Lissy Pasieczny skrifaði:
Seler i denne opskrift Der står 12 masker slås op og hvordan strikkes der videre med 1 retmaske og 2 retmasker i hver side?
16.10.2024 - 11:14DROPS Design svaraði:
Hei Lizzy. Da en titt på vårt svar på ditt forrige spørsmål :) mvh DROPS Design
23.10.2024 - 07:28
Lissy Pasieczny skrifaði:
Jeg forstår ikke hvordan seler til bukser strikkes. Der står 12 masker slås op og hvordan strikkes der videre med 1 retmaske og 2 retmasker i hver side?
15.10.2024 - 13:21DROPS Design svaraði:
Hei Lizzy. Du legger opp 12 masker. Første og siste maske strikkes alltid rett (både fra retten og fra vrangen). For at selen skal bli likt på begge sider strikkes det 2 rettmasker etter 1. maske (dette er de 2 første maskene i vrangborden) og det strikkes 2 rettmasker før siste maske (fra retten). 1.pinne (fra retten) strikker altså slik: 1 rett - 2 rett - 2 vrang - 2 rett - 2 vrang - 2 rett - 1 rett = 12 masker. 2. pinne (fra vrangen) strikkes slik: 1 rett - 2 vrang - 2 rett - 2 vrang - 2 rett - 2 vrang - 1 rett = 12 masker. Du får nå en sele strikket i vrangbord (2rett/2vrang) med 1 kantmaske i hver. mvh DROPS Design
23.10.2024 - 07:22
Carol McMillan skrifaði:
I previously posted this but never got a resonse country flag Carol McMillan wrote: I'm making size 1/3 months pants in the legs it states knit M.1 - start at top of diagram. Doesthis mean the points will point up to the waist and not down to the hem? In otherwards I work the pattern top to bottom? 20.07.2024 - 07:01
24.07.2024 - 20:45DROPS Design svaraði:
Hi Carol, sorry for the late reply due to holiday season. The pants are worked top down, from the waist. The diagram M1 is woked from top, not from the bottom as usual. Please see the photo of these pants at the top of website. Happy knitting!
26.07.2024 - 14:53
Carol McMillan skrifaði:
Size 1/3 Socks for the instruction "At the same time, dec on each side of the upper 18 sts: 1 st on every other row a total of 7 times = 32 sts" At the same time as what? What is the upper 18 sts? Also next line is "When foot measures 8 cm from the beginning of the dec for heel, insert a marker each side." Shouldn't it be TOE not heel?
20.07.2024 - 19:15DROPS Design svaraði:
Dear Carol, you decrease at the same time as you work in stocking stitch (after picking up the stitches on each side of the heel); you will start decreasing on each side of the upper 18 sts. These are the stitches on the top of the foot, which you will slowly decrease towards the toe. Also, the foot should measure 8 cm, from the start of the decreases for the heel or heel decreases (the beginning of the paragraph) towards the toe. Happy knitting!
21.07.2024 - 20:59
Eva Lundegård skrifaði:
Hur ska jag sticka baby mönster 13-5 flerfärgstickning fram o tillbaka. På rätsidan är det ju solklart men avigan hur ska jag tänka då? Mvh Eva
10.07.2024 - 20:14DROPS Design svaraði:
Hei Eva. Ta en titt på hjelpevideoen: Fair Isle - 2 färger. Du finner hjelpevideo til denne oppskriften ved å klikke på VIDEOR til høyre for bildet / eller under bildet. mvh DROPS Design
11.07.2024 - 07:19
Line skrifaði:
Pour le bonnet je fais la grandeur 1/3. Donc 90 mailles avec le motif M2A de 12 mailles. De quelle façon on le suit.
19.06.2024 - 00:58
Line skrifaði:
Je fais le bonnet 3/6, afin de suivre M2.a, puisque j'ai 90 mailles et le motif est de 12 mailles, comment on fait ?
18.06.2024 - 16:30DROPS Design svaraði:
Bonjour Line, en taille 1/3 mois, tricotez vos 90 mailles ainsi: répétez 7 fois les 12 mailles de M.2 puis tricotez les 6 premiers mailles ainsi vous avez bien 7x12 + 6 b= 90. Bon tricot!
19.06.2024 - 07:33
Maria skrifaði:
Hej! Håller på med koftan, är på fram och bakstycke! Det står att kantm inte ingår i mönstret, vilken färg ska de stickas i? Natur eller samma som första/sista m i mönstret?
