Frosted Rainbow Sweater#frostedrainbowsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, röndum og garðaprjóni. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-18 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. GARÐAPRJÓN: Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. RENDUR: Rendurnar eru prjónaðar með sléttprjóni og garðaprjóni yfir 8 umferðir þannig: UMFERÐ 1-6: Prjónið slétt með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Ljósgrár og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 7: Prjónið slétt með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Garðpartý og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 8: Prjónið brugðið með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Garðpartý og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Endurtakið UMFERÐ 1 til 8 með röndum eins og þessum bæði á fram- og bakstykki og ermum. Stillið af þannig að engar rendur í litnum Garðpartý séu prjónaðar yfir síðustu 3 cm á undan stroffi. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 – á við um yfir í skiptinguna í stroff: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptinguna yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Stillið af að úrtakan sé gerð í umferð sem er prjónuð slétt. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = axlirnar eru settar saman í eitt stykki (= framstykki). Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. ------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 28-29-29-30-31-31-32 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Fiesta í litnum Ljós Grár og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 8-8-9-9-9-10-10 sinnum (= 16-16-18-18-18-20-20 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 60-61-65-66-67-71-72 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 16-16-18-18-18-20-20 lykkjur), endið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja) = 17-17-19-19-19-21-21 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-6-6-6-7-8-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-5-5-5-5 sinnum (= 8-8-8-10-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 21-21-23-24-24-26-26 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-10-10-11-12-13-13 cm frá merki. 2 cm af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram hægri bakstykkis skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 16-16-18-18-18-20-20 lykkjur) = 17-17-19-19-19-21-21 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-6-6-6-7-8-8 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-5-5-5-5 sinnum (= 8-8-8-10-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 21-21-23-24-24-26-26 lykkjur. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig: Prjónið slétt yfir 21-21-23-24-24-26-26 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 18-19-19-18-19-19-20 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 21-21-23-24-24-26-26 lykkjur frá vinstri öxl = 60-61-65-66-67-71-72 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 12-12-13-13-13-14-14 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan framstykkið og bakstykkið saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu lykkju frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð (= byrjun umferðar), prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 19-19-21-21-21-22-22 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), prjónið fyrstu lykkju frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 19-19-21-21-21-22-22 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju) = 158-160-172-174-176-186-188 lykkjur í umferð. Prjónið fyrstu lykkjuna slétt, þannig að umferðin byrjar við merki í skiptingunni á milli bakstykkis og ermi. Það eru 21-21-23-23-23-24-24 lykkjur á hvorri ermi og 58-59-63-64-65-69-70 lykkjur á framstykki/bakstykki. BERUSTYKKI: Síðan er stykkið prjónað í hring JAFNFRAMT því sem prjónaðar eru RENDUR- lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið í hring þannig: UMFERÐ 1: Prjónið yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið yfir allar lykkjur án útaukninga – munið eftir röndum. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 6-4-5-3-2-1-1 sinnum (= 12-8-10-6-4-2-2 umferðir prjónaðar. Aukið hefur verið út alls 6-4-5-3-2-1-1 sinnum á ermum = 33-29-33-29-27-26-26 lykkjur á hvorri ermi og 58-59-63-64-65-69-70 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 182-176-192-186-184-190-192 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 2 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, * prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2: Prjónið yfir allar lykkjur án þess að auka út – munið eftir röndum. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 7-11-11-14-16-18-20 sinnum (= 14-22-22-28-32-36-40 umferðir prjónaðar). Það hefur verið aukið út alls 13-15-16-17-18-19-21 sinnum á ermum og 7-11-11-14-16-18-20 sinnum á framstykki/bakstykki = 47-51-55-57-59-62-66 lykkjur á hvorri ermi og 72-81-85-92-97-105-110 lykkjur á framstykki/bakstykki = 238-264-280-298-312-334-352 lykkjur. Ermin mælist ca 13-15-16-17-18-19-21 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 19-21-23-24-25-26-28 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Stillið af að stykkið skiptist ekki þegar prjónuð er rönd í litnum Garðpartý – þá verða e.t.v. prjónaðar 2 umferðir með litnum Garðpartý til loka án útaukninga áður en stykkinu er skipt. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 72-81-85-92-97-105-110 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 47-51-55-57-59-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 72-81-85-92-97-105-110 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 47-51-55-57-59-62-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 156-174-186-200-214-234-248 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið rendur eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-50-51-53-55 cm, mælt frá þar uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 4, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 30-32-34-36-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 186-206-220-236-254-278-296 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8-8 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 51-53-55-57-59-61-63 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan og 53-55-57-59-61-63-65 cm frá efst á öxl. ERMAR: Setjið 47-51-55-57-59-62-66 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 53-57-63-65-69-74-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið rendur eins og áður í hring, passið uppá að rendurnar haldi áfram frá berustykki yfir í ermina eins og á fram- og bakstykki – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 10-10-6-6-5-3-2½ cm millibili alls 2-3-5-5-6-8-10 sinnum = 49-51-53-55-57-58-60 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 35-33-32-32-30-29-28 frá skiptingunni. Prjónið síðan sléttprjón í litnum Ljós Grár án þess að gera rendur þar til stykkið mælist 37-35-34-34-32-31-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 9-9-9-9-11-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 58-60-62-64-68-70-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-7-8-8-8 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-41-41-40-39-38 cm frá skiptingunni og 57-57-57-58-58-58-59 cm frá kanti þar sem lykkjurnar voru prjónaðar upp í toppi á ermi. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og 1 þráð DROPS Fiesta í litnum Ljós Grár og 1 þráð DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 74-80-80-86-88-90-94 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 4-4-4½-4½-5-5-5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frostedrainbowsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.