Lorraine Crook skrifaði:
I would love this pattern , I believe it’s free
19.09.2026 - 02:16DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Crook, you will find the English pattern here. Happy knitting!
21.09.2026 - 07:57
Pearl Blossom Cardigan#pearlblossomcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine og DROPS Kid-Silk eða DROPS Daisy og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, áferðamynstri, stuttum ermum og stroffi með klukkuprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-24 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5 og A.6). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um kant í hálsmáli): Öll útaukning er gerð frá réttu. Þegar slétta lykkjan og uppslátturinn er prjónaður saman þá er prjónað þannig í lykkjuna (sem samanstendur af lykkju og uppslætti): 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt (= 4 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar sléttar lykkjur í klukkuprjóni – í umferð á eftir útaukningu er uppslátturinn prjónaður slétt frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu – 1 hnappagat er gert þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroff eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Efstu tölu í kanti í hálsmáli er hneppt í gegnum útaukningu í kanti í hálsmáli, það þarf því ekki að gera hnappagat fyrir þá tölu, neðsta hnappagatið er staðsett ca 4-4-4-4-5-5-5 cm frá neðri kanti. Þau 6-6-6-6-7-7-7 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett með jöfnu millibili á milli þessa hnappagata ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Berustykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við, á meðan ermarnar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Síðan eru kantar að framan prjónaðir meðfram öllu opinu. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BERUSTYKKI: Fitjið upp 89-93-95-99-105-109-113 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Merino Extra Fine eða 1 þræði DROPS Daisy og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Setjið 1 merki innan við 1 lykkju í hlið á stykki, berustykkið er mælt frá þessu merki. Prjónið 2 umferðir sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, í hvorri hlið. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar hringlaga berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þú vilt ekki hafa upphækkun. Notið aðferðina German Short Rows til að snúa við – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. Setjið 1 merki í miðjulykkju í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið slétt þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-15-16-17-18 lykkjur fram hjá lykkju með merki í, snúið, herðið á þræði og prjónið 25-27-29-31-33-35-37 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 37-40-43-46-49-52-55 lykkjur slétt, herðið á þræði og prjónið 49-53-57-61-65-69-73 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 61-66-71-76-81-86-91 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 73-79-85-91-97-103-109 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt út umferðina, snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjurnar eru prjónaðar eins og áður). Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. Þegar stykkið mælist 2 cm frá merki, prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 9-9-10-10-11-11-11 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 alls 17-18-18-19-20-21-22 sinnum á breidd, prjónið 10-10-11-11-12-12-12 lykkjur sléttprjón og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 123-129-131-137-145-151-157 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar stykkið mælist 5 cm frá merki, prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 9-9-10-10-11-11-11 lykkjur sléttprjón, prjónið A.2 alls 17-18-18-19-20-21-22 sinnum, prjónið 10-10-11-11-12-12-12 lykkjur sléttprjón og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 157-165-167-175-185-193-201 lykkjur. Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-8-8-9 cm frá merki, prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 9-9-10-10-11-11-11 lykkjur sléttprjón, prjónið A.3 alls 17-18-18-19-20-21-22 sinnum, prjónið 10-10-11-11-12-12-12 lykkjur sléttprjón og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 191-201-203-213-225-235-245 lykkjur. Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-11-11-13 cm frá merki, prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 9-9-10-10-11-11-11 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 alls 17-18-18-19-20-21-22 sinnum, prjónið 10-10-11-11-12-12-12 lykkjur sléttprjón og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 225-237-239-251-265-277-289 lykkjur. Þegar stykkið mælist 14-15-16-16-14-15-17 cm frá merki, prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 9-9-10-10-11-11-11 lykkjur sléttprjón, prjónið A.5 alls 17-18-18-19-20-21-22 sinnum, prjónið 10-10-11-11-12-12-12 lykkjur sléttprjón og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni = 242-255-275-289-305-319-333 lykkjur. Útaukningu er nú lokið í stærð XS, S, M og L, næsti kafli á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL. Þegar stykkið mælist 0-0-0-0-18-19-21 cm frá merki, prjónið þannig: Prjónið 0-0-0-0-1-1-1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 0-0-0-0-11-11-11 lykkjur sléttprjón, prjónið A.6 alls 0-0-0-0-20-21-22 sinnum, prjónið 0-0-0-0-12-12-12 lykkjur sléttprjón og prjónið 0-0-0-0-1-1-1 kantlykkju í garðaprjóni = 242-255-275-289-325-340-355 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-23-24-26 cm frá merki, prjónið 1 umferð þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 240-252-276-292-324-344-360 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður. Þegar berustykkið mælist 19-20-21-22-24-25-27 cm frá merki skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 38-40-44-46-50-54-58 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 44-46-50-54-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 76-80-88-92-100-108-116 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 44-46-50-54-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 38-40-44-46-50-54-58 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-204-220-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður. Prjónið þar til 1 umferð er eftir frá réttu þar til stykkið mælist ca 43-45-46-48-49-51-52 cm frá merki. Prjónið 1 umferð frá réttu þar sem aukið er út um 1 lykkju jafnt yfir = 165-177-193-205-221-241-261 lykkjur. Í næstu umferð frá röngu byrjar stroff. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja eins og áður * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 kantlykkja. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 í 4-4-4-4-5-5-5 cm og endið með umferð frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingin verði ekki of stíf – notið e.t.v. grófari prjón. Peysan mælist 47-49-50-52-54-56-57 cm frá merki og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 44-46-50-54-62-64-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 50-54-58-64-72-76-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 1-2-2-2-3-3-3 sinnum, síðan er lykkjum fækkað í öðrum hverjum cm alls 0-0-0-1-2-3-2 sinnum = 48-50-54-58-62-64-68 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 19-19-20-20-17-17-16 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. Prjónið eins og UMFERÐ 1 og 2 í 4-4-4-4-5-5-5 cm og fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist alls 23-23-24-24-22-22-21 cm frá skiptingunni. KANTUR AÐ FRAMAN OG KANTUR Í HÁLSMÁLI: Nú eru kantar að framan og kantur í hálsmáli prjónað í eitt stykki. Notið hringprjón 3,5 og byrjið frá réttu neðst á hægra framstykki og prjónið þannig: Prjónið upp ca 79-83-85-89-91-95-97 lykkjur meðfram kanti á framstykki (innan við 1 kantlykkju, lykkjufjöldinn verður að vera í oddatölu), Prjónið upp 1 lykkju yst við kant í hálsmáli og setjið eitt merki í þessa lykkju, Prjónið upp ca 87-91-93-97-103-107-111 lykkjur í kringum hálsmál (innan við 1 lykkju, lykkjufjöldinn verður að vera í oddatölu), Prjónið upp 1 lykkju yst í kanti í hálsmáli og setjið eitt merki í þessa lykkju, prjónið upp ca 79-83-85-89-91-95-97 lykkjur meðfram kanti á vinstra framstykki (innan við 1 kantlykkju, lykkjufjöldinn verður að vera í oddatölu) = 247-259-265-277-287-299-307 lykkjur. Nú er prjónað fram og til baka jafnframt því sem aukið er út í lykkjurnar með merki í annarri hverri umferð frá réttu (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð sem er prjónuð) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan. Fyrsta umferð er frá röngu og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja eins og áður, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja. UMFERÐ 2 (= rétta): 1 kantlykkja, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* meðfram kanti og aukið út í lykkjurnar með merki í – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 kantlykkja. Prjónið síðan UMFERÐ 1 og 2, þegar kantur að framan mælist ca 1½ cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til kantur að framan mælist ca 3 cm og endið með umferð frá röngu. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – passið uppá að affellingin verði ekki of stíf, notið e.t.v. grófari prjóna. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan – efsta talan er saumuð þannig að hægt sé að hneppa henni í gegnum útaukninguna í kanti í hálsmáli. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #pearlblossomcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.