóni– JAFNFRAMT í 1. umferð á eftir stroffi er lykkjufjöldinn jafnaður til (184) 202-218-240-258 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Setjið 1 merki í hvora hlið (= (92) 101-109-120-129 lykkjur á milli merkja). Þegar stykkið mælist (8) 10-10-10-10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin í (3,5.) 5-5-5-5. hverjum cm alls (7) 6-6-6-6 sinnum = (212) 226-242-264-282 lykkjur. Þegar stykkið mælist (34) 42-43-44-45 cm fellið af 6 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við merkin) = (100) 107-115-126-135 lykkjur á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitið upp (56) 56-56-64-64 lykkur á sokkaprjón 3 með litnum ljós brúnnn og prjónið 2 umferðir sléttprjón, skiptið yfir í litinn natur og haldið áfram með STROFF – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist (8) 10-10-10-10 cm er skipt yfir á sokkaprjón 4 og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist (10) 14-12-14-14 cm er aukið út um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi í (3.) 2.-2.-2.-2. hverjum cm alls (12) 16-18-16-18 sinnum = (80) 88-92-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist (45) 47-49-49-51 cm fellið af 6 lykkjur fyrir miðju undir ermi = (74) 82-86-90-94 lykkjur. Setjið lykkjur á 1 þráð og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = (348) 378-402-432-458 lykkjur. Setjið 1 merki í allar skiptingar á milli framstykkis, bakstykkis og erma = 4 merki. Prjónið (0) 1-0-1-0 umferðir áður en úrtaka byrjar. Fækkið lykkjum á undan merki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir merki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (5) 7-9-10-12 sinnum = (308) 322-330-352-362 lykkjur. Prjónið 1 umferð JAFNFRAMT því sem lykkjufjöldinn er jafnaður til (308) 319-330-352-363 lykkjur. Prjónið áfram og fækkið lykkjum samkvæmt M.1. ATH: Þegar 5 umferðir eru eftir í M.1 er fækkað um (14) 14-15-16-16 lykkjur með því að fækka lykkjum alvegi eins og áður en í annarri hverri einingu (í stærð S/M + XXL verða 2 mynstureiningar á eftir hverri annarri án úrtöku í lok umferðar) – passið uppá að úrtakan verði ofan við úrtöku í mynstri. Eftir síðustu úrtöku eru (126) 131-135-144-149 lykkjur á prjóni – prjónið til loka M.1. Prjónið síðan 1 umferð jafnframt því sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til (88) 96-104-104-112 lykkjur. KRAGI: Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið og 1 umferð slétt áður en haldið er áfram með stroff – passið uppá að það verða 4 lykkjur slétt eða 4 lykkjur brugðið nákvæmlega við miðju að framan. Þegar kraginn mælist (10) 12-12-14-14 cm fellið af í stroffprjóni. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. ---------------------------------------------------------- HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Hálsklúturinn er prjónaður á lengdina, vegna lykkjufjöldans eru lykkjurnar prjónaðar fram og til baka á hringprjón. HÁLSKLÚTUR: Fitjið upp 342 lykkjur á hringprjón 5 með litnum natur DROPS Karsima eða DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 2 umferðir garðaprjón – JAFNFRAMT í 2. umferð er lykkjum fækkað í 6. hverri umferð (þ.e.a.s. prjónið saman 5. og 6. hverja lykkju) = 285 lykkjur (þetta er til að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið síðan garðaprjón samkvæmt M.2 – munið eftir að gera KÖGUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22 cm (eða að óskaðri breidd), prjónið síðan 2 umferðir garðaprjón með litnum natur, jafnframt er aukið út um 1 lykkju í 6. hverja lykkju = 342 lykkjur, fellið af. FRÁGANGUR: Hnýtið saman þræðina í kögri 4 og 4 með tvöföldum hnút – gerið þetta á báðum endum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 85-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.