17.04.2024 - 20:18DROPS Design svaraði:
Hej Maria, kantmasken strikker du i bundfarven :)
19.04.2024 - 14:29
Yaëll skrifaði:
Hallo, ik heb een vraag over de mindering van de muts. Ik ben een beginner wat betreft de NLse instructies. "...minder tegelijkertijd 6-7-7 (6-6) x 1 st aan weerskanten van alle merkdraden (...): in elke 2e nld en vervolgens in elke nld 0-0-0 (2-2) x = 18-12-18 (2-18) st over" In het begin is de mindering om de naald (ik brei rond, dus elke 2e rij). Vanaf wanneer moet elke naald/rij geminderd worden? Wat betekent de 0 x = 18? (Ik neem aan de laatste n steken voor casting off)
04.04.2024 - 18:45
Ute skrifaði:
Hallo,\r\nwie kann ich bei der Blende Knopflöcher in die Linksrippe stricken, wenn ich die Blende in rechts und kraus rechts stricken soll? \r\nUte
21.02.2024 - 13:59DROPS Design svaraði:
Liebe Ute, die Blenden werden im Bündchen *2 re, 2 li* so gestrickt: 2 M kraus rechts, *2 re, 2 li* von *bis* wiederholen bis 4 Maschen übrig sind, 2 re, 2 M krausrechts. Die Knopflöcher sind dann in den Linken-Partien vom Bündchen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
21.02.2024 - 15:10
Winter Snuggles Set#wintersnugglesset |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónað sett: Prjónuð peysa með norrænu mynstri, buxur og húfa með dúsk, vettlingar, sokkar og teppi úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán – 4 ára.
DROPS Baby 13-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STROFF: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. HNAPPAGAT (buxur): Fellið af fyrir 2 hnappagötum að framan með ca 8-9-10 (11-12) cm millibili. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur (fallegast er að fella af með 2 lykkjur brugðið séð frá réttu) og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (buxur): ATH: Innan við buxnaskálm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (húfa): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-160-172 (200-212) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan stroff með 1 kantlykkju og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist 3-4-4 (5-5) cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt frá réttu jafnframt er l fækkað til 123-135-147 (171-183) l. Prjónið síðan 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Setjið 1 prjónamerki 31-34-37 (43-46) l inn frá hvorri hlið = 61-67-73 (85-91) l á milli prjónamerkja á bakstykki – látið prjónamerki fylgja með stykkinu upp úr. Prjónið M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið, prjónið síðan næstu umf þannig: 1 kantlykkja, M.2A yfir næstu 108-120-132 (156-168) l, M.2B (= 13 l) og 1 kantlykkja. Haldið svona áfram með mynstur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist ca 15-17-21 (25-28) cm – passið að prjónaðar séu 2 umf með litnum natur eftir 1 umf með "doppum" – haldið áfram með M.3 á sama hátt, þ.e.a.s. 1 kantlykkja, M.3A yfir næstu 108-120-132 (156-168) l, M.3B (= 13 l) og 1 kantlykkja. Jafnframt þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm skiptist stykkið upp við handveg við bæði prjónamerkin og hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 61-67-73 (85-91) l. Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 63-69-75 (87-93) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm fellið af miðju 21-23-25 (25-27) l fyrir hálsmáli. Fækkið að auki 2 l í næstu umf við háls = 19-21-23 (29-31) l eftir á hvorri öxl. Eftir M.3 er fellt af, stykkið mælist ca 28-30-34 (38-41) cm – ATH: Ef stykkið mælist styttra en þetta er haldið áfram með litnum natur til loka. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 31-34-37 (43-46) l. Fitjið upp 1 nýja l við handveg (= kantlykkja fyrir saum) = 32-35-38 (44-47) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Jafnframt þegar stykkið mælist 24-26-29 (33-35) cm eru síðustu 7-8-9 (9-9) l við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli í annarri hverri umf: 2 l 2 sinnum og 1 l 2-2-2 (2-3) sinnum = 19-21-23 (29-31) l eftir á öxl. Fellið af þegar prjónað hefur verið jafn langt og á bakstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Fitjið upp 48-52-56 (60-64) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt, prjónið síðan stroff. Þegar stykkið mælist 5 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 5 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er l fækkað til 40-42-44 (46-48) l. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. Prjónið síðan M.1 – stillið af við miðju, sjá ör í mynstri. Eftir M.1 er haldið áfram með M.2 (stillið af við miðju eftir ör) þar til stykkið mælist 16-17-19 (23-27) cm, prjónið síðan M.4. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi alls 7-8-9 (11-12) sinnum á prjóni 1/3 + 6/9 + 12/18 mán + 2 ára: í 5. hverri umf, stærð 3/4 ára: í 6. hverri umf = 54-58-62 (68-72) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar M.4 hefur verið prjónað er fellt laust af, stykkið mælist ca 19-20-22 (26-30) cm frá prjónamerki – ATH: Ef stykkið mælist styttra en þetta er haldið áfram með litnum natur til loka. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 74-78-86 (94-102) l meðfram vinstra framstykki á prjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff með 2 l garðaprjón og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist ca 2,5 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið meðfram hægra framstykki, þegar kantur að framan mælist ca 1 cm er fellt af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – neðsta hnappagatið er staðsett ca 1 cm frá neðri kanti og það efsta ca 4-6 cm ofan frá (einnig er fellt af fyrir einu hnappagati í kanti í hálsmáli). 1 hnappagat = fellið af 2 l (fallegast er að fella af 2 l br séð frá réttu) og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. HÁLSMÁL: Prjónið upp ca 86-110 l – meðtaldar l af þræði að framan (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4 + 2) í kringum hálsmál og ofan við kant að framan á prjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan stroff með 2 l garðaprjóni og 2 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Þegar stroffið mælist ca 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir þau hin sem eru í hægri kanti að framan (prjónið 3. og 4. l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn). Þegar stroff mælist 3-4-4 (5-5) cm fellið af fyrir 1 hnappagati alveg eins. Þegar kantur í hálsmáli mælist 4-5-5 (6-6) cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Brjótið kantinn í hálsmáli saman tvöfaldan að röngu og festið með fínu spori. Saumið ermar í og festið tölur. Brjótið stroffið á ermum saman tvöfalda að réttu. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring frá miðju og niður. Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BUXUR: Fitjið upp 160-168-176 (184-192) l á hringprjóna nr 2,5 með litnum natur – byrjun umf = miðja að aftan. Prjónið 1 umf br, prjónið síðan stroff. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum að framan – sjá HNAPPAGAT – að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki fyrir miðju að framan (merkir uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir 2 hnappagötum að framan eins og áður (hnappagötin eiga að passa á móti hvort öðru þegar stroffið er brotið upp við prjónamerki). Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er l fækkað jafnt yfir til 114-120-126 (132-138) l. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Prjónið nú M.2A jafnframt er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 9-10-10 (11-11) l frá byrjun umf, snúið við (til að sleppa við göt er fyrsta l tekin óprjónuð þegar prjónað er til baka og hert á þræði). Prjónið 18-20-20 (22-22) l og snúið við. Haldið svona áfram að prjóna 9-10-10 (11-11) l fleiri í hvert skipti sem snúið er við 10 sinnum til viðbótar (= 12 umf). Prjónið síðan M.2A hringinn yfir allar l. ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 13-16-17 (18-19) cm frá prjónamerki við miðju að framan er sett 1 nýtt prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 57-60-63 (66-69) l. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við þessi prjónamerki (= 4 l fleiri í hverri útaukningu í umferð) í 3. hverri umf alls 6 sinnum = 138-144-150 (156-162) l. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24) cm. SKÁLM: Prjónið 69-72-75 (78-81) l með byrjun við miðju að aftan og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Prjónið í hring (M.2A er haldið áfram eins og áður) – setjið 1 prjónamerki að innanverðu á skálm = byrjun umf. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan. Fækkið svona lykkjum í hverri umferð 2-2-3 (3-3) sinnum, fækkið lykkjum áfram alls 11-10-8 (8-8) sinnum þannig: Stærð 1/3 mánaða: Í 3. hverri umferð, stærð 6/9 mánaða: Í 4. hverri umferð, stærð 12/18 mánaða: Í 6. hverri umferð, stærð 2 ára: Í 8. hverri umferð, stærð 3/4 ára: Í 10. hverri umferð = 43-48-53 (56-59) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 30-36-40 (46-52) cm – passið að prjónaðar verði minnst 2 umf með litnum natur eftir 1 umf með "doppum" – prjónið M.1 – byrjið efst í mynstri og sjá ör sem merkir miðju umf (= ytri hlið á skálm). Eftir M.1 er skipt yfir í litinn natur og sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er aukið út jafnt yfir til 68-72-76 (80-84) l. Prjónið nú stroff í 10 cm áður en fellt er laust af í stroffi. Prjónið hina skálmina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brettið stroffið efst á buxum niður að innanverðu á stykki. Passið uppá að hnappagötin passi yfir hvort annað. Saumið stroffið niður að innanverðu á stykki. Til að koma í veg fyrir að stroffið verði of stíft er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. AXLABÖND: Fitjið upp 12 l á prjóna nr 2,5 með litnum natur og prjónið stroff með 1 l garðaprjón og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar axlabandið mælist ca 34-40-48 (58-64) cm fellið af. Prjónið annað axlaband á sama hátt. Festið axlaböndin aftan á buxurnar (að innanverðu