Lena skrifaði:
Oklart. Ska man sticka denna tröja med enbart Puna eller ska kid silk vara med?
20.10.2026 - 15:34DROPS Design svaraði:
Hej Lena, vi har strikket med 1 tråd DROPS Puma og 1 tråd DROPS Kid-Silk :)
21.10.2026 - 06:51
Anna skrifaði:
Thank you!! So after the 7 the row I can add German short rows... untill the middle of the sleeve stitches or? or it's not needed because the construction itself will raise more the back part? Thank you!!!.
14.10.2026 - 15:47DROPS Design svaraði:
Dear Anna, for any individual assistance adapting the pattern to your own wishes, please feel free to contact your Yarn store - even per mail or telephone, as we are not able to adjust every pattern to every single request. Thanks for your comprehension. Happy knitting!
15.10.2026 - 16:43
Anna skrifaði:
Hallo!!! How it would be please to add German short rows right after the casting on ..after the purl row...? Before any increases... Maybe 6 times turning..maye last turning after the sleeve stitches....thank you!!
13.10.2026 - 23:55DROPS Design svaraði:
Dear Anna, in this pattern you don't cast on all stitches for the round as you will cast on the stitches for neck on front piece on each side while you increase for saddle shoulders. You will work in the round only after the 7th row has been worked, ie after all sts for neck have been increased, then you continue in the round and continue increasing for saddle shoulders as before. Happy knitting!
14.10.2026 - 07:33
Memory of Wind Sweater#memoryofwindsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk eða DROPS Saga og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með útaukningu fyrir axlarsæti og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-39 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (frá réttu): AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (frá röngu): AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á UNDAN MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á EFTIR MERKI: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er berustykkið prjónað fram og til baka til að forma hálsmál, síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 70-70-74-80-84-90-90 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Puna eða 1 þræði DROPS Saga saman með 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræði). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja. Við þessi merki á fyrst að auka út fyrir axlarsæti, síðan fyrir ermar og svo fyrir berustykki. teljið 2 lykkjur (= vinstri hlið í hálsmáli að framan), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 30-30-30-32-32-34-34 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur (= axlalykkjur), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru 2 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægri hlið í hálsmáli að framan). Prjónið sléttprjón fram og til baka jafnframt því sem aukið er út fyrir axlarsæti og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í hvorri hlið. Lykkjufjöldinn á hvorri öxl verður sá sami, lykkjufjöldinn á framstykki/bakstykki eykst. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: * Prjónið slétt fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur slétt (= axlalykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 76-76-80-86-90-96-96 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: * Prjónið brugðið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur brugðið (= axlalykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 82-82-86-92-96-102-102 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt án þess að auka út, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 84-84-88-94-98-104-104 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): * Prjónið brugðið fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til vinstri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur brugðið (= axlalykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til hægri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 90-90-94-100-104-110-110 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): * Prjónið slétt fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur slétt (= axlalykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 3 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 97-97-101-107-111-117-117 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út, fitjið upp 3 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 100-100-104-110-114-120-120 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): * Prjónið slétt fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur slétt (= axlalykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar, prjónið slétt út umferðina, fitjið upp 12-12-12-14-14-16-16 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 116-116-120-128-132-140-140 lykkjur. Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir útaukningu fyrir axlarsæti hvoru megin við axlalykkjurnar = 18-18-20-22-24-26-26 axlalykkjur í hvorri hlið og 40-40-40-42-42-44-44 lykkjur á framstykki/bakstykki. Klippið þráðinn. Síðan á að prjóna stykkið í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan, færið því lykkjurnar frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón fram að 3. merki sem var sett í stykkið (= hægri öxl að aftan) – ATH: Lykkjurnar eru ekki prjónaðar, heldur færðar til. Útaukningu fyrir axlarsæti heldur áfram eins og útskýrt er að neðan. Munið að fylgja prjónfestunni. ÚTAUKNING AXLARSÆTI: UMFERÐ 1: * Prjónið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur slétt (= axlalykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt án þess að auka út. UMFERÐ 3: * Prjónið 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur slétt (= axlalykkjur), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið UMFERÐ 1 til 3 alls 7-8-9-9-9-9-10 sinnum (= 21-24-27-27-27-27-30 umferðir prjónaðar), prjónið síðan UMFERÐ 1 einu sinni til viðbótar (= 29-32-35-35-35-35-38 umferðir prjónaðar á eftir uppfitjunarkanti). Aukið hefur verið út alls 20-22-24-24-24-24-26 sinnum fyrir axlarsæti = 176-184-196-204-208-216-224 lykkjur í umferð, lykkjum er deilt niður þannig: 18-18-20-22-24-26-26 lykkjur á hvorri öxl og 70-74-78-80-80-82-86 lykkjur á framstykki/bakstykki. Stykkið mælist ca 12-13-14-14-14-14-15 cm frá uppfitjunarkanti aftan í hnakka. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki, fyrir miðju í 18-18-20-22-24-26-26 axlalykkjur – handvegurinn er síðar mældur frá þessu merki. Aukið út fyrir ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING ERMAR: Nú er einungis aukið út á ermum og fjöldi lykkja á framstykki/bakstykki verður sá sami. Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT sem aukið er út um 4 lykkjur í annarri hverri umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt fram að næsta merki, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2: Prjónið slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-11-10-10-8-5-5 sinnum (= 20-22-20-20-16-10-10 umferðir prjónaðar) = 216-228-236-244-240-236-244 lykkjur í umferð, lykkjum er skipt niður þannig: 38-40-40-42-40-36-36 lykkjur á hvorri ermi og 70-74-78-80-80-82-86 lykkjur á framstykki/bakstykki. Síðan er aukið út bæði fyrir framstykki/bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. ÚTAUKNING BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn JAFNFRAMT sem aukið er út um 8 lykkjur í annarri hverri umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur voru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-7-6-12-16-16-15 sinnum (= 10-14-12-24-32-32-30 umferðir prjónaðar) = 256-284-284-340-368-364-364 lykkjur í umferð, lykkjum er skipt niður þannig: 48-54-52-66-72-68-66 lykkjur á hvorri ermi og 80-88-90-104-112-114-116 lykkjur á framstykki/bakstykki. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið slétt fram að fyrsta/næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2-4: Prjónið slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 3-2-4-1-1-3-5 sinnum (= 12-8-16-4-4-12-20 umferðir prjónaðar) = 280-300-316-348-376-388-404 lykkjur, lykkjum er skipt niður þannig: 54-58-60-68-74-74-76 lykkjur á hvorri ermi og 86-92-98-106-114-120-126 lykkjur á framstykki/bakstykki. Prjónið síðan sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 17-18-19-19-21-22-24 cm yst meðfram handvegi, mælt frá merki sem var sett fyrir miðju í axlalykkjur. Stykkið mælist ca 22-23-24-25-27-29-31 cm frá innst við hálsmál. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 54-58-60-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, þ.e.a.s. lykkjur á milli 3. og 4. merkis, fitjið upp 6-6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 86-92-98-106-114-120-126 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 54-58-60-68-74-74-76 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 86-92-98-106-114-120-126 lykkjur slétt (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-196-212-228-248-268-288 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 6-6-8-8-10-14-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 50-52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-32-36-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 212-228-248-264-288-312-336 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. ERMI: Setjið til baka 54-58-60-68-74-74-76 lykkjur frá ermi af þræði á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-14-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 60-64-68-76-84-88-94 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-14-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm 3-3-3-4-4-4-4 sinnum = 50-54-58-64-72-76-82 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 16-16-15-15-14-14-14 cm frá skiptingunni. Nú á að auka út lykkjur jafnt yfir til að mynda smá vídd á erminni. Prjónið þannig: * Í næstu umferð er aukið út um 4 lykkjur jafnt yfir, prjónið sléttprjón í 5-5-5-5-4-4-4 cm *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum = 66-70-74-80-88-92-98 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 36-36-35-35-34-34-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna / hringprjóna 3 og prjónið stroff hringinn (= 3 lykkjur slétt og 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan) JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-2-2-0-0-0-2 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-72-76-80-88-92-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2-2-2-2-3-3-3 cm, prjónið 1 umferð slétt. Notið prjón nr 4 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 38-38-37-37-36-36-34 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við hægri öxl að aftan og prjónið upp ca 84 til 100 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4. Prjónið sléttprjón hringinn í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Prjónið 1 umferð stroff (= 3 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið), prjónið síðan 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Notið hringprjón 4 og fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #memoryofwindsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.