Conny skrifaði:
Hallo, ich habe 128 Maschen auf den Nadeln und beginne mit der Passe. Ich muss 8x zunehmen und jeweils 8 Maschen. Ich komme hier nicht auf 174 Maschen. Können Sie mir das bitte erklären? Danke und Gruss Conny
22.09.2026 - 15:27DROPS Design svaraði:
Liebe Conny, wenn Sie dann 128 Maschen haben, haben Sie schon 4 Mals für den Raglan zugenommen, jetzte nehmen Sie noch 4 weitere Mal und gleichzeitig nehmen Sie wie gezeigt in A.3, A.4 und A.5 = 128 + 3 Maschen in A.3 + 8 Maschen in A.4 + 3 Maschen in A.5 + (Raglan: 8 Maschen x 4) = 174 Maschen. Viel Spaß beim Stricken!
23.09.2026 - 08:10
Gunta skrifaði:
I don’t quite understand the beginning of the double neck. It says, “knit up 1 stitch in each stitch around the neckline = 96.” I don’t understand where the 96 stitches come from if 72 stitches were cast on initially.
19.09.2026 - 09:43DROPS Design svaraði:
Hi Gunta, You can knit up 2 stitches in every 14th stitch around the neckline. These extra stitches prevent the neck being tight. Regards, Drops Team.
20.09.2026 - 07:48
Klaudia skrifaði:
Dzień dobry, wykonuję sweter w rozmiarze S. Jestem na etapie przerabiania karczu, wykonałam już 6-krotnie dodanie oczek na reglan i jestem na 4 rzędzie schematów A.3, A.4 oraz A.5 jednak mimo dwukrotnego wykonania wciąż na tym etapie wychodzi mi 156 oczek zamiast 158 według wzoru. Upewniłam się już, że dodałam oczka ze schematów
17.09.2026 - 12:11DROPS Design svaraði:
Witaj Klaudio, gdzieś mi umknęła Twoja wiadomość. Mi też wychodzi 156 oczek po przerobieniu rzędu 4 schematów. Zgłoszę korektę. Aktualizacja: korekta została wprowadzona. Pozdrawiamy!
16.10.2026 - 08:58
Storyline Sweater#storylinesweater |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-19 |
|||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: ATH: Á framstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar jafnóðum inn í mynstur þar til A.1 til A.5 hefur verið prjónað til loka, síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. Á ermum og bakstykki eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. FRÁ RÖNGU: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. FRÁ RÉTTU: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka á hringprjóna með útaukningu fyrir laskalínu – jafnframt því sem lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli í hvorri hlið á stykki þar til hálsmálið hefur verið formað til loka. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Hálsmálið er brotið saman tvöfalt að röngu og saumað niður. HÁLSMÁL: Fitjið upp 72-72-72-76-76-80-84 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Nepal eða DROPS Alaska. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar 2 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 2 lykkjur (= vinstri hlið í hálsmáli að framan), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-22-22-24-26 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 28 lykkjur í öllum stærðum (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 20-20-20-22-22-24-26 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, það eru 2 lykkjur eftir á eftir síðasta merki (= hægri hlið í hálsmáli að framan). Að auki er sett 1 merki fyrir miðju í umferð (= miðja að aftan), þetta merki verður að hafa annan lit en 4 laskamerkin og merkið er notað til að mæla frá. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið fram og til baka eins og útskýrt er hér að neðan - JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, aukið út fyrir LASKALÍNA og prjónið MYNSTUR - lesið útskýringu að ofan með leiðbeiningum til að auka út og leiðbeiningum til að prjóna mynstur. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið A.1 yfir fyrstu lykkjuna, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir í umferð jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri), prjónið A.2 yfir síðustu lykkjuna, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 82-82-82-86-86-90-94 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 4 lykkjurnar - Munið að mynsturteikningin er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA), prjónið A.1 yfir síðustu 2 lykkjurnar, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 84-84-84-88-88-92-96 lykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið A.1 yfir fyrstu 4 lykkjurnar, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri), prjónið A.2 yfir síðustu 4 lykkjurnar, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 94-94-94-98-98-102-106 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 7 lykkjurnar, prjónið brugðið þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (uppslátturinn er prjónaður eins og áður), prjónið A.1 yfir síðustu 5 lykkjurnar, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 96-96-96-100-100-104-108 lykkjur. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið A.1 yfir fyrstu 7 lykkjurnar, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri), prjónið A.2 yfir síðustu 7 lykkjurnar, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 107-107-107-111-111-115-119 lykkjur. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið A.2 yfir fyrstu 11 lykkjurnar, prjónið brugðið þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð (uppslátturinn er prjónaður eins og áður), prjónið A.1 yfir síðustu 8 lykkjurnar, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 110-110-110-114-114-118-122 lykkjur. UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið A.1 yfir fyrstu 11 lykkjurnar, prjónið slétt þar til 11 lykkjur eru eftir í umferð jafnframt því sem aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri), prjónið A.2 yfir síðustu 11 lykkjurnar, fitjið síðan upp 10 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 128-128-128-132-132-136-140 lykkjur. EFTIR UMFERÐ 7: Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út alls 4 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Klippið þráðinn. Stykkið er síðan prjónað í hring frá miðju að aftan, færið því lykkjurnar á vinstri prjóni yfir á hægri prjón fram að merki fyrir miðju að aftan (lykkjurnar eru ekki prjónaðar, heldur færðar til). BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn frá miðju að aftan, en yfir 34 lykkjurnar á framstykki er prjónað mynstur þannig: Prjónið A.3, A.4, A.5 – JAFNFRAMT er haldið áfram að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 8-6-8-7-19-13-15 sinnum (= meðtaldar 4 útaukningar sem gerðar voru í hálsmáli) = 174-156-174-168-266-222-242 lykkjur. ATH: Þegar A.3 til A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.6 yfir A.3, A.7 yfir A.4 og A.8 yfir A.5, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni eins og áður. A.6 til A.8 er endurtekið á hæðina. Munið að fylgja prjónfestunni. Haldið síðan áfram að auka út þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykki og bakstykki eins og áður, en á ermum er nú aðeins aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptist 8 og 4 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu þar til aukið hefur verið út 16-20-20-24-12-22-22 sinnum á framstykki/bakstykki og 8-10-10-12-6-11-11 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 270-278-294-314-338-354-374 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-22-23-26-26-29-31 cm frá merki við miðju að aftan. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokin, aukið hefur verið út alls 24-26-28-31-31-35-37 sinnum á framstykki/bakstykki og 16-16-18-19-25-24-26 sinnum á ermum. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 39-41-43-46-50-54-58 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 50-50-54-58-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður yfir næstu 92-96-100-106-114-122-130 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 50-50-54-58-62-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið sléttprjón yfir síðustu 39-41-43-46-50-54-58 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 186-202-214-230-250-270-290 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á fram- og bakstykki (= fyrir miðju í 8-12-14-16-18-20-22 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður þar til stykkið mælist ca 46-48-50-51-52-54-55 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff þannig: Prjónið sléttprjón fram að byrjun á A.6, prjónið A.9 yfir lykkjur í A.6, prjónið A.10 yfir lykkjur í A.7, prjónið A.11 yfir lykkjur í A.8, prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) yfir þær 140-156-168-184-204-224-244 lykkjur sem eftir eru jafnframt því sem aukið er út um 14-14-18-18-22-26-30 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 204-220-236-252-276-300-324 lykkjur – stroffið gengur upp alla leiðina hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið og passa vel yfir mynstrið fyrir miðju að framan. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 51-53-55-56-58-60-61 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 50-50-54-58-62-62-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-12-14-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-68-74-80-82-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 1-2-2-2-2-2-2 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur með 5-5-7-5-4-4-3 cm millibili 2-2-4-6-8-8-9 sinnum = 52-54-56-58-60-62-64 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-37-37-35-35-33-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-10-12-10-12-10-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 64-64-68-68-72-72-76 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-43-41-42-40-39 cm frá skiptingunni. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu fyrir miðju að aftan og prjónið upp ca 1 lykkju í hverja lykkju í kringum hálsmálið = ca 96-96-96-100-100-104-108 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út jafnt yfir til 108-108-108-112-112-116-120 – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið), en passið uppá að 2 lykkjur slétt frá kanti í hálsmáli passi yfir 2 lykkjur slétt frá laskalínu. Prjónið þar til stroffið mælist 9-9-9-10-10-11-11 cm. Notið hringprjón 4,5 og fellið af aðeins laust. Brjótið niður stroffið að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #storylinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.