við stroff) með ca 8-9-10 (11-12) cm millibili. Saumið eina tölu ca 2 cm inn á annan endann á axlabandinu – axlaböndin eru sett í kross að aftan, mátið gjarna buxurnar til að fá sem besta staðsetningu á tölum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp 112-116-120 (124-132) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umf br. Prjónið nú stroff með 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 10 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni og M.2A jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 90-96-102 (108-114) l í 1. umf eftir stroff. Þegar stykkið mælist 17-17-18 (19-20) cm setjið 6 prjónamerki í stykkið með 15-16-17 (18-19) l á milli hverra. Haldið áfram með M.2A jafnframt sem fækkað er um 1 l hvoru megin við öll prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA - Í annarri hverri umf: 6-7-7 (6-6) sinnum og síðan í hverri umf: 0-0-0 (2-2) sinnum = 18-12-18 (12-18) l eftir á prjóni – þær l sem ekki ganga upp í mynstrið þegar l er fækkað eru prjónaðar með litnum natur. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum allar l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið upp neðstu 5 cm á stroffi, húfan mælist nú ca 15-16-17 (18-19) cm. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum natur ca 4-5 cm að þvermáli og saumið efst á húfuna. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Þrjár stærstu stærðirnar eru prjónaðar með þumalfingur, þær tvær minni eru án þumafingurs. Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. VETTLINGUR: Fitjið upp 36-40-44 (48-52) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf br, prjónið síðan stroff 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 8-8-10 (10-12) cm aldið áfram með sléttprjóni jafnframt er aukið út til 38-42-46 (50-54) l í 1. umf. Þær 3 stærstu stærðirnar: Eftir 1 (2-3) cm sléttprjón eru settar 5 (6-6) síðustu l í umf á þráð fyrir þumal. Fitjið upp 5 (6-6) nýjar lykkjur yfir þessar í næstu umf. Allar stærðir: Þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm prjónið M.5 yfir miðju 13 l á hönd, aðrar l eru prjónaðar með litnum beige – munið eftir að prjóna inn löngu þráðunum þannig að fingurnir festist ekki í þeim þegar vettlingurinn er mátaður – endarnir þurfa ekki að fylgja með alla leiðina hringinn, bara fram og til baka yfir mynstur-l. Eftir M.5 er haldið áfram með litnum beige yfir allar l. Þegar stykkið mælist 15-16-18 (19-21) cm setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin í hverri umf þar til 10 l eru eftir á prjóni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Brjótið upp neðstu 4-4-5 (5-6) cm af stroffi, vettlingurinn mælist nú ca 13-14-16 (17-18) cm. ÞUMALFINGUR: Setjið til baka 5 (6-6) l af þræði á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið upp 7 (8-8) l í kantinn yfir þær = 12 (14-14) l. Prjónið br hringinn þar til þumafingurinn mælist 3 (4-5) cm. Prjónið nú allar l saman 2 og 2. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Prjónið annan vettling á sama hátt. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) l jafnt yfir á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum beige. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan stroff með 2 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 4-5-5 (6-7) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 4-8-4 (8-8) l jafnt yfir = 40-40-44 (44-48) l. Prjónið nú hæl - lesið HÆLÚRTAKA - þannig: Prjónið 3- 3½ - 3½ (4- 4 ½) cm sléttprjón fram og til baka yfir 16-16-16 (18-18) l fyrir miðju að aftan. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 9-9-9 (10-10) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við UMFERÐ 2: Takið 1 l óprjónaða, 3-3-3 (4-4) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 3: Takið 1 l óprjónaða, 4-4-4 (5-5) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 5-5-5 (6-6) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 5: Takið 1 l óprjónaða, 6-6-6 (7-7) l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 6: Takið 1 l óprjónaða, 7-7-7 (8-8) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 7: 2 l slétt saman, 6-6-6 (8-8) l sl, 2 l snúnar slétt saman = 8-8-8 (10-10) l á prjóni (= alls 32-32-36 (36-40) l). Prjónið upp 7-8-8 (9-11) l hvoru megin við hæl og setjið allar l á sama prjón = 46-48-52 (54-62) l. Haldið áfram með sléttprjón yfir allar l. Jafnframt er fækkað um 1 l hvoru megin við efstu 18-20-22 (24-26) l í annarri hverri umf 7 sinnum = 32-34-38 (40-48) l. Þegar fóturinn mælist 8-9-10 (12-12) cm (frá byrjun hælúrtöku) setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hverri umf (= 4 l færri í umf) alls 7-7-8 (8-10) sinnum. Þræðið þráðinn í gegnum þær 4-6-6 (8-8) l sem eftir eru og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. Teppi: Sjá mynstur DROPS Baby 13-10 |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintersnugglesset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 13-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.