Michèle Focan skrifaði:
Bonjour je ne comprends pas du tout la division des mailles pour la réalisation du devant et du dos ainsi que des manches lorsque je divise comme indiqué le raglan n'est pas du tout bien positionné sur l'ouvrage.Pouvez-vous maider Merci d'avance
22.11.2026 - 01:58DROPS Design svaraði:
Cf. réponse ci-dessous.
23.11.2026 - 10:01
Michèle skrifaði:
Bonjour je ne comprends pas du tout la division des mailles pour la réalisation du devant et du dos ainsi que des manches lorsque je divise comme indiqué le raglan n'est pas du tout bien positionné sur l'ouvrage.Pouvez-vous maider Merci d'avance
22.11.2026 - 01:54DROPS Design svaraði:
Bonjour Michèle, notez que la division de l'empiècement ne se fait pas aux raglans mais que les mailles des raglans (+ quelques mailles des manches) seront attribuées au dos et au devant, vous aurez donc moins de mailles pour les manches à mettre en attente que le nombre que vous aviez entre les marqueurs. Et vous aurez autant de mailles de chaque côté des manches qui seront "données" au dos d'un côté et au devant de l'autre. Bon tricot!
23.11.2026 - 10:01
Sabine Ute skrifaði:
Non mi è chiaro come interpretare il diagramma! Esiste un video? Perché aumentare così tante maglie prima di iniziare il bordo? Non viene troppo lente?? Grazie mille
16.11.2026 - 13:30DROPS Design svaraði:
Buonasera Sabine, il diagramma si legge dal basso verso l'alto e da destra a sinistra per la lavorazione in tondo. Si aumentano le maglie per evitare che la successiva lavorazione a coste restringa il lavoro. Buon lavoro!
25.11.2026 - 16:49
Gentle Rain Sweater#gentlerainsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð oversize / stór peysa úr 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð XS – XXXL.
DROPS 271-36 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÍTÖLSK UPPFITJUN (Einföld aðferð): Með þessari uppfitjun er helmingur af lykkjunum fitjaður upp sem gefinn er upp í mynstri, síðan eykst lykkjufjöldinn í fyrstu umferð á eftir uppfitjuninni. Fitjið upp lykkjur utan um 2 prjóna sem haldið er saman (notið grófasta og fínasta prjóninn sem gefinn er upp í uppskrift), fitjið upp 28-30-30-32-34-36-36 lykkjur. Dragið út prjón nr 9 og prjónið með hringprjón 6 jafnframt því sem lykkjur eru auknar út – prjónið þannig: UMFERÐ 1 (snúið stykkinu við og prjónið til baka = ranga): * Prjónið 1 lykkju brugðið, takið upp lykkju frá þræðinum sem prjónað er með þannig: Leggið hægri prjóninn fyrir framan, síðan undir og aftan við stykkið, upp fyrir framan þráðinn og dragið prjóninn með þræðinum áfram og aftur fyrir framan stykkið (= 1 ný lykkja á hægri prjóni) *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju brugðið = lykkjufjöldinn hefur núna tvöfaldast mínus 1 lykkja. UMFERÐ 2 (Snúið stykkinu og prjónið til baka = rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið (= þráðurinn sem tekinn var upp) *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkjuna þannig: 1 lykkja slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn og 1 lykkja brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. UMFERÐ 3 (Ekki snúa stykkinu – nú er prjónað í hring = rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. LASKALÍNA: Aukið er út fyrir laskalínu með því að prjóna mynsturteikningu A.1 í 3 lykkjur við hvert merki. Lykkja með merki í er miðjulykkjan af þessum 3 lykkjum – látið merkin fylgja áfram með í miðjulykkju þannig að útaukningin sé allaf gerð í miðju að 3 lykkjum við hverja laskalínu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING - í skiptingunni yfir í stroff: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 56-60-60-64-68-72-72 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Snow eða 2 þráðum DROPS Air – fitjið e.t.v. upp með ÍTÖLSK UPPFITJUN – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 5-5-6-6-6-6-6 cm. Byrjun umferðar er ca fyrir miðju að aftan. Setjið 1 merki í byrjun umferðar – stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að lykkjurnar séu prjónaðar, merkin eru sett í slétta lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu við þessar lykkjur. Teljið 6-8-8-8-8-10-8 lykkjur (= ca hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-11-11-13-13-15 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 15-17-17-19-19-21-19 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-11-11-13-13-15 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 9-9-9-11-11-11-11 lykkjur að byrjun umferðar (= ca hálft bakstykki). Prjónið síðan með hringprjón 9. Prjónið 2 umferðir sléttprjón þar sem aukið er út um 4-0-0-0-4-0-4 lykkjur í umferð 1 þannig: Aukið út 2-0-0-0-2-0-2 lykkjur á bakstykki og aukið út 2-0-0-0-2-0-2 lykkjur á framstykki = 60-60-60-64-72-72-76 lykkjur. Lykkjufjöldinn skiptist nú þannig: 11-11-11-11-13-13-15 lykkjur á hvorri ermi og 17-17-17-19-21-21-21 lykkjur á framstykki/bakstykki og 4 laskalykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og byrjið útaukningu fyrir LASKALÍNA – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út svona út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 11-13-14-15-15-17-17 sinnum = 148-164-172-184-192-208-212 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið áfram í sléttprjóni eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 18-20-22-23-23-26-26 cm frá merki fyrir miðju að aftan – stykkið mælist ca 24-26-28-29-30-33-34 cm frá öxl og niður. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 2-2-2-2-3-4-5 lykkjur sléttprjón fram að 1. merki (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 29-33-35-37-37-39-39 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 45-49-51-55-59-65-67 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 29-33-35-37-37-39-39 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið út umferðina (= það eru 45-49-51-55-59-65-67 lykkjur á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 98-106-114-122-134-146-154 lykkjur. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 47-49-50-52-53-55-56 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 42-46-48-52-58-62-66 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 140-152-162-174-192-208-220 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-6-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 52-54-56-58-59-61-62 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 58-60-62-64-66-68-70 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 29-33-35-37-37-39-39 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna / hringprjón 9 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 33-37-41-43-45-47-49 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-4-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-3-4-4-5-4-4 sinnum í 4-3-2-2-2-2-2 hverjum cm 29-31-33-35-35-39-41 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 41-40-38-37-38-35-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-13-13-15-15-17-17 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 40-44-46-50-50-56-58 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-6-6-6 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-45-44-43-44-41-43 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gentlerainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.