Hannah skrifaði:
For the back piece, what increases is the pattern referring to in A.2 and A.4 when is says "When all increases shown in A.2 and A.4 are done"? Chart A.2 has a diagonal at the right side, but how does this translate to increases when actually knitting?
08.11.2026 - 18:46DROPS Design svaraði:
Dear Hannah, the increases are explained in the written pattern: you fist work A.1 increasing on each side, then work instead of A.1: K3, A.2, A.3, A.4, K3, and increase as before (every row 2 sts inside 3 sts) and work the new stitches now as shown in A.2 and A.4. Then when A.2 and A.4 are done continue increasing but work now the new stitches in stocking stitch. Happy knitting!
09.11.2026 - 11:41
Kim skrifaði:
Nog een klein foutje in het patroon: aanbeet eind van de beschrijving van het lijf staat “ De trui meet 48-50-52-54-56-58-60 cm vanaf de opzetrand midden voor”. Dit moet zijn: vanaf de opzetrand midden achter.
06.11.2026 - 22:59
Cheryl skrifaði:
It looks like the instructions for the cables are incorrect. The chart shows 6-stitch cables, but the instructions for those cables say: slip 2 stitches on cable needle in front [or back] of piece, knit 2, knit 2 from cable needle. Isn't that a 4-stitch cable? Shouldn't the instructions say to slip 3 stitches to the cable needle, knit 3, then knit 3 from the cable needle?
01.11.2026 - 15:08DROPS Design svaraði:
Dear Cheryl, we will send the comment to our design department so that they may check the pattern and charts and rectify any possible mistakes. Happy knitting!
01.11.2026 - 23:59
Kim skrifaði:
Bij de uitleg van het tel patroon zijn er twee fouten denk ik. 1) de kabel gaat over 6 steken, dus 3 steken op de kabel naald en dan 3 steken breien etc. 2) bij het eerste kabel symbool moeten de steken op de kabel naald voor het werk gehouden worden en bij het tweede kabel symbool achter het werk. Anders draaien de kabels dezelfde kant op, het is mooier als ze beiden een andere kant op draaien.
28.10.2026 - 22:17
Margit skrifaði:
Liebes Drops Team, vielen Dank für die schöne Anleitung. Ich habe mit dem Rückenteil in Gr. L begonnen. Nach der 1. Rückreihe links, soll man die 2. und 3. Reihen 20 x stricken. Soll man nun immer nur die 2. und 3. Reihe von A1 wiederholen, und nach 40 Reihen die restlichen Reihen von A1 stricken, oder wie ist das gemeint? Ich würde mich auf eine Antwort sehr freuen. Vielen Dank und liebe Grüße Margit
28.10.2026 - 08:51DROPS Design svaraði:
Liebe Magrit, die Zunahmen sollen Sie wie unter 2. und 3. Reihe stricken, und gleichzeitig stricken Sie A.1 mit 3 Maschen glattrechts beidseitig, dh A.1 einfach wie im Diagram stricken, die Zunahmen stricken Sie wie in A.1 gezeichnet. Wenn A.1 fertig ist, stricken Sie so (mit den Zunahmen wie zuvor): 3 M glattrechts, A.2, A.3, A.4 und 3 M glattrechts; nach den Zunahmen in A.2 und A.4 stricken Sie die letzten 4 Zunahmen glattrechts. Viel Spaß beim Stricken!
29.10.2026 - 08:26
Sandra Fernandez skrifaði:
En el patrón no aparece el diagrama A1
20.10.2026 - 22:17
Snow Poem Sweater#snowpoemsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, áferðamynstri, köðlum og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-5 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.12. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.3 og A.10). Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – í skiptingunni yfir í stroff: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á í við í mynstri jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið sett á bið á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu fyrir hálsmáli er lokið. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 30-30-30-30-34-34-34 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 (það eru eftir 3 lykkju í umferð á eftir A.1), aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið A.1 (það eru eftir 3 lykkjur í umferð á eftir A.1), aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 18-18-18-20-21-23-25 sinnum (= 36-36-36-40-42-46-50 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 102-102-102-110-118-126-134 lykkjur í umferð – ATH: Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur mynstrið áfram frá réttu þannig: 3 lykkjur slétt, A.2, A.3, A.4, 3 lykkjur slétt. Þegar öll útaukning sem hefur verið teiknuð inn í A.2 og A.4 er lokið (= 36 sinnum útaukning í hvorri hlið), eru eftir 0-0-0-4-6-10-14 skipti að auka út í hvorri hlið – prjónið þessar lykkjur í sléttprjóni. Þegar allt A.2 og A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur mynstrið áfram á sama hátt með 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur sléttprjón í hvorri hlið – mynsturteikning er endurtekin á hæðina eins og útskýrt er með stjörnu í mynsturteikningu. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka, setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Haldið síðan áfram með mynstur - Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 7-8-6-7-9-7-6 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi – endið eftir umferð frá röngu og athugið í hvaða umferð í mynsturteikningu er endað til að endað sé í sömu umferð í mynsturteikningu á framstykki á undan útaukningu fyrir handveg, þá kemur mynstrið til með að passa þegar framstykkið og bakstykkið er síðar sett saman fyrir fram- og bakstykki. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-5-5-4-6-7 sinnum (= 2-2-10-10-8-12-14 umferðir prjónaðar) = 104-104-112-120-126-138-148 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 8-9-10-11-12-12-12 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 36-36-36-40-42-46-50 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur brugðið, prjónið A.5 (munið eftir að mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), prjónið 3 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, A.5, 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, stykkið mælist ca 6 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, nú eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.6, prjónið 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur brugðið, A.6, 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 42-42-42-46-48-52-56 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn (það er eftir 1 umferð í A.6), setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 36-36-36-40-42-46-50 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, prjónið A.7 (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), prjónið 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur slétt, A.7, 3 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina, stykkið mælist ca 6 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, nú eru lykkjur auknar út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur slétt, A.8, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur brugðið, A.8, 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 6 sinnum (= 12 umferðir prjónaðar) = 42-42-42-46-48-52-56 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu = síðasta umferð í A.8). Nú eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægri og vinstri hluti saman): Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur slétt, prjónið síðustu umferð í A.8, 3 lykkjur slétt, fitjið upp 18-18-18-18-22-22-22 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar, prjónið fyrstu 3 lykkjur frá vinstra framstykki slétt, prjónið síðustu umferð í A.6 yfir næstu lykkjur frá vinstra framstykki og endið með 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur slétt = 102-102-102-110-118-126-134 lykkjur í umferð. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur brugðið, prjónið A.9 (munið eftir að mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu), A.10, A.11, 3-3-3-7-9-13-17 lykkjur brugðið. Prjónið mynstur svona fram og til baka og endurtakið mynstureininguna á hæðina þar til stykkið mælist 27-28-26-27-29-29-30 cm – endið eftir umferð frá röngu og stillið af að þetta sé sama umferð í mynsturteikningu og á bakstykki á undan útaukningu fyrir handveg. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið eins og áður þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-5-5-4-6-7 sinnum (= 2-2-10-10-8-12-14 umferðir prjónaðar) = 104-104-112-120-126-138-148 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-34-36 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, endið með umferð frá röngu og passið uppá að þetta sé sama umferð og endað var á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Framstykkið er lengra en bakstykkið, ca 2 cm af dýpt frá hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakhlið á stykkinu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 104-104-112-120-126-138-148 lykkjur frá framstykki eins og áður, fitjið upp 2-2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir erminni), prjónið 104-104-112-120-126-138-148 lykkjur frá bakstykkinu eins og áður og fitjið upp 2-2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir erminni) = 212-212-228-244-260-284-304 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring, haldið áfram með mynstur á framstykki og bakstykki eins og áður (mynstrið er alveg eins að framan og að aftan) – nýjar lykkjur í hvorri hlið undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist ca 28-30-32-34-36-38-40 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir miðju að aftan – endið eftir heila mynstureiningu á hæðina. Nú er prjónuð 1 umferð slétt yfir allar lykkjur, en yfir «demantinn» yst hvoru megin við A.9/A.11 er prjónuð 1 lykkja brugðið til að loka ferningnum – JAFNFRAMT í þessari umferð er fækkað um 3 lykkjur yfir hvern kaðal (lykkjurnar yfir kaðal í A.11 eru prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 og lykkjur yfir kaðal í A.9 eru prjónaðar slétt saman 2 og 2) = 200-200-216-232-248-272-292 lykkjur í umferð. Prjónið A.12 hringinn á fram- og bakstykki. Prjónið síðan sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 44-46-48-50-51-53-55 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 36-36-36-40-44-48-48 lykkjur jafnt yfir umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 236-236-252-272-292-320-340 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl - ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkra cm niður á framstykki. Notið hringprjón 4,5 og prjónið upp lykkjur aðeins fasta (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 64-66-70-74-80-82-86 lykkjur innan við 1 lykkju – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merkið. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur og fái fallegra form er prjónað í sléttprjóni með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-9-9-9-10-10 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-9-9-9-10-10 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-2-2-2-2-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 16-20-24-24-26-28-32 sinnum (= 8-10-12-12-13-14-16 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð í miðju undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-1½-1½-1½ cm 5-5-6-7-8-8-9 sinnum = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-44-45-44-42-40-39 cm frá merki fyrir miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6-4-6-8-6-8-6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 56-56-60-64-64-68-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, prjónið 3 umferðir sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (= rúllukantur) = 52-52-56-60-60-64-64 lykkjur. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 47-48-49-48-47-45-44 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 92-92-92-92-100-100-100 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum hálsmál. Prjónið kantlista í hring þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lykkjufjöldinn á að tvöfaldast í þessari umferð. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = ca 184-184-184-184-200-200-200 lykkjur. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið og með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3: * Lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið og með þráðinn sem prjónað er með framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 4: * Prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið og með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 5: Lykkjufjöldinn á að helmingast: * Prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = ca 92-92-92-92-100-100-100 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn verði e.t.v. jafnaður út – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowpoemsